Suðurland - 14.10.1911, Page 3
SUÐURLAND
73
AðflutningsbanniS. Það kom í ljós á síð-
asta þingi að þingmenn vildu þar skernma
sín fyrri verk, með frestun þeirra, en það
er föst sannfæring mín, að bannlögin reyn-
ist heillarík í framtíðinni og ætti fremur
að flýta framkvæmd þeirra en fresta, eink-
um þar sem nú virðist drykkjuskapur stór-
um fara í vöxt og er slíkt voðalegt. Er
sannarlega kominn tími til að stífla þessa
eiturlind, hún hefir ofmargan góðan dreng
eyðilagt og er að eyðiieggja.
Verð eg nú að láta her staðar nurnið
að sinni, væntanlega sendi eg þór línu við
tækifæri, ef guð lofar.
Óskandi þérogfesendum þínumallraheilla,
er eg þinn með virðingu
10. sept. 1911.
Einar Sigurfinnsson.
Frá fréttaritara Suðurl. í Rvík.
9. oktober.
Spi’eugiiig. Eitt af stærri herskipum
Frakka sprakk i loft upp á höfninni Toulon
þ. 25. sept. Yflr 500 manns fórust.
Eldí'jallið Etna á Sikiley byrjaði að
gjósa um miðjan fyrri mánuð. Gos þetta
heflr þegar valdið afarmiklum eyðilegging-
um. — Þremur dögum eftir að vart var
við fyrsta eldgýginn, voru taldir yfir 300
eldgígir gjósandi. Þar sem hraunið fer
yflr, er frjósamasta svæðið á allri eyjunni.
Öskufallið feikilega mikið, svo, að naumast
sést munur á nóttu eða degi í grend við
fjallið.
Hcrliðlð í Vinarborg skaut niður og
særði yfir 100 mans þ. 17. f. m.
Petta stafaði af útimóti er jafnaðatmenn
héldu þennan dag. Um 40 þúsuudir manna
voru þar samankomnir og ræðupallar voru
reistir þar eigi færri enn 30 og talað frá
öllum þeirra í einu, eingöngu æsingaræður
gegn stjórninni. Múgurinn hrópaði: „Niður
með stjórnina!" „Lifl ]ýðveldið!“ o. s. frv.
Herliðið var fengið til að skakka leikinn
og þeirri viðureign lauk með voðalegum
blóðsúthellingum. — Síðustu frognir segja,
að alveg só óvíst um tölu hinna föllnu og
særðu, en fleiri hundruð manns hafa verið
flutt á sjúkrahúsin.
Frá Spáni er að frétta hina mestu
óöld; sumar borgir í hervörslu; dráp og
brennur hingað og þangað um iandið. Verk-
föll í öllum iðnaðaigreinum í Saragossa.
Lýðnum og herliðinu lendir iðuglega í blóð-
ugum bardögum og veitir ýmsum betur.
Frá Portugal. Konungssinnar þar gera
alt sem í þeirra valdi stendur til að koma
Manuel konungi aftur til valda. Her þeirra
(norður við landamærin) bíður nú altilbú-
inn til að ráðast á lýðveldismenn; bíða að
eins eftir peningum sem þeir eiga von á
frá Englandi.
Voðaástand á ítaliu. Rúsundir manna
farast úr kóleru. Nýlega er yflrlæknir
frá Stokkhólmi, Holmgren að nafni, kom-
inn heim úr skemtiför um Ítalíu, og fluttu
„Kvöldtíðindin" þar eftir honum 11. f. m.
Þetta meðal annars:
Astandið í Genúa er hræðilegt og í Liv-
orno deyja daglega um 300 manns úr kóleru.
Stjórnin reynir að hefta veikina.
Þýsk herskip vaða nú mjög um Stóra-
belti og hafa gert dönskum sjómönnum
stórtjón. Einkum hafa þau eyðilagt síldar-
net þeirra hunduðum saman. Hafa Danir
heimtað skaðabætur, en óvíst hvort. því
verður sint.
Óöld i Kiua er nú hin mesta. Innan-
lands óeyrðir miklar, vatnsflóð o. fl.
Tugir þúsunda manna farast.
Tripolisher á ítala valdi eftir langvinna
skothrið. Balkan órólegur.
Símsk. til Isaf. 6. þ. m.
Undirbúningsfundi
undir næstu alþingiskosningar hafa þeir
verið að halda þingmannaefnin þrjú, séra
Kjartan Helgason, Jón Jónatansson og Sig.
Sigurðsson. Á Stokkseyri héldu þeir fund
kl. 12 á miðvikudag sl. og hér á Eyrarb.
um kvöldið. Lýstu þeir afstöðu sinni gagn-
vart þeim helstu málum, sem búist er víð
að liggi fyiir næsta þingi, og þá fyrst og
fremst stjórnarskrármálinu. Ekki voru þing-
mannaefnin allskostar ánægð með stjórnar-
skrárfrumvarp siðasta þings, voiu t. d. allir
sammála um, að ekki hefði verið nauðsyn
að fastákveða þar að ráðherrar skgldu vera
3. nóg að stjórnarskráin hefði leyft fjölgun
ráðherra. Rýmkun kosningaréttarins voru
þeir eindregið fylgjandi sóra Kjartan og Jón,
meðal annars að kvenfólki væri veittur
kosniugaróttur, álitu, að ranglátt væri að
varna þeim konum sem taka vildu þátt í
stjórnmálum atkvæðisréttar. Séra Kjartan
áleit kvenþjóðina fult svo hæfa til þess að
hafa holl og góð áhrif á ýms þýðingarmikil
mál sem karlmenn. Sig. Sigurðsson vildi
hlifa kvenþjóðinni við að dragast út í deilu-
mál dagsins og andmælti fremur kosningar-
rétti kvenna. En allir voru þeir á einu
máli um það, að kostir frumvarps síðasta
þings væru svo miklir, að æskilegast væri
að samþykkja frumvarpið óbreytt á uæsta
þingi til þess að stofna málinu ekki í tvísýnu.
Sparnaðarmenn voru þeir auðvitað allir
þ. e. vildu styðja að gætilegri fjármálapóli-
tík.
Spurningar komu fram um það, hvort
þeir mundu vilja styðja núverandi stjórn
framvegis, ef til þess kæmi að núverandi
ráðherra vildi taka að sér stöðuna áfram.
Sig. Sigurðsson tjáði sig honum eindregið
fylgjandi, en séra Kjartan og Jón kváðust
ekkert ákveðið geta um það sagt, enn væri
aðeins stuttur tími liðinn af stjórnartið hans,
langt fram að næsta þingi og margt gæti
breytst til þess tíma og því algerlega óhugs-
andi að gefa bindandi loforð löngu fyrirfram.
í sambandsmálinu sagðist Sig. Sig. hafa
sömu skoðun og fyr, Jón taldi heppilegast
að málið væri alveg strykað út af dagskrá
og ekkert hreyft við því fyrst um sinn,
sömu skoðunar var sr. Kjartau, taldi sig
þó ekki ófúsan til samkomulags með miðlun
ef málið yrði tekið upp. Vildi vinna að
frið inn á við og út á við.
Þá voru þingmannaefnin spurð um skoðun
þeirra á aðflutningsbannsmálinu. Voru þeir
eindregið fylgjandi bannlögunum sr. Kjartan
og Sigurður, en Jón að því leyti, að hann
vildi ekki að þau væru afnumin af alþingi
einu, en var því meðmæltur, að þau væru
lögð undir þjóðaratkvæði aftur, og það væri
búið fyrir 1915, er þau eiga að ganga í
gildi að fullu. Því voru hinir mótfallnir.
Fundurinn var tjölsóttur af kjósendum
og fór vel^fram.
Á E.b.fundinum kom fram tillaga um, að
lýsa velþóknun á framkomu gömlu þingm.
á síðasta þingi, hún var tekin aftur, enda
mæltist Sig. Sigurðsson til þess, mun hafa
hálfvæmt við.
Þeir eiga mikla þökk fyrir það, innan-
sýsluframbjóðendurnir, að halda fundi hér
neðra. í’ví hafa menn ekki átt að venjast
áður. —
En eitt er næsta kynlegt, og það er, að
4. þingmannsefnið, Hannes Þorsteinsson
mætti ekki á fundunum og sendi kjósend-
um engin skeyti um afstöðu sína til hinna
ýmsu þýðingarmiklu mála. fess var þó
fremur þörf fyrir hann en t. d. Sig. Sigurðs-
son. Sigurð þekkja menn fremur í gegnum
alþingistiðindin, en Hannes hefir verið for-
seti og því alókunnugt um afstöðu hans
t. d. til stjórnarskrármálsins o. fl.
Við kosningarnar 1908 gat t. d. Jón
Bergsson á Egilstöðum ekki mætt á þing-
málafundum sökum veikinda, en hann fékk
hinum innansýsluframbjóðandanum, Sveini
frá Firði umboð í hendur til þess að lýsa
skoðun sinni, ekki aðeins í sambandsmálinu,
heldur og í ölium aðalmálum kjördæminu
viðkomandi, en Sigurður Sigurðsson lýsti
því yflr, að hann hefði ekkert umboð frá
Hannesi til þess að lýsa afstöðu hans í
nokkru máli og varðist allra frétta í því efni.
En það er þó að misbjóða almenningi, að
ætlast til að haun kjósi blindandi, láta
ekki svo lítið að tilkynna nein forfoll.
Það er tæplega hægt að skoða þetta á
annan veg en óbeinhnis afturköllun á fram-
boðinu. Þau þingmannaefni, sem ekki vilja
leggja það á sig — eða ekki láta svo litið
að tala við kjósendurna, geta tæplega vænst
þess, að fá atkvæði þeirra, síst þegar menn
eru í kjöri sem hafa virt kjósendur svo
mikils að tala við þá.
Ágrip þetta or tekið eftir báðum fund-
unum (á Stokkseyri og hér). J. H.
----------------
cTCáíí smjörverð.
Clephan & Wienke New-castle on Tyne
seldi síðustu sendingu frá Þykkvabæjar-
smjörbúi á 1,20 aura pundið brutto eða
um kr. 1,14 pd. netto.
Þetta mun vera hið hæsta verð sem
fengist heflr.
Búnaðarsamband Suðurlands selur
4 hesta
veltamda fyrir plóg og sláttuvél.
Lysthafendur snúi sér til Agústs Hclga-
sonar Birtingaholti eða Jóns Jónatanssonar
á Ásgautsstöðum.