Reykjavík - 16.08.1913, Page 1
1Re\>ftíavtk.
Laugardag 16. Agúst 1013
ÁLAFOSS
(klœðaverksmiðj an)
kembir, spinnur og tvinnar ull, vefur, þæftr, lósker, litar, reytir,
pressar og afdampar dúka fyrir almenning.
Spyrjið um verð á afgreiðslu verksmiðjunnar
Laugaveg nr. 32
Reykjavik.
Talsími 404.
XIV., 34
Ritstj. Kr. Linnet
Laugaveg 37.
Heima kl. 7—8 sífld.
Listamenn.
Við erum farnir að eiga því láni að
fagna, að upp hjá oss renna ungir menn
líklegir til að verða sér og landi sínu
tll hins mesta sóma á því sviði, sem
vér hingað til höfum staðið mjög
aftarlega á, og lítið sem ekkert lagt
af mörkum. Þaö sem hinar fögru
listir eiga íslandi að þakka er ekki
mikið. En eins og í mörgu öðru lif-
um vér hér nú á endurfæðingartímum.
Það sem skáldin og listamennirnir
búa til, gefa þeir oss að mestu. Það
verður fljótt alþjóðaeign. Og þess vegna
er þeim oft þakkað furðu lítið, oftast
þegið eins og söngur fuglanna, sem
menn hlusta á með ánægju án þess
að sinna sjálfum fuglunum neitt.
Þeirra náttúra er að syngja, okkar að
hlusta á. Við erum þeim jafn-nauðsyn-
legir og þeir okkur — virðist hugsunar-
hátturinn vera.
Við dekrum heldur ekki mikið við
skáldin og listamennina okkar. En
ætli við vildum vera án þeirra og
ljóðanna þeirra í orðum, tónum eða
steini ?
Ætli við vildum t. d. missa af lög-
um þeirra þremenninganna séra Bjarna,
Árna og Sigfúsar ? Eða af „Sólskríkj-
unni“. Ætli þjóðin vildi ekki láta
eitthvað af hendi rakna til þess að
halda þessu, ef hún annars ætti að
verða af því. Ég held að vér vildum
það allir.
Og hver eru svo launin þessara
manna ? Ekki kann ég að svara því.
En varla mun Jón Laxdal vera riddari
vegna „Sólskríkjunnar".
Nei — hér eru stjórnmálasprettir
vísari vegur til slíks en sprettir á
Pegasus ....
Fjárlaganefnd alþingis er farið að of-
bjóða skáldastyrkirnir. Eða ef til vill
er hún sömu skoðunar og einhver
Spánarkonungur var til forna: að
skáldin yrktu hjartnæmust og átakan-
legust ijóðin þegar þau væru svelt.
Ég er þeirrar skoðunar að styrkirnir
séu alt of lágir, en að rétt sé að þeir
séu ekki gerðir að eftirlaunum. Að
þeir séu viðurkenningarlaun og vinnu-
laun, sem þjóðin veitir hinum vinnandi
skáldum og rithöfundum. Og að þau
laun eigi að vera til þess að lifa á,
en ekki deyja af.
Yið höfum ekki þurft að kveina
undan álögum til sönglistar, málara-
listar og myndhöggvara. En ég býst
við að einhverjir fari nú bráðum til
þess, þegar nú eru farnir að renna upp
stórefnilegir menn í þessum listagrein-
um, sem eru svo áleitnir að mælast
til þess að við hinir, er þeir ætlast til
að seinna njóti góðs af gáfum þeirra,
rétti þeim hjálparhönd, til þess að
komast eitthvað áleiðis, eitthvað lengra
áleiðis á hinni þyrnum stráðu lista-
braut.
Yér megum telja það mikla gæfu,
að eignast íslenzka listamenn. Það er
voru fámenna landi enn þýðingarmeira
en öðrum löndum. Yið höfum svo fá
svið, sem við getum haft von um að
skara eitthvað fram úr, láta bera eitt-
hvað á okkur. Þetta er eitt þeirra.
Þess vegna er það okkar hagur, ekki
síður en hinna ungu listamanna, að
styrkja þá og styðja.
Einnig er okkur öllum hin mesta
ánægja af góðu íslenzku, listaverki —
og ekki dregur það úr þeirri ánægju
ef heiður landi voru fylgir með.
Fað er því hin mesta þröngsýni og
skammsýni að verða ekki við því litla,
er þeir mælast til.
€lðhúsðagurinn.
Það urðu all-langar og heitar um-
ræður þann dag, og margar syndir
stjórnarinnar dregnar fram og víttar
af mótstöðumönnum hennar.
Illvígastur var Benedikt Sveinsson.
Hann gat þess, að þegar stjórnin
tók við völdum hafi þetta þrent aðal-
lega staðið á stefnuskrá hennar:
að efla frið innanlands,
að efla atvinnuvegi landsins og traust
þess út á við,
og að leiða sambandsmálið til við-
unandi lykta.
Nú væri svo, að innanlandsfriði væri
síður en svo borgið, því að aldrei hefðu
verið fleiri flokkar andvígir en nú, þar
sem þeir væru 4. Traust landsins út
á við hefði ekki aukist, sem sýndi sig
á því, að ritsímalánið hefði ekki auðn-
ast að fá nema með afarkjörum. En
niðurstaða sambandsmáls-umleitananna
hefði orðið „grúturinn", sem þrátt fyrir
útbreiðslufundi á landsins kostnað ekki
hefði gengið i fólkið.
Þá hélt ræðumaður því fram, að
stjórnin drægi óhæfilega taUm íslands-
banka, og taldi óheimilt brot á lands-
lögum að verja fé opinberra sjóða
þannig, að kaupa þeim fyrir það hluti
í íslandsbanka, eins og gert hefði verið.
Því slíkt fé ætti ekki að vera til þess
að „spekúlera" með því, en svo væri
þó gert með þessu, þar eð íslands-
banki væri venjulegt hlutafélag, og
gætu hlutabróf þess fallið og stigið
fyrirvaralaust, eins og raun bæri vitni.
Fleira tók ræðumaður fram til á-
fellis ráðherra, og lauk máli sínu með
því, að ráðherra væri móti þinginu, og
það móti honum, og með fleiri kjarn-
yrðum.
Þá setjum vér hér kafla úr ræðu
Guðm. Eggerz sýslumanns þar sem
hann tekur fram ýmsar ástæður þær,
er hafa fjarlægt hann og flokksmenn
hans frá ráðherra.
„Ég hygg að fáir liggi oss heima-
stjórnarmönnum á hálsi fyrir það þótt
við 10 ekki vildum afneita gamla
flokkinum til þess að ná inngöngu og'
fá að vera í sambandsflokkinum, sem
taldi 20 í þingbyrjun en sem nú munu
að nafninu til vera 11. Eg fyrir mitt
leyti skoðaði það ekkert kostaboð
þetta að fá að ganga inn í sambands-
flokkinn.
Því eins og öllum er kunnugt er
upphaf sambandsflokksins
Brœðingurinn
sem fjölda mörgum heimastjórnar-
mönnum var hvimleiður og sem
mörgum sjálfstæðismönnum var lítt
þolandi, en afleiðing sambandsflokks-
ins var
Grúturinn
þessi pólitiski krói, sem hengdur var
í fæðingunni og sem frá byrjun átti
sér ekkert föðurland hvorki á íslandi
né í Danmörk.
Þá er Klofningur heimastjórnar-
flokksins. Mér er það ljóst að þótt
hæzt virtur ráðherra hafi klofið heima-
stjórnarflokkinn þá er svo langt frá
því að allir finni honum þetta til for-
áttu þó eg og mínir flokksmenn ger-
um það. Eg er viss um að gömlu
mótstöðumönnum heimastjórnarflokks-
ins er þetta gleðiefni.
En hvað sem nú þessu líður þá
var mér þegar Ijóst þegar eg rétt fyrir
þingið sá launa og skattafrumvörp
stjórnarinnar að ég gat ekki fylgt
henni þar að málum. Mér hefði verið
alveg á sama hvaða stjórn hefði flutt
þessi mái, ég hefði greitt atkvæði
gegn þeim á sama hátt og nú.
Því að ef þessi stjórnarfrumvörp —
sem nú eru stráfallin •— hefðu orðið
að lögum mundu útgjöld landsins, eftir
minni skoðun, að óþörfu hafa aukist
um 80—100,000 kr. á ári, gjöld, sem
að sumu leyti hefðu komið þyngra
niður á fátæklingunum en þeim efn-
uðu. Þessi frumvörp hafa þannig eðli-
lega stuðlað að því að heimastjórnar-
flokkurinn heflr fjarlægst ráðherra.
XIV., 34
HT Drekkið
Egilsmjöð og IHaltextrakt frá
iirnleiicln
ölgerðinni
„yfgli Skallagrímssyni".
Ölið mælir með sér sjálft.
Simi 390.
Eg verð frekar að minnast á þetta
hrun stjórnarfrumvarpanna því að það
mun eins dœmi 1 þingfrjálsu landi að
stjórnin sætti sig við það að frumvörp
hennar séu strádrepin. Ekki sízt þegar
þess er gætt að með skattafrumvörp-
unum var gengið inn á nýja braut í
skattamálum landsins: aukning og
breyting föstu skattanna. Enda var
það vitanlegt að stjórnin bar þessi
frumvörp mjög fyrir brjósti — sem
ég ekki lái henni — þótt endalokin
yrðu þessi að þau féllu hér í deild-
inni.
Ég tók það fram að mér þætti kyn-
legt að stjórnin vildi sætta sig við
þessi frumvarpahrun og hugsa ég að
fleiri séu mér hér sammála, allir þeir,
sem þingræðið vilja óskert og óbrotið,
sem aðhyllast þá meginreglu, sem
annarsstaðar er viðurkend að ekkert
eigi að standa yflr og ekkert jafnfætis
deildum þeim, er hinir þjóðkjörnu full-
trúar skipa.
Yflrleitt vil eg benda á það, að nú
á síðari tímum hefir atvikast svo að
hæztvirtur ráðherra heflr staðið nokk-
uð liðfár í ýmsum þeim málum, sem
honum heflr verið áhugamál:
Brœðingurinn hafði mjög litla sam-
úð hjá þjóðinni.
Grúturinn hafði alls enga samúð
hjá þjóðinni.
Launa- og skattafrumvbrpin hafa
heldur ekki samúð þjóðarinnar.
Samningar hæztvirts ráðherra við
sameinaða gufuskipafélagið heldur
ekki.
Aftur á móti hefir fánamálið sam-
úð þjóðarinnar, en á móti því berst
hæztv. ráðherra.
Loks heflr Neðri-deild talið það
mjög aðfinsluvert af ráðherra að bera
ekki lotterímálið upp fyrir konung".
Enn tóku ýmsir aðrir til máls, þar
á meðal Hálldór Steinsson, Lárus H.
Bjarnason og Dr. Valtýr Guðmunds-
son. Halldór hélt fram, og fann að því
að ráðh. traðkaði þingræðinu. Lárus
vítti samgöngusamninga þá, er ráðh.
gerði við sameinaða gufuskipafélagið,
og sýndi fram á, hve afskaplega óhag-
stæðir oss þeir væru, en Valtýr ávítaði
undirbúningsleysi stjórnarinnar um
ýms mál, ekki sízt samgöngumálin og
framkomu hennar út af „grútnum“.
Svari ráðh. tóku, auk hans sjálfs,
Einar Jónsson, Matthías Olafsson og
Mágnús Kristjánsson.
Báðherra taldi það rangt, að hann
drægi taum íslandsbanka, og að eins
1500 kr. hefði verið varið af sjóði, er
stjórnin hefði umsjón með, til þess að
kaupa honum hlutabréf í íslandsbanka.