Suðurland - 04.10.1913, Blaðsíða 2
66'
SUÐURLAND
Heilræðl til allra seni til lteykjavikur
koma!
Lítið fyrst inn í búðina í
Austurstræti 6
tn
Árna Eiríkssonar
og skoðið alt sem þar fæst á
Útsolunni
MEÐ 10-40«/. AFSLÆTTI.
TakiO cftir!
Kegnkápum Waterproof, fyrir karlmenn
og kvcnfðlk, seljast
með 20—30 % afslætti.
cfiezta úísaía í dÍayfy'avífi!
Stúdentafólag safmælið norska,
Matthías Þóiðarson fornmenjavörð'
ur var kjörinn til íararinnar á afmæli
Stúdentafélagsins norska, og er hann
nú kominn til Kristjaníu.
Flytur hann norska stúdentafélag-
inu ávarp með einkennilegu sniði.
Kru það vísur tvær ristar á áttkant-
að rúnakefli. Þær hljóða svo:
Frændur andans bróðuiböndum
bundnir í ljóði’ og sifjum þjóða,
hlýðið kvæði! Söngva seiðir
samúð drengja’ í helga strengi. —
Fagurgim af hugans heima
heilögum glóðum Dofra þjóðar
tendrar bríma’, og bregður ijóma
brimlogs rúna’ um norður himin.
Fögur blika yfir hetjuhaugum
haugabál að snilli-málum,
málum þrungnum sól og söngvi
söngva-þjóðar á norðurslóðum. —
Aldrei dvíni vegur og veldi
voldugum, fríðum Noregs lýði,
lýði’, er gaf oss fræga feður
feðra vorra’ og tungu Snorra!
En.utan um keflið var letrað:
„Frá ísienska stúdentafélaginu til
norska stúdentafélagsins".
Guðm. Guðmundsson kvað vísurn-
ar. Stefán Eiríksson reist rúnar.
Ófriður á Balkan að nýju,
Símfregnir til Reykjavíkurblaðanna
segja nýjar róstur á Balkanskaga,
uppreisn í löndum Serba og Albaníu,
og er kent undirróðri Búlgara.
Fessi tíðindi koma óvænt rétt í
því að friður er loksins fullsaminn
þar syðra. Óvíst er hvað úr þessu
verður frekar, en ískyggilegar eru
horfurnar er ófriðarblikuna dregur upp
að nýju svo skyndilega.
-------C-oO^O--—
Bókafregn.
Einar Hjörleifsson: Lén>
harður fógeti. Sjónleikur
í fimm þáttum. Reykjavík.
Bókaverslun Sig. Kristjánss.
1913.
Það heíir hingað til naumast þótt
ómaksins vert, hér á landi, að gefa
út leikrit og þá sjaldan það hefir verið
gjört, hafa útgefendur skaðast á út-
gáfunni, markaðuiinn verið svo lítill.
Nú er þetta þó heldur að lagast, mönn-
um er farið að skiljast, að góÖ leik-
rit séu þó, ef til vill, einhvers virði.
Enn eru þeir þó altof íáir, sem sjá
og skiJja tilgang slíki a rita. Fáir sem
taka eftir því, að það eru Þeir sjálfir
og samtíð þeirra, sem, ef til vill, eru
þar sýndir að meiru eða minna leyti.
Það er því næsta lærdómsríkt að
athuga slíkar „lifandi myndir" af
mannlífinu.
„Lénharður fógeti", lekrit það sem
hér er um að ræða, er þörf áminn-
ing og hugvekja til þjóðarinnar, um
að sameinast og standa fast gegn út-
lendu valdi, i hverri mynd sem það
birtist.
Leikurinn fer allur fram hér austan-
] fjalls, (á Selfossi, Klofa og á Hrauni
i í Ölfusi). Jjénharður, danskur fógeti
frá Bessastöðum, er yfirgangs og of-
stopaseggur, djarftækur til fjár og
kvenna, með sveina marga, flesta sér
líka. Hann hefir komið austur yfii
fjall og sest að í Arnarbæli, vita
austanmenn ei fyr en vogestur sá er
raitt á meðal þeirra, standa þeir uppi
varnarlausir fyrir ofbtldinu. Fá er
sýslumaður í Árness- og Rangárvalla-
sýslum, Torfi bóndi í Klofá, kæra
bændur þegar fyrir honum vankvæði
sín. Eftir messugjörð í Klofa, er
ráðin aðför að Jjénharði fógeta og
flokki hans. J.ýsir höf. vel kjarna
þeim er sífelt geymist í sveitum lands
vors og manndómi þeim og þreki er
búalið vort á í fórum sínum er mest
á ríður. — Par leynist gullið — ekki
óblandað þó — sorinn fylgir með.
Engir ættleiar fornra feðra eru þau
Bjarni gamli á Hellum og Ingiríður
m
r
k,
á
r
k.
á
á
r
k.
Prjónavélar
sem fengið hafa 15 ára hérlenda reynslu
með miklu lofi.
Saumavélar
sem einnig hafa margra ára hérlenda reynslu
og afar mikla sölu.
V é I a r þessar eru með fullri ábyrgð og seldar með
afar lágu verði fragtfrítt á hafnir og vel umbúnar.
Skrifið eftir upplýsingum tii
Vefnaðarvöruverzlunar
TH. THORSTEINSSON
Ingólfshvoli Reykjavík
( sömu verslun kaupið þér einnig ódýrasta alla nauð-
synlega Vefnaðarvöru og hafið úr langmestu að velja
Munið hjá TI Í. TF
kinMNIÍ
i Hvummi, Ingólfur á Selfossi og
Guðný dóttir han«. Ró mun víkings
lundin forna hvergi koma Ijósar fram
en í Eysteini Ur Mörk. Magnús, fóstur
sonur Stefáns biskups í Skálholti er
Og göfugmenni.
Rað má segja að öll kvenþjóðin
leggi og sinn skerf til málanna og
hann ekki óríflegan.
Einna minst virðist verða úr aðal-
persónunni sjálfri, ljénharði fógeta, þó
munu um það verða skiftar skoðanir.
Jón á Jjeirubakka, er öllum sam-
mála og Freysteinn bóndi á Kotströnd,
„Kvikindið frá Kotströnd", ev svo
auvirðilegur, að naumast verður að
honum hiegið
Annars kann eg engum betra ráð
að gefa, en fá sér bókina og lesa
hana rækilega. Mun og svo fara að
bók þessi mun verða mikið keypt,
ekki síst hór austanfjalls, þar sem
atburðiinir eru látnir gerast.
Bókin kostar í kápu 2 kr. og fæst
hér á Eyrarbakka í bókaverslun Sig.
Guðmundssonar og á .Stokkseyri i
bókaverslun Pórðar Jónssonar.
K, H. Bjarnarson.
---------------
Kýli.
—:o:—
íbúar Eyrarbakkahrepps hafa verið
og eru óánægðir með skólamál sín —
ekki að ástæðulausu.
Hér er — enginn unglingaskóli,
enginn kvöldskóli, enginn sunnu-
dagaskóli — aðeins barnaskóli, lítil-
fjörlegur þó.
Formanni skólanefndar, presti vor-
um, virðist ekki sýnt um fræðslumál
og er ilt til þess að vita, því guð-
hrædd sóknarbörn iáta vanalega lengi
reka á reiðanum, áður en þau taka
ooooooooooooooooooooooooooo
Eimskipafélag íslands.
Með því að vér verðum að álíta það trygt, að hægt sé að stofna hluta-
fél. Eimskipafélag íslands, er ákveðið að stofnfundur félagsins verður haldinn
í Iðnaðarmannahusinu í Reykjavík langardaglnn 17. janúar 1914 kl. 12
á liádcgi.
Fyi »n hlutaféð er innborgað er eigi hægt að semja um byggingu þeirra
skipa, scm láðgert er að byrja með. Vór teijum því nauðsynlegt. til þess
að somja megi um skipabyggínguna þegar eftir stofnun félagsins, að inn-
heiinta nú þegar hlutafóð. Fað er því hórmeð skorað á alla hlutafjársafn-
endur að byrja nú þegar að innheimta alt hlutafóð og senda gjaldkera sem
fyrst. Ennfremur eru inenn beðnir að draga eigi lengur að rita sig fyrir
hlutum ef þeir eiga það ógert eða vilja auka við það sem þeir hafa áður
ritað sig fyrir.
Vér teljum nauðsynlegt að sem mest safnist, svo íélagið vorði sem
tryggilegast grundvallað og sein minst háð lánum.
Reykjavík 1. okt. 1913.
Eggert Ciacsscn. Jón Björnsson. Jón Gunnarsson.
Sycíiiii Björnsson. Tlior Jenscn.