Alþýðublaðið - 10.10.1963, Qupperneq 9

Alþýðublaðið - 10.10.1963, Qupperneq 9
,j,MlllllllulllilliiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiU!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiillliliilliiiiili«liiiiiiiiillliiililiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiii»iiiiiiiiiiiiiiiini/r({, Á hárgreíðslusýningu í Súlna- : sal Sögu í fyrrakvöld, gaf a'ð Iíta stúlkur með hár í öllum : regnbogans litum. Það var stúlka með perluljóst hár, lilla-rauð-brúnt, en nokkrar voru með „alvöru” liti. Þarna var Hárgreiðslustofan Raffó að sýna nýjung í aflitun hárs. Þá er ,,alvöru” liturinn f jarlægður, en í staðinn kemur einhver tízkulitur, sem stúlk- unum fellur betur í geð, gerir þær meira aðlaðandj og auðvit- að fegurri í augum karlmann- anna. Aðal-tízkulitirnir ku nú vera svokallaðir perluljósir litir, og afbrigði af þeim í bleiku og lilla. Þá er „Sparkling-Sherry” » litur einnig mjög vinsæll, en | I það er rauðbrúnn litur. 1 Guðfinna Breiðfjörð, eigandi c Raffó, annaðist þessa sýningu, en 13 imgar stúlkur með alla- vega hárgreiðslu og allavega háraliti, sýndu. Vöktu stúlk- urnar mikla athygli hinna fjöl- mörgu gesta, sem fylgdust með af áhuga. Gestirnir voru konur á öllum aldri, en með þeim höfðu slæðzt nokkrir karlmenn sem ekki síður sýndu stúlkun- um áhuga. 1 Jónas Jónasson var kynnir, og á stóru myndinni sjáum við hann í hóp imeyjanna. "GllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIirllllllllillllllll.Illllltllllllllllllllllllllll.IIIIIIIIIIIIIHIIIIIHIIM.Illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllin.IIIIIIIIIIIIIIIII.. ÍSABELLA Kvensokkar — ÆTÍÐ SÖMU GÆÐIN. Notaðir af vandlátum og vel klæddum konum um allt land. Margra ára góð reynsla er bezta tryggingin. „ISABELLA“ er skrásett vörumerki. VERZL. ÁSBORG VERZL. ÁSBORG Höfum opnað nýja verzlun að Baldursgötu 39 undir nafn- inu Verzl. ÁSBORG. Höfum fjölbreytt úrval af vefnaðar- vöru, fatnaði, alls konar smávörum til saumaskapar, slcóla- vörum, leikföngum og ýmsar gjafavörur í miklu úrvali, og m. fl. Gjörið svo vel og reynið viðskiptin. Verzlunin ÁSBORG, Baldursgötu 39, sími 35142. Verzl. Ásborg, Verzl. Ásborg. STYRKUR TIL MINNINGARLUNDA OG SKRÚÐGARÐA Samkv. 14. gr. LXXV. fjárlaga fyrir árið 1963 er ætlaður nokkur styrkur til minningarlunda og skrúðgarða. Stjórnir þeirra lunda og garða, sem óska styrks samkvæmt þessu, sendi umsóknir sínar til skrifstofu skógræktarstjóra fyrir lok þessa mánaðar. Reikningar og skýrsla um störl sl. ár skulu fylgja umsókninni. Reykjavík 8. okt. 1963. Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 10. okt. 1963 §

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.