Sköfnungur - 03.05.1902, Side 2

Sköfnungur - 03.05.1902, Side 2
2 SKÖFNUNGUR. Sakir þessa viljum vór sigra, og til þess væntum vór styrks allra góðra og ftjáls- lyndra drengja. Fyrir landshöfðingjaílokkinn, eða „heima- stjórnarmennina“, sem sig svo nefna, er það á hinn bóginn, sem hnífstingur í hjarta, að hugsa til þess, að æðstu völdin komi í nýj- ar hendur, enda byggja iná ske sumir helztu forkólfarnir í þeim flokki allar sínar frani- tíðarvonir á áframhaldandi riki hinnar nú- verandi embættis-nkliku“, eða einhvers af því sauðahúsi. Með nýrri stjórn kynni og embættis- eptirlitið að skerpast, vinirnir yrðvj ef til vill aðrir o. s. frv. Þetta skapar hitann, og því verða þeir að harnast nú við kosningarnar, til þess að öðlast þann meiri hluta á þingi, sem einn er þess megnugur, að halda hinu fallandi riki þeirra uppi, eins og nú er koinið. En fái apturhaldsliðar meiri hluta á þÍDgi, þáerallt í þeirra hondi, og geta þeir þá gert, sem þeim sýnist, anDað tveggja að samþykkja stjórnarskrárbreytinguna, og fá svo ráðherra að sínu skapi, einhvern úr embættis-„klikuninu, eða að hindra fratn- gang allra stjórnarskrárbreytinga, t. d. með því, að „fleyga“ málið, eins og á undan- förnum þingum, svo að núverandi stjórnar- ástand haldist enn óbreytt, og völdin verði í sömu manna höndum, sem nú .... Frambjóðendur í Tsafjarðarsýslu og kaupstað. Á kjörfundinum hér í kjör- dæmÍDU 11. júní næstk. verða í kjöri: Af hálfu stjórnbótaflokk8Íns: sira SlG. STEFÁNSSON í Vigur °g Skúli Thoroddsen. Af hálfu lan dshöfðingja- eða apt- urhaldsflokksÍDs: H. HAFSTEIN, sýslumaður, og MaTTHÍAS ÓLAFSSON, verzlunarstjóri. I, 1. Fleiri verða eigi i kjöri, að því er enn hefir heyrzt. Allir frjálslyndir menn í kjördæminu kjósa tvo hina fyrnefndu. Dálagleg iðja. Ef apturhaldsliðið segði, sem er, að það væri nú að berjast fyrir þvi, að geta haldið núverandi landshöfðingja við völdin, eða þá að fá hann, eða einhvern hans nóta úr apt- urhaldsflokknum, sem ráðherra, þá yrði fylgi þess lítið, ekki sízt hór í Isafjarðarsýslu. Þetta má því fyrir engan mun segjast, heldur verður að tala hátt um ættjarðarást, brennandi áhuga á þjóðarÍDnar högum, og þar frain eptir götunum. ,r..^... En um fram allt verður að ófrægja og rægja stjórnbótaflokkinn, til að .koma /hans mönniun af þingi, því að þar er „lífið katt- arins og allra músanna komið undir“. Og það væri lika synd að segja, að rógurinn væri sparaður. I allan liðlangan vetur hefir ræðutextinn verið sá sarni, að þingmannaefni stjórnbóta- flokksins væru svikarar og prakkarar, er myndu svíkja kjósendur, og snúast önd- verðir gegn innlendri ráðherrastjórn, hvað sem þeir nú segðu. En af því að stjórnbótaflokkurinn hefir íýst hinu gagnstæða ótvírætt yfir, bæði í bréfum til flokksbræðra sinna, og í bréfi til sjálfs ráðherrans, sem prentað er í blöðun- um, þá er þessi rógurinn hverjum manni svo auðsær, að ólíklegt er, að nokkur sé svo vitlaus að trúa. Þetta sér og viðurkennir apturhaldsliðið einnig, og því er gripið til þeirra ráða, að ljúga því upp, að dr. Valtýr, eða Skúli Thoroddsen, hafi nú sagt það og það við þenna eða hinn. Um dr. Valtý hefir apturhaldsliðið t. d. logið því upp, að hann hafi, á stúdentafundi í Kaupinannahöfn í vetur, tjáð sig mótfall-

x

Sköfnungur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sköfnungur
https://timarit.is/publication/210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.