Reykjavík - 16.08.1913, Blaðsíða 4
134
REYKJAVIK
professor Cart £orentzen
er danskur maður. Hann íór ungur
af ættjörðu sinni til að nema verk-
fræði á Bretlandi og í Frakklandi. Á
síðustu heimssýningunni miklu í París-
arborg bar svo til, að nefnd sú, er
stjórn Bandaríkjanna hafði kosið, til
að annast sýninguna fyrir hönd Ame-
ríku, kaus Lorentzen sér til aðstoðar.
Þótti þar svo mikið að honum kveða
og til hans koma, að háskólinn í New-
York gerði hann að dócent hjá sér,
þegar eftir sýninguna, og litlu síðar
að prófessor (kenslugrein vélfræði).
Eftir að prófessor Lorentzen kom til
Ameríku, hefir hann jafnan látið sér
mjög ant um, að efla samvinnu og
viðskifti, bæði andleg og önnur, milli
Bandaríkjanna og Norðurlanda. Haon
var einn þeirra manna er kom því á,
að háskólar í Ameríku og á Norður-
löndum skiftast á prófessorum um
stundarsakir. Og einnig hefir hann
gert mikið að því, að greiða fyrir því,
að stúdentar frá Norðurlöndum gætu
dvalið við nám í Ameríku.
Við 100 ára hátíð Kristianíu-háskóla
1911 var hann sendur af háskóla sín-
um þangað, en héðan var prófessor
Björn M. Olsen sendur af vorum há-
skóla, og hittust þeir þar. Varð pró-
fessor L. þess þá vís, að oss vantaði
enn þá sérstakt hús fyrir háskóla vorn
og að vér óskuðum oss helst háskóla-
húss eftir Amerísku sniði; en þar eru
háskólahús reist þannig, að nægt svæði
er umhverfis til fleiri húsa síðar í
sambandi við háskólann, þar á meðal
bústaðahús (dormitory) fyrir stúdenta,
sérstök hús fyrir karla og sérstök fyrir
konur. feömuleiðis fylgir þar háskól-
um stór völlur (Campus). Hann frétti,
að landið ætti næga lóð á Arnarhóli
handa háskólanum. Nú var prófessor
L. í sumar í Danmörku í þeim erind-
indum að greiða fyrir aðsókn Norður-
landa-stúdenta til amerískra háskóla
og hafði N. 1. háskóli þá lagt fyrir
hann í erindisbréfi, að ferðast til ís-
lands og kynna sér allan hag háskól-
ans hér. Prófessor L. hefir mjög mik-
inn hug á því, ef auðið væri, að vekja
hugð einhvers auðmanns í Ameriku
á mennifigu vorri og háskóla, ef það
mætti leiða til þess, að einhver slíkur
auðmaður gæfi háskóia vorum fé til
húsgerðar.
En vonlaust er um, að slíkt beri
nokkurn árangur, nema lagður sé há-
skólanum til nægilega stór húsavöllur
eftir amerísku sniði.
Próf. L. hefir komið hér til lands
áður, er hann inti ungur af hendi
herþjónustuskyldu sína á dönsku her-
skipi hér við land.
Ég átti tal við hann á Sunnudaginn,
og varð þess var, að honum er allant
um, að verzlunarviðskifti eflist milli
íslands og Ameríku, og mun honum.
Ijúft, ef til kæmi, að stuðla til þess
meðal sinna mörgu vina í Ameríku.
Honum skilst það full vel, þótt dansk-
ur sé, að Islandi beri að líta á sinn
hag fyrst og fremst í verzlunarvið-
skiftum, hvað sem dönskum hagsmun-
um líður.
Próf. Lorentzen fer héðan aftur nú
með Botnía.
J. Ól.
Afgreiöslnstofa kjargjalðferais
er flutt k
w Laufásveg nr, 5.
Úr ýmsum áttum.
Baokahrun í Danmörku.
í Hróarskeldu er banki stofnaður
fyrir fáum árum, sem heitir „Yerzlun-
ar-, iðnaðar og landbúnaðarbanki Hró-
arskeldu". Honum stýrði ungur maður
Petersen að nafni. Hann var talinn
mjög duglegnr maður og menn báru
mikið traust til hans. Engan grunaði
að hann var hinn mesti fjárhættu-
brallari. En svo var nú samt og kom
það honum og bankanum um síðir í
koll eins og Alberti á árunum. Hann
sólundaði yfir 800,000 kr. af fé bank-
ans áður það yrði uppgötvað, enda
hafði endurskoðunin í bankanum verið
frámunalega slæleg og ekki í höndum
bankafróðra manna. Hér um bil 1700
manns mistu fé, sumir aleigu sína.
„Hamlet“
hið fræga leikrit Shakespeare’s hefir
verið lagaður til kvikmyndasýningar.
60,000 kr. kostaði að búa myndina til.
„Atlantis“,
fræg skáldsaga eftir Georg Haupt-
mann hefir einnig nýlega verið höfð
sem fyrirmynd kvikmynda-sjónleiks.
Aðalatriðið í leiknum er að tvö stór
gufuskip rekast á úti á Atlantshaft, og
sekkur annað og farast um 280 manns,
Þetta á að sýna í leiknum, og er stórt
millilandaskip danskt leigt til þess að
hvolfa þessum 280 út í- Kattegat.
Það er ekki altaf þægilegt að vera
kvikmyndaleikari.
Erfðaraál.
Ríkur Englendingur, Scott að nafni,
arfleiddi hefðar konu eina að aleigu
sínni, 22 miljónum króna. Þetta líkaði
ættingjum Scotts, sem von var illa og
höfðuðu mál til að fá erfðaskrána
dæmda ógilda. En frúin vann málið
og miljónirnar. Urðu Scott’arnir meira
að segja að borga henni næstum
300,000 kr. í málskostnað. Það þætti
mikið hér.
Nöfn og nýjungar.
Bæjargjaldkerinn. Hann er nú fluttur
á Laufásveg 5 og hefir þar afgreiðstustofu
sína í húsinu, sem er nýgert við og upp-
dubbað að utan og innan svo öllum verður
ljúft að greiða þar útsvör sín.
Guðm. lœknir Magnússon fer utan
nú með „Botníu“ til lækninga. Kona hans
siglir með honum.
Þórður Bjarnason verzlunarstjóri fór
í vikunni til Austfjarða til saltfiskskaupa.',
Hafís segir „N o r ð r i“ vera að hrekjast
upp á miðum Eyfirðinga. Nokkrir bátar
hafa mist lóðir. Var gengið 3. ágúst upp á
fjöllin vestan við Siglufjörð og sáust þaðan
ísbreiður fram á hafi.
Mannvirki á Siglufirði segir sama
blað að séu unnin allmikil þar í sumar.
Meðal annars hafa danskir menn bygt þar
mjög vandaða síldarverksmiðju.
Eggert Stefánssosi söngmaður er
kominn til bæjarins. — Hann söng fyrir fs-
firðingum og spilaði Sigvaldi læknir bróðir
hans undir á harmonium. ísfirðingar voru
hrifnir mjög.
Rikarður Jónsson listnemi sýnir á
lestrarsal alþingis ýms listaverk, er hann
hefir búið til. Er þar á meðal ágæt brjóst-
mynd af Stgr. Thorsteinsson mótuð í gips
og ýmsar andlitsmyndir dregnar með blý-
anti. Alt ber það sem sýnt er á sér lista-
mannsmót og er vottur um meira en í
meðallagi góða hæfileika.
.Heimskringla' segir frá að einn
Vestur-íslendingur, rafmagnsfræðingurinn
P. Johnson, hafi uppgötvað rafmagns-
eldunarvél, sem gera megi alla matreiðslu
á, og eyði litlu rafmagni. Verðið er lágt,
og eftirspurn mikil.
Hvenær ætli þeir tímar komi, að GullfosS
eða einhver annar foss steikir „buffið“ okkar
hér í Reykjavík?
Péfur M. Bjarnason frá ísaflrði er
fluttur hingað til bæjarins. Hann hefir
orðið að höfða mál gegn félagi því, er hann
hafði vátrygt hjá það, sem brann hjá hon-
um í vetur. Munar það, eftir því sem hann
segir, 3000 kr. á kröfum hans og því er fé-
lagið vill greiða.
Sfefán Stefánsson skólameistari varð
hálf-öldungur (50 ára) um daginn. Konung-
urinn gerði hann að riddara um þær mundir
og alþingi að bankaráðsmanni. Um fleiri af-
mælisgjafir höfum vér ekki heyrt getið.
Hópur danskra spsejara—sveina
(er sumir nefna „skáta“ á oss óskiljanlegu
tungumáli) ferðast hér um þessar mundir
Förin er verðlaun, sem þeir unnu fyrir að
bera af öðrum í spæjara-dugnaði. Voru í
tölu þeirra konungssynir tveir, synir Chr.
X. og hugðu sumir að þeir mundu vera
samferða hinum sveinunum. En svo varð
ekki.
Loftbátar með Zeppelins-sníði
stendur til að fari í loft upp hér nú um
helgina. Möller verzl.stj. hjá Braun kaup-
manni kvað gera þá út en hvort hann
hyggst að stýra þeim sjálfur er talið óvíst.
Með Victoria Louise, þýzka skemti-
skipinu, voru um 450 farþegar.
,Vestri‘ segir að svo hafi borið við á
ísafirði að bláhvíti fáninn hafi verið dreginn
á stöng á barnaskólanum þar við jarðarför
nýlega og landmælingarmönnunum dönsku
orðið svo mikið um, að þeir þyrptust strax
burt úr skólanum á meðan á jarðarförinni
stóð.
Hetjurnar!
f Látinn er á ísafirði S ö 1 v i T h o r-
steinsson, sem þar var hafnsögumaður
og margir munu kannast við.
Hljómleikar þeirra Eggerts og Þórarins
Guðmundssona voru hið bezta sóttir enda
ágæt skemtun. Eigum vér þar listamaena-
efni með framtíð fyrir sér ef þeir ekki verða
að nema staðar á þeirri braut, sem þeir hafa
stigið fyrstu sporin svo vel á.
Sr. Sig. Stefánsson alþm. er orðinn
veikur af garnabólgu og var fluttur á
sjúkrahús í dag.
€ggert Claessen,
yílr réttarmálaflntnin gsraaður.
Pósthússtr. 17. Talsíml 16.
Venjulega heima kl. 10—11 og 4—5.
Verzlun Jóns Zoega
selur ódýrast neftóbak, munntóbak,
reyktóbak, vindla, cigarettur o. m. fl.
Talsími 128. Bankastræti 14.
Vörur |rá yimeríku.
Notið nú tækifærið!
Eftir næstu mánaðamót og framvegis
hefi ég birgðir hér í Rvík af ýmsum
góðum vörum — og þar á meðal þessar:
Dundas-prjónavélar nr. I . . Kr. 50,00
— - 2 . . — 70,00
— prjóna 15 a. st., en 10 — 1,00
Davis-saumavélar . Kr. 80,00—120,00
Am. þvottavólar . . — 30,00— 40,00
— — vindur . — io,oo— 20,oo
— Skerpivélar(hverfist.)i5,oo— 20,00
Skósmíðaleistar (settið) 2,00— 3,00
Alexandra-skilvindur Kr. 80,00—120,oo
Pantið nú í tíma.
Upp í nýjar vélar tek ég garalar
af hvaða tegund sem eru. — (Verðið
eftir gæðunl) — þ. e.: prjónavélar upp í
prjónavélar — saumav. upp í saumav.
og skilvindur upp í skilvindur o. s. frv.
Ennfreraur útvega ég eftir pönt-
unum meðal annars þessa hlnti :
Lofthitunarvélar á öllu verði e. stærðum.
Patentstrokkanr.l-3 Kr. 40,00— 48,00
Garðplógar meðtiih. — 25,00
Gasolínvólar nr. 1—3— 20,00— 50,00
Suðuskápa.........— 15,00— 36,oo
Útungunarvélar m.th. — 50,00—200,00
Mótor-vagna, — Oliu-mótora,
Qrgel, og fleiri hljóðfæri.
Vatns-raótora — Reiðhjól — Vindmylnur
Mölunar-kvarnir — Vagna — Kerrur
Aktýgi o. fl.
Smíðatól og vólar allskonar fyrir tré-
smiði og járnsmiði, á sanngjörnu verði.
Stálvörur og mélvörur í stórheildum, á
lægra verði en allir aðrir.
Sérstök kjör til Jcaupmanna og
þeirra er panta vélar o. þ. h. upp á
500 kr. í einu.
Vörurnar eru vandaðar, verðið sann-
gjarnt, og afgreiðsla og viðskifti öll
stranglega áreiðanleg.
Minst V-t verðs með pöntun, og fulln-
aðar borgun við afhending í Rvík.
Pantið ávalt með nægum fyrirvara.
Reykjavík (Hólf 15 A) í ágúst 1913.
Stefán B. Jónsson.
Furðuverk nútímans.
100 skrautgripir, allir ur hreinu amerísku gull-
»double«, fyrir að eins kr. 9,50.
10 ára ábyrgð.
1 Ijómandi fallegt, þunt 14 kar.
gúll-double anker-gangs karl-
manns-vasaúr, sem gengur 36
tíma, ábyrgst að gangi rétt í
4 ár, 1 fyrirtaks leður-mappa,
1 tvöföld karlmanns-úrfesti, 1
skrautaskja með manchettu-,
flibba- og brjósthnöppum með
patent-lásum, 1 fingurgull, 1
slipsnæla, 1 kven-brjóstnál (síð-
asta nýung), 1 hvítt perluband,
1 fyrirtaks vasa-ritföng, 1 vasa-spegill í hulstri,
80 gagnsmunir fyrrir hvert heimili, alt safnið,
með 14 kar. gyltu karlmanns-úri, sem með raf-
magni er húðað með hreinu gulli, kostar að eins
kr. 9,25 heimsent. Sendist með póstkröfu. —
Weltversandhaus H. Spingarn, Krakau, Östrig,
Nr. 464. — Þeim, er kaupir meira en 1 safn,
verður sendur ókeypis með hverju safni 1 á-
gætur vasa-vindlakveykjari. — Séu vörurnar
ekki að óskum, verða peningarnir sendir aftur;
þess vegna er engin áhætta.
Hvaða mótor er ódýrastur, bestur
og mest notaður?
Gideon-mótorinn.
Einkasali
Thor E. Tulinius & Co.
Kaupmannahöfn.
Símnefni: Verslun.
Hvar á að kaupa
öl og vín ?
En í Thomsens
M a g a s í n.
Prentsmiðjan Gutenberg.