Alþýðublaðið - 10.10.1963, Side 2
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl:
Ámi Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúi: EiSur GuSnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
kr. 80.00. — í lausasölu kr. 4.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
NÚ ER SJÓNVARPIÐ GOTT!
FRÁ ÞVÍ að umræður um sjónvarp hófust i
•íslenzkum dagblöðum, hefur ævinlega a-ndað
köldu frá Þjóðviljanum til þess máls. í gær bregð
ur þó svo undarlega við, að í blaðinu birti'st löng
lofgrein, viðtal við innflytjanda sjómvarpstækja.
Hvað veldur? Svarið er einfalt: Hafinn er innflutn
ingur sjónvarpstækja frá Sovétríkjunum. Hér eft-
ir iverður væntanlega ekki syndsamlegt að dómi
flokksforustu íslenzkra kommúnista að horfa á
sjónvarp, sivo framarlega sem móttökutækið er upp
runnið austan úr Sovét.
Þjóðviljamenn eiga nú óhægt um vik að hall-
mæla sjómvarpinu, þar sem vinir þeirra og iæri-
feður eiga 'hagsmuna að gæta hér í þeim efnum.
Fólk brosir að hinum snöggu skoðanaskiptum Þjóð
viljans í þessu máli.
Alþýðublaðið skýrði fyrir nokkru frá því, að
hafinn væri innflutningur sjónvarpstækja frá
Sovétríkjunum og iværu þau tæki allt að helmingi
ódýrari en. sjónvarpstæki frá Bandaríkjunum og
löndunum vestan tjalds í Evrópu. Jafnframt var á
það bent hér í blaðinu, að með hagkvæmari inn'
kaupum ætti að vera hægt að lækka verð tækja
frá framangreindum löndum til muna. Það ættu
innflytjendur að taka til náinnar athugunar, áður
en íslenzkt sjónvarp hefst, sem vonandi dregst
•ekki lengi.
Reynsla er ekki enn komin á savézku sjónvarps
tækin hér á landi, en ekkert bendir til að þau muni
reynast lakari öðrum tækjum, sem hingað hafa
verið keypt. Það er að sjálfsögðu hagsmunamál
neytenda að varan sé sem ódýrust, og sé um gæða
; vöru að ræða, skiptir upprunalandið að sjálfsögðu
' engu máli.
NÝ UPPREISN í ALSÍR
ALSÍR er enn á barmi borgarastyrjaldar. Ben
Bella, nýbakaður einvaldur, hefur lýst yfir, að
hann sé reiðubúinn að kalla út fjölmennt ivaralið
til að vinna bug á uppreisnarmönnum í Kabýla-
fjöllum. Skemmst er þess að minnast, að Frakkar
réðu lofum og lögum í Alsír. Þá var alsírska þjóð-
in sameinuð í baráttu sinni gegn þeim. Nú eru
Frakkar horfnir frá Alsír, og við er tekin einveld-
isstjórn Ben Bella. Hluti þjóðarinnar gerir nú upp
reisn gegn stjórn hans á sömu lund og gegn stjórn
Frakka áður. Þróun mála í Alsír sýnir glögglega
áð lítil bót er nýlendum að sjálfstæði, sé ekki þann
ig um hnútana búið, að lýðræði og almenn mann-
r.éttindi fái að njóta sín og lýðskrumarar og ein-
ræðisseggir nái ekki undirtökum í fyrstu lotu.
VESTUR FÖR
VARÐBERGS
Þrjátíu ungir menn úr Varð-
bergi, féi'agi ungra áhugamanna
um vestræna samvinnu. komu
heim í fyrrmótt úr vikuhcimsókn
til Bandaríkjanna. Voru þeir fyrri
hl'uta vikunnar í liöfustöðvum
Atlanishafsbandalagsins í Norfolk
í Virginíu-ríki en seinni hluta vik-
unnar í Washington. Á föstudag-
inn hittu þeir að máli Lyndon 15,
Johnson, varaforseta Bandaríkj-
anna og Robert Kennedy dóms-
málaráðherra og lögðu fyrir hann
nokkrar spurningar varðandi fram
kvæmd á stefnu hans og baráttu
fyrir auknum réttindum bl'ökku-
manna og samstarf Atlantsliafs-
ríkjanna í NATO og á sviði efna-
liagsmála.
Þegar þeir komu til Norfolk,
höfuðstöðva flotadeildar Atlants-
hafsbandalagsins fór þar fram stutt
móttökuathöfn, fánaliylling og
iúðrasveit flotans lék þjóðsöng ís-
lands. í Norfolk fóru þeir um
borð í kjarnorkuknúna flugvéla-
móðijiskipið .„ENTERPRICE“,
skoðuðu kafbáta og kynntu sér
yfirstjórn flotadeildarinnar og
sátu hádegisverðaboð H. P. Smiths
yfirmanns hennar. Hlýddu þeir á
erindi um varnarkerfi Atlantshafs
bandalagsins og fóru til Williams-
burg, skoðuðu búgarð og héldu
síðan til Was'nington.
í Washington hlýddu þeir á
fyrirlestra um land og þjóð, um
stjórnmál í Bandarikjunum og um
vandamálin, sem nú eru á dagskrá
varðandi framkvæmd á stefmt
Bandaríkjastjórnar um full mann-
réttindi blökkumanna. Komu þeir
í Hvíta húsið þinghúsið og fleiri
opinberar byggingar og skoðuðu
söfn og Dulles-flugstöðina, sem nú
er í smíðum. Eins og fyrr segir
gengu þeir á fund varaforsetans,
Lyndon B. Johnson og dómsmála-
ráðherra Boberts Kennedy. Hóp-
urinn var boðinn til sendiherra-
hjónanna Thors Thors og konu
hans. Mun það vera einróma álit.
þátttakenda að heimsóknin til
Bandaríkjanna hafi tekizt með
miklum ágætum.
Á ljósmyndinni eru þátttakend-
ur í ferðinni við aðalstöðvar Atl-
antshafsbandalagsins SACLANT í
Norfolk í Virginíu.
SPILAKVÖLDM
Spilakvöld Alþýðuflokksfélags Reykjavikur hefjast annað kvöld,
föstudag, kl. 8,30 stundvíslega í Iðnó. Spiluð verður félagsvist að
venju og eru mjög góð iverðlaun í boði1. Að vistinni lokinni verður
dansað til kl. 1 eftir miðnætti.
Byrjum veturinn vel — fjölmennum stundivíslega á fyrsta spila-
kvöld vetrarins!
Skemmtinefndin.
ERU AÐ BYRJA
2 10. okt. 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ