Reykjavík - 20.07.1912, Síða 1
I
1Re^k] avtk.
XIII., 29
Lau^ardag' 30. .Jiilí 1913
XIII., 39
Ritstj.: Björn Pálsson
cand. jur.
Talsimi 34. Miðstræti 10.
Heima daglega kl. 4—5.
Ráðherraskijti.
Kristján Jónsson ráðherra hefir skýrt
þingmönnum frá því, að hann muni
segja af sér einhvern næstu daga.
Talið er víst að við taki H. Hafstein,
bankastjóri, fyrrum ráðherra.
Alþingi sett.
Mánudaginn 15. júlí var alþingi sett.
Á undan þingsetningunni fór fram
guðsþjónusta í dómkirkjunni og pré-
dikaði séra Magnús Andrésson. Að
henni lokinni söfnuðust þingmenn
saman í fundasal neðri deildar. Ráð-
herra mintist hins látna konungs og
hlýddu þingmenn standandi á mál
hans. Því næst las ráðherra upp 2
konungsbréf, annað er stefndi alþingi
saman og hitt er fól ráðherra að setja
þingið fyrir konungs hönd. Yar í því
vikið að komu konungs hingað til lands
siðar, en ekkert var minst á stjórnar-
skrána í hvorugu bréfinu.
Að því búnu setti ráðherra þingið
og gekk þá aldursforseti Júlíus fyrrum
amtmaður Havsteen til forsetastóls.
Kvaddi hann til skrifara séra Sigurð
Stefánsson og Jón bæjarfógeta Magn-
usson.
Tveir þingmenn voru ókomnir til
þings, Jón frá Múla og séra Einar
Jónsson.
Prófun kjörbréfa.
Því næst fór fram prófun kjörbréfa.
<Grengu þá þingmenn í 3 deildir og var
ekkert athugavert við kjörbréf 2. og 3.
deildar. En kærur höfðu komið fram
yfir tveimur kosningum í 1. deild.
Önnur kæran var úr Barðastrandar-
sýslu og var kært yfir því, að um-
búðir um atkvæðakassana frá undir-
kjörstjórnuuum í Rauðasands-, Barða-
strandar- og Flateyjar-hreppum hefðu
■eigi verið sem tryggilegastar. Deildin
sem þetta kjörbréf hafði til meðferðar
(2. deild) lagði þó til að kosningin væri
samþykt, enda hafði meiri hluti þing-
mannsins við kosninguna verið svo
mikill, að hann hefði verið í meiri
hluta enda þótt þau 112 atkvæði er
greidd voru í þessum 3 hreppum hefðu
verið dregin frá atkvæðatölu hans.
Hin kosningin. sem kært var yfir,
var kosningin úr Vestur-ísafjarðarsýslu,
«g lagði meiri hluti kjördeildarinnar til
að samþykt kosningarinnar yrði frestað
•og málinu vísað til kjörbréfanefndar.
Höfðu kærur komið fram bæði frá séra
Kristni Daníelssyni, sem var þing-
unannsefni þar við síðustu kosningar,
og frá 172 kjósendum í kjördæminu
(276 greiddu þar atkvæði síðast).
Bygðust kærurnar á því að kjörstjórnin
eða meiri hluti hennar, hafði ógilt all-
marga atkvæðaseðla séra Kristins af
því þeir voru tvíbrotnir saman. Ber
kjörstjórnin fyrir sig 35. gr. kosn.l.
Um kosningu þessa urðu langar og
allheitar umræður.
Guðl. Guðmundsson reifaði málið sem
framsögum. deildarinnar. Björn Jóns-
son taldi kosrúngu þessa þá gallamestu
sem dæmi væru til. Taldi það hlægi-
legt „pedanteri" að ógilda seðil þó hann
væri tvíbrotinn saman, og kvað enga
heimild til slíks í 35. gr. kosn.l., er
að eins væri til leiðbeiningar. Fór
hörðum orðum um framkomu Matt-
híasar Ólafssonar í þessu máli, sem
setið hefði í kjörstjórninni, og með
atkvæði sínu ógilt seðla keppinauts
síns og úrskurðað sjálfan sig á þing
á þann hátt. Vildi láta lögbanna það
að þingmannaefni sætu í kjörstjórnum.
Ætlaði að endingu að segja sögu, er
gerst hefði á flokksfundi heimastjórnar-
manna kvöldið áður, en þá greip for-
seti fram í og taldi það ekki koma
málinu við. Urðu allmiklar hnipp-
ingar á milli þeirra, og voru báðir
reiðir. „Hvar er nú bræðingurinn?"
sögðu áheyrendur. — Endaði stappið
á þann hátt, að Björn þagnaði, en bar
áður fram 2 tillögur, aðra þess efnis
að þingið ógilti kosningu Matthíasar
og tæki séra Kristinn gildan sem þing-
mann, og hina á þá leið, til vara, að
þingið ógilti kosninguna og stofnað
yrði til nýrra kosninga.
Nú tóku ýmsir til máls. Jón Ól. og
Guðl. vildu láta samþykkja kosninguna
strax, og töldu kjörstjórnina hafa lög
fyrir sér. Matthías varði framkomu
sína í kjörstjórninni. Kvað það hafa
verið samþ, af kjörstjórn í upphafi, að
svona brotnir seðlar yrðu ekki teknir
gildir. Gæti því enginn borið sér á brýn
hlutdrægni, þar eð ekki hefði þá verið
hægt að segja hvort þingmannsefnanna
fengi fleiri af slíkum seðlum. — Séra
Jens og Björn Kristjánsson vildu hins
vegar ógilda kosninguna.
Að lokum var samþykt með 23 atkv.
að fresta samþykt kosningarinnar og
vísa málinu til kjörbréfanefndar.
Þá unnu 5 nýir þingmenn eið að
stjórnarskránni, þeir Jón Jónatansson,
Halldór Steinsson, Jón sagnfræðingur,
Sig. Eggerz og Tryggvi Bjarnason.
Matthías var eigi látinn vinna eið að
svo stöddu.
Forseti Jcosinn.
Síðan var kosinn forseti sameinaðs
þings: Hannes Hafstein með
25 atkv. Eir. Briem fókk 3. 9 seðlar
auðir.
Varaforseti kosinn Eir. Briem
með 22 atkv. Auðir seðlar 13 og 1
ógildur.
Skrifarar koshir Sigurður Stef-
ánsson með 24 atkv. Jóh. Jóh. með
21 atkv. Auðir 8 seðlar. Jón sagnfr.
fékk 5 atkv., aðrir færri.
í kjörbréfanefnd voru kosnir með
hlutfallskosninguJón Magnússon,
Björn Jónsson, Guðjón Guðlaugsson,
Guðlaugur Guðmundsson og séra Jens
Pálsson.
23 kusu lista heimastj.manna, 12
lista sjálfst.manna, 1 seðili auður.
Kosið til efri deildar.
Þá voru valdir óbundnum kosning-
um 8 þjóðkjörnir þingmenn til efri
deildar. Þessir fóru þangað :
Séra Jens Pálsson með 32 atkv.
Jósef Björnsson með 32 atkv.
Þórarinn Jónsson með 32 atkv.
Séra Einar Jónsson með 32 atkv.
Séra Sig. Stefánsson með 31 atkv.
Guðjón Guðlaugsson með 30 atkv.
Sigurður Eggerz með 27 atkv.
Jón Jónatansson með 21 atkv.
Björn Jónsson fékk 7 atkv., nokkrir
aðrir 1—2 hver.
Deildirnar koma sér fyrir.
Þegar hér var komið, gengu efrideildar
menn til sinna salakynna, en aldurs-
forseti í n. d., séra Magnús Andrésson,
gekk til forsetastóls og stýrði kosningu
forseta. Var hann sjálfur kosinn með
18 atkv., Jón Magn. fékk 1 atkv., 5
seðlar auðir. Þakkaði forseti sér sýnt
traust. 1. varaforseti Guðl. Guðmunds-
son með 16 atkv. og 2. varaforseti
Pétur Jónsson með 15 atkv. Skrifarar
kosnir séraEggertPálsson og Jón dósent
Jónsson. Ekki voru hafðar hlutfalls-
kosningar um skrifaraembættin svo sem
verið hefir á undanförnum þingum.
Síðan voru lesnar tiikynningar um
hver frumv. yrðu lögð fyrir deildina
og fundi slitið.
Efri deild.
í efri deild var kjörinn forseti Júlíus
amtm. Havsteen með 11 atkv. > Sig.
Eggerz fékk 1 atkv. 1. varaforseti
Stefán Stefánsson með 8 atkv. og
2. varaforseti séra Jens Pálsson með
9 atkv. Skrifarar Steingr. Jónsson
með 10 atkv. og séra Björn Þorláks-
son með 9 atkv. Meira ekki gjört þar.
Fundir 16. jiilí.
Þann dag haldnir örstuttir fundir
og lögð fram 15 stjórnarfrv., 8 í efri
deild og 7 í neðri deild. Eru þau
frumv. talin upp í næst siðasta blaði.
Hvíld til fimtudags.
Fundir 18. júlí.
Sameinað þing. Þar rannsak-
að kjörbréf séra E. J. 2. þm. N.-Múlas.
og ekkert fundið við það að athuga.
Kosningin tekin gild.
N e ð r i d e i 1 d. Þar var til 1. umr.
einkasala á steinolíu, og sett nefnd í
málið. í nefndina kosnir hlutfalls-
kosningu (þrír listar): H. H., P. J.,
L. H. B., E. P., Y. G., B. Kr., og
B. J. frá Vogi. Næsta frv. var um
tóbaksskýrslur, líka til 1. umr., og í
það sett nefnd með hlutfallskosningu:
Guðl., Halld. St., Þorl. í Hólum, St. St.
og Jóh. Jóh. Síðustu tveim málum d.skr.
vísað til fyrri nefndarinnar, það voru
frumvörpin um tolllagaviðauka og út-
flutningsgjöld. Um hið síðarnefnda,
sem sumir eru farnir að kalla áhuga-
tollinn, urðu nokkrar umræður. Þótti
Guðl., þm. Ak., sem mál það væri svo
óbrotið að ekki væri ástæða til að
nefnd fjallaði um það. Móti mæltu og
með nefnd: L. H. B. og V. G., er töldu
varhugavert að samþ. frumvarpið.
E f r i d e i 1 d. Þar kosnar nefndir.
Fjárkláðanefnd : Guðjón, Þór. Jónss.,
Jósef, S. Eggerz, St. skólastj.
Bólusetningarnefnd: Sig. Stef., Bj.
Þorl., Steingr., Guðjón og Þórarinn.
Til þessarar nefndar var vísað yfirsetu-
kvennalögunum og yfirsetukvennaskóla.
Fundir 19. jxdí.
N e ð r i d e i 1 d. 1. mál var frv.
til laga um breyting þingtímans, og
var því vísað til 2. umr.
2. mál var um ritsíma- og talsíma-
kerfi.
Ráðherra gat þess, að rétt áður
en hann hefði farið frá K.höfn hefðu for-
sætisráðh. og samgöngumálaráðh. Dana
beðið sig að koma á fund til sín. Var
erindi þeirra að tjá honum, að þeir
teldu með þessu frv. gengið inn á sam-
málasvið landanna. Ennfr. að Breta-
stjórn hefði ritað þeim um málið og
tilkynt, að meðan hún ætti hlut að
máli um sæsímann, mundi hún ekki
veita samþ. til þess að loftskeytastöð
væri sett í Rvík, sem tæki til útlanda.
Ráðh. kvaðst hafa lofað að leggja til
við Alþingi að þetta ákvæði frv. yrði
felt burtu.
Málinu því næst vísað til 2. umr.
og 5 manna nefndar, er kosin var ó-
bundnum kosningum. E. J., Rangv.,
Halld. St., Jóh. Jóh., J. Magn. og St.
St. Eyf., með hlutkesti milli hans og
Sig. Sig.
3. mál um kaup á Vestm.eyja-sím-
anum og var því vísað til 2. umr. og
símanefndar. Þeir Jón Ól., J. Magn.
og B. Kr. mæltu á móti að síminn
yrði keyptur. Ráðh. frumvarpinu auð-
vitað meðmæltur.
Efri deild. Þarnefndarkosningar.
Siglingalaganefnd: E. Br., Flygenring,
Sig. Stef., S. Eggerz og séra Jens. Til
þeirrar nefndar var vísað frv. um ör-
yggi skipa og báta, eftirliti með þil-
skipum og breyting á gildandi vátrygg-
ingarlögum fyrir sjómenn.
jslani i erleninm blSðnm.
„Gad’s danske Magasin“.
í Júní-heftinu ritar hr. J. C. Chris-
tensen grein um Friðrik konung átt-
unda.
Meðal annars minnist hann þar á
afskifti konungsins á íslandsmálum, og
segir hann þar meðal annars um sam-
bandsmálið:
„í því máli brugðust konungi eínn-
ig vonír sínar, og féll honum það
þungt. Hann hafði hlakkað svo til að
gera íslendinga ánægða, og hafði vonað
að það mundi takast. Hann talaði
oft um það bæði áður en hann fór
til íslands og eins eftir að hann kom
heim úr þeirri ferð. Meðan hann dvaldi
á íslandi gekk öll viðleitni hans í þessa
átt. Hann gerði sér ef til vill helzt
of mikið far um að þóknast íslend-
ingum. Að minsta kosti hygg ég að
íslendingar hafi skilið hann svo, að
þeir þyrftu ekki annað en að gera
kröfur. Konnngurinn mundi standa
þeirra megin. Það var eitt af lund-
erniseinkennum konungs, að hann
langaði til að gera öðrum mönnum
gleði, svo að hann gæti glaðst með
þeim og þeir með honum. Hann
langaði svo óendanlega mikið til að
játa eftir þjóðinni, sem hann átti yfir
að ráða, og það gladdi hann nærri því
eius og barn, þegar hann varð þess
var, að alþýða skildi hann og mat