Skeggi - 05.02.1920, Qupperneq 4
i
SKEGGI
£eot$ SxsU^on
selur danskan skófatnað
með líku verði og aðrir selja
amerískan, en amerískan
skófatnað selur hann nær
helmingi ódýrari.
Athugið að bestu hversdags-
stígvjelin eru
dönsk vatnsleðursstígvjel
frá
Kolaskortur.
Alvarlegt útlit er orðið með
kolabirgðir landsins. Menn voru
að vona að eitthvað mundi
skipast um til hins betra með
kolaverslunina er landsstjórnin
slepti henni, verðið lækka að
minsta kosti og kapp hlaupa í
kaupmenn með að versla með
kol sem aðra vöru. f>ví var
haldið fram að betur yrði sjeð fyrir
með kolaforðann ef verslun með
þau væri frjáls. En reyndin
ætlar að verða önnur. það fylgdi
þegar með fregninni um frjálsa
verslun að verðið mundi hækka
þegar í stað, framleiðsla vörunnar
er ekki þvílik sem menn ætluðu,
og skipakostur næsta knappur.
Örðugleikarnir litiu minni en á
verstu stríðsárunum. Víst erþað
að fáa kaupmenn fýsir að flytja
kol tii útsölu, á þrí eru svo
margir og stórir annmarkar.
Fram úr þessu hefði þó eflaust
ráðist á sæmiiegan hátt, ef nokk-
urt jafnvægi í verslun og sigling-
um hefði getað komist á í heim-
inum. En því er ekki að heilsa.
Rjett í þeim svifum sem kola-
verslunin verður frjáls, kemur
fregn um það að stórfelt kola-
verkfall vofi yfir í Bretlandi, og
jafnveUönnur verkföll í sambandi
við þafð, sem oft vill verða. Og
þeirri fregn fylgir sú raunasaga,
að koiaflutningur sje bannaður
frá Bretlandi meðan ekki er
sjeð fyrir enda verkfallsins.
Kolaskip sem liggja í breskum
höfnum, fá ekki útflutningsleyfi
á farminum og má ekki vita
hversu lengi það stendur. Ein-
hver kolaskip eru þar, sem fara
eiga hingað til lands, þ. á. m eitt
hingað til Eyjanna, og eru þau
auðvitað í sömu fordæmingunni.
Ekki þarf að fjölyrða um það
hverju slíkt veldur. Mælt er að
um 100 smál af kolum sjeu til
í landinu, en óvíst hvort það er I
að skipakolum meðtöldum eða
auk þeirra. Skiftir það að vísu ,
miklu máli, því að ef svo er að !
skipakol eru þar með talin, þá
má segja að landið sje gersam- [
í versl Árna J. Johnsen’s
sem nú er flutt í hina svo neíndu
Brauðsölubúð (við Krossgötu)
fást eftirtaldar vörur;
Eldhúsgögn allsk. svo sem : Prímusar — Prímushausar
— Pottar (emill.) — BHkkföfur o. fl. — Balar —
Barnabaðker — Mjólkurfötur — Olíubrúsar — Axir
— Hnífapör — Salt-skóflur — Rekur — 'Safflar —
Kaffi — Kaffibrauð 8 teg. — Sykur — Öl 4 teg.
Leikföng og ótal margt íleira
Ath. Peir sem hafa beðið mig að útvega
timbur tii húsagerðar, eru vinsaml. beðnir að
koma með pantanir sínar hið fyrsta
Virðingarfyllst
Hinn ágæti sjófataáburður
„Exelsior”
' " I •
b\í &, 3* 3of\nsetv.
lega kolalaust. Forðinn leyfir þá
naumast þeim skipum burt sem
hjer eru nú og ekkert til handa
fiskiskipum.
Hjer í Eyjum er svo ástatt að
nærri stappar algerðum vandræð-
um ef kolin koma ekki mjög
bráðlega. Skólinn er um það
bil enn hættur af kolaleysi.
Versianir hafa neyðst til að farga
af þessu litia sem þær fengu á
dögunum, hugðu það Vera óhætt,
því að kolaskipið var sagt á
leiðinni. Fáist ekki útflutnings-
leyfið, verður aftur sú tíð að
menn þurfa að brenna steinolíu
nærri einni saman, eins og þegar
verst var á stríðsárunum.
Breska stjórnin vinnur af al-
efli á móti verkfallinu, en jafnvel
Lloyd George sjálfur er talinn
óviss um úrslitin. Hann hefur
til þessa, jafnan reynst færastur
til að afstýra verkfalla-vandræðum
en nú segir mönnum þyngst
hugur um áhrifhans. Koigraftar-
menn í Wales fylgja honum
raunar enn þá, en víða er fylgi
hans að rjena. Mikið er komið
undir hversu þau mál snúast.
,Borg“ og „Wilemoes* bíða
kolafarms í Bretlandi Ný fregn
hermir að .Willemoes* megi fá
300 smál. en verður látin biða í
von um að fá meira.
Kolabrestur er nú svo tiifinnan-
legur í Bretlandi að atvinnufyrir-
tæki hafa stöðvast og Lundúna-
búar kvarta um húsakulda.
Orsakirnar eru taldar verkafólks-
ekla og styttur vinnut'mi.
Alt bendir á að kol fáist ekki
nema með tregðu það sem eftir *
er vetrar.
B.,Suðurland“.
—o—
Loksins er nú lokið við að
semja ferðaáætlun „Suðurlands“.
Eftir henni á skipið að koma
hingað 12 sinnum á tíma-
bilinu frá 1. apríl fram í okt., á
það að fara til Austfjarða og
Vesturlands. Ferðum er hagað
þannig, að þeir sem fara hjeðan
með skipinu tii R.víkur hafa þar
10 daga dvöl þangað til skipið
fer hingað aftur. Á þeim tíma
á skipið að skreppa vestur
Auk þess á skipið að koma
hingað eftir ástæðum á tímabilinu
til 1. apr'l, og aftur frá október
tii áramóta.
„Sterling“ á að koma hjer
öðru hvoru, en ætlast er þó til
að „Suðurland“ taki sem mest
af strandferðum tii þess að
„Sterling“ komist sem oftast til
útlanda. •
Nærföt og Peysur
eru sem annað ódýrast f
Yersl Páll Oddgeirsson
Frjettir.
Sóttgæsla.
Enn á <iý eru settar strangar
skipanir um sóttgæslu við skip
þau er frá útlöndum koma.
Menn af þeim mega ekki fara á
land fyr en liðnir eru að minsta
kosti 5 dagar frá að þeir fóru úr
síðustu höfn. Orsökin til þessara
sóttvarna er inflúensan, sem nú
gerir vart við sig víða um lönd.
Annars er talið kvillasamt
mjög í Rússlandi, svarti dauði,
kólera og taugaveiki, en þaðan
eru engar samgöngur hingað til
lands. Aðrar þjóðir gera alt sem
mögulegt er til að varast sóttirnar
þaðan.
Vínar- börnin
þau komu ekki á „Gullfossi®
síðast, og koma sennilega ekki
fyr en undir vorið. þykir ekki
áhættulaust að senda þau um
vetrartímann.
Ofsaveður
af austri gerði hjer á sunnudag.
Slitnaði þá fjöldi síma og ljós
sloknuðu í flestum húsum. Flestir
símarnir eru biiaðir ennþá. •
Gæftaleysi
hefur verið síðan um helgi,
fjórir bátar rjeru í gær en margir
í dag.
Pingmenn '
ekki komnir að austan og
norðan til R.víkur. „Sterling*
hefur tafist vegna óveðra. Var
á Hólmavík í gær.
Mælt er að Magnús Torfason
bæjarfógeti, telji sig rjettkjörinn
þingm. ísfirðinga og sæki þing.
Alklæði - Cheviot
Og Rykfrakkaefni
ódýrast í versl.
6dd$eussot\.
Agætur
G-raffófón
til sölu. — Ritstj. vísar á.
Hú s
til sölu í miðbænum.
Ritstj. vísar á.
Preirttm. Vectmannaeyja.