Reykjavík - 10.06.1911, Blaðsíða 2
94
REYKJAVIK
Leikhúsið.
Þessa viku heflr að eins einn leikur
verið leikinn, en hann heflr verið leik-
inn í 5 kvöld, og allt af fyrir fullu
húsi, þar af eitt kvöld ókeypis fyrir
börn, og var það falleg hugulsemi af
leikendunum.
Leikur sá, sem leikinn hefir verið,
er „Elverhoj11, eftir J. L. Heiberg.
Danir skemmta sjer ætíð vel við
leik þennan, enda er hann danskur í
húð og hár.
íslendingar, sem haía sjeð leikinn
ytra, vissu hvað hjer var í boði, og
gerðu sjer þess vegna ekki miklar
vonir.
En fjöldinn allur, sem aldrei hefir
sjeð hann, en að eins heyrt gum Dana
af leiknum, vonuðust hjer auðvitað
eftir góðri skemmtun, en — því meiri
urðu vonbrigðin.
Efni leiksins er þetta:
Erik Walkendorff, bóndi á Hojstrup,
heflr fyrir bænastað Kristjáns IV.,
Danakonungs, tekið til fósturs foreldra-
laust ungbarn, Elisabeth Munk, og
hefir konungur látið festa dýrindis-
gullhring við háls barnsins með keðju.
Kona Walkendorffs týnir barninu á
einhvern hátt, en um það, á hvern
hátt það hefir atvikazt, þegir leikurinn.
Um sama leyti kemur Walkendorff
heim úr ferð til útlanda, og hefir með
sjer ungbarn eitt, bróðurdóttur sína,
sem líka heitir Elisabeth. Kemur þeim
hjónum þá saman um, að leyna barns-
hvarfinu, og láta þetta barn koma í
staðinn. En kona ein, Karen á Trygge-
vælde, finnur týnda barnið úti hjá Álf-
hól; hyggur það vera álfabarn, en hefir
það þó heim með sjer, nefnir það Agnete,
eftir barni, sem hún er nýbúin að
missa, og elur það upp sem dóttur sína.
Þegar leikurinn hefst, eru stúlkur
þessar báðar gjafvaxta orðnar, og báðar
trúlofaðar á laun, Elisabeth trúlofuð
Ponl Flemming, einum af hirðmönn-
um konungsins, en Agnete Albert
Ebbesen, konunglegum ljensmanni á
Tryggevælde. Konungurinn veit ekk-
ert um trúlofanir þessar, en hann
ætlar að sjá fósturdóttur sinni, Elisa-
beth, fyrir gjaforði, og hefir ákveðið
að gifta hana ljensmanni sínum, Ebbe-
sen. Brúðkaupið á að fara fram að
heimili brúðurinnar kvöld það, er leik-
urinn gerist. Konungurinn er kominn
út á Tryggevælde til Ebbesens. Hann
ætlar ekki að verða í brúðkaupinu,
heldur ætlar hann að senda hirðmann
sinn, Flemming, í sinn stað.
Þegar Ebbesen er farinn af stað til
brúðkaupsins, verður Agnete háifsturluð
af örvæntingu, og játar móður sinni
ást sína á Ebbesen. En Karen gamla
segir henni þá eins og er, að hún sje
ekki móðir hennar, heldur sje hún
álfamær, sem hún hafi fundið úti hjá
Álfhól, þegar hún var barn, og svo
alið upp sem dóttur sína; hún hafi
aldrei verið skírð, og sje því heiðingi.
Og svo segir hún Agnete, hvað hún
skuli gera: Hún skuli fara út að Álf-
hói, ná í hringinn góða, sem þar sje
grafinn í jörð á tilteknum stað; kalla
síðan fram álfakónginn, og rjetta hon-
um hringinn. Ef álfakóngurinn taki
við hringnum, þá verði hún að veia
með álfum upp frá því, en taki hann
ekki við honum, þá skuli hún kasta
hringnum í álfakónginn, og sje hún
þá laus allra mála við álfana.
Agnete kemst svo út að Álfhól og
nær í hringinn, en í sama bili kem-
ur Kristján konungur þar að. Hann
hafði um kvöldið brugðið sjer þangað
á dýraveiðar með mönnum sínum.
Hann sjer hringinn á hendi stúlkunn-
ar og þekkir hann undir eins. Vill
hann fá að vita, hvernig á því standi,
að hún hafi hring þennan, og segir
hún honum þá upp sögu þá, er Karen
hafði sagt henni. Skilur þá konungur,
hvernig í öllu liggur, og að þetta er
Elisabeta Munk. Tekur hann hana
þegar með sjer, og hraðar ferð sinni
sem mest hann má til Hojstrup. Þeg-
ar þangað kemur er allt að komast í
uppnám, því að brúðhjónin vilja alls
ekki eigast, og Ebbesen segir konungi
hreinskilnislega, að hann skuli aldrei
giftast Elisabet. En konungur sver og
sárt við leggur, að hann skuli ganga
að eiga Elisabeth Munk, eins og ákveð-
ið hafi verið. Og því næst leiðir liann
fram Agnete, og segir, að hjer sje hin
rjetta Elisabeth Munk og sýnir hring-
inn til sannindamerkis. Walkendorff
verður að meðganga, að Elisabeth
fósturdóttur sín, sje ekki sú hin sama,
sem konungur hafi fengið sjer til fóst-
urs. — Svo endar alt eins og í sögu
Ebbesen fær gömlu unnustuna sína,
Agnete, þ. e. hina rjettu Elisabeth
Munk, og Flemming ■ fær sína gömlu
unnustu, Elisabeth Walkendorff.
Þetta er efni leiksins, og sjá allir,
að vel þarf að fara með það, ef nokk-
uð á úr því að verða. Inn í þetta
er að vísu fljettað ýmsri hjátrú og
fieiru, og dansar og söngvar eiga að
gera leikinnn fjörugri. Tvær skemti-
legar persónur eru og í leiknum, sem
ekki koma efninu við. Það eru Mogens
veiðimaður og Bjern Olufson, ráðs-
maður á Hojstrup.
Leikendurnir Ijeku margir mjög vel.
Boesen Ijek Kristján IV. prýðilega, og
gerfið var ágætt. Frú Boesen ijek
Karen gömlu listavel. Carla Múller
Ijek Elisabeth (fósturdóttur Walken-
dorffs) mjög vei og náttúrlega, og
Carl Grooth ljek bæði Mogens og Björn
einstaklega skemmtilega. Anna Alger
Ijek og Agnete mjög laglega og með
köflum rjett vel. Allar aðrar persón-
ur miður leiknar.
Kórsöngvarnir voru afleitir. Hefði
sjálfsagt verið innan handar að fá
betri söngflokk, ef reynt hefði verið,
og gengur ósvífni næst, að bjóða
mönnum siíkan söng. Sumum kór-
söngunum var auk þess alveg sleppt
úr leiknum. Og óviðfelldið er það,
að heyra kvennmannsraddir í veiði-
mannasöngnum.
Dansarnir, sem eiga að vera eitt
aðalatriði leiksins, voru og hreinasta
ómynd — nutu sín ekki vegna þrengsla
á leiksviðinu.
Leiktjöldin eiga og að gera mikið
til þess, að gera" leik þennan hugð-
næman, en þau voru alls ekki góð —
öli upplituð og ónáttúrleg, og svo lítil,
að leiksviðið hjer hefði þolað þau
hálfu stærri, og hefir það þó ekki
stærðinni fyrir að fara.
Hljóðfæraflokkurinn var furðu góður.
Listavinur.
Hvað er ad frjetta?
Prófastur í Mýraprófastsdæmi er síra
Magnús Andrjesson á Gilsbakka skipaður
22. þ. m.
Laus embætti, sem konungur veitir:
2 prófessorsembætti við guðfræðisdeild
háskólans,
3 prófessorsembætti við lagadeild há-
skólans,
2 prófessorsembætti við læknadeild há-
skólans,
prófessorsembættið í heimspeki við há-
skólann,
prófessorsembættið í íslenzkri málfræði og
menningarsögu við háskólann.
Byrjunarlaun allra þessara embætta eru
3000 kr., en launin hækka á hverjum þriggja
ára fresti um 200 kr. á ári, upp í 4800 kr.
Auglýst laus 8. júní 1911.
Umsóknarfrestur til 10. ág. 1911.
Laus embcetti, sem ráðherra veitir:
Dócentsembættið við guðfræðisdeild há-
skólans,
Dócdntsemdættið í íslenzkri sagnfræði við
háskóiann.
Árslaun 2800 kr.
Auglýst laus 8. júní.
Umsóknarfrestur til 10. ág. 1911.
Háskólinn verður stofnaður á laugar-
daginn kemur, á aldar-afmæli Jóns Sig.
urðssonar. En til þess. að það gæti
orðið, varð ráðherra að setja xnenn til bráða-
birgða í öll embætti við háskólann. Þessir
hafa því 8. þ. m. verið
SkipaOir prófessora** °0 dócentar
wið háskólann frá þessum tíma til 30.
september í haust (án sjerstakra launa):
Prófessor við guðfræðisdeildina
Jón Helgason lector.
Prófessor við sömu deild H a r a 1 d u r
Níelsson.
Dócent við sömu deild Eíríkur Briem.
Prófessor við lagadeildina Lárus
H. Bjarnason.
Prófessor við sömu deild Einar Arn-
ó r s s o n.
Prófessor við sömu deild Jón Kristj-
á n s a o n.
Prófessor við 1 æk nad e i 1 d i n a G u ð m.
Björnsson landlæknir.
Reykjavik Teater.
(Det, danske Skuespillerselskab).
Sondag 8/o Kl. 8lh for sidste Gang:
Elverhej.
Tirsdag u/« Kl. 81 /v: En Forbryder.
Skuespil i 5 Akter af Sven Lange.
Prófessor við sömu deild Guðmundur
Magnússon lækni.
Prófessor íísl. málfræði og menn-
ingarsögu Björn M. Olsen prófessor.
Prófessor í heimspeki Ágúst Bjarna-
s o n mag.
Dócent við heimspekisdeildina
(ísl. saga) Hannes Þorsteinsson alþm.
Háskóla-skipulag. í dag hafa há-
skólakennararnir kosið fyrir Rector Magni-
flcus (forseta háskólans) próf. B. M. Olsen.
Deildirnar hafa og kosið sér forstjóra
(Decanos).
Decanus lögfræðideildarinnar er próf.
Lárus Ii. Bjarnason; læknisfræðideildar-
innar próf. Guðm. Magnússon; guðfræði-
deildarinnar próf. Ján Helgason; heim-
spekideildarinnar próf. Agúst Bjarnason.
lltflutt smjör árið 1910.
Árið 1910 hafa verið flutt út tæp 300,000
pd. alls af smjöri frá smjörbúunum.
Eftirfarandi skýrsla sýnir hvað smjörið
var mikið frá hverju einstöku búi, og upp-
hæð smjörstyrksins, er nam alls 14 þús. kr.
Nöfn smjörbúanna Smjör Verðlaun
pd. kr. a.
1. Apár, (Arn.) . . 6963 325 86
2. Arnarbælis, ,(Árn.) . 20396 954 29
3. Arlæltjar, (Arn.) . . Baugstaða, (Arn.) 14366 671 81
4. 22834 1068 57
5. Birtingaholts, (Árn.). 7370 344 90
6. Deildár, (Skaftaf.). . 10941 512 02
7. Fljótshliðar, (Rangv.) 14964 700 27
8. Fnjóskdæla, (Þing.). 2736 128 05
9. Fossvallalækj., (Árn.) 7670 358 94
10. Fram, (Skagaf.) . . 993 46 47
11. Framnes, (Arn.) . . 9791 458 14
12. Framtíðin, (Skagaf.). 6189 289 63
13. Geirsár, (Borgf.) . . 5424 253 82
14. Guftiár, (Mýra). . . 2613 122 29
15. 16. Hjalia, (Árn.) . • • Hofsár. (Rangv.). . 8501 9914 397 463 83 97
17. Hróarslækjar. (Arn.) 21235 993 72
18. Hvítárvalla, (Borg.) . 5270 246 62
19. Kálfár, (Árn.) . . . 6681 312 66
20. Kerlækjar, (Snæf.) . 1431 66 98
21. Kjósarmanna, (Kjós.) 6357 297 48
2 2. Landmanna, (Rangv.) 8128 380 36
23. Laxár, 610 28 55
24. Laxárbakka, (Borg.). 6872 321 61
25. L.jósvetninga, (Þing.) 3834 179 42
26. Möðruvalla, (Eyjaf.) . Rangár, (Rangv.). . 3634 ,170 07
27. 22660 1060 40
28. Rauðalækj., (Rangv.). 22058 1032 25
29. Reykdæla, (Þing.) 3732 174 66
30. Torfastaða, (Árn.) 14743 689 94
31. Yxnalækjar, (Arn.) . Þverár, (Eyjaf.) . . 8853 414 30
32. 2197 102 70
33. Þykkvabæj-, (Rangv.) 9219 431 42
Samtals. 299169 14000 00
Alt smjörið seldist fyrir meir en 80 au. pd.
[Eftir ,,Frey“].
Daglegar líkamsæjingar
eftir Olav Schrnder er bók, sem allir þurfa
að eignast. Af henni getur hver maður
lært tilsagnariaust allar þspr likamsæfingar,
sem hverjum manni eru nauðsynlegar til
viðhalds heilsunni. Allar hreyfingar akýrð-
ar með ágætum myndum. Hún fæst hjá
öllum bóksölum, og kostar í bandi að eins
1 krónu.
K. A. Knudsen, leikfimisumsjónarmaður
i Kaupmannahöfn, segir meðal annars um
bók þessa:
„Þetta . . . heldur vefunum mjúkum, það
er að segja, líkaminn varðveitir eðlilegan
mjúkleik sinn, er ber vott um góða heiísu,
að sínu leyti eins og stirðleiki sá, sem mörg-
um eykst um of með aldrinum, ber vott
um veiklun og hnignun. Ef líkaminn er
látinn stirðna um skör fram fyrir tímann,
þá stafar það af samskonar vanrækslu, eins
og þegar vjel er látin liggja i hirðuleysi og
ryðga. Stirður líkami og ryðguð vjel vinna
bæði jafn illa. og baka eiganda sínum óþarfa
amstur. — Æfingarnar i kveri þessu eru
einhverjar hinar beztu, sem kostur er á.
Jeg veit það af reynslunni. að ef menn að
eins vilja eyða til þess fáeinum minútum
kvölds eða morgna, eða þegar menn þreyttir
eftir vinnuþurfaað teygja úr sjer, þá munu
þessar æfingar hressa menn og styrkja og
veita þá vellíðan, sem margborgar fyrir-
höfnina11.
Til bökunar.
Florians ekta búðingsduft 10 aura.
Florians eggjaduft, jafngildir 6 eggjum, 10 aura.
Vanille bökunarduft 4 og 8 aura.
Venjulegt bökunarduft 4 og 8 aura.
í/í pd. Sukkade fyrir 18 aura.
Bezta Vanilla í stöngum 10 og 15 aura,
Kirseberja, Sítrónu, Vanillu, Hindberja Karde-
mommu og Möndl-udropar frá 15 aurum.
Byrgðir af allskonar kryddi.
Lyftiduft, Vanillusykur o. s. frv., o. s. Irv.
fæst bezt og ódýrast í
Sápuhúsinu ogr Sápubúdinni
Austnrstræti 17, Laugaveg 40.
lllllll.................. I ....i ir