Reykjavík - 16.08.1913, Side 2
132
REYKJAVlK
Þingræðinu kvaðst hann ekki hafa
traðkað. Vildi deildin sig af stóli, væri
það hennar að gefa sér vantrausts-
yfirlýsing. En þó 13 greiddu henni
atkvæði, mundi mikil freisting vera
íyrir sig að setja kyr engu siður, fyrir
þá sök, að hinn þrettándi væri háttv.
þingm. Norður-Þingeyjarsýslu (B. Sv.).
Að samgöngusamningarnir væru oss
óhagstæðir játti hann, en kendi um að
„fragtir* hefðu hækkað mjög um allan
heim. Skattamálunum væri að eins
slegið á frest. Þau ekki haft neinn
vondan byr. „Grútnum" hefði hann
aldrei hampað.
Annars tók ráðherra það líka fram,
að þó sambandsmálið héldi nú kyrru
fyrir, þá væri það ekki dautt, öll nótt
væri ekki úti enn, og þeir tímar kæmu
kannske að það risi aftur upp.
(Kvæði það, er hér fer, hefir séra
Matth. Joch. ort eftir hann, og leyfum
vér oss að taka það hér eftir „Norðra").
Skriðtir og akríður um skarir tjalda
hljóðlaus hönd, héma — þarna;
en dragsúgur dauðastefnu
fer ýlandi um allar gættir.
Um miðmunda Mene-tek’el
hart er að sjá á hússins tjaldi;
sýkn og sekur — það er STarinn eiður —
einn og sama úrskurð bíða. —
Hljótt Tarð í húsi,
helstríði lokið, —
hvein þá héraðsbrestur;
liðinn var lofsæll
lýðskörungur
heim frá ströngu striði.
Hnigið er h ö f u ð, það er hér á landi
einna fjölfimast flestum þótti;
stirðnuð t u n g a, er á stórþingum
þjóðmál þuldi eins og þegðu aðrir.
Hnigin er h ö n d sú, er hamhleypa
mest var metin mál að reyfa,
og öfugan staf nær aldregi
ráðfim reit í réttarþrautum.
Fallinn er úr sæti sá er flesta átti
á voru landi valdsmanns kosti;
og svo var hann dyggur og drottinhollur
að aldrei hans land eyris misti.
Dáinn er dómari, sá er dæma vildi
öllum líkn en engan græta;
var sem valmenskan væri tíðum
hans veikust hlið þegar vega skyldi.
Og veikar hliðar vist hann hafði,
geðstór garpur með glóð í æðum.
En enginn skyldi skörung manna
bernskubresti b j á 1 k a dæma.
Skrifar hönd á skapatjaldi
allra örlög og aldurtila.
En á h a n s tjald hinu megin
skrifar guðs mildi miskunn og likn.
flagg-takan.
Lögð eru fram á lestrarsal alþingis
bréf þau tvö, er gengið hafa á milli
íslenzku og dönsku stjórnarinnar útaf
fánatökunni 12. júní.
Stjórnin íslenzka skýrir frá atburð-
unum 12. júni(sem hún kallar „í sjálfu
sér ómerkilegt mál“), og því er hér
hafi gerst út af þeim, og lýsir yfir því,
að hún og aðrir hér telji lögleysu hafða
í frammi, og æskir þess að ráðaneytið
danska komi því til leiðar að það verði
lagt fyrir skipstjóra varðskipsins, að
láta, eins og áður hafi verið siður, ó-
áreitta báta, sem hafi sams konar flagg,
er tekið var, svo að málið verði með
því, sem bráðast til lykta leitt, án þess
að frekara verði að gert. Enn fremur
tekur stjórnin fram, að hún hafi gert
ráðstafanir til þess að vernda „ríkis-
flaggið“, sem hér hafi orðið fyrir
nokkru hnjaski.
Svar dönsku stjórnarinnar er á þessa
leið :
„Út af bréfi hins ísl. stjórnarráðs,
dags. 20. f. m., um að varðskipið
„Islands Falk“ gerði upptækt á
Reykjavíkurhöfn blá-hvítt flagg, sem
róðrarbátur hafði í stafni sem þjóð-
ernismerki („förte som Nationalflag"),
þá skal forsætisráðaneytið gefa til vit-
undar að sú skoðun er ekki rétt, sem
sézt hefir að komið hefir fram á ís-
landi, að varðskipstjórinn hafi haft
sérstakar skipanir um þetta. Rothe
skipstjóri hefir gert það sem hann gerði
á grundvelli gildandi laga og fyrir-
sJcipana*)
Ráðaneytið væntir þess, að þetta
mál, sem allmikið hefir borið á
á íslandi, verði rætt þegar ráðherra
með haustinu kemur til Kaupmanna-
hafnar.
Ráðaneytið hefir athugað og lýkur
lofsorði á það, að íslenzk stjórnarvöld,
eins og líka er tekið fram í bréfi hins
ísl. stjórnarráðs, hafa veitt hinu lög-
lega ríkisflaggi alla vernd er á þurfti,
og það vonar, að hið góða samkomu-
lag, er verið hefir milli íslendinga og
hinna ýmsu skipstjóra varðskipsins, og
þá ekki sízt skipstjóra Rothe, verði
einnig eftirleiðis.
Það er ósk vor, ekki síður en hinnar
ísl. stjórnar, að þetta í sjálfu sér ó-
merkilega mál, ekki gefi tilefni til
frekara. Zahle*.
Eins og sézt á þessu bréfi dönsku
stjórnarinnar, er fjarri því að hún telji
skipstjórann hafa haft nokkra lögleysu
í frammi, og hummar fram af sér
hinum hógværu (mörgum mun þykja
full-hógværu) málaleitunum hinnar ís-
lenzku stjórnar.
Fána-frumvarplð.
Fána-frumvarpið var afgreitt til
Efri deildar við 3. umr. á fimtudaginn
með 14 atkv. gegn 4. Tveir þingm.
greiddu ekki atkv. Já sögðu : E. P.,
E. J., G. E., H. S., B. Kr., J. J., J. Ó.,
Kr. D., Kr. J., L. H. B., Ól. Br., St. St.,
Tr. B., Y. G. Nei sögðu: B. Sv., H. H.,
B. f. V., Jóh. Jóh., J. M., M. Kr., M. Ó.,
Sig. Sig., Sk. Th. Pétur Jónsson og
Þorleifur greiddu ekki atkv. Breytingar-
tillögur Bjarna frá Yogi voru feldar.
Eins og sjá má á þessari atkvæða-
greiðslu féllust þeir í faðma móti frum-
varpinu, landvarnarmenn og föstustu
stjórnarliðsmennirnir. „ Extrema se
tangunt“.
Jóh. Jóhannesson og Jón Magnússon
höfðu athugasemdalaust greitt frum-
varpinu atkv. við 2. umræðu en sögðu
nú nei af þeirri ástæðu, að þeim þótti
of lítið unnið með því að fá það sem
það gæfi, úr því ekki allir væru ánægðir
með það.
*) Auðkent ai blaðinu.
Samgðngurnar.
Nefndarálit og frumvarp.
Nefnd sú (Jóh. Jóh., V. G., B. Kr.,
H. S., P. J.) er kosin var af Nd. til
að íhuga samgöngumál vor á sjó, og
koma með tillögur um þau, hefir nú
samið álit sitt. Nefndin skýrir frá, að
hún hafi rætt málið bæði ein og með
samgöngumálanefnd Efri deildar, og
einnig hafi ráðherra látið nefndunum
í té þær upplýsingar, er hann hafði
aflað sér. Hafi ráðherra litið svo á,
að hentast mundi að koma nýju fyrir-
komulagi á strandferðirnar, þannig að
hlíta mætti hringferðum millilandaskip-
anna að því er hina stærri viðkomu-
staði snerti, en hafa svo 6 flóabáta,
er tækju við af þeim, og flyttu vörur
og farþega áfram til hinna minni við-
komustaða, er millilandaskipin kæmu
ekki á. Þess konar bátar mundu kosta
22—26,000 kr., eftir því hvort þeir
væru úr tré eða stáli.
Jafnframt gat og ráðherra þess, að
hann hefði leitað samninga við Eim-
skipafélag Björgvinjar, og þó fullkomið
tilboð væri ekki komið hingað, þá hefði
honum þó borizt símskeyti frá því, sem
gæfi fulla vissu um, að það kæmi bráð-
lega. En sá hængur væri á því til-
boði auk annars, að ómögulegt mundi
reynast að fá skip þess félags til að
hafa viðkomustaði erlendis utan Noregs,
en viðskiftasambönd íslenzkra kaup-
manna aðallega annarsstaðar, svo að
ferðir félagsins mundu ekki geta orðið
þeim að tilætluðum notum.
Enn gat ráðherra þess, að kostur
mundi verða á að endurnýja samninga
um strandferðir við „Hið sameinaða
eimskipafélag“ fyrir næsta fjárhags-
tímabil með sömu kjörum og fyrir
yfirstandandi ár.
Frá annari ''hálfu lágu fyrir nefnd-
inni allgóðar upplýsingar um verð á
skipum (og nokkur tilboð í þá átt), og
áætlanir um reksturskostnað strand-
skipa og væntanlegar tekjur af þeim,
bygðar á reynslu undanfarinna ára.
Eftir að nefndirnar höfðu glöggvað
sig á þessum skjölum og rætt málið
ítarlega, varð það samhuga álit allra
nefndarmanna, að óíært væri að byggja
til frambúðar á samningum við erlend
félög um strandferðir vorar, heldur
yrði að því að stefna, að koma þeim
sem fyrst á innlendar hendur, þannig
að bæði yrðu skipin íslenzk eign og
skipverjar töluðu sömu tungu og fólkið,
sem skipin á að nota. Virtist nefnd-
unum engu minni nauðsyn á að gera
strandferðirnar innlendar en millilanda-
ferðirnar, heldur væri þörfin þar ef til
vill enn þá brýnni, svo brýn, að ekki
mætti láta dragast lengur að leggja
hönd á verkið til að koma því í fram-
kvæmd.
Nefndunum þótti báðum æskiiegast,
að hið fyrirhugaða „Eimskipafélag ís-
lands“ tæki að sér strandferðirnar.
En um það gat hún ekki fengið endan-
legt svar, þar eð bráðabirgðastjórn fé-
lagsins ekki hefir vald til að ákveða
neitt um slíkt. En stjórnin lofaði að
vera því fylgjandi á sínum tíma. Nefndin
vill að félaginu sé gefin sterk hvöt til
þess að taka strandferðirnar að sór og
leggur í því skyni til að landsstjórn-
inni verði heimilað að kaupa hluti í
félaginu fyrir alt að 400,000 kr., gegn
því, að félagið taki að sér strandferð-
irnar og haldi þeim uppi með tveim
eða fleiri nýjum eða nýlegum skipum,
á svipaðan háttjogjmeð líkum skip-
um að stærð og hraða eins og strand-
ferðaskipin „Austri* og „Vestri", sem
hér voru, og telur nefndin að slík skip
fáist nú fyrir ca. 200,000 kr. Og jafn-
framt gera nefndirnar ráð fyrir að fé-
laginu yrði í fjárlögum veittur álíka
ársstyrkur til strandferðanna og að
undanförnu.
En þó nefndírnar helzt kysu, að
samningar um strandferðirnar gætu
tekist við Eimskipafélag íslands, álitu
þær, að nauðsynlegt væri að gera ráð
fyrir, að svo gæti þó farið, að ekkert
yrði úr þeim í bráð, og yrði þá að
gera ráðstafanir til þess, að strandferð-
irnar kæmust samt í innlendar hendur.
Þetta álitu nefndirnar að varla gæti
orðið með öðru móti en landssjóðs-
útgerð, en við hana voru allmargir
nefndarmanna ragir í fyrstu. En eftir
því sem málið skýrðist, hvarf þó ótt-
inn við landssjóðsútgerð meir og meir,
með því nefndin líka fékk upplýsingar
(meðal annars frá Th. Tulinius) er
sýndu að landssjóðsútgerð ætti að geta
borið sig með viðlíka tillagi og að
undanförnu, eða jafnvel geta gefið
nokkurn arð. Nefndin setur síðan upp
áætlun yfir tekjur og gjöld slíkrar út-
gerðar, og kemst að þeirri niðurstöðu,
að tekjuafgangur verði enda þótt ekki
sé gert ráð fyrir auknum tekjum frá
því sem nú er, sem þó megi, vegna
framþróunar þeirrar, sem hér hafi verið
undanfarið. Þann tíma, sem skipin
eru ekki nqtuð til strandferða (5—6
mánuði) ætlast nefndin til að hægr, sé
að nota þau til annars, t. d. til þess
að flytja hóðan fisk til Suðurlanda.
Um stjórnina á útgerð landssjóðs
tekur nefndin það fram, að ekki væri
nauðsynlegt að stofna neitt embætti
eða sérstaka stöðu í því skyni, heldur
mundi mega fela afgreiðslu skipanna
og reikningshaid annaðhvort fram-
kvæmdarstjóra „Eimskipafélagsíslands"
eða þá einhverjum öðrum vönum og
áreiðanlegum afgreiðslumanni eimskipa.
Af þessum ástæðum ber nefndin fram
svolátandi frumvarp :
1. gr. Landsstjórninni veitist heim-
ild til að kaupa hluti í „Eimskipafélagi
íslands" fyrir alt að 400,000 kr., gegn
því að félaðið taki að sér að halda
uppi strandferðum umhverfis landið
með tveimur eða fleiri strandferða-
skipum, og hafi tvö skipin að minsta
kosti jafn mikið farþegarúm og lesta-
rúm og séu að minsta kosti jafn ör-
skreið og þau strandskip, sem hér voru
í förum 1911 og 1912. Ferðir þessar
skal félagið hefja svo fljótt sem því
verður við komið, og eigi síðar en í
apríl 1916. Um fyrirkomulag ferð-
anna, ferðaáætlanii- og taxta fer eftir
samningi milli félagsins og stjórnar-
ráðsins.
2. gr. Náist ekki samningar við
„Eimskipafélag íslands*, samkvæmt
1. gr., veitist landsstjórninni heimild
til að kaupa tvö strandferðaskip, er
samsvari skiiyrðum þeim, er sett eru
í 1. gr., og halda þeim út á kostnað
landssjóðs bæði til strandferða og ann-
ara ferða, eftir því sem haganlegasfc
þykir, þegar strandferðum lýkur
hvert ár.
3. gr. Stjórnarráðið semur áætlun
fyrir strandferðaskip landssjóðs og á-
kveður fargjöld og farmgjöld þeirra.
Það ræður og afgreiðslumann skip-
anna, sem jafnframt er reikningshald-
ari, og ákveður þóknun hans, og
stjórnar hann útgerðinni að öllu leyti
undir yfirumsjón þess, samkvæmt er-
indisbréfi er það setur.