Alþýðublaðið - 02.10.1963, Page 9
verkefni, enda vinnuhaTka tölu-
verð. -IM
Námskeiðið fór fram ' í hinum
yistlegu hásakynnum Hagaskóla
og var allur aðbúnaður þar
með prýði. Það var haldið dagana
24. og 25. september, og voru
þátttakendur 45.
Fyrri dagurinn var helgaður við
fangsefninu: Að vera kennari.
Eftir stutt setningarorð flutti Magn
ús námsstjóri erindi um þetta
efni, sem einkum fjallaði um hið
háleita gildi kennarastarfsins og
þá eiginleika sem menn þurfa að
hafa til að bera til að geta talizt
góffur kennari.
Þá flutti Árni Þórðarson, skóla-
stjóri Hagaskóla, gagnmerkt er-
indi og eitt það nytsamlegasta,
sem flutt var á námsskeiði þessu,
að öðrum ólöstuðum. Fjallaði það
um fjölmörg atriði í hversdags-
legu starfi kennara, leiðbeiningar
og aðvaranir, nær allt byggt á
langri reynslu fyrirlesarans bæði
sem kennari og skólastjóri. Trúi
ég ekki öðru en að ungir kennarar
sem þarna voru, búi lengi það
hinum þörfu og hagkvæmu leið-
beiningum Árna skólastjóra.
Að loknu hádegishléi þennan
dag flutti Helgi skólastjóri Þorláks
son erindi um saraa efni og hinir
fyrri, og síðan Jónas Pálsson, for-
stöðumaður sálfræðideildar skóla,
um ýmis vandamál við kennslu-
störf.
Þá var kaffi borið á borð og
rabbað saman yfir bollunum í
framhaldi af ræðu sálfræðingsins.
Loks skýrði Sölvi Sigurðsson
kennari nokkuð notkun kvik-
mynda- og skuggamyndavéla og
sýndi sænska kvikmynd um
kennslu með aðstoð slíkra véla.
Þann 25. hófst fundur kl. -9.30
árdegis. Voru þá flutt fimm stutt
framsöguerindi, og gerðu það sér-
fræðingar í hver-ri grein: Mag. art.
Sveinbjörn Sigurjónsson skóla-
stjóri islenzka; Jón Á. Gissurason
skólastjóri reikningur; Þuríður
Klistjánsdóítir kennslukjona,
danska; Heimir Áskelsson dósent,
enska; og Guðmundur Þorláksson
magister, lesgreinar.
Að hádegishléi loknu var hópn-
um skipt í þópa og stofur. eftir
þeim kennslugreinum, sem að ■
framan greinir. Voru framsögu-
menn þar til leiðbeiningar og svör-
uðu fyrirspurnum. Þeim til aðstoð-
ar var einn sérmenntaður kennari
í hverri grein. Voru viðræðufund-
ir þessir hinir fróðlegustu. Að
þeim loknum, komu allir saman í
samkoimusalnum, og gerði einn
.illtrúi af hálfu hinna.nýju kenn- I
ara í hverri námsgrein, grein fyr-
ij- því, sem gerzt hafði í hans flokki
í stórum dráttum. Voru þeir allir
þakklátir fyrir að hafa átt þess
kost að njóta þeirra leiðbeininga,
sem í té voru látnar á þessu nám-
skeiði.
Þá leið að lokum. Fræðslustjór-
inn í Reykjavík, Jónas B. Jónsson
var nýkominn úr útlandadvöl og
fluttj hann stutt ávarp, en fróð-
iegt, og ræddi nokkuð um þörf
æðri menntunar í hinum ýrrisu
Evrópulöndum. Síðan sleit náms-
stjóri mótinu.
Sá sem þessar línur ritar, sat
þetta námskeið að sjálfsögðu,
ekki vegna þess að hann værj ný-
kennari, heldur vegna smávægi-
legs leiðbeiningarstar/s. En ég full
yrði, að ekki einungis byrjendur,
heldur og reyndir kennarar, hefðu
getað haft nokkurt gagn af að
sitja þar og hlýða á. Vonandi
verða slík námskeið fastur liður í
Hafi námsstjóri Reykjavíkura
borgar heila þökk fyrir framtaks-
semina.
R
KennaranámskeiB
eftir ^agnar Jóhannesson
immmmmmmmm,,,
iiiimimimimiiinimiiiiimmmmtmiiiiimmir r,
un verffi fylgt og ekiff verði
eftir því sem aðstæður leyfa
hverju sinni.
Þar sem radartæki fylgjast
meff hraffa á vegum, eru jafn-
an sett upp áberandi skilti,
sem gefa sl'íkt til kynna. Fróff-
ir menn segja, aff erlendis þar
sem þessí merki hafa veriff
sett upp geri þau eln nóg
gagn, jafnvel þótt radartæki
séu engin til staffar! Þar hafa
menu nefnilega brennt sig á
því, aff þaff er engan veginn
nóg aff hægja á þegar lög-
reglubíll séat framun^an,
effa ef sézt til l'ögreglunnar í
bakspeglinum.
Á þaff hefur margoft verið
bent í blöffum hver slysa
hætta muni verða á hinum
nýja vegi, einkum þó, í ís-
ingu og hálku. ísing á vegum
er nefnilega algengari á ís-
landi en víffast hvar annars-
staffar. vegna hinna sncggu
veffrabrigffa, sem viff búum
hér við. Bílstjórar sem aka
Keffavíkurveg aff staffaldri
segja, aff oft sé mikil ísing
á veginum í gegn um Hraun-
in þó hvergi sé annarstaoar
ísingarvottur. Einmitt uin
hraunin liggur sá kafli, sem
nú verður tekinn í notkun.
Þaff gefur því auga leið að
slysahætta getur þarna orð-
Framh. á 10. si\u
Hér s.jáum viff báða vegina, þann nýja og þann gamla. Hætt er
við, aff minnsta kosti fyrst í staff, aff slys verði alltíð á hinum nýja
og beina vegi. .
RADARTÆKi HREMMA ÖKU-i
KEFLAVÍKURVEGINUM NÝJA!
1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111
lililillll'illllllillllliíillllllilllíllllll'lllllllllliil
11• li1111• 1111I I1111111ilIV''
X
Fyrsta áætlunarflug rrse-ð
þotum um ísland
í dag hefjast fastar áætlunarferðir með þotum milli
New York og London — nieð viðkomu í Keflavík.
í dag hefja hinar hrafffleygu og þægilegu „Pan Am
Jet Clipper" reglubundiff áætlunarflug á milli New
Y7ork og London meff viðkomu i Keflavík.
ÁÆTLUNARFLUG ALLA MIÐVIKUDAGA
Frá Keflavík kl. 08.30 í Glasgow kl. 11.30 og í
London kl. 13,20
l Frá Keflavík kl. 19.40 í New York kl. 21.35 (staðart.).
í dag gengur í gildi þotuáætlun Pan American World
Airways um ísland. Meff þessum glæsilegu farkostum
er hægt aff ferffast mjög ódýrt. Til dæmis bjóðum við
Sérstakan afslátt þeim er hyggjast dvelja tiltölulega
stuttan tíma í USA eða Evrópu.
Keflavík — New York — Iíeflavík kr. 10.191.00 ef
ferðin hefst fyrir lok marzmánaðar og tekur ekki lengri
tíma en 21 dag.
Keflavík — Glasgow — Keflavík kr. 4.522.00
Keflavík — London — Keflavík kr. 5.710.00 ef ferff-
in hefst í þessum mánuði, — og tekur ekki lengri tínia
en 30 daga. }
Innflytjendur — Útflytjendur
Viö viljum sérstaklega vek.ia athygli yðar á því aff -
vörurými er ávallt nóg í þotunum frá Pan Am. "
Viff greiffum götu yðar á leiffarenda.
Farmiffasala og önnur fyrirgreiðsla hjá ferðaskrifstof-
um og affalumboðinu Hafnarstræti 19.
AðalyfnfcoS fyrir Psn American
World Airways
6. Helgason & ilelsfed
Hafnarstræti 19. — Sími 10 215 og 1 1644.
a* m
Opnum í dag prentsmiðju undir nafninu
HAGPRENT HF
Sigurður Eyjólfsson, prentari.
Eyjólfur Sigurðsson, prentari.
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin.
HAGPRENT H.F.
Bergþórugötu 3 — Reykjavík.
Klllllllllflllllllllllllllllllllllll
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
2. okt. 1963 9