Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 10.10.1922, Side 1

Verkamaðurinn - 10.10.1922, Side 1
9ERK URIHH Ritstjóri Halldór Friðjónsson V. árg. Akureyri, Priðjudaginn 10. Október 1922. j 36,-37. tbl. Rrjár deilur. 1. Vífilstaðahælið. Senna mikil hefir staðið undanfar- ið um rekstur Vífilstaðahælisins og framkomu yfirlæknisii^s og yfirhjúkr- unarkonu hælisins viðsjúklingana. Eru það fyrverandi sjúkjingar á Vífilstöð- um, sem hófu árásargreinar á hælið í Tímanum og Aiþýðublaðinu. Höfðu þeir margt út á hælið að setja og andaði kalt frá þeim í garð læknis og yfirhjúkrunarkonu fyrir hranalega og ónærgætna framkomu á hælinu. Einnig höfðu þeir margt út á fæðið að setja og töldu það oft ekki vera við sjúklinga hæfi. Framan af bar enginn hönd fyrir höfuð þeirra er á var deilt og yfirlæknir og hjúkrunar- kona hafa engu svarað enn þá, en einn læknaskólanemi, sem starfað hefir af og til á Vífilstöðum, tók upp hanskan fyrir þeirra hönd og var all gustmikill. Fanst honum ádeilugrein- arnar í blöðunum að ástæðulausu fram komn^r og lagði sína fullkomn- ustu blessun yfir forráðendur hælis- ins — sagði þar alt vera »eins og það ætti að vera«. Um miðjan Sept- ember var leitað meðmæla hjúkrunar- nema á hælinu með yfirhjúkrunar- konunni, og er sagt, að þeir hafi allir skrifað undir meðmælin nema einn, en honum var samstundis vikið af hælinu, þrátt fyrir það, þótt hann ætti óskift dálæti allra sjúklinganna og margir þeirra bæðu þess að hann yrði kyr. Tíminn hefir krafist þess, hvað eftir annað, að skipuð væri nefnd manna til að rannsaka allan rekstur hælisins og deiluatriðin. Þessi nefnd hefir ný- lega verið skipuð og eiga sæti í henni Jón H. Sigurðsson héraðslæknir, Stefán Jónsson dócent og Ólafur Lárusson prófessor. Hvort nefndin er tekin til starfa veit blaðið ekki, en líklegt er að svo sé. Sjúklingur, sem dvaldi á Vífilstöð- um fyrir nokkrum árum, sagði ritstj. Verkamannsins miður fallegar sögur þaðan, sem betur væru ósannar, og ekki verða birtar, þar sem svo langt er komið þessum málum, að hælið er komið undir rannsókn, og sjúkl- ingur, sem undanfarið hefir dvalið á hælinu, skrifaði kunningja sínum hér í bænum á þessa leið, eftir að blöð- in voru farin að flytja ádeilugreinarn- ar á hælið: »------Eg álít að Sigurður Magn- ússon sé góður læknir og stundi verk sitt eftir mætti, en það vantar tilfinnanlega góða aðstoðarlækna, en ekki eins og þeir eru vanalega, bæði fáir og þurrir á manninn. Ef þeir væru góðir, álít eg að ekki þyrfti að víta læknana. Þó er Sig. Magnús- son oft kaldhranalegur í viðmóti við sjúklingana, og það jafnvel við þá, sem ekki þola það. Yfirhjúkrunar- konan er mjög ströng og má ekki hið minsta út af bera, svo hún rjúki ekki upp og hefir það komið fyrir að sótthiti hefir hækkað í sjúklingum fyrir skammademburnar úr hemii. En þetta er strax rokið úr henni, og þá er hún ágæt. Eg álít eftir minni reynslu að dæma, að greinar blaðanna séu því nokkuð strangar í garð læknisog yfirhjúkrunark. og skrif- aðar af einhverjum fýrv. sjúkl., sem hefirverið persónulega í nöpviðþau. Um hjúkrunarnemana er það að segja, að betra verður varla á kosið, og bæta þeir mikið upp kulda læknis og yfirhjúkrunarkonu. Frk. Sigríður, systir læknisins, er orðlögð fyrir um- önnun sína og gæði við sjúkling- ana. Þá er fœðið, og það er það versta. Maturinn oft hrár og jafnvel skemd- ur. Hefir margt af sjúklingum oft fengið slæma magaveiki, sem matn- um hefir eingöngu verið kent um. Og verst er, að það þýðir ekkert að kvarta. Maður fær þá bara skömm í hattinn fyrir hótfindnina.* Hér virðist vera litið gætilega á þessi mál og reynt að láta alla njóta sannmælis, en þó leynir það sér ekki, að ekki er alt á Vífilstöðum »eins og það á að vera.« En vonandi er að rannsóknarnefndinni takist að leysa starf sitt — þó vandasamt sé — svo vel af hendi, að deilan falli niður um þetta mál hér eftir. Heilsu- hælið á Vífilstöðum má ekki verða að alþjóðarbitbeini. Um það þarf að leika bjarmi vorvona þeirra, er dæmdir eru til a.ð leita þangað heilsubótar, og samhygð þjóðarinnar verður að hvíla yfir því, ef það á að geta leyst af hendi ætlunarverk sitt, svo mikil- vægt sem það er þjóð vorri. Stjórnarvöld landsins verða að sjá um, að bætt verði úr núverandi göll- um hælisins, svo það framvegis geti breitt hlýjan móðurfaðm og föður- höndur móti þeim olnbogabörnum lífsins, sem það er bygt fyrir. 2. Veiting Borðeyrarstövar- innar. Það hendir eigi sjaldan, að veiting- opinberra staða veldur ágreiningi manna og á það sér helst stað, þeg- ar um er að ræða ábyrgðarmiklar stöður og háttlaunaðar. Það er öllu fátíðara að stormur standi um þá menn, sem settir eru til að gegna starfa, er almenningur lítur á sem hversdagsstörf og aðeins gefur lífs- viðurværislaun. Þetta hefir þó hent fyrir skömmu, er Eggert Stefánssyni, er um mörg ár hefir verið símritari á símastöðinni hér á Akureyri, var veitt stöðvarstjórastaða við símastöð- ina á Borðeyri. Umsækjendur um stöðuna munu hafa verið inargir og allir verðugir, þótt ekki gæti nema einn hlotið hnoss- ið. Strax og veitingin varð kunn, reis stjórn félags símamanna upp og inótmælti veitingunni fyrir hönd fé- lagsins. Taldi Eggert óverðugri en marga aðra, er sótt höfðu um starf- ann, og Iýsti vantrausti á iandsíma- stjóra fyrir .framkomu hans í málinu. Flutti Símablaðið fundargerðir félags- ins og bréf þess til landsímastjóra. Bar stjórnin þungar sakir á Eggert og kvað það óhæfu að veita honum starfann. Vísir og Alþýðublaðiðu flutt og greinar Símablaðsins og virtust vera á sama máli. en Morgunblaðið varði landsímastjóra. Má búast við að ekki sé mál þetta á enda ennþá, því félag símamanna er harðsnúið og á mörgum framgjörnum mönn- um á að skipa. Verkam. hefir verið skýrt frá að meginþorri símafólks hér í Akureyr- arumdæmi hafi tjáð landsímastjóra fult traust sitt og samþykki í máli þessu og vér, sem þekkjum Eggert Stefánsson persónulega að góðu einu, fáum ekki séð að gauragangur þessi hafi verið nauðsynlegur, nema fleira liggi á bak við, en ennþá hefir verið gefið upp, eða er sannað. Og kunn- ingjar hans hér nyrðra munu óska þess að starf hans þar vesturfrá sanni það að deila þessi hafi verið óþörf. Og reyndar getur ekkert annað en það, hvernig Eggert stendur í stöðu framvegis, felt óyggjandi dóm í þessu máli. 3. »VersIunarólagið«. Reyndar er það ekki orðin nýlunda nú á seinni árum, þó gerð sé árás á samvinnufélögin, en þó verður að hafa svo mikið við þenna þátt deil- anna á milli kaupmanna og sam- vinnumanna, er hófst með útsend- ingu pésa Björns Kristjánssonar al- þingismanns, er ber þetta nafn, að geta hans að nokkru. Ber tvent til þess. Fyrst það, að hér er um að ræða þriðju herför þessa manns á hendur samvinnumönnum, og í öðru lagi má búast við, að deilan, sem hún hefir vakið, standi góða stund enn þá. Tilmæli. Um leið og Verkamaðurinn þakkar öllum þeim, sem þegar hafa greitt blaðinu áskriftargjöld, vill hann eindregið mælast til, að þeir, sem skulda blaðinu, geri skil hið allra fyrsta. Ritstj. tekur á móti borgun. Þess er þá fyrst ao geta, að laust fyrir yfirstandandi haustkauptíð, var sendur út um land pési, eigi lítill, saminn af Birni Kristjánssyni fyrv. bankastjóra, þar sem hann ræðst á fyrirkomulag og rekstur samvinnu- félaganna íslensku. Er hann þar klædd- ur skikkju læriföður og leiðbeinara samvinnumanna, með yfirbragð ætt- jarðarvinarins og þjóðræknishetjunn- ar um silfurkrýnda brá, sem þykist koma til lýðsins til að leiða hann út af eyðimörkinni. En leiður skuggi fylgdi Birni Krist- jánssyni á herför þessari. Það barst í loftinu, jafnhliða pésanum, að kaup- menn í Reykjavík stæðu á bak við þessi ellistörf þjóðarfulltrúans á þingi og að læriföðurskikkjan væri ekki samlit utan og innan. Tveir hálfskugg- ar fylgdu félögunum líka, og skýrð- ust óþægilega mikið við lestur pés- ans, en það voru tvær fyrri herfarir Björns á hendur samvinnufélögunum, er tíminn hafði dregið hulu yfir, en nú komu fram í minni athugulla les- enda. Pésinn var því ekki einn á ferð og samvinnumenn — flestir — voru fljótir að átta sig á hlutunum. Tíminn komst fljótlega á snoðir um hvað var að gerast og aukablað af honum var sent í slóð pésans út um land. Var þar — til bráðabirgða — smíðað að Birni fyrir fyrri og síðari framkomu hans gagnvart samvinnu- mönnum og því slegið föstu, að pés- inn væri sendur út á þessum tíma, til að reyna að gera bændur fráhverfa samvinnufélögunum og leiða þá í faðm kaupmanna þegar á þessu hausti. Þetta voru fyrstu spilin á borðinu og hvorttveggja «tromp«. Síðan hafa Tíminn og Dagur haft pésa Björns til bæna, en hann hefir svarað í íslendingi og Morgunblað- inu og ekki viðhaft liprari rithátt en hann er vanur. Þá hefir auðvaldsblöðunum orðið matur úr pésanum. Hafa þau flutt langar rornsur úr honum og talið hann gullkornasafn sannleikans, og notað tækifærið til að sparka í for- göngumenn samvinnufélaganna — á Björns kosnað. Senna þessi er langt frá að vera hjáliðin enn.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.