Reykjavík - 03.08.1912, Blaðsíða 4
124
REYKJAVIK
Oifrasta Hmnli I
Það vita nú flestir að er
Verzluniu „Víkingur", taugaveg 5.
N Ý K O M I Ð í ofanálag á hinar stóru birgðir, mjög mikið af :
Yindlam — Vindlingnm — Reyktóbak — Hunntóbak — Rjól B-B.
SÆLGÆTI og ýmsu góðu i NESTI i ferðalög. — Ennfremur ógrynni af
Pós tkortum.
Carl Lárusson.
reyndust svo vel sem bannvinir hefðu
gjört sér vonir um. Ef hún fengi
ekki að skera úr, héldu deilurnar
áfram í landinu.
Bar því upp svohljóðandi rökstudda
dagskrá:
„Deildin telur rétt, að aðflutnings-
bannslögin verði eigi úr lógum numin,
án uyidangenginnar atkvæðagreiðslu
þjóðarinnar. En þar sem reynsla er
ekki komin á bannlógin, télur deildin
tiUógu þá, sem fyrir liggur, of snemma
borna fram, og tekur því fyrir næsta
mál á dagskrá*.
Var hún samþ. með 7 atkv. gegn 3.
I>essir voru meö: Björn Þorl., Stef.
St., Jens Pálss., Sig. Eggerz, Jón Jóna-
tansson, Þórarinn Jónss., Jósef Bjömss.
jjapauskeisari iátinn.
Símað hefir verið til blaðsins að
Mutsuhito keisari í Japan sé andaður.
Það er ekki of mikið sagt, þó um
hann séu höfð þau orð, að þar sé hnig-
inn til moldar sá er mestur var stjóm-
vitringur allra núlifandi þjóðhöfðingja
og er enda vafamál hvort hann hefir
átt sinn líka á síðari öldum.
Hugurinn hvarflar til sögu Japana.
í fornöld réð þjóðhöfðingi þar ríkjum,
sá nefndist Mikado. Japansbúar tign-
uðu hann sem guð og var mikil helgi
á honum, kom hann því lítt meðal
manna. Þegar ófrið eða uppreisn bar
að höndum varð hann að fela öðrum
herstjórn á hendur. Varð það til þess
að yfirhershöfðinginn fékk smátt og
smátt alla stjóm landsins í sínar hend-
ur. Hann nefndist Shogun. Á mið-
öldunum og fram á miðja 19. öld
voru því tveir höfðingjar yfir landinu,
hafði Shoguninn öll völd. Varð oft
ófriðarsamt í landinu, því ríkustu ætt-
imar börðust um Shoguntignina. Sho-
gunamir áttu sammerkt í því vel
flestir, að þeim var illa við komur
Evrópumanna til landsins. Það mátti
heita lokað land fyrir þeim, þótt koma
mættu þeir í einstöku borgir.
Mutsuhito er fæddur 1852 og tók
við Míkadotign eftir föður sinn 1867.
Voru þá ýmsir góðir menn þar í landi,
sem áhuga höfðu á að fá stjómarfyrir-
komulaginu breytt og var Mikadoinn
•inn þeirra. Steypti hann árinu eftir
Shoguninum frá völdum, og tók þau
sjálfur. Fluttist hann nú til Yedo þar
sem Shogunamir höfðu setið, skírði
borgina um og kallaði Tokio. Sneri
hann sér að því að breyta stjóm lands-
ins og koma á þingbundinni konungs-
stjóm, naut þar við ágætra ráðgjafa.
Evrópumönnum var leyft að setjast að
í landinu og tóku Japanar að semja
sig að háttum þeirra. Má óhætt full-
yrða að landið hafi tekið jafnmiklum
framförum á 40—50 árum eins og Norð-
urálfan á 1000 árum. Er uppgangur
Japana hin síðari árin í fersku minni,
og varþað að miklu að þakka keisaranum.
Þingmannafrumvörp.
Þeirra hefir verið getið hér í blaðinu
9 að tölu. Hér koma nokkur í viðbót.
Frumvörp um verzlunarlóðir.
Frv. til laga um löggilding Verzlunar-
staðar í Gjögri í Strandasýslu. Guðjón
Guðlaugsson flytur það.
Frv. til laga um sölu á nokkrum hluta
af kaupstaðarstæöi HafnarQarðar og af
öðru Iandi Garðakirkju. Björn Krist-
jánsson flytur.
Frv. til laga um stækkun verzlunar-
lóðarinnar í Norðfirði. Flm. Jón Ól.
Um stækkun verzlunarlóðarinnar á
Flateyri við Önundarfjörð. Flm. Matt-
hias Ólafsson.
Skipun læknishéraða.
Guðjón Guðlaugsson flytur frv. um að
Staðarhreppur í Húnavatnssýslu, Bæjar-
hreppur og Óspakseyrarhreppur að
Snartartungu i Strandasýslu skuli verða
gjört að sérstöku læknishéraði.
Halldór Steinsson vill láta gjöra
Hnappadalssýslu og syðsta hrepp Snæ-
fellsnessýslu að sérstöku læknishéraði.
Bjarni Jónsson frá Vogi flytur frv. um
að láta skifta Dalasýslu í tvö læknis-
héruð.
í efri deild ber séra Einar Jónsson
fram frv. um að gjöra Borgarfjarðar-
hrepp í Norður-Múlasýslu að sérstöku
læknishcraði.
Þingmenn Rangæinga vilja stofna sér-
stakt læknishérað er nefnist Eyjafjalla-
hérað, á að vera: Austur- og Vestur-
Eyjafjallahreppur og Austur- og Vestur-
Landeyjahreppur og Bakkabæir.
Samþyktafrv.
Frv. til laga um samþykt um veiði í
Drangey. Flm. Ól. Briem.
Frv. til lagu um samþyktir um ófrið-
un og eyðing sels úr veiðiám.
Frv. til laga um samþyktir um mótak.
Bæði þessi frv. flytur Sig. Sig.
Um breyting á lögum um vátrygging
fyrir sjómenn flytja frumvarp þeir Sig.
Sig., H. St. og Sk. Th. Skylt að vátryggja
líf hérlendra sjómanna er stunda fiski-
veiðar viku eða lengur á vélarhátum
eða róðrarbátum.
Matthias Ólafsson flytur lika frumvarp
um líftrygging sjómanna. Allirsjómenn
skulu tryggja líf sitt með 100 krónum
og iðgjaldið fyrst um sinn 10*/®. Eng-
an má skrá á skip, sem ekki hefir gjört
það.
Frv. um árgjald af verzlun og við-
skiffum við útlönd flytja Jens Pálsson,
Sig. Stef. og St. St. Hver sem flytur
vörur til íslands eða frá, skal tilkynna
innan tveggja mánaða frá árslokum,
hvaða vörur hann hefir flutt til lands-
ins eða frá, síðastl. ár. Nánari ákvarð-
anir um hvernig gjaldið skuli greitt.
Frv. um sölu á eggjum eftir þyngd.
Flm. J. Ól.
Frv. til laga um alment verzlunargjald
af útfluttum vörum. Fyrstu 2 greinar
þess hljóða svo:
1. gr. Af hveijum 50 kilogr. eða rainni
þunga af vörum með umbúðum, sem
fluttar eru til landsins, og ekki eru send-
ar í pósti, skal greiða 50 aura verzlun-
argjald í landssjóð. Pegar vara sam-
kvæmt farmskrá eða farmskírleini (co-
nossement) er talin eftir rúmmáli, skal
cfensíar
gódir og ódýrir.
*3es SZimsen.
greiða 30 aura gjald fyrir hvert tenings-
fet. Af kornvörum og kartöflum skal
þó að eins greiða 25 aura af hverjum
50 kilogr., af steinoliu, rúðugleri, sementi
og kalki 10 aura af hverjum 50 kilogr.,
af hverju tonni af kolum 1,00 og af
hverju tonni af salti 50 aura.
Af tigulsteinum, tómum tunnum og
unnustöfum, prentuðum bl öðum og
bókum, áburðarefnum og vörum, sem
sjerstaklega er lagður tollur á, skal þó
ekkert farmgjald greiða.
2. gr. Greiða skal auk venjulegs póst-
burðargjalds gjald í landssjóð af hverj-
um póstböggli, sem kemur til landsins
frá útlöndum sem hér segir:
a. af bögglum sem vega alt að 21/® kg.
10 aura.
b. af bögglum sem vega yfir 21/® kg. að
5 kg. 20 aura.
Gjald þetta greiðir viðtakandi í frí-
merkjum um leið og hann tekur við
bögglinum, og skal pósthúsið, sem af-
hendir viðtakanda böggul, líma þau á
böggulinn sjálfan, og stimpla þau á
venjulegan hátt.
Af póstbögglum, sem eru endursendir
til útlanda, skal ekkert gjald greiða, né
af prentuðum blöðum og bókum.
Um merking á kjöti, Flm. St. St. Eyf.,
Pétur Jónsson og Porl. Jónsson. Ákveð-
in merki, er dýralæknar og læknar, er
til þess eru skipaðir, skuli setja á hæfi-
lega marga staði á hvern kropp. Öll-
um öðrum óheimilt að merkja lcjöt til
útflutnings á sama hátt.
Frv. um varadómara í landsyfirréttin-
um flytur Stgr. Jónsson. — Prófessorar
í lagadeild háskólans sjálfkjörnir vara-
dómarar í landsyfirréttinum eftir hlut-
kesti.
Frv. til laga um breyting á lögum nr.
18, 9. júlí 1909 um styrktarsjóð handa
barnakennurum. — Sjóðurinn fái 2500
kr. styrk úr. landssjóði á ári hverju.
Kennarafélagið kýs þann mann í stjórn
sjóðsins, er stjórnarráðið hefir áður til-
nefnt; Flm. L. H. B., V. G. og Bjarni
Jónsson.
Frv. til laga um breyting á lögum um
stofnun Landsbankans. Jón Ölafsson
vill að útibú frá Landsbankanum verði
sett í Suður-Múlasýslu í stað Seyðisfj.
Frv. til laga um breyting á hafnarlög-
um Reykjavikur flytur Jón Jónsson.
Breytingin samhlj. tillögu þeirri er sam-
þykt var á bæjarstj.fundi 4. júlí.
Nöfn ogf nýjung/ar.
is O0 snjór. óyenjumikill kuldi hefir
verið hér alla þessa viku, í fyrri nótt og
í nótt snjóaði ofan í miðja Esjuna og ofan
í bygð sumstaðar, þótt ekki festi. Á norður-
landi, sérstaklega í Þingeyjarsýslum sum-
staðar, varð fólk að hætta heyskap sökum
snjófalls. Sildveiðaskip segja ishroða að sjá
beggja megin við Grímsey, og inni á Húna-
flða hefir hann líka sézt.
Hafnarverkfrseðingur hefir verið hér
' undanfarna daga, að athuga höfnina, sendur
af félaginu Saaby <Sfc Lercke. Ætlar félagið
að gera tilboð i hafnargerðina.
Fálkinn kom frá Grænlandi í fyrra dag.
Hafði uppi sóttvarnarfána þegar hann kom
á höfnina. Voru þeir hræddir um að tauga-
veiki kynni að vera á skipinu, en það reynd-
ist eigi svo. SæmundurlæknirBjarnhéðins-
son fór um borð að rannsaka það.
Ceres kom vestan af fjörðum á þriðju-
dag. Farþegar Karl og Ólafur Proppé, Magn-
ús Blöndal hreppstjóri í Stykkishólmi o. fl.
Hún hafði numið niðri einhversstaðar á Vest-
fjörðum, en ekki sakað. Var skoðuð hér.
Hún fór til útlanda í gær og með henni
mesti sægur af fólki, mest þó útlendingar
og Ameríkufarar 20—30. ÖU rúm fullskipuð
og meira en það. Meðal farþega: Þrjú syst-
kini, börn Kristjáns Jónssonar fyrv. ráðh.,
Ása, Þórunn og Halldór, séra Ásmundur
Guðmundsson (til Ameríku), B. B. Olson
umboðsmaður Kanadastjórnar, sem hérhefir
verið frá því seint í vetur, Haraldur Sig-
urðsson tannlæknir, Sigfús Blöndahl, André*
Guðmundsson, ungfrú Guðríður Jóhanns-
dóttir o. fl. o. fl. ,
Brúðkaup. Á þriðjudag giftust ung-
frú Elín Stephensen (fyrv. Tandshöfðingja)
og Júlíus Stefáns8on disponent. Var gift í
kirkjunni, en veizla á Hótel Reykjavík. Á
fimtudag voru gefin saman ungfrú B. Láru»-
dóttir (Benediktssonar frá Selárdal) og séra
Magnús Jónsson. Bæði brúðhjónin fóru
héðan með Ceres. Hin fyr töldu til Kaup-
mannahafnar, en hin síðarnefndu til Vestur-
heims.
Austri kom úr hringferð á miðvikudags-
morgun. Með honum: séra Halldór Bjarna-
son, Presthólum, Sig. Sívertsen dósent, Jón
Runólfsson sýsluskrifari frá Eskifirði, alfarin
þaðan (fer til Stykkishólms), Mrs. SoffiaBild-
fell (Winnipeg), frú Elisabet Sigurðardóttir,
Hallormsstað. Austri fór aftur í morgun í
strandferð. Með honum; Lárus Tómasson
bóksali.JJón Scheving, sr. Jón á Stafafelli o. fl.
Bragi kom frá Englandi i fyrradag, með
honum aftur Kr. Jónsson apótekari.
Hjónaefni. Oddur Hermannsson cand.
juris og ungfrú Þóra Magnússon, kjördóttir
Jóns Magnússonar bæjarfógeta. PéturJóns-
son söngvari og ungfrú Ida Marie Köhler,
dóttir Köhlers forstjóra verksmiðjunnar
Frederiksholm Teglværk i Danmörku.
Ingimundur. Af þvi að það hefir stund-
um leikið orð á þvi, að „Reykjavíkur“ Ingi-
mundur væri falsaður, þá skal það tekið
fram, að sá Ingimundur, sem skrifar í blaðið
í dag, er sá eini ekta og ósvikni
Ingimundur, candidatus philosophiae, fyrr-
um starfsmaður við blaðið Ingólf.
2. Ágúst. Ekki varð af þjóðhátiðar-
haldi i ár, enda mesta kuldaveður i gær.
Bankarnir lokaðir, það var næstum að segja
einu hátiðabrigðin.
Taurullur
ágjætar hjá
Jes Zimsen.
Hvaða mótor cr ódýrastur,
beztur og mest notaður
*>
Gideon-mótorinn,
Elnkasftli
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Símnefni: Verzlun.
Yerziun Jóns Zoéga
selur ódýrast neftóbak, munntóbak.
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Talsimi 128. Bankastræti 14.
Hvar á að kaupa
ðl og vín?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Prentsm. Gutenberg