Reykjavík - 05.04.1913, Page 3
REYKJAVÍK
57
SUNLIGHT SOAP
REYNlð SUNLIGHT SÁPUNA.
Ekkert sannfærir mann betur um kosti
Sunlightsápunnar en þaö, aö reyna sáp-
una sjálfa. Sunlight sápan er gjörð
monnum til hjálpar, o enda
hjálpar hún þeim líka svo
um munar. Hún gjörir erfiða
vinnu auðvelda, sparar tíma, og
leysir vinnuna fljótt og vel af
hendi. Sunlight sápan er afkastam-
ikil og sparar yöur peninga, erfiöi
og fatnað. Reynið hana.
Frönsk samtalsbók
eftir IF*ál Porkelsson, er nýkomin út. — Kostar Kr. 8,00.
Fæst hjá öllum bóksölum.
Hvað er það sem svo snertir oss og
hrærir? Ekki inir fjarlægu hnettir.
Ekki sólirnar mörgu og reykistjörn-
urnar, sem loga á himninum, heldur
myndin, þess hátignarfulla og fagra.
Allar þessar tilfinningar vorar, sem
þannig eru snertar að einhverju leyti
hvern dag ævinnar, eru sannar og virki-
legar engu síður en þær sem vekja
meðvitund til hungurs og þorsta. En
ekkert fær vakið þessar hugarhræringar
hjá oss, væri það ekki til fyrir utan
oss, eða móttækileikinn fyrir áhrif-
unum innra fyrir hjá oss. Réttlætið,
sannleikurinn, kærleikurinn, fegurðin,
er vekja þessar tilfinningar í hvers
manns brjósti, eru því til, utan og innan
tilverunnar. En fái þessar tilfinningar
vorar ekki notið sín, er líf vort ein
vansæla, frá vöggunni til grafarinnar.
Sem nákomnast samband við þessi öfl
er vorri andlegu heilbrigði nauðsyn-
legast allra hluta. Trúarkrafan er því
ein sú réttmætasta krafa, sem til er.
Og hún verður manninum ávalt með-
fylgjandi, hve mjög sem þroski manns-
ins vex, því aldrei verður svo langt
komist, að yztum skilningi á réttlæti,
kærleika og sannleika verði náð.
En trúarkröfunni verður ekki full-
nægt með því sem eitt sinni var.
Heimurinn hefir breyzt. Hann er nú
stserri en hann var, aldur hans og ó-
mæli meira en menn höfðu hugsað
sér fyrir tvö þúsund árum. Hann
er gersamlega annars eðlis en menn
höfðu haldið. Fyrir auga vísindamanns-
ins felur hann í sér stærra og meira
líf en fyrir auga villimannsins, er til-
bað jörð og sól og tungl sem lifandi guð.
Búningur fornu trúarbragðanna full-
nægir ekki trúarkröfunni nú. Aðgrein-
ingin gamla í náttúrleg og yfirnáttúr-
leg trúarbrögð er orðin að mótsögn.
Því í raun og veru er alt náttúrlegt,
og guð og öll hans verk náttúrlegust
af öllu. Væri eitthvað til án guðs, þar
sem hans ]ög næði ekki til, en eitt-
hvert annað afl væri þar ráðandi—það
eitt væri yfirnáttúrlegt.
Trú villimannsins, sem býður hon-
um að lúta stokk og steinum; draum-
trú barnsins, sem horfir upp til ský-
janna og blessar og talar til stjarnanna
og tunglsins, sem væri þau lifandi og
líknandi verur; trú Gyðingsins, sem
ávalt snýr ásjónu sinni í áttina til
Jerúsalems-borgar þegar hann ákallar
drottinn, og trú ins kristna manns,
er les „Faðir vor“ með beygðu höfði,
er í sjálfu sér ein og sama trúin. Hún
•r sama leitin, sama skjálíandi höndin
útrétt eftir föðurhendi guðs, sama sam-
bands viðleitni manna að tengjast enn
betur inu eilífa, sanna, fagra og góða
alheimsins. Þær eru ekki falsguðadýrkun
inar lægri trúarathafnir óupplýstuþjóð-
anna. Eða halda menn að til sé falskur
guð, og svo annar hálf-falskur ? Það
er stigsmunur. Það er stigsmunur trúar-
innar eftir því sem þroska mannanna
er háttað.
Trúareiginleikinn hefir ávalt verið
sama eðlis hjá mannkyninu; tilfinning-
arnar, er meðtækilegar hafa verið fyrir
in æðri áhrif, sama eðlis, og trúar-
krafan sama eðlis. Sams konar greinar-
mun og á sér stað milli trúarbragða-
flokka mannkynsins, má finna í sama
trúarfélagi. Sveitamaðurinn skilur opin-
^berun guðs í inni ytri náttúru betur
en borgarmaðurinn; borgarmaðurinn
aftur betur guð í sálu mannsins.
Menningin, mannþekkingin meiri í borg
en bygð.
Sama má segja um aðgreininguna
fornu, í opinberaðan sannleika og ó-
helgan sannleika. Allur sannleikur er
jafnheilagur, og öll rit, er sannleik hafa
að geyma, eru opinberun. Þar sem orð
sannleikans talar, þar talar rödd guðs.
Það er súfullvissa, er trúartilfinningin
veitir. Og trúarkrafan gerir sig ánægða
með það. Hún biður ekki um bóka-
skrá helgra eða óhelgra rit.a. Ekki um
upptalningu þess, hverjir í fornöld hafi
verið sendir og hverjir af lífi teknir
fyrir villitrú. Hún finnur engu meiri
svölun í því að kunna nöfn allra Post-
ulanna og Spámannanna, heldur en að
kunna nöfn allra Alþingismannanna á
íslandi. Það er rétt afstaða, fult sam-
ræmi einstaklingsins við ið eilíf sanna,
sem hún krefst.
Trúarkrafan spyr ekkert að því,hverjir
áttu börnin, sem Jesús blessaði, hvort
það voru börn bersyndugra, Farísea,
presta eða tollheimtumanna. Hún spyr
ekkert eftir broti konunnar, sem Farí-
searnir vildu láta grýta, heldur hvort
að mannúðin ráði í dómum mannanna,
í fullu samræmi við inn eilífa kær-
leika, sem ræður í allri tilverunni.
Hún getur vel tekið undir með ein-
um frægasta háskólakennara Banda-
ríkjanna, sem sagði: „Sá maður er
vel mentaður, er staðist fær eftirfylg-
jandi próf: Getur safnað nýjum þrótt
með því að ganga út í grænan skóg
eða blómaríki náttúrunnar. Getur ávalt
haft fult vald yfir öllum sínum til-
hneigingum. Metur ekkert of smá-
vægilegt til þess að veita því eftir-
tekt. Gengur ekki fram hjá barninu,
er fallið hefir á götunni, heldur reisir
það á fætur. Getur þerrað tár þess
sem grætur. Hefir það við sig, að
ef hundur er hrakinn og einmana á
götunni, og á hvergi hæli, hleypur hann
til hans, eltir hann, fylgir honum eftir
og leitar skjóls hjá honum“. — Hún
getur vel tekið undir með háskóla-
kennaranum og sagt: Sá sem þetta
próf fær staðist, er ekki eingöngu vel
mentaður, heldur líka vel kristinn. Um
aðrar hans Játningar lætur hún sig
litlu varða. Afstaða þessa manns er
sú rétta gagnvart trúarkröfunni, og
samræmi fullkomið við trúarhugsjónina.
Trúarkrafan heimtar styrk, þroska
og fullkomnun þeim sálareigiftleikum
mannsins, er leita út fyrir tilveru hans,
og að samþýða þá og finna þeim stað
innan inna eilífu eiginleika fullkom-
ins réttlætis, sannleika og fegurðar, er
dvelur í og með tilverunni. Leitun
mannsins er öll til guðs, og til baka
frá honum aftur til lífsins, sem vér lif-
um. En á þá leit má ekki leggja
nokkur andleg höft, setja henni fyrir
fornar venjur, staðhæfingar eða setn-
ingar, því án frelsis er engrar full-
komnunar að vænta. Enda eru öll
bönd í þeim efnum ónauðsynleg. Eins
og enginn getur trúað fyrir annan, svo
getur og enginn dæmt um annara
þarfir í trúarefnum. Með því að gera
leitina frjálsa er ekkert að óttast. Út
fyrir guð, út fyrir alveruheildina, getur
enginn vilst, því þangað liggja engar
leiðir. ,Guð er ekki fjarlægur neinum
af oss, því í honum lifum, hrærumst
og erum vér“.
Guð ríkir í sínum helgidóm, og alt
er vel á jörð. Nálægjumst hann sem
frjálsir menn, þá mun hann nálægjast
oss. Og er vér höfum fundið hann,
fundið upptök vonanna veiku og þrótt-
vana, er bærast hjá oss; er vér höfum
fundið upptök ráttlætisins, er með
geislabrotum lýst hefir upp huga vorn;
er vér höfum fundið mynd ins eilíf-
sanna og fullkomna, sem vér höfum
eygt í óljósum fjarska og beygt kné
fyrir, þá er ekkert að óttast. Því það
er ið eilífa lífið, að þekkja þig, einan
sannan guð. Þá getum vér ókvíðnir
mætt öllu, sem að höndum ber, lífinu
með breytingum þess, dauðanum með
burtför hans og svefni, sorg og söknuði.
Þá verður oss heldur ekki svo villu-
gjarnt á vegferð vorri, því þar sem guð
er, þar er bjart, ratfært, vegljóst. Því
guð er ljós, líf og sannleikur.
B æ n.
Algóði og eilífi faðir vor! Blessa þú þennan
samfund vorn hér á þessum degi, börnin þin
öll ung og öldruð, sem hér eru stödd. Blessa
þú tilraunir vorar til að komast nær þér,
vorar útréttu barnahendur eftir þinni föður-
hönd. Blessa vorar veiku tilraunir að skilja
tilgang lífs vors og reyna að fá þvi svo lifað,
að það megi verða oss og öllum mönnum til
sem mestrar blessunar. Þú einn, sem ert
vegurinn, sannleikurinn og lífið, lát oss aldrei
beygja af vegi réttlætisins og kærleikans.
Græð þau sár, sem lífið kann oss að veita, og
þerra þau tár, sem fram í augu vor brjótast
við sársauka vegferðarinnar. Lát oss aldrei
litilsvirða sannleikann, nokkurt brot hans,
því hann er geislabrot þinnar guðlegu opin-
berunar oss til handa. Og nm fram alt, al-
góði faðir vor, lát oss vera í öllu lífi væga
og miskunnsama aumingjanum, sem engan á
að nema þig og sín oigin tár; lát oss blessa
hann og gera honum leiðina glaðari um
heiminn. Blessa þú alla menn, öll þín börn,
þau sem brosa og þau sem gráta, þau sem
hitann og þungann bera dagsins, og þau sem
kuldans kenna og andsvala lifsins. Blessa
þú kirkju þína hér á þessu landi og um allan
heim. Yeit henni að vera það ljós, er ekki
fær hulist, er allir mega óhultir stefna til
úr hafróti lifsins og æstrar og órólegrar sálar,
hvort sem þeir bera með sér misgerðir eða
sátt við lífið, sorg eða gleði, sína nýfæddu
eða önduðu samferðamenn. Og blessa þú
land vort og þjóð. Landið þitt og vort,
landið vort heilaga, vort einasta heilaga land,
hvar um heim sem vér búum, og vertu oss
öllum nálægur með þinnm heilaga frið, héðan
í frá og um al!a tíma. Amen.
27
Kolbeinn er
asni ber,
ef ei vill lán pað skilja.
Þá gat Kolbeinn ekki að sér gert að hlæja, og nú varð
hann að láta undan.
X.
Þrjátíu ár eru liðin frá því Kolbeinn fylgdi dóttur sinni
til strandar, morgun einn um haustið, og leit hana sigla á
brott með skipstjóranum, eiginmanni hennar. »Jóhanna«
hafði fengið fullkomna viðgjörð suður í Danmörku um sumarið,
og skreið nú út á milli eyjanna. Siglutopparnir fágaðir og
nýmálaðir blikuðu við sólu, ný og drifhvít seglin þrútnuðu
af golunni, og flaggið blakti á greipi-ránni. Steinunn stóð á
þilfarinu, og starði á land eins lengi og hún fékk eygt þar
mann háan vexti, sem stóð á landi uppi með krosslagðar
hendur og höfuðið nokkuð lotið. Fjarlægðin milli þeirra óx
æ meir og meir, þangað til þaú hurfu hvort öðru sýnum, þá
gekk hann heim til sin í þungum hugsunum um það, hvað
dapurt yrði nú heima fyrir, og hve undarlegt það væri, að
foreldrarnir yrðu tíðum að láta af hendi sæluljós augna sinna,
rétt þegar þau sýnast ætla að fara að skína skærast og fegurst
fyrir þeim.
Hann leit hvorki dóttur sína eða tengdason upp frá þeim
degi. Þegar skipið kom heim var það látið fara í aðrar ferðir,
og Steinunn fékk aldrei tóm til að bregða sér frá heimilinu,
því börnunum fjölgaði með tímanum svo, að ekki gat komið
til nokkurra mála fyrir hana að vera langvistum að heiman;
og þar við bættist að hún varð oít og einatt að veita heimil-
inu forstöðu einsömul, þegar maður hennar var i siglingum.
En Kolbeinn fékk aftur bréf frá þeim og sannfærðist æ betur