Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 11.03.1911, Blaðsíða 3

Reykjavík - 11.03.1911, Blaðsíða 3
REYKJAVIK 43 1B. Sparkvcrja-vísa. Sprikla smáir Sparkverjar, spyrna í þráir Bjössarar, nudda fláir Nesarar,1) nú er báglegt stjórnarfar. 16. Doktor Forni. Aldrai kveið ég ósigri, oft þó seið ég magnaði, en að greiða atkvæði er mér neyð og kvalrseði. 17. Skottnlækna-málið. B. Kr. hilt miklar varnarrœdur fyrir skottulcekningum »g trúarlœkningum. „ Vog- Bjarni" veitti Btrni harda atlögw. Skottu-brallsins veik er vörn, Vogí karl er snjallur, liggur fallinn Banka-Björn, brotinn skallinn allur. E. 18. Medan málaleitun Skúla til heimastjórn- at-manna um stuðning var ósvarað, var þetta kveðið: Tiðin líður dauf og dimm, draga þeir alt á langinn; enn eru dagar eftir fimm, eg er skolli banginn, að ég fái aldrei neitt i svanginn. 19. Dragsúgs-vísa nr. 4. {Þá er dr. J. Þ. var kosinn i rotiu- nefndiná). Til að deyfa dragsúgs-þraut, dugir kann-ske’ eg reyni rottu-eitur út i graut austan frá Dvergasteini. 20. Vog-skáldið sér vatt á burt úr vistinni hjá Fúla, býst ei við að borða þurt í buxna-vasa Skúla. 21. Um plus og minus prédikaði preatur státinn, milli plns og minus var hann, magra frœgð af hólmi bar hann. 1) Dregið af Hannes. □þrottamótið 1911. (Niðurl.). Kúluvnrp. Kúlan á að vera úr málmi, óhol og vega 7V4 kílógr. Sá, sem varp- ar, stendur á svæði afmörkuðu á tjóra vegu með trjeræmum 2,50 m. á lengd. Eru þær fastar í jörðu. Hægrihandarvarp: 1. Menn standa rjettir út við trjeræmuna og snúa bakinu í öfuga átt við kaststefnuna. 2. Menn taka kúluna í hægri hönd. 3. Hægri hendi er haldið jafnhátt öxlinni; handleggurinn kreptur, lóf- inn snýr upp. 4. Vinstri fótur 30— 50 cm. framar en hægri. 5- Hægri öxl er sveigð aftur á við. 6. Vinstri handlegg er haldið beint upp. 7. Menn lyfta vinstri fæti og standa i jafnvægi á hægri, 8. hoppa áfram á hægri fæti 1 m. af öllu afli. 9. Um leið og stokkið er, snúa menn sjer V4 úr hring til hægri. 10. Stíga vinstri fæti niður n.ogvarpa kúlunni af öllum mætti fram og upp á við. Reiptog. 1. í hvorum hóp sjeu jafnmargir menn, vanalega 8. Eigi baðir að vera jafnþungir, skal vega mennina rjett áður en kappleikurinn hefst. 2. Reipið skal vera 100 millimeter að gildleik. Á því mega eigi vera hnútar nje aðrar ójöfnur, er að hand- festi megi verða. Reipið skal vera svo langt að hverjum manni sje ætlað 1,25 m. og sje þó 3,5 m. af- gangs af hvórum enda. (Sjeu þátt- takendur 16 verður reipið að vera 30,5 m.). A miðju reipinu skal vera glögt mark, og tvö önnur út frá því l. 75 meter til hvorrar hliðar. 3. Svæðið verður að vera lárjett og sljett. Á miðju svæðinu er rekinn niður hæll og út frá honum, 1,75 m. til hvorrar hliðar, tvær merki- stikur. Fremstu menn flokkanna standi fyrir utan þessar stengur. 4. Þegar byrjað, er skal reipið vera strengt og miðjan á því yfir mið- hælnum. Engin keppinauta má vera i skóm með göddum eða öðru slíku neðan í sólunum. Holur fyrir fæturna má heldur ekki gera áður en byrjað er. 5. Keppinautar taka til ettir skipun. Sá flokkur vinnur, sem togar hliðarmark mótstöðu- flokksins yfir merkistöng hans. Auk þeirra íþrótta, sem nú hafa verið taldar, verða lyftingar, hjól- reidar, knattleikur (fótknöttur), leik- fimi, grísk-rómversk og íslensk glírna. í báðum glímunum verður keppend- unum skift niður í flokka eftir þyngd. Auk þess verður, í íslensku glímunni, glímd fegurðarglíma án flokkaskift- ingar. Á þann hátt verður kept um, hver sje besti glímumaður íslands. Það eru vinsamleg tilmæli vor, að önnur blöð vildu gera oss þann greiða, að taka þetta upp. Framkvœmdarnefndin. Eftirmæli. Þann 11. nóv. f. á. andaðist ekkjan Kristín Þórarinsdóttir að heira- ili sínu Kirkjubólsseli í Stöðvarfirði, á 96. aldursári. Hún var fædd 29. apríl 1815 á Dísastöð- um í Breiðdal. Foreldrar hennar voru Þórarinn bóndi Grunnlaugsson og Guðlaug Runólfsdóttir. Bróðir átti hún engan, en systur 6, og var hún elzt þeirra. Hún var fríð sýnutn, hörundsbjört og svarthærð, á yngri árum, beinvaxin og í meðallagi á hæð. Árið 1835 giftist hún Þórði Árnasyni, Steingrímssonar bónda og Lísibetar Bersa- dóttur, er bjuggu á Núpi á Berufjarðar- strönd. Þórður sál. Ijezt á Hvttasunnudag árið 1904, 93 ára gamall, höfðu þau þá lifað saman i hjónabandi 69 ár. Búskap byrjuðu þau í Bakkagerði í Stöðvarfirði sama ár og þau giftust, og bjnggu þar 8 ár; síðan fluttu þau að Hval- nesi í sömu sveit og bjuggu þar góðu búi í 22 ár. Á Þverhamn í Breiðdal bjuggu þau 1 ár. Þaðan fluttu þau að Kirkjubóls- seli i Stöðvarfirði, sem þau þá keyptu; þar bjuggu þau síðan milli 20 og 30 ár, eða þar til þau fyrir ellisakir ljetu af búsijórn, og einkasonur þeirra, er Þórarinn heitir, tók við búsforráðum, ásamt konu hans. KrÍBtin sál. var snyrtileg og látprúð í allri framkomu, búsjslukona mikil, reglusöm og stjórnsöm á heimili, enda voru þau hjón vel við efni allan sinn búskap. Síðustu 14 árin sem hún lifði var hún í rúminu, sökum þess að annar fóturinn krepptist um hnjeð; að öðru leyti voru likamskraftar hennar óskertir, og vann hún því um nokkur ár ýmsa handavinnu. Sálar- kröftum sínum hjelt hún óskertum, var glöð í anda við alla sem við hana töluðu, og fylgdist með í öllu, sem við bar, utan húss og innan. Sjón, heyrn, mál og rænu liafði hún fram að andlátinu. Um langan tima gegndi hún Ijósmóður- störfum hjer í sveitinni og heppnaðist það jafnan vel. Á búskaparárum sínum fóstruðu þau hjón upp 4 umkomulaus börn, sem öll urðu dugandi menn. Þau voru vel látin af sveitungum sínum, og þótti gott að leita til þeirra, er eitthvað li við. Sem dæmi upp á framkomu þeirra við sveitunga sina, vil jeg birta hjer brot úr ljóðabrjefi frá einum nábúa þeirra, sökum þess að þar kemur fram dómur eins af sam- tíðarmönnum þeirra, sem nú er fyrir löngu látinn. Kvæðið er ort um 1840. Til hans talar maðurinn á þessa leið : Þjer jeg þakka, þundur stakka — þar um flakka minnið fer — greiða fína gjafir þínar, greitt er sýna vannstu mjer. Um hana kemst skáldið svo að orði : 1. Áfram líður auðarhliðin fríða svo sem blíðust Bumartið, sú er pryði mest hjá lýð. 2. Ertu hrundin afbragð sprunda flestra lifsins stundin ljenast hjer löng i mundu þar fyrir. Jarðarför hennar fór fram 21. nóv. fylgdu margir henni til grafar. Bæjarstjórn Reykjavíkur. Fundnr 16. febr. 1. Felldur úrskurður um bæjarsjóðs- reikninginn 1909. Tillögur til úrskurðar frá fjárhagsnefndinni voru allar Bamþykktar, eins og þeim hafði verið útbýtt, ásamt at- hugasemdum og svörum. Þó var út af 14. gr. samþykkt svohljóðandi umboð : „Bæjarstjórnm ákveður, að gefa borgar- stjóra umboð til þess að ná inn öllum ó- loknum holræsa-tillögum með málsókn, að svo miklu leyti sem hann telur ekki málsókn tilgangslausa vegna fátæktar gjaldenda eða af öðrum ástæðum". 34 »Hverjir búa i húsinu aðrir en ungfrú Darling?« »Hún býr þar ein með þjónustustúlku sinni«. »Hvarf þar nokkuð fleira en skjalið og skrautgripirnir?« »Það veit jeg ekkert um. Jeg veit ekki annað en það, sem hún sagði mjer. Jeg kem beint þaðan núna. Hún er víst töluvert út undir sig«. Leynilögreglumaðurinn stóð upp. »Jæja, við skulum nú sjá. Jeg skal skreppa út í hús þetta, undir eins og jeg hefi tíma til þess. Ef til vill hittumst við þar aftur«. »Já — jú, jeg skal koma þangað. Þakka yður fyrir 1« Og svo fór hann. Þegar þjónninn hafði hleypt greifanum út, kom hann inn aftur til þess að tilkynna nýja heimsókn. Það var ein- hver maður, sem neitaði að segja þjóninum nafn sitt. »Spyrjið hann, hvað hann vilji mjer«, mælti leynilög- reglumaðurinn. En þá heyrðist svarað með hásri röddu i dyrunum : »Það skal jeg sjálfur segja herra greifanum«. Það var þessi ókunni maður, er nú hafði komið inn óboðinn. Leynilögreglumaðurinn virti hann fyrir sjer — og þekkti þegar að þetta var alkunnur þorpari, sem Hiles hjet. Hann var ákaflega æstur og dauðadrukkinn. »Farið þjer burtu«, mælti leynilögreglumaðurinn við þjóninn. Þjónninn fór. »Hvað viljið þjer mjer? Segið það fljótt 1« 31 að geta sigrazt á meiri örðugleikum en það — og gera það lika, sem betur fer. Jeg var svo heppinn að rekast á rjetta, nýja þjóninn, þennan Perkins. Hann þorði ekki að segja mjer neitt — var svo hræddur um, að hann færi þá á mis við einhver laun, sem honum hötðu verið heitin. Jeg gat heldur ekki fengið af mjer, að vera að leiða hann í freistni. Jeg skildi það þegar, að konur hlytu að vera með í leiknum. Konurnar gera mest að þvi, að múta náunganum, en þær hafa líka minnst tyrir því, að afla sjer peninganna. Jeg sleppti honum þess vegna. Jeg hugsaði mjer, að reyna fyrst »adressuna« á blaði því, sem var utan um einn skrautgripinn yðar«. »Blaði —?« »Já«. Hann tók gamlan umbúðapappir úr vasa sínum. »Þetta blað var vafið utan um einn skrautgripinn yðar, og á því er firmanafn sætindasalans, sem er hjerna í húsinu. Hafið þjer þegar gleymt því, frú mín góð?« Já, því hafði hún alveg gleymt. En nú mundi hún það. Þær höfðu farið þangað inn, vinkonurnar, og keypt sjer kökur og . - . . »Og verið svo nýtnar, að nota umbúðapappírinn!« »En allur hinn pappirinn utan um hina bögglana?* spurði frú Majendie gröm i geði. »— Var ekki frá sætindasalanum, frú, en hefði ef til vill getað gefið upplýsingar, ef gamla máltækið hefði mót venju reynst óábyggilegt: »Sækja konur þangað, sem sætindin erU««. Svo hneigði hann sig kurteislega fyrir hvorutveggja hjón- unum, og ljet þau ein um að jafna sig.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.