Reykjavík - 20.07.1912, Síða 3
REYKJAVÍK
115
SANNFÆRANDI
Engin rök fyrir
ágæti Sunlight-
sápunnar geta verið
meira sannfærandi
en þaÖ, að reyna sápuna sjálfa.
SUNLIGHT SÁPA
2236
Frá útlöndum.
„Titanic“-slysið. Rannsóknum á
Englándi út af því mikla slysi er nú
lokið; öll vitni heyrð, sem leiða á.
Rannsóknin heflr staðið yfir í 36 daga,
98 vitni hafa verið spuið yfir 25f600
spurninga. Saksóknari hins opinbera
hélt ræðu áður upp var sagt. Taldi
hann það hafa komið fram við rann-
sóknina, að ekki hefði skipið átt að
gjöra hraðari ferð yfir hafið, en ný-
tízkuskip gjöra. Hann átaldi skipstjóra
fyrii að hafa ekki gætt nægrar varkárni
kvöldið sem slysið bar að. Taldi hann
einkum tvær ástæður til slyssins, að
ekki hefðu verið hafðir nægilega margir
á verði í framstafni skipsins, og að ekki
hefði verið dregið úr ferð skipsins, þrátt
fyrir aðvaranir um ís.
Mikið þótti honum um hve vel og
drengilega bæði skipshöfn og farþegar
hefðu hagað sér. Gat þess að enginn
af vélamönnum skipsins hefði komizt
af, heldur hefðu þeir' beðið dauðans
niðrí skipinu. Hann kvað það hafa
sézt í blöðunum að farþegum á 3. far-
rými hefði verið meinað að komast í
bátana. Það væri tilhæfulaust, að því
er vitnin hefðu borið.
Miklum ámælnm sætti Lord skip-
stjóri á „Californian “. Það væri nú
Ijóst orðið, að það skip hefði ekki verið
lengra frá „Titanic“ en svo, að ef það
hefði brugðið við undir eins og skips-
menn hefðu séð neyðarmerkin, þá hefði
að líkindum mátt bjarga nær öllum
mönnum af „Titanic". Kvað það dæma-
fátt athugaleysi og skeytingaleysi af
skipsmönnum, að hafa séð merkin frá
„Titanic", en láta sér ekki detta í hug
að þar væri skip í nauðum statt. Sama
ætti við um skipstjórann, sem sagt
hafði verið frá merkjunum, en ekkert
aðhafst. Þetta væri því undarlegra,
sem sjómenn teldu það heilaga skyldu
sína að koma mönnum til hjálpar í
sjávarháska.
Saksóknari kvað dóminn geta gefið
mörg ráð og bendingar um, hvað gjöra
ætti til þess að sjóferðir yrðu sem
hættuminstar, en það kvað hann ekki
standa í mannanna valdi að varna því
að slys kæmu fyrir á sjónum. Hitt
ætti aftur á móti að verða árangur
þessarar rannsóknar, að ekkert skip
tefldi á tvær hættur, eins og ætla
mætti að gjört hefði verið í þessari
ferð, þegar líkindi væru til, þótt lítil
væru, að hætta væri fram undan.
Lómari sá, er hlýtt hefir á vitna-
leiðsluna, kvað von á áliti sínu svo
fljótt sem auðið er. Hann heitir Lord
Mersey.
Bretland og Canada. Um þessar
mundir eru staddir í Lundúnum sjö
ráðherrar Canadastjórnar, og forsætis-
ráðherra Borden einn af þeim. Eins
og kunnugt er orðið urðu stjórnar-
skifti í Canada síðastliðið haust, lét þá
Laurier, foringi frjálslynda flokksins,
af völdum, hafði hann verið stjórnar-
formaður um nærfelt 20 ár. Hann
þótti vilja eíla sjálfræði Canada sem
mest, en auðvitað taka fullkomið tillit
til alveldisins brezka. Einkum vildi
hann að Canada hefði óskorað vald yfir
herskipaflota þeim, er landið léti byggja.
Hann ætlaðist til að flotinn kæmi
Bretum til hjálpar ef þeir ættu í ófriði
við aðrar þjóðir, en þá samkvæmt
fyrirmælum Canadastjórnar.
Þegar íhaldsmenn komu til valda,
varð það eitt af þeirra fyrstu verkum
að koma nýju skipulagi á flotamálin.
Hafa þau mál verið í undirbúningi í
vetnr, og nú eru ráðherrarnir komnir
til Lundúna að semja við Bretastjórn
um fast skipulag þeirra. Það er einkum
þrent sem Borden viil fá framgengt.
Að Canada látj nú þegar byggja 2—3
bryndreka mikla, fyrir 20—30 milj.
dollara, handa Englandi. Að komið
verði á föstu skipulagi um það hversu
skuli framvegis háttað framlögum Can-
ada til sjóvarna Bretaveldis, og fá um
það mál atkvæðagreiðslu Canadabúa.
Að Canada fái hlutdeild í ráðaneytum
alveldisins. Ennfremur vill Borden að
floti beggja landanna sé á ófriðartím-
um undir einni og sömu stjórn, og skip
Canada séu óaðskiljanlegur hluti flota
alríkisins.
Englendingar eru, sem að líkindum
lætur, harla glaðir yfir þessari stefnu-
breytingu, og keppast um að fagna
Borden og ráðherrum hans sem bezt.
Hitt er óséð, hvernig Canadamenn
muni taka í málið. Þar hefir hin
síðari ár brytt á talsverðum sérstæðis-
hug; þeir farnir að finna til sín sem
sérstakrar þjóðar.
Kastast í kekki milli verkamanna
og stjórnarflokksins. í brezka þing-
inu hefir flokkur verkamanna og frjáls-
lyndi flokkurinn gengið saman tíl kosn-
inga og veitt hvor öðrum lið í þinginu.
Nýlega er látinn einn af þingskörung-
um verkamanna, sá hét Enoch Edwards.
Þegar kjósa átti mann í hans stað, buðu
frjálslyndir menn og verkamenn fram
innlendar og útlendar.
BÆKUR ==----------------
- Pappir og Ritföng. — Watermans-sjálfblekunga.
Þetta kaupa allir í
)
Bókaverzlun §igíúsar Eymiindssonar )
Lækjargöta 3. .j
sinn hvorn manninn; auk þess höfðu
íhaldsmenn þingmannsefniíkjöri. Reidd-
ust verkamenn þessu tiltæki frjálslynda ,
flokksins, þar sem þeir töldu sér kjör-
dæmið. Líberalar sögðu verkamenn
hafa komið að þingmanni síðast fyrir
sinn atbeina, og að nú vildu þeir
koma þar að sínum eigin manni.
Verkamenn firtust af þessu og buðu
fram mann í öðru kjördæmi, sem auka-
kosning átti að fara fram, í móti þeim
líberölu. Enn hafa þeir í hótunum, að
kalla burt alla sína menn af þingi um
stund, en þá yrði stjórninni hætt.
Koncert
á morgun, þ. 21. Júlí kl. 8V2 síðd.
í Bárubúð.
Koncertsangerinde
Fru Johanne Sæmundsen
með aðstoð
Fru ValDorg Einarsson & Hr. P. BeroOiirg.
Aðgöngumiðar á Kr. 1,25 og 1,00
fást í ísafold í dag, og á morgun í
Bárubúð frá.kl. 10—12 og 2—4, einnig
við innganginn.
Sjá götuauglýsingarnar.
Forsetaefni serveldismanna.
Kosningin í V.-ísafjarðarsýslu
metin gild.
Svo sem kunnugt er orðið af sím-
skeytum til blaðsins var Woodrow
Wilson tilnefndur snemma í þessum
mánuði til að vera forsetaefni demo-
krata eða sérveldismanna við Banda-
ríkja-kosningarnar í haust. Á tilnefn-
ingarfundinum varð mikil rimma milli
hinna frjálslyndari og íhaldssömu
manna flokksins og báru þeir frjáls-
lyndari sigur úr býtum. Til atkvæða
var gengið 46 sinnum áður Dr. Wil-
son var kosinn, en við hverja at-
kvæðagreiðslu óx fylgi hans Til vara-
forseta með W. W. er tilnefndur
Marshall, rikisstjóri í Indíana. [Með
Taft, er Shermann, sá er nú er vara-
forseti, auðvalds-höfðingi mikill].
Dr. Wilson er fæddur í ríkinu Vir-
ginia og ólst upp í Suðurríkjunum.
Hann lagði fyrst stund á lögvísi og
tók próí í þeirri grein. Síðan fór hann
að gefa sig allan við stjórnvísi og
sagnfræði, varð siðan kennari við
Princeton-háskóla, og loks forstjóri
hans 1902. Hann hefir ritað ýmislegt
um stjórnmál, en hafði engan- þátt
tekið í stjórnarbaráttunni fyr eh fyrir
2 árum að hann var kosinn ríkisstjóri
í New* Jersey. Þótti hann sýna það í
þeirri kosningu, að hann væri vel til
foringja fallinn, bæði fyrir mælsku
sakir og vitsmuna. Þótti því undir
eins líklegt að hann muDdi tilnefndur
forsetaefni síns flokks 1912.
Mikil líkindi eru til, að Dr. Wilson
verði kosinn í haust. Demokratar hafa
hin síðari ár verið stöðugt að eflast,
og síðastl. haust fengu þeir yfirhönd-
ina í fuiltrúadeild þingsins í Washing-
ton. Republikanar eru aítur á móti
sundraðir, og ekki líklegt, að um heilt
grói með þeim til haustsins.
Það þykir og sýnt, að tilnefning Dr.
Wilsons spilli mjög fyrir Roosevelt.
Hann getur nú ekki búist við að fá
nema sárfá atkvæði til þess að gjöra
frá demokrötum, en það hefði hann
fengið ef tilnefnt hefði verið ihalds-
samt forsetaefni.
19 atkv. meö, 14 móti, þrír greiddu
ekki atkvaiði.
Kjörbréfanefnd klofnaði í tvent, um
hvort meta skyldi kosningu Matthíasar
Ólafssonar þm. V.-ísafj.s. giida. Meiri
hlutinn (Guðl. G., Jón Magn. og Guð-
jón) taldi úrskurð yfirkjörstjórnar um
ógildingu fleirbrotnu seðlanna réttan
og í samræmi við 35 gr. kosninga-
laganna. Þar stæði tvímælaJaust, að
brjóta ætti kjörseðil einu sinni saman
en ekki oftar. Ef þessi úrskurður yrði
ógiltur, mundi það leiða til þess, áð
ákvæði kosn.l. um samanbrot seðlanna
yrði sem óskrifað og ætti þá á sama
að standa hvernig þeim væri vöðlað
ofan í kassana. Slíkt mundi valda
hinum mesta glundroða. Lagði til að
kosningin yrði metin gild.
Minni hlutinn (Jens Pálss. og Björn
Jónss.) hélt því fram, að 35. gr. kosn-
ingal. gæti ekki verið skilyrðislaust
bjóðandi, né bannandi að brugðið væri
út af ákvæðum hennar. Greinin væri
leiðbeinandi (instruktiv). Taldi seðlana
góða og gilda og óréttmætt, að ógilda
þá samkv. 35. gr. fyrir þá sök, að þeir
væri tvíbrotnir, það væri andstætt anda
og tilgaugi þeirrar greinar, sem og
kostningalaganna allra. í 38. gr. og
39. gr. laganna væru taldar tæmandi
ógildingarástæður kjörseðla, en þar
væri tvíbrot ekki nefnt. Vildi því láta
ónýta kosninguna og stofna til nýrra
kosninga.
Simskeyti hafði þinginu borist frá 9
kjósendum í V.-ísafj.s. Sögðust þeir
hafa meir en einbrotið seðla sina.
Kröfðust þess, að Alþingi tæki þá seðla
gilda.
Fundur var í Samein. þingi um
þetta mál i gær kl. 5. Urðu allheitar
umræður um það og langar. Loks
var gengið til atkvæða og viðhaft nafna-
kall. Þessir þingmenn vildu meta
kosninguna gilda :
Eggert Pálsson, Einar Jónsson 2.
þm. Rapgv., Einar Jónsson 2. þm.
N.-M., Eiríkur Briem, Guðjón Guðlaugs-
son, Guðl. Guðmundsson, Halldór
Steinsson, Jóhannes Jóhannesson, Jón
Jónsson, Jón Magnússon, Jón Ólafsson,
Júlíus Havsteen, Lárus H. Bjarnason,
Pétur Jónsson, Sigurður Eggerz, Stef-
án Stefánsson 1. þm. Eyf., Steingrím-
ur Jónsson, Tryggvi Bjarnason, Þórar-
inn Jónsson.
Móti greiddu atkvæði:
Benedikt Sveinsson, Bjarni Jónsson,