Alþýðublaðið - 02.10.1963, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 02.10.1963, Blaðsíða 14
H3EI5I1L Vort snjalla knattspyrnu-kappa-lið keppti við Breta í haust. Og okkar menn réðu þá ensku við alveg tvrmælalaust. En hæverska landans var helzttil stór, svo hinir sigurinn fengu. Það var ekkert burst — sem betur fór, — bara tíu gegn engu! KANKVÍS. SKIPAFRÉTTIR Jöklar h.f. Drangajökull er á leið til Camden. Langjökull er í Pietersaari, fer þaðan til Turku, Ventspils, Ham- borgar, Rotterdam og London. Vatnajökull fór 26. þ.m. frá Glauc ester til Rvikur. Eimskipafélagr Reykjavíkur h.f. Katla er í Rvík. Askja er á leið til Klaipeda. Hafskip h.f. Laxá fór væntanlega frá Vmeyj- um í gærkvöldi til Englands. Rangá er í Gdynia. FLUGFERÐIR Flugfélag íslands h.f. Skýfaxi fer til Osló og Khafnar kl. 08.30 í dag. Væntanleg aftur til Rvíkur kl. 21.40. Innanlands- flug: í dag er áætlað að fljúga íil Akureyrar (2 ferðir), Hellu Egils- staða, Fagurhólsmýrar, Horna- fjarðar, Vmeyja (2 ferðir) og ísa- fjarðar. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (3 fcrðir), Vmeyja (2 ferðir), Kópaskers, Þórsháfnar. Egilsstaða og ísa- fjarðar. Loftleiðir h.f. Snorri Sturluson er væntaniegur frá New York kl. 08.00. Fer til Luxemborgar kl. 09.30. Kemur til baka frá Luxemborg kl. 24.00. Fer til New York kl. 01.30. Eiríkur rauði er væntanlegur frá New York kl. 10.00. Fer til Gautaborgar Khaínar og Stafangurs kl. 11.30. Þorfinnur karlsefni er væntanleg- ur frá New York kl. 12.00. Fer til Osló og Helsingfors kl. 13.30. Snoiri Þorfinnsson er væntanleg- ur frá Stafangri Khöfn og Gauta borg kl. 22.00. Fer til New York kl. 23.30. Breiðfirðingafélagið hefur fyrsta skemmtifund sinn á haustinu miðvikudaginn 2. okt. í Breiðfirð- ingabúð og verður eins og áður félagsvist og dans. Einnig mun for maður félagsins flytja ávarp og skýra frá starfsemi vetrarins. Mæt ið vel og gerið félagsstarfið á- nægjulegt með nærveru ykkar. Stjórnin Leiðrétting á giftingarfrétt í sunnudagsblaðinu: Nýlega voru gefin saman í hjónaband af séra Bjarna Sigurðssyni í Lágafells- kirkju, ungfrú Auður. G. Guð- mundsdóttir og Gísli Jónsson. Heimili þeirra er að Laugarnes- vegi 14. KVenféTag HallgrímSkirkju. Hin árlega kaffisala félagsins verður í Silfuxtunglinu á sunnudaginn kemur 6. októbek1. Féiagskonur og aðrar eru vinsamlega beðnar að 'gefa kökur og hjálpa til við . Orðan er só sató Bretar veita erlecdum möh»« utu og hefur aðeins einn mað S ar, crlenáur; hiotlð haerri I þreílts orðu, cn í»að cr Eisen bower, hershöfðingi. Morgnnbiað'ið 22. sept. Dumas og blaðamaðurinn Blaðamaður síðdegisblaðs beim- sótti eitt sinn franska rithöfund- inn Alexander Dumas, eldri. Dum as var alltaf heldur í nöp við blaða menn, en tók ’þó sómasamlega á móti þessum — til að byrja með. Blaðamaður þessi virtist hafa mestan áhuga á ætterni skáldsins. Hann spurði: — Er það satt, að þér séuð quar- terton (þ.e. barn múlatta og hvíts manns)? — Já, það er rétt, svaraði Dum- as. — Þá hefur faðir yðar verið ... — Múlatti, alveg rétt. — Og afi yðar var? — Negri. Þegar hér var komið sögunni var þolinmæði Dumas alveg að þrotum komin, og þegar blaða- maðurinn bar upp næstu spurn- ingu sína, var skáldinu öllu iokið. Blaðamaðurinn spurði: — Og má ég spyrja hvað lang- afi yðar var? — Bjáni skal ég segja yður, þrumaði Dumas. — Hann langafi minn var bölvaður bjáni. Mín ætt byrjaði nefnilega þar, sem yðar endar! Hamlet í Krónborgarkastala. Krónborgarkastali hefur verið lokaður í allt sumar og er orsök- in sú, aS þar er nú verið að kvikmynda Hamlet í tilefni af því að í vetur eru 300 ár liðin frá dauða Shakespears. Myndin sýnir eitt atriði kvikmyndarinnar og sjást á henni Hamlet (Christofer Plummer) og Horatio. Afi gamli Til þess að njóta bæði fegurðar og vitsmuna hins ' veikara kyns í hjónabahd- mu þurfa menn að gerast — Múhameðstrúar! kaffisöluna, svo sem venja hefur verið. Frá Styrktarfélagi vangefinna' Konu.r í Styfktarfélagi vangef-^ inna halda fund í dagheimilinu Lyngási fimmtudagskvöld 3. okt. kl. 8.30. Fundarefni: Frú Sigriður Ingimarsdóttir segir frá 12. þingi Norðurlanda um málefni vangef- inna. Rætt um vetrardaeskrána. Strætisvagnar ganga frá Kalkofns- vegi á heilum og hálfum tíma. MINNINGARKORT BLINDRAFE LAGSINS FÁST í APÓTEKUNUM Nýlega hefur blaðinu borizt ní- unda tölublað 64. árgangs Barna- blaðsins Æskan. í blaðinu er m.a. stutt smásaga eftir Hemingway, þáttur um Strandakirkju, grein um aldarafmæli Rauða Krossins, framhaldssagan Davíð Copperfi- eld eftir Dickens. Birgir Kjaran skrifar greinina: Þrjú hversdags ævintýri. Auk þess er í blaðinu fjöldi fastra þátta og mikið af myndum og alls kyns fróðleik. Ritstjóri Æskunnar er Grímur Engilbérts. LÆKNAR Kvöld- og næturvörður L.R. í dag: Kvöldvakt kl. 18.00-00.30. Á kvöld- vakt: Björn L. Jónsson. Á nætur- vakt: Bjöm Önundarson. NEYÐARVAKTIN sími 11510 hvern virkan dag, nema laugar- daga kl. 13.-00 til 17-00. □ Ls h ra Miðvikudagur 2. október 20.00 ,,F;i'á só/t'íkurri Spáni: Tony Mattola og hljómsveit lians leika létt lög. 20.15 Visað til veg- ar: Frá Sturluflöt í Þóris dal (Eysteinn Jónsson alþingismaður). 20.40 Kórsöngur: ’ Alþýðukór- inn syngur. Söngstjóri: Dr. Hallgrímur Helgason. 21.00 Framhaldsleikritið „Báðgátan Vandyke“ eft ir Francis Durbridge; VI þáttur: íbúðin í Boule- vard Seminaire. Þýðandi: Elías Mar. — Leikstjóri: Jónas Jónasson. Leikend- ur= Ævar R. Kvaran, Guð björg Þorbjarnardóttir Gestur Pálsson Sigurð- ur Kirlistánsson, Áþni Tryggvason, Lárus Páls- son, Haraldur Björnsson, Herdís Þorvaldsdóttir, Ragnheiður Heiðreksdótt ir, Arnar Jónsson og Klemens Jónsson, 21.35 Dönsk nútímatónlist: Tón. verk fyrir ásláttarhljóð- og víólui op. 18 eftir Axel Borup-Jörgen- sen (Danskir hljóðfæra- leikarar flytja; Lavard Friisholm stj.). 21.45 Upp lestur: Steingerður Guð- mundsdóttir leikkona les þulur eftir Ólínu Andrés dóttur. 22.10 Kvöldsag- an: ,,Báturinn“, frásögn Walters Gibsons: VII. Jónas St. Lúðvíkssoni 22.30 Næturhljómleikar Sinfónía nr. 5 i D-dúr eft ir dr. Vaughan Williams Hljómsveitin Philhann- onia leikur; Sir John Barbirolli stj.). 14 2. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.