Suðurland - 27.10.1911, Qupperneq 3
SUÐURLAND
83
tJlvώi
flutt á 80 ára afmæli
Jórunnar forgilsdóttur
11. okt. 1911.
Lag : Sat hjá læknum. —
Yflr fagra æfl’ og langa
áttu’ að lita, kona góð!
Þú hefir safnað þér og börnum
þínurn dýrurn sparisjóð:
Guðs og manna góðra hylli
gæfan lét þór falla’ í skaut;
um áttatíu ár með snilli
yflrvannstu hverja þraut.
Sómakona silfurhærða,
sittu hjá oss litla stund,
þigðu kaífi og kökubita
af kunningjanna þinna mund.
Eins og barn þú giaðst enn getur.
og gleðja aðra ljúft er þér.
Og ekkeit getur glatt oss betur,
en góða. sál ef hittum vér.
Ekki’ er liflð einskis virði,
ef að það er lifað vel;
yfir langa æfi’ að líta
er þá líkt og fagrahvel
dreifir geislaskrúði skæru
skýin gegn um þrumu myrk.
Lífið er til láns og æru,
ef ljóssins von er björt og styrk.
Hafðu, Jórunn, þakkir þýðar
þína fyrir dygð og trygð!
A þér hríni óskir vorar:
Engin mæba, sorg né hrygð
yflrbugi andans göfgi,
er þig jafnan hefir prýtt.
Æskufagur yndis-höfgi
æfikvöid þitt geri bhtt!
Gamall Oóðkunningi.
Utan úr heimi.
Stórmerkilegur forninenjafuiidur. í
þorpinu Terslev við Ringsted, hafa fundist
þýðingarmiklar fornmenjai-. Börn sem voru
að stinga upp í garði, fundu skjólu, fulla
af silfurpeningum og fleiru. Er ætlað að
fé þetta sé frá 10. öld og hafl verið falið
þarna.
í skjólunni var’, meðal annars: hálshring
ur, i ]/2 al. langur, snúinn saman úr V4
þml. gildum guli- og silfurþráðum, hálsfesti,
fléttuð úr silfurþráðum, 2. al. löng, fjöldi
af armböndum, sum 1 þml. á breidd og
]/g þml. á þykt. Enníremur silfurskál
stór, um 2]/2 þml. á hæð og um 5 þml. í
hringmál, og margir aðrir silfurmunir, hníf-
ur með silfurfesti, 500 silfurpeningar af
ýmsum stærðum. Vegur þetta alls um
13]/2 pd.
Ný eimskip eru nú í smíðum hjásam-
einaða gufuskipafélaginu, ekki færri enn 7.
Eitt þeirra á að vera til íslandsferða.
Það skip er ætlað að kosti 1 milj. króna
270 feta langt og 40 fet á breidd. Rúmar
70 farþega á 1. farrými og líkt á 2. A
Þilfari verður stór og rúmgóður borðsalur
og einnig verður þar hljóðfærasalur mikill.
Niðri í skipinu verður búnings- og baðher-
bergi. Ennfremur verður lestarrúm mjög
vel um búið, með stóru frystirými, verður
þar hægt að hafa 7 gráðu frost.
Ætlast er til að þar verði flutt nýtt kjöt
og fiskur.
Skipið rúmar um 1000 sraálestir og heflr
13 miina ferð. Þar sem skipið ekki getur
lagst við bryggju, flytur það farþegja á
milli í vólarbát, sem fylgir skipinu. Það
mun eiga að hefja ferðir sínar í júnímán-
aðarbyrjun 1912 og þá hættir Ceres ferðum
hingað.
furkar miklir í Noregi í sumar, svo
hætt er við að verkfall verði í vetur, sök
um vatnskorts, en vatn er notað sem
hreyflafl.
Bagrov, sá er skaut. Stolypin til bana,
var hengdur 25. f. m.
Til íslandsferða heflr hið norska ís-
landsferða gufuskipafélag, keypt i Hamborg
þýskt gufuskip, sem svo verður gert við
og dubbað upp og heflr síðan strax ferðir
sínar. Wathne er forstöðumaður þessa fé-
lags, er nefnist: „Den norske Islandsrute".
Tveir amerískir verkfræðingar komu
29. f. m. til Færeyja að rannsaka kola- og
koparnámur á Suðurey. Kol eru í jörð
bæði kringum Trangisvaag og Kvalbo og
hreinn kopar er víða á vesturströnd eyjar-
innar, nælægt Sumbo og Yaag.
Albertí er nú sagður lasinn mjög, sem
afleiðing fangavistarinnar. Svo magur kvað
hann vera orðinn, að kunnugir þekkja hann
naumast. Hann hefir beðið leyfis um, að
mega læra spönsku í frítímum sínum, og
hefir verið veitt það. Er ætlað, að hann
muni hyggja að fara til Suður-Ameríku, að
aflokinni fangavist.
l)ýr fariuur. Fyrir skömmu kom
gufuskip til Stokkhólms með kaffifarm, sem
virtur var á 4]/2 miij. króna.
Guðmundur Hjaitason
á fyrirlestra ferðum.
fann 24. þ. m. lagði hr. Guðm. Hjaltason
A stað í fyrirlestraferðir austur um Arnes-
Raugárvalla- og V. Skaftafellssýslu. Er hann
sendur af fjórðungsstjórn U. M. F. í. til
þeirra ungmennafélaga, er í sambandinu eru.
Hin félögin fá ekki að kaupa af honum fyr-
irlestra þó þau viiji.
Fyrirlestrarnir verða haldnir þannig:
Grímsnesi 27. okt.
Laugardal 29. —
Biskupstungum 31. —
Hrunamannahrepp 2. nóv.
Gnúpverjahr. 4. —
Undir Eyjafjöllum 7. —
Mýrdal 10.—11. —
Gaulverjabæ 17. —
Stokkseyri 18. —
Illa hyggjum vér ungmennaféiög, sem
ekki eru í sambandinu muni kunna því, að
fá ekki að hlýða á Guðmund, og varla mun
það vænst til samkomulags og að fá félög
inn í sambandið, að banna Guðmundi að
halda fyrirlestra fyrir þau, ef þau vilja kosta
þá sjálf. Það mun eiga að vera bót í máli,
að hann má gjöra aðra ferð til að sinna
þeim, ef hann viil vinna til þess. En í
þessari ferð má hann alls ekki segja neitt
til andlegrar uppbyggingar fyrir vesahngs
hafrana, sem standa til vinstri hliðar sam-
bandsins.
Best tryðum vér því, að Guðm. kynni
því illa, að verða að gera þessi félög að
olbogabörnum, og eins og áður er nefnt,
mun þetta ekki vera leiðin til samkomu-
lags og samvinnu. Öðrum ráðum verður
fram að fara, ef hlýta skal. Þessi aðferð
er naumast í anda hins rétta ungmennafé-
lagsskapar.
Það eru annars engin sældar kjör, sem
Guðm. eru nú boðin hér heima, fyrir starf
hans langt og vel unnið, ef U. M. F. í.
ætlar að hafna ritgjörðum hans í blað sitt,
Skinfaxa og senda hann í fyrirlestraferðir
á þann hátt er áður er nefnt. Ef til vill
launar sambandið þær ferðir svo vel, að
óþarfl sé fyrir Guðm. að innvinna sér nokk-
rar krónur aukreitis, ef hann á þess kost.
Betur að svo væri.
Nágrannaþjóðirnar hafa tekið'Guðm. opn-
um örmum, og aldrei reynt að leggja stein
í götu hans, heldur greitt fyrir honum á
allar lundir. Allir hafa kepst um að fá
hann til sín, til að hlýða á ræður hans, sem
allar eru þrungnar af eldmóði sannrar ætt-
jarðarástar og eru björt ljós, sem lýsa veg-
inn upp á við tii sannrar menningar og þjóð-
þrifa. Veitir oss af slíkum áhrifum? Hver
vogar að neita því, að kenningar þær er
G. H. flytur, séu hollar og þarfar æskulýð
vorum ?
Þörfnumst vér máske ekki annara kenn-
ingar, enn þeirra, sem nú eru efst á baugi
hjá oss, stjórnmálakenningarnar ?
Guðm. Hjaltason á að vera leiðarljós
æskulýðsfólaga vorra, af því hann byggir
á traustum grundvelli. En til þess þurfum
vér að búa þannig að honum nú, að hann
þuifi ekki að flýja land vort á ný.
Vér vonum að til þess komi aldrei.
Vór megum ekki missa hann.
—..—<m---------
c7jœr og ncer.
Tiðarfarið hið allra besta, sem hægt
er að fá. Hreinviðri, frost og stillur.
Fiskilaust er nú hér.
HciLbrig'ði góð, viðast hvar, kvef hefir
þó gengið, en er víst í rénun.
Kosningaróður er nú talsverður um
þessar mundir, er barist af kappi allmiklu
og mun þó harðna enn bardaginn um hver-
ir skuli á þing komast, innanhéiaðsmenn
eða utanhóraðsmenn. Vant að sjá hverjir
bera sigur úr býtum í baráttunni.
ísliúsið á Eyrarbakka óskar þess getið,
að það liafi til síld, sem hægt sé, að fá í
beitu, ef menn vildu róa til fiskjar.