Skeggi - 13.02.1920, Side 3
SKEGGI
Þríkveikjurnar
margþráðu erU komnar aptur í versíun
S« S*
Mikið úrval af
*
T v i s 11 a u i
nýkomið í verslun
3- 3ofo\sew,
Minnisblað.
Símstöðin opin virka daga kl.
8 árd. til 9 síðd. Helga daga
10—8.
Póstafgr. opin alla virka daga kl
10—6.
Lyfjabúðin alla daga kl. 9—10. .
íshúsið. Afgr. beita: 9-11 og
4—6. Afgr. kjöt: 6-7.
íslandsbanki 1 —3.
Hjeraðslæknirinn heima daglega
12-2.
út innanlands. Hættan er hvergi
eins mikil sem meðal kolamanna j
og járnbrautaþjóna, og því ber
jafnan mest á er þeir taka að
kurra
Heyrst hefur um kolaskort t
Frakklandi og í Bandaríkjum
N.-Ameríku. það spilliT vitanlega
stórmikið fyrir og gerir raunar
ókleyft að kolatramleiðslan komist
í gott horf á skömmum tíma.
Steinolía kvað vera nóg til
hjer á landi. Von á olíuskipi
innan fárra daga, og öðru eftir
þrjár vikur. það er betra en
ekki neitt, en nægir þó hvergi
nærri tii alls eldsneytis.
Gengi á erlendri mynt.
(Pósthús) 12. febr.
Florin.......... 270 aur.
Dollar....... 725 —
Sterlingspd. . 2350 —
Franki .... 513/* —
Sænsk króna. 135 —
Norsk — 125 —
Franki svissn. 125 —
þýsku mörkin eru nú
metin á rúma 6 aura (í stað 89
aur. áður fyr) eða 100 mörk
minna en 1 dollar.
Verðhækkun.
—:o:—
„Lengi getur vont versnað"
má nú fara að segja um verð-
hækkunina. Allar vonir um
verðlækkun eftir ófriðinn hafa
orðið til skammar. þessi litla
tilslökun sem varð á verði á
sumum vörum fyrst í stað, ætlar
að hefna sín grimmilega. Nú
hjálpast alt að til að spenna
verðlagið á útlendum vörum upp
úr öllu valdi, kröfur verkamanna,
skortur á efnivörum, skipaskortur
og síðast en ekki síst, geysileg
verðhækkun á erlendri mynt.
Matvörur hækka taumlaust,
sagt er að 1 hveitipoki (126 pd.)
frá Ameriku hækki nú um 25— j
28 kr. vegna verðsins á dollar-
anum; þar eftir má búast við að !
olían fari, og alt annað er kemur
frá Ameríku. Byggingaefni hækka
nú óðum. Talið er að þakjárn
verði hálfu dýrara nú en í fyrra
og þótti nóg sem þá var. Timbur
hækkar stöðugt í Svíþjóð, og
sænska krónan þvi meira. Hún
er nú komin svo hátt að meiru
nemur en fjórðungi verðs. Aðrar
vörur til byggingar eru taldar
fara þar eftir, og þá er ekki að
spyrja um verkalaunin. þetta
hefur haft þau áhrif að fjölmargir
menn í Reykjavík, sem ætluðu
sjer að byggja í sumar, hafa
orðið að hætta við það sakir
hækkandi verðs á öllu. Af því
leiðir vitanlega sömu húsnæðis-
ekluna, sem verið hefur, og
sennilega atvinnutjón fyrir all-
marga er höfðu ætlað sjer að
vinna við húsagerð.
Skipaverð er sagt að hækki
mjög í Bretlandi, gömul botn-
vörpuskip komin upp í 24 þús.
stcrl pd. og pundsverðið orðið
yfir 22 kr. í stað 18 kr. er áður
var talið. Mörg skip eru nú i
smíðum í Bretlandi, sem hingað
eiga að fara, og auk þess er
verið að leita fyrir sjpr um kaup
á eldri skipum. Nokkur botn-
vörpuskip eru einnig í smíðum í
þýskalandi, og munu þau ekki
fást þaðan nema gegn greiðslu
í dönskum peningum, og getur
það orðið dýrt spaug ef til vill.
Mesta ahyggju^fnið fyrir
íslenska kaupsýslumenn er hið
sí-lækkandi verð á dönskum
peningum í öðrum löndum.
Dollar er nærri kominn upp í
tvöfalt verð, sterl.pd. kr. 23,50 á
pósthúsi, sænska krónan kr. 1,35
og sú norska kr. 1,25. Ástæðan
er ekki kunn almenningi; þess
er raunar getið til að ráðstöfunin
um innlausn ríkisskuldabrjefa á
stríðsárunum eigi mikinn þátt í
þessu Hn sjálfsagt er það eitt-
hvað fleira sem veldur. þjóð
verjar hafa snúið sjer þann veg
við verðlækkun á sinum pen-
ingum, að þeir selja til útlanda
eingöngu gegn útlendri mynt
Talið er að þeir hafi þegar ijen-
ast vel á þeirri aðferð.
Krydd m. teg.
Rúsínur
Svezkjur v
Kúrennur
Agúrkur
fæst í versl.
S. 3* 3ofa\setv.
Brenslnspritt
V
(glært) nýkomið.
Brynj Sigfússon
7
Nótt í Sahara
(Framh.)
Að því loknu hjeldum við
inn í einu ölkrána, sem
þar var og drukkum skál setu-
liðsins. þar voru haldnar stuttar
ræður en gagnorðar. Víkinga-
blóð sauð í okkur öllum. Einn
fjelagi minn kallaði okkur
„víkingana á þurra hafinu” og
það vorum við sannarlega. Hyði-
mörkina kallaði hann „þurra
hafið“.
Mjer er enn í minni hann
fóstbróðir minn þessa nótt. Hann
var efnismaður, það segi'jeg satt.
Hann var fríðasti maðurinn og
hugrakkasti sem jeg hef þekt um
dagana. Hann var kosinn foringi
8
okkar ef við skyldum þurfa að
fara í óleyfi; enginn grunaði
hann um bleyðiskap.
Við vorum skólabræður og
mestu mátar frá því að við
sáumst fyrsta sinni. Systir mín
hafði bundist honum með mínum
vilja, en móti vilja foreldra
minna; þau hótuðu að gera hana
arflausa og ættræka ef hún
ætti þennan mann; henni var
ætlaður einhver aðalsmanns-
ræ^ll. jeg tók upp þykkjuna
fyrir systur mína og fóstbróður
og þannig atvikaðist það að við
hættum báðir námi og hjeldum
þarna suður eftir. Við heit-
strengdum báðir að hverfa ekki
heim aftur fyr en við hefðum
unnið okkur eitthvað til frægðar,
alt átti það að vera fórn fyrir
ást systur minnar, hún hjet því
að sitja i ólöglegum festum þang-
9
að til hann kæmi heim aftur,
en lifa ógíft elia, og hún efndi
það. En hverju hún fórnaði, það
veit enginn nema jeg og guð.
Jeg segi yður satt, að þið ungu
læknar, sem alt þykjast vita og
skijja, þið verðið oft að leita
likamsmeinanna utan við líkama
sjúklingsins. Læknirinn, sem
stundaði hana í banalegunni,
grunaði það síst að sjúkdóms-
orsöki lægi í sandinum suður i
Sahara, og systir mín var of trú
sjálfri sjer til þess að fara að
fara að geta um það við hann,
ókunnugan manninn; hún vildi
heldur veslast upp, auminginn
þessi.
Liðsforinginn þagnaði óg horfði
beint fram undan sjer. það
kom þungur raunasvipur á and-
litið á honum, brýrnar sigu og
hrukkurnar i andlitinu dýpkuðu.
t
\ 10
Augun stækkuðu og stóðu star-
andi, e n andardrátturinn varð
djúpur og óreglulegur.
Læknirinn fiýtti sjer að panta
glas af góðu vini handa hvorum
þeirra, og kom þjónn með það
að vörmu spori. Lækninum var
orðin forvitni á að heyra fram-
hald sögunnar, og bauð líðs-
foringjanum hæversklega að
drekka með sjer. það lifnaði
yfir gamla manninum og þági
hann boðið.
„Mig langar að heyra hvað þið
tókuð til ráða um morguninn,
ef þjer viljið gera svo vel að
segja mjer það“, mælti læknirinn
auðmjúklega.
„Jeg ætlaði líka einmitt að
fara að segja yður frá því, en
hitt blandaðist inn í hjá mjer.
það blandast æfinlega inn í
hugsanir mínar þegar jeg er einn,