Skeggi - 28.09.1918, Qupperneq 2
SKEGGI
»Skeggi« kemur venjulega út einu
sinni í viku, og oftar ef ástæður
leyfa. Verð: 5 kr. árg. (minst 50
blöö).
Auglýsingaverð: 50 aur. pr.
•.m.; 60 aur. á 1. bls.
Útgefandi: Nokkrireyjarskeggjar.
Afgreið^u- og innheimtum. Ounnar
H. Valfoss,
Ritstjóri og ábyrgðarm.
Páll Bjarnason.
Svar
frá
Jes A. Gfslasyni
til
Gunnars Ólafssonar
út af
„gula bæklingnum“.
—o—
(Framh.).
Á einum stað í gula bækl. fer
höf. að minnast á sjávarganginn
á höfninni í austanrokum hjer, og
kemst auðvitað að þeirri vísdóms-
legu niðurstöðu, að einna næði-
samast yerði'við hann^ „Bratta”
hans. þessa uppgötvun hefur auð-
vitað enginn gert á undanGunnari;
hann er aleinn um hana, því að
svo sjáandi eru þó flestir eða
athugulir, að hafa tekið eptir því,
að við „Bratta" er þó hvað verst
í austan-ólátunum innan hafnar
þar sem mót austri veit. En til
þess að sýna að annarstaðar sje
þó verra, minnir höf. á það þegar
vjelabáturinn „Baldur" lenti upp
á Sýslubryggjunni. Eins og við
mátti búast hleypur höf. yfir að
skýra frá því, sem var aðalástæða
þessa óhapps, sem var það, að
„Baldur" var með annan bát í
drætti, sem var „stopp“, en sá
bátur sló „Baldri“ upp á. bryggj-
una. En höf. varar sig ekki á
því, að einmitt þetta atvik sýnir
hve lending er óhæg hjer innan-
hafnar við þá staði, sem móti
austri vita. Hefði sýslubryggjan
aptur á móti verið lengri, svo
að „Baldur“ hefði getað Iagt
vestan að henni, þá hefði þetta
óhapp ekki að höndum borið.
Og það get jeg fullvissað Gunnar
um, að hefði „Baldur“ þann dag
ætlað að lenda við fyrirhugaða
Bratta-bryggju, þá hefði Tangina
lengið strand, svo að ekki hefði
þurft að hafa fyrir að draga
bátinn út.
Á einum stað í sambandi við
þessa Bratta-bryggju fjarstæðu,
getur Gunnar þess, að G. J.
Johnsen hafi beðið Bech að
fylla upp(!l) Lækinn. Fær Bech
á baukinn enn hjá höf. þetta er
auðvitað eitt af því allra ósenni-
legasta af öllum Gunnars-sögun-
um. En það er samt vissara að
hafa Bech við þetta riðinn. Ekki
finst mjer rjett af höf., að vera
að skrökva á gamla manninn
þótt honum, að höf. dómi, hafi
yfirsjest með áætlun hafnargarð-
/
S. 3- 3°^^’
anna, því að vitanlega hefur
Bech gamli aldrei sagt hvorki
höf nje öðrum, þessa kynjasögu.
Hitt höfuin við eflaust heyrt
ýmsa tala um, að nauðsyn bæri
til og færi jafnfr. vel á því að
hlaða upp flöt innst í „Læknum“
og fylla þar upp til þess að
leggja þar á og bjarga þangað
upp smábátum (skjökt-bátum)
sem opt hafa orðið þar fyrir
skakkaföllum og jafnvel tekið út,
auk þess sem það er særandi að
sjá fara svo um báta þá sem þar
eru hafðir og til lítils sóma fyrir
hjeraðið. Hefur einn mikilmet-
inn formaður hjer skrifað ein-
mitt um þetta atriði í blaðinu
„Skeggja“, og er vonandi að
framkvæmd verði á þvi verki
þegar um greiðist. Hitt er aptur
| á móti víst að sýslunefndinni
hefur aldrei dottið þetta í hug
og því síður að láta framkvæma
það, og enn vissara er það, að
G. J. J- getur aldrei haft hag af
þessari uppfyllingu, frekar en
aðrir smábátaeigendur, enda á
hann þar ekki lóð að. — Læt
jeg svo úttalað um þessa kvik-
sögu Gunnars og læt hann
einann um þá hugmynd og það
verk að fylla upp Iækinn. Hon-
um verður eitthvað til þess sje
litið til annara afreka hans bæði
sem hann hefur framkvæmt og
er í þann veg að láta framkvæma
hjer meðfram höfninni.
Um leið og Gunnar skilur við
þetta Bratta-bryggju-hneyxli í
gulu hættunni, leyfir hann sjer
að sparka í þá menn hjer,s sem
gerðust svo djarfir að reyna að
koma í veg fyrir að hafskipa-
bryggjan yrði gerð pieðfram
„Bratta“. Sú lúalega lítilsvirðing
í garð þessara manna, sem höf.
ber þar á borð, sýnir fyrst og
fremst einna ljósast ofbeldis-
hugsun höf.: hann á að vera sá
eini óskeikuli, því eiga allir að
trúa og það eiga allir að skilja,
og í annan stað er það bert, að
eptir dómi höf. getur helst eng-
inn maður hjer haft sjálfstæða
hugsun eða skoðun um nokkurt
mál, smátt eða stórt; það verða
ávalt aðrir að hugsa fyrir þá.
þesskonar sleggjudómar eru auð-
vitað nýir hjer og virðast hafa
flotið hingað til Eyja í kjölfari
höf. gula bæklingsins og dylst
engum lítilsvirðing sú sem jafn-
framt felst í þéssari aðferð, sem
höf. gerir sig márgsekan í. Öll-
um er það þó Ijóst hjer, að eng-
inn hefur gengið nær mönnum
hjer með undirskriftir en ein-
mitt höf. og hans nótar, t. d. þá
þegar þeir gengu svo að segja
fyrir hvers manns dyr til þess
að knýja fram áskorun almenn-
ings um það að núverandi þing-
maður gæfi kost á sjer(!!) til
þingmensku. Jeg hygg, að fáum
undanteknum, hafi menn þá á-
litið að þetta væri „formandi“ og
því fylgt Gunnar! og hans nót-
um af sinni eigin sannfæringu
þótt þá nú allflesta iðri þessa og
skoði það nú sem stópa yfirsjón,
jafnvel höfuð-synd, svo að ekki
mundi þýða fyrir höf. að fara
aptur á flot í sömu erindum. En
svo kemur gamla sagan, að það
er gefið í skyn í gula bækl. þar
sem ræðir um undirskriftirnar
um Brafta-bryggjuna, að við Gísli
Johnsen eigum að hafa afvega-
leitt þessa menn, með því að
smala undirskriftunum og fá einn
og einn til að ljá nafn sitt til
fylgis. f>að er annars einkenni-
legt hve höf. álítur okkur G. J.
Johnsen áhrifamikla leiðtoga,
jafn heimskir og fáfróðir sem við
erum að hans dómi. Skyldi hjer
ekki sem optar verða vart ofur-
lítillar, en jafnframt óviljandi
mótsagnar hjá höf.? Jeg hefi
fyrir löngu búist við því, síðan
guli bækl. kom út, og ætla mætti,
að Gunnari væri farin að renna
mesta reiðin, að hann mundi að
minsta kosti biðja stjettarbræður
sína — hvað sem útvegsmanna-
aumipgjunum hður — sem undir
skjalinu voru, fyrirgefningar á
þessu óverðskuldaða frumhlaupi
hans á hendur þeim. En höf.
hefur gleymt því eða ekki þótt
taka því. Reyndar er Iítilsvirð-
ingin, sem skín í gegn um þennan
kafla bæklingsins of ákveðin til
þess, að þess mætti vænta og
sjest hún best á orðunum: „með
öllu tiltíndu", því að bak við það
orðatiltæki liggur auðvitað hugs-
unin rusl. Sýnir þetta meðal
annars hina alkunnu lítilsvirðingu
höf. í þeirra garð, sem eru ann-
arar skoðunar en hann og hafa
lagt leiðir sínar annarstaðai • en
um þvergirðinginn hans. þeir
sem fá þessar kveðjur Gunnars
í gula bæklingnum eru eflaust
menn til þess að svara fyrir sig
og þakka Gunnari fyrir ummæl-
in um áskorun þá, sem hjer um
ræðir og sem höf. hefur leyft
sjer að kasta í óvirðingar-sorpið.
— Jeg get því verið stuttorður um
þennan kafla níðritsins; vil aðeins
leyfa mjer að þakka höf. fyrir
þann skerf velvildar í minn garð,
sem hann, hjer sem annarstaðar
í gulu hættunni rjettir að mjer.
Og taka vil jeg það fram, að þótt
Gunnar í gorgeir miklum standi
þar með reiddan vöndinn og gefi
í skyn, eins og sæmir vara-
stjórnarvaldi, að hann muni hitta
okkur síðar, að stríðinu loknu,
ef til fundar kernur út af þessu
máli, og teikningin stóra af
„Bratta“ í allri sinni dýrð verður
lögð fram, til þess að láta okkur
„kyngja“ — því ekki hiksta —
mörgu, þá munum við aumingj-
arnir bíða óhtæddir þeirrar hirt-
ingar, en berum aðeins kvíðboga
fyrir því, ef svo illa kynni til að
takast,*að Gunnar yrði forfallað-
ur þá stundina, væri, ef til vill,
| að vinna að einhverjum nýmóðins
| jarðabótum í aimennings þarfir,
af einhverri föðurl,egri umhyggju
fyrir „Eskimóunum“.
(Framh.).
Atkvæðagreiðsla
um
sambandslögin.
sem alþingi samþykti á dögunum
á að fara fram 19. okt. næst-
komandi. það verður síðasti
leikurinn í hinni löngu deilu um
sjálfstæðismálið, og á honum
veltur það hvort nú á að semja
sátt og frið milli þjóðanna, eða
ieggja enn á ný út í orrahríð,
sem enginn sjer fyrir endann á.
það er komið undir öllum at-
kvæðisbærum mönnum, konum
og körlum í landinu, hvor kost-
urinn verður tekinn. Allar líkur
benda til þess, að fyrri kostur-
inn verði tekinn og lögunum
játað af allri alþýðu. Andróður-
inn er ekki svo öflugur að hann
geti hafi alvarleg áhrif á úrslitin,
nema svo óhappalega skyldi tak-
ast til, að þeir sem unna nýju
sambandslögunum, treysti of mjög
á sígurinn og l^ti sig vanta við
atkvæðagreiðsluna; á þann hátt
gæti hún mistekist. Fyrir þessu
er þó naumast ráð gerandi, en
samt er allur varinn góður. Ætti
það að vera mönnum hvöt til
að fjölmenna við atkvæðagreiðsl-
una. það ætti einnig að hvetja
menn til að fjölmenna, að málið
er svo mikilsvert í eðli sínu, að
þjóðin hefur hvað eftir annað
verið í uppnámi út af því, og