Reykjavík - 24.05.1913, Side 2
84
REYKJAVIK
Bjarni Björnsson.
Iugimundnr hefir tal af honum.
Hinn þjóðfrægi (en því ekki annars ein*
vel negja heimsfrægi — þó það sé hálfu ári
of snemt) leikari Bjarni Björnsson, er fyrir
skemstu kominn aftur til bæjarins eftir að
hafa brugðið sór i ferðalag umhverfis landið,
svo einnig aðrir en Reykjavikurbúar mættu
verða þess aðnjótandi að kynnast hinni
hugðnæmu list hans. Vér rákumst á hann
inni i hinu nýja prýðis útbúna og vistlega
kaffihúsi hr. Þór. B. Guðmundssonar. Hann
sat þar með „Mörk“ fyrir framan sig, og
horfði á Þórarinn B. spila „billiard11 við einn
gentleman bæjarins.
„Velkomnir aftur — herra leikari, vel-
komnir aftur. Dálitið viðtal í blaðið með
yðar leyfi--------fréttir-----“
„. . . . fréttir?“ . . . sagði sá þjóðfrægi og
hniklaði brýrnar.
„Af siálfum yður. Einungis Bjálfum yður
— auðvitað11.
Bryrnar komust i samt lag. „Með ánægju
herra minn, með ánægju . . .“
„Þér þekkið Vestmannaeyjar. Indælt fólk
— sjö kvöld í rennu------altaf fult hús
-----kallaður fram hvað eftir annað og
lófaklapp svo húsið ætlaði að hrynja. Á-
skorun frá 67 kjósendum að bjóða mig
næst fram til þlngs þar og ávarp frá jafn-
mörgum konum, giftum og ógiftum, með
þakklæti fyrir hina óviðjafnanlegu nautn,
sem þær hefðu haft af list minni og með
bón um að setjast að i Eyjunum. Uppbúið
svefnherbergi með útskornu rúmi — engla-
höfuð með vængjum umhverfis, herra minn
og svífandi „amórínur11 — hvítmáluðu þvotta-
borði, dýrindis speglum o. fl., beið mín ef
ég vildi verða. Það var rétt eins og ég
væri orðinn prestur og nýbúinn að fá brauð
i Ameriku. Hrærður inn að instu rótum
hjarta míns sagði ég nei. Ég v a r ð að
fara. A ð r i r landar minir áttu einnig til-
kall til mín og listar minnar. En ógleyman-
legir verða mér æ dagarnir, sem ég dvaldi
meðal þessara listelsku mótorista og koína-
manna-------—“
Hinn frægi leikari horfði fram fyrir sig
með þessum dreymandi yndisþokka, sem
hefir orðið svo hættulegur hinum ungu
meyjum þessa lands.
Það varð þögn í stofunni. Þórarinn B.
drap niður „kjöðanum“ og hin unga laglega
stúlka, sem bar gestum hressingar, horfðí
hugfangin á leikarann.
En snögglega hristi hann þetta af sér, og
hélt áfram máli sínu. Þórarinn B. gerði
„Carólínu" og stúlkan hvarf.
„Vitið þér hvað var fyrsta verk manna
þar sem ég kom? Nei — þér vitið það
auðvitað ekki. Fyrsta verkið var að koma
tll mln með tvo, þrjá helztu mennina á
hverjum stað til þess að láta mig æfa mig
á þeim. Þér skiljið. Svo ég gæti „tekið“
þá. Hermt eftir þeim — you know. Ég
settist bara og lét þá svo „marséra“ fyrir
framan mig, tala og gretta sig og hafa fyrir
mér alla kæki sína og yfir höfuð alt, sem
með nokkru móti gat hugsast að væri hægt
að hlæja að þeim fyrir. Eftir fimm mínút-
ur k u n n i ég þá. Utanbókar herra minn
— utanbókar.-----Ég hefi nú fimm sýslu-
menn, fjórtán presta og sautján hreppstjóra,
sem ég tek alla eins og ekkert------eins
og drekka úr glasinu því arna---------“.
B. B. tók bjórglasið við hliðina á sér og
teigaði það til botns. Svo slengdi hann
fyrirmannlega hendinni og hélt áfram.
„Það er enginn á landinu, enginn i heim-
inum, sem kemst þangað i þcssari list moð
tærnar, sem ég hefi hælana — ég hefi
eiginlega skapað hana. Ég Bjarni Björns-
son. Ekki a p a ð hana — munið það, herra
minn.
„Komuð þér viðar? Á Akureyri t. d. ?“
„Auðvitað. Mjög gott vit á hinni sönnu
list — Akureyrarbúar., Mjög gott. Annars
reyndi nú einn náungi þar að „taka“ mig,
Mig — hugsið þér yður. Hann auglýsti
það með feitu letri í blöðunum og á öllum
götuhornum, leigði dýran sal, grammófón og
kvenmann til að selja bilætin, Seldi ekki
eitt einaBta og gaf sig upp á kontórnum
daginn eftir“.
Sá þjóðfrægi glotti.
„Ég lék þar nokkur kvöld og söng vís-
urnar. Þeim féll „Nikkólína“ bezt i geð
þarna fyrir norðan. En þar leggið þér líka
einna dýpst---------það er ekki allra að
skilja þá vísu, herra minn--------það er
ekki meðfæri annara en þeirra, sem sjálfir
hafa neista af eldinum helga. En hún var
heldur ekki gefin, herra minn. Tíkall er
ekkert smáfé fyrir andans-afurðir á þessu
landi — hr. Ingimundur".
Ég hneygði mig samsinnandi.
„Hvað liggur svo næst fyrir yður.
Amerika kanske ?“
„Films . . . kvikmyndaleikum . . . hefi ég
nú í hyggju að helga krafta mína. Ég hefi
gert samning við Stóra Norræna Filmsfélagið
og verð í þjónustu þess eitt ár . . .“
„Ég skal leyfa mér að láta yður vita, hr.
kandídat“, mælti Þórarinn B., „að hlutabréf
nefnds félags voru áður „nóteruð11 á kaup-
mannasamkundunni hér á 142. Eftir að það
er orðið uppskátt að hr. Bjami Bjömsson
hefir tekið að sér að leika i þjónustu félags-
ins er nafnverð hlutabréfanna orðið 222.
Stórkostleg hækkun, herra kandídat. Gerið
svo vel að líta á töfluna þarna — þér munuð
sjá að hún er eins dæmi hér. Ég hefi
nokkur hundruð hlutabréf til sölu — þér
óskið ef til vill að setja peninga yðar á
vöxtu í félaginu, herra minn. Mér er á-
nægja að láta yður setja fyrir . . .“
„Ekki sem stenkur“ anzaði ég og leit á
B. B.
Hann var farinn að einblína á mig, láta
eins og hann lagaði gleraugu á nefi sér,
sneri upp á yfirskegg, sem hann alls ekkert
hafði, og leit spekingslega út.
Ég stóð upp sem fljótast — hann var
sjáanlega farinn að æfa sig á mér.
Og það — fari í golgrænan sjó — líð ég
ekki fremur en hinir.
Leikhúsið.
Þar var sýnt á Sunnudaginn var
„Dan mystiske Arv“ eftir Emmu Gad.
Leikritið er skemtilega skrifað og fer
vel á leiksviði. Það var leikið létt og
fjörugt og kom áhorfendum í gott skap-
Falkenhertz ofursta lék Olaf Petersen.
í byrjun leíksins var hann góður, en
er á leið varð leikur hans fremur til-
breytingaiítill og var skapbreytingun-
um helzt áfátt. Hann hefði og mátt
taka mýkra á hlutverkinu. Ungfrú
Carla Muller lék frúna mæta vel og
var falleg eins og henni er ætlað að
vera. Dætur þeirra, Yilhelminu og
Bertu léku þær ungfr. Carla Nielsen
og frú Petersen. Fyrra hlutverkið er
skemtilegt og má mikið úr því gjöra,
en ýmislegt mátti betur fara hjá ung-
frúnni, þótt yfirleitt léki hún vel.
Síðara hlutverkið var aftur á móti á*
gætlega leikið. Carl Lundbeck lék
Nærum kennara. Hann sýndt. fyrir-
taks-vel kennarann, sem fer í tímann
með brauðið sitt í vasanum, og má
ekki vita til þess, að aðrir hafi meira
úr að spila en hann, en reynir þó að
dylja öfundina með lýðskóla-orðagjálfri.
Að loknum leiknum var leikendum
þakkað með lófaklappi og þeir kallaðir
fram hvað eftir annað. Þessi leikur
verður sýndur aftur í kvöld og ættu
allir, sem vilja fá sér góða skemtun
og hressandi hlátur, að sitja sig ekki
úr færi um að sjá hann.
Á þriðjudagskvöld og miðvikudags-
kvöld var Oliver Twist eftir Paul
Sarauw leikinn, en leikrit þetta er
tekið úr hinni frægu sögu Charles
Dickens. Þar koma fram allar helztu
Fatefni,
margar tegundir, í einn klæðnað af hverri gerð,
best og ódýrust.
Sturla Jónsson.
persónur sögunnar og voru sumar
hverjar mæta vel leiknar. Var það
hin bezta skemtun.
€rlcní símskeyti.
K.höfn, 21. Maí 1913.
Kosningar til fólksþingsins.
Kosnir voru í gær (20. Maí) til fólks-
þingsins danska 43 vinstrimenn, 32
jafnaðarmenn, 31 gerbótamenn og 7
hægrimenn. ____________
[Kosningarnar snerust aðallega um
frv. það til breytingar á grundvallar-
lögum Dana er stjórnin bar fram í
haust, en svæft var í Landsþinginu af
hægrimönnum. Er þessi kosning mik-
ill sigur fyrir þá flokka sein breyting-
unum vildu koma á. Hægrimönnum
hefir fækkað um nær helming í Fólks-
þinginu, voru áður 13. Gerbótamenn
hafa unnið flest sæti, voru áður
20, og jafnaðarmenn 8 kjördæmi.
Stjórnin hefir mist 14 kjördæmi. Er
nú svo komið, að gerbótamenn og
jafnaðarmenn eru í meirihluta í þinginu,
eg er því ekki ólíklegt að þeir taki við
völdum í sameininguj.
ooooooooooooooo
0 n í r
0 alls konar er lang-ódýrastur í 0
o Skóverzlun Jóns Stefánssonar o
Laugaveg 14. 0
Vatnsstígvél (hnéhá)
seljast á Kr. 16,75.
Allar viðgerðir fljótt og vel gerðar.
500000000000001
Aðalfundur
Búnaðarfélags íslands var haldinn í
Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík 17.
maí 1913.
Forseti las upp reikning félagsins
1912, ásamt efnahagsyfirliti, og skýrði
frá starfsemi þess, en vísaði um sumt
til skýrslna í Búnaðarritinu.
Jarðrœktarfyrirtœki, sem félagið
styrkti árið sem leið, voru þessi helzt:
Til girðinga var veittur 2661 kr.
styrkur. Langstærsta girðingin var
afréttargirðing Flóamanna og Skeiða-
manna, á 4. mílu, en sumar aðrar
eru llka allstórar, á 2. mílu. Árið
var mikið girðinga-ár. Þó verður
þetta ár það varla síður. Líkur eru
til, að Ræktunarsjóðslán til jarða-
bóta verði þetta ár frekar 50 þús.
kr., og meginið af því til girðinga.
Til áveitunnar á Miklavatnsmýri
voru árið sem leið greiddar 1377 ^r.
upp f lofaðan styrk. Því verki var
að mestu lokið á árinu, eða réttara
sagt, þeim hluta þess, sem til stend-
ur að vinna í bráðina, og var vatn-
inu úr Þjórsá hleypt í skurðina í
fyrsta sinn fyrra miðvikudag. Frá
verkinu, sem búið er að vinna, er
sagt nokkuð í skýrslu Sig. búfr. Sig-
urðssonar í Búnaðarritinu. Kostnað-
urinn við það er ekki orðinn nema
hér um bil helmingur þess, sem áætl-
að var. Er það ekki að litlu leyti
því að þakka, að gröfturinn fékst
fyrir 33 au. rúmstikan, í stað áætl-
æðra 45 aura, en að mestu leyti þó
af því, að frestað er um sinn að gera
sumt af skurðunum, sem ráðgerðir
höfðu verið. — Það fór eins og við var
búist, að ef tækist að gera áveitu
þessa að mun ódýrari en áætlað
halði verið, mundi hugurinn vaxa til
stærri áveitufyrirtækja. Nú hafa Flóa-
menn óskað nýrra mælinga fyrir
Flóaáveitu með nokkuð annari til-
högun, eftir tillögu Sig. búfr., og
Skeiðamenn mælinga fyrir áveitu úr
Þjórsá. Þykir nú Reykjasandurinn
ekki þurfa lengur að vera því fyrir-
tæki til tálmunar, þar sem góðar
horfur eru á því, að takast muni að
hefta það sandfok. Búnaðarfélagið
hefir nú ráðið Sigurð kennara Thor-
oddsen til mælinga á Skeiðunum i
sumar. Og Flóamælingin er vonast
til að framkvæmd verði sumarið 1914,
ef félagið fær til þess fjárveitingu
þá, sem um hefir verið beðið.
Til annara vatnsveitinga var veitt-
ur 446 kr. styrkur, og til fyrir-
hleðslu til varnar vatnságangi 400 kr.
Til plœgingarkenslu og félags-
plæginga með kenslu var varið 530 kr,
Votheysgerðartilraunir voru enn
gerðar nokkrar, þó færri en til stóð
vegna þess, að ekki skorti þerrinn
f fyrra sumar. Sumir þeir, er samið
hafði verið við um tilraunirnar, hafa
nú gert þa:r í 4 ár. Er þá í ráði
að fá tilraunir gerðar annarstaðar, á
Austurlandi og f Snæfellsness- og
Stranda-sýslum, ef menn fást til þess
á þeim stöðum, þar sem þörfin er
mest fyrir þá heyverkun. Tilraun-
irnar hafa alstaðar heppnast vel.
Efnarannsbknir. Til þeirra var
varið 180 kr., þar af 75 kr. til
reynslu á húsgerðarefnum. Er þeim
rannsóknum Ásgeirs efnafræðings
Torfasonar nú lokið og skýrsla hans
birt í Búnaðarritinu. Hitt voru mest
fóðurefnarannsóknir f sambandi við
fóðrunartilraunir á Hvanneyri.
Þetta ár verður meira gert að efna-
rannsóknum. Er byrjuð rækileg
rannsókn á áburðarmagni og áburð-
argæðum undan kúm, og hefir áður
verið minst á það í blaði (H. V.
skólastjóri, í ísafold).
Félaginu hafa borist fyrirspurnir
um hvernig reyna megi gaddavír,
út af því að tvfmæli hafa leikið á
gæðum nokkurs af vír þeim, sem
flutst heflr til landsins síðustu árin.