Reykjavík


Reykjavík - 07.06.1913, Síða 3

Reykjavík - 07.06.1913, Síða 3
REYKJAVÍK 93 LIFEBUOY SOAP (LIFEBUOY SAPAN) Á hverjum degi, á hverju heimili, alstaðar má bjarga lífi manna með þvi að nota þetta dásamlega og heilnæna sjerlyf. Það er bæði sápa og hreinsunarlyf um leið—styrkir heilsuna og eykur hreinlæti, en kostar þó ekki meira en vanaleg sápa. Hún er jafngóð til andlits—og handþvotta og til baða, til að lauga sjúklinga eins og til allra heimil- isþvotta—yfir höíuð til þvotta og ræstinga í hverri mynd sem er. ,2718 Nafnið LEVER á sápunni er trygging fyrir hreinlcib hennar og bostum. JFrönsk samtalsbök •) á eftir I*á,l Porkelsson, er nýkomin út. — Kostar Kr. 3,00. •) Fæst lijá öllum bóksölum. Mi EÐ því að eg hefi nú hœtt starfi því, er eg hefi ha\t d hendi í fieiri undanfarin ár sem framkvœmdarstjóri við hlutafelagið P. I. Thorsteinsson S> Co., hið eg heiðr- aða viðskiftavini þess um að snúa sér hér eftir beint til framkvœmdarstjórnar téðs félags með öll atriði því við- víkjandi. Jafnhliða vil eg votta öllum starfsmönnum félagsins þakklœti mitt fyrir þd góðu samvinnu, er eg í þessi ár hefi haft við þá; sama vil eg tjá heiðruðum viðskiftavinum fé- lagsins nær og fjær fyrir alla þá tiltrú, sem þeir í svo rikinnjmælikvarða hafa sýnt félaginu á þessu timabili. Reykjavík, 1. Júní 1913. <£fior cJcnsan. Nöfn og nýjung'Jir. Stórstúkuþing. Það verður haldið á ísafirði í þetta sinn. Fulltrúar héðan fóru vestur með Botníu á miðvikudaginn. Botnía kom frá útlöndum á sunnudag- inn var með um 90 farþega, þar á meðal: Eggert Claessen yfirdómslögmaður, Jón Þor- láksson verkfr., ClaeBsen skrifstofustjóri, kaupmennirnir Árni Riis, Carl JEtiis, Itichard Riis, Priðrik Jónsson, Þorvarður Benjamins- son Ólafur -Árnason, Lefolii; ungfrúrnar: Þyri Benediktsdóttir, Sigríður Jónsdóttir; stúdentarnir: Ólafur Thors, Ólafur Þorsteins- son, Arngrímur Kristjánsson, Jón Björnsson (Kornsá), Geir Einarsson (Borg), Bjarni Jósefsson (Melum), Helgi Guðmundsson (Reykholti), Héðinn Valdimarsson, Samúel Thorsteinsson, Sigtryggur Tryggvi, Brynj- ólfur Árnason, Helgi Guðmundsson; verzl- unarmennirnir: Gunnar Thorsteinsson, Hall- grímur Tulinius; Ragnar Ásgeirsson skóg- aæktarmaður, tveir synir Guðm. Jakobs- sonar, Guðm. Sigurjónsson, glímukennari, frá London. Erá Vestmannaeyjum: Pétur J. Thorsteinsson kaupm. og Guðmundur sonur hans, Jón Laxdal og frú, Þórhallur Gunnlaugsson símritari. Hjónaefni: Ungfrú Rannveig Þorvarðs- dóttir (prentsmiðjustj.) og Ólafur Þorsteins- son stud. med. Forstjóraskifti oru orðin í h/f P. J. Thorsteinsson & Co. Thor Jensen, sem verið hefir forstjóri félagsins frá þvi það var stofnað sagði því starfi af sér í vetur og fékk lausn 1. þ. m. Við hefií tekið danskur maður, Henriksen, sá sami og er forstjóri Thorefélagsins. Jónas Kristjánsson laeknir Skagfirð- inga kom hingað með Botniu eftir 8 mánaða dvöl erlendis. Hann hefir farið viða um lönd að kynna sér framfarir í læknisfræð- inni. Meðal annars sótti hann hinn fræga spítala Mayo bræðranna í Rochester í Banda- rikjunum. Þeir bræður eru taldir einhverir beztu skurðlæknar í heimi. Jónas dvaldi og í Winnipeg um tíma. Bróðir Jónasar Guðm. Christie gestgjafi á Gimli og kona hans urðu honum samferða heim. Próf, Þessir stúdentar hafa tekið próf i forspjallsvísindum við Hafnarháskóla i vor: Geir Einarsson með ágætiseink., Ólafur Þor- steinsson, Haligrímur Hallgrímsson og Þorst. Kristjánsson með 1. eink., Helgi Guðmunds- son, Jón Björnsson, Bjarni Jósefsson og Kjartan Thors með 2. eink. Fiskiweiðar, Mokafli er nú sagður fyrir Vesturlandi og fara botnvörpnngarnir nú þangað hver um annan. Leikhúsið. Annað kvöld verður leik- inn „Drengurinn minn“, sem Reykvíkingar kannast við frá fyrri árum. Gamanvísur eftir Ingimund verða sungnar í leiknum. Jaröarför Sveins V. Sveinssonar fer fram frá heimili hins látna, Laugaveg 44, á mánudaginn kemur 9 þ. m. kl. lU/a árd. Heiðursmerki. Þrír menn íslenzkir hafa nýlega verið sæmdir riddarakrosis Dannebrogsorðunnar. Þeir eru: Eggert Briem skrifstofustj., Geir vígslubiskup Sæ- mundsson og August Flygenring kaupmaður. Vestur-lslendingar sem hingað komu með Botníu auk þeirra sem um hefir verið getið annarstaðar í blaðinu eru: Kristján Kristjánsson og kona hans, Sigurður Sig- urðsson frá Garðar N. Dak. og ungfrú Mar- grét Karlsdóttir. Innsigling á Gilsfjorð verður mæld í sumar. Það gjörir danskur sjóliðsforingi Bistrup að nafni, sem hingað kom með Botníu, ráðinn til þess af landsstjórninni. Skáiholt kom í gær úr strandferð. Far- þegar: Ól. G. Eyjólfsson, Krijns, Jón Bryn- jólfsson, C. Petersen og Guðm. Bergstcins- son kaupmenn, D. Thomsen konsúll, Stein- grímur Matthíasson læknir, Haraldur Sig- urðsson vélameistari, ungfrú Kristjana Blöndahl. Hólar komu í gær úr strandferð, höfðu margir farþegar hingað farið í land á Stokks- eyri og komu landveg. Séra IMatth. Jochumsson var með Skálholti til Steingrímsfjarðar að skoða æsku- stöðvar sínar. Þaðan ætlaði hann landveg til Breiðafjarðar að Skógum í Þorskafirði og víðar um Breiðafjörð. Síðan til Patreks- fjarðar og þaðan heim með Flóru. Próf standa nú yfir í lagadeild, lækna- deild og guðfræðisdeild háskólans. Er skrif- legu prófunum nú lokið. Próf í forspjalls- vísindum hafa takið í dag: Ásgeir Ásgeirs- son ágætiseink., Hermann Hjartarson, Jósef Jónsson og Páll Bjarnason 1. eink.; Friðrik Jónasson, Gunn). Einarsson og Jón Guðna- son 2. eink. hina betri. íþróttasýningu heldur kvenleikfimis- flokkur „Iðunnar“ á morgun á íþróttavell- inum kl. 4 síðd. Leikið á lúðra á Austur- velli áður kl. 31/*. Eimskipafélagið, Hhutafjársöfnunin út um land kvað ganga ágætlega. T. d. kvað í Rauðasandshreppi hafa safnast B— 6000 kr. og í fáum eða engum hreppi miuna en 1300 kr. Kynnisferðir Vestur-íslendinga. Með hverju sumri fara að verða tíðari heimsóknir landa vorra vestra, og er það gleðilegt á marga lund. Fyrst og fremst ber það vott um vax- andi auðsæld þeirra, og ennfremur sýna þessar ferðir hlýjan hug og trygð við „gamla landið". Það gæti og verið að einhverjum gestanna litist svo á sig hér, að hann settist hér að aftur. Yæri oss að því hið mesta happ. Með „Botníu" kom hingað Ásmund- ur P. Jóhannsson húsagjörðarmaður frá Winnipeg með konu og börnum. Hann hefir verið vestra 13 ár, en kom hingað heim fyrir 7 árum. Heyrt höfum vér því fleygt að hann hafi í hyggju að setjast hér að, og væri það mikils um vert, því af húsagjörðar- mönnum frá Vesturheimi gætum við mikið lært, svo mikill misbrestur sem mönnum er hér á kunnáttu í þeim efnum. Látinn er í f. m. á Eskifirði Jens P. Jensen beykir, 66 ára gamall (fæddur í Marz 1847). Jensen var hér á landi alla sína fullorðins-ævi; hann var bezti verkmaður bæði í iðn sinni og að hverju verki sem hann gekk, ötull og trúr. Hann var gæflyndur maður og glaðlyndur, vintryggur og bezti drengur á alla raun. Hann var kvæntur Jóhönnu Pétursdóttur (Kjart- anssonar ísfjörðs). Hún lifir hann á- samt 2 uppkomnum sonam (Oarl kaupm. á Reykjarfirði og Vilhelm kaupm. á Eskifirði) og 1 eða 2 dætrum. J. Ól. Háskólakennari A. Courmont er á förum héðan eftir 2 ára dvö). Hefir hann haft mikið og gott starf með höndum, þar sem hann hefir kent frönsku og haldið fyrirlestra um frakkneskar bókmentir hér við háskólann endurgjaldslaust bæði af hálfu Frakka og vor, að því er vér frekast vitum. Er því ekki nema tilhlýðilegt og sjálfsagt að honum verði einhver sómi sýndur, enda hafa háskólakennararnir nú ákveðið að halda honum skilnaðarsamsæti Laugardag- inn 14. þ. m. kl. 6 að kvöldi á „Hótel Reykjavik11. Alliance fran^'aise tekur þátt í samsætinu, og gefst öllum öðrum, jafnt konum sem körlum, sem kynnu að viljá heiðra hr. A. Courmont með návist sinni, kostur á því. — Dyravörður Háskólans selur aðgöngumiða að samsætinu, og verða allir að snúa sér til hans í siðasta lági fyrir Fimtudagskvöld í næstu viku. tslandsvinur. Dr. Andreas Heusler háskólakennari í Berlín er nýkominn hingað til lands, og ætlar að dvelja hér í sumar og ferðast um landið. Maður þessi lætur sér mjög ant um alt sem íslenzkt er, og er gagnkunnugur íslenzkum bók- mentum; talar og skrifar íslenzku á- gætlega, útlendur maðurinn. Hann hefir þýtt sumar af fornsögum vorum, t. d. Hænsa-Þóris-sögu o. fl. Hann er mikill vinur háskólakennara B. M. Ólsens. Kr:í iitlöiiclnm. Friðarsamningarmr. Síðustu útlend blöð ná ekki svo langt að séð verði hvað hefir orðið að samningnm í Lundúnum um Balkan- ófriðinn. Þó má ráða í það, að það hafi orðið með þeim kjörum, er áður hefir verið sagt frá hér í blaðinu. Eitt af þeim skilyrðum var, að Tyrkir af- hentu stórveldunum nyrðstu eyjarnar í Grikklandshafi, og skyldi þau ráð- stafa þeim. í friðarsamningum, þeim sem nú eru undirskrifaðir, er búizt við að sett hafi verið ákvæði um að banda- þjóðirnar skuli taka þátt í ráðstöfun eyjanna. Áður en bráðabyrgða-samningarnir •voru undirskrifaðir höfðu Búlgarar í hótunum við bandamenn sína um að gjöra sér í lagi frið við Tyrki. En Grikkir og Serbar þæfðust við, af því að þeir vildu að fullnaðarsamningar yrðu fyrst gjörðir um það hvernig skifta skyldi löndum Tyrkja. Uppreisn á Indlandi. Þess má sífelt sjá vottinn, að Hin- dúar una illa yfirráðum Englendinga yfir Indlandi. Lögreglan í Bengal- héraði hefir nýlega komizt að sam- særi þar í héraðinu, er gjört var til að hefja uppreisn gegn Georg kon- ungi. Hafa margir menn verið hand- samaðir og stendur nú yfir rannsókn á máli þeirra. Guðrún Indriðadóttir leikkona lagði á stað frá Winnipeg í byrjun Maímánaðar og fyldu þau Mr. og Mrs. Bíldfell henni til New York. Áður en hún fór frá Winnipeg var henni haldið kveðju-samsæti, og fært að gjöf forkunnarfagurt hálsmen í þakklætisskyni fyrir skemtun þá, er hún hafði veitt Winnipeg-búum. Skáldin hafa fært henni kvæði, t. d.: Þorst. Þ. Þorsteinsson og Dr. Sig. Júl. Jóhannesson. íslenzku blöðin vestra lofa mjög leiklist hennar og flytja margar hlýlegar greinar um hana. Ungfrú Guðrún dvelur nú í K.höfn.

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.