Verkamaðurinn - 10.10.1922, Qupperneq 3
VEKRAMAHURÍNN
73
þó ekki af baki dottnir, én þetta gerir
vitanlega það að verkum, að nú verður
að taka árinni betur í.
Hér í Danmörku befir verið mikil gleði
yfir úrsliíum í Svíþjóð, alt frá Sociai-
demokraten tii Aftenposten. Rað er ekkert
af Kaupmannahafnai blöðunum með banni
nema þá ef telja má Kristeligt Dag-
blad.
Vér íslendingar megum hryggjast með
bannmönnum í Svíþjóð yíir því, að enn-
þá hafa þeir ekki yfirtökin, en vérmeg-
um þó vona með þeim, að þessi úrslit
gefi þeim vind í seglin til þess að halda
áfram baráttunni hiklaust og einarðlega,
þar til sigurinn er unninn.
Khöfn. 5. Sept. 1922.
Porfinnur Kristjánsson.
Raflýsingin.
Á fyrra Laugardag var rafstöðin opn-
uð fyrir bæinri og »varð Ijós* hjá flest-
um þeim, sem búið var að leggja inn
hjá, en þeir voru tiltölulega fáir, svo
myrkur grúfði yfir mestum hluta'bæjar-
ins. Var ómögulegt að segja að þessi
langþráða stund væri að nokkru leyti
hátíðíeg fyrir bæinn í heild. Götuljós
vanta enn og lítið hefir gengið með
innlagningar í húsin, því innlagninga-
mennirnir hafa síðustu daga verið önn-
um kafnir við að bæta um sin fyrri
handarverk. f*ó mun þetta lagast smátt
og smátt og götulýsingin æiti að vera
í aðsigi, því bærinn fékk Ijósaperur með
»Goðafossi.« Samkomuhúsið var fyrst
lýst með rafljósum um síðustu helgi.
Flest hús munu taka rafmagnið til Ijósa
og smásuðu.
Jón Indriðason
verkamaður og koria hans flutfu al-
farin héðan til Rvíkur með »Goðafossi».
Setjast þau þar að hjá dóttur sinni.
Ingólfur Jónnsson
stud. jur. fór með »Goðafossi« suður
til Rvíkur og heldur þar áfram námi í
vetur.
Kaupendur
blaðsins, sem hafa bústaðaskifti í haust,
geri ritstjóra aðvart, svo þeir fái blaðið
með skilum framvegis.
»Félagslíf«
heitir grein, sem »Fram« á Siglufirði
er að flytja um þessar mundir. eftir Jóh.
Sch. Jóhannesson. Er greinin að mestu
árás á forráðamenn samvinnufélaganna
og félögin sjálf Samvinnufélögum bænda
markar greinahöf. starfssvið með þess-
um eftirminnanlegu orðum: »Samvinnu-
félögin ættu aðeins að vera jarðabóta-
og pöntunatfélög og búið.« Petta er
ekki rökstutt með einu orði í greininni.
Gifting.
í síðustu viku voru gefin saman í
hjónaband Gunnlaugur Jónsson versl-
unarm. og ungfrú Hulda Guðmuds-
dóttir.
Jón E. Bergsveinsson
fór suður til Reykjavíkur með Goða-
fossi. Sem forseti Fiskifélagsins á hann^
lögum samkv., að eiga heimili í Rvík,
og sem yfirsíldarmatsmanns á heimili
hans að vera hér á Akureyri.
»Lagarfoss«
er væntanlegur annað kvqld.
Gagnfræðaskólinn
var settur í gær. Mikil umbót hefir
verið gerð á skólahúsinu í sumar og
haust, svo það er mikið vistlegra og
betra en áður. Miðstöðvarihtun er verið
að setja niður og skólinn raflýslur. Bað-
húsi hefir verið komið upp, þar sem
nemendur og heimilisfólk skólans getur
tekið sér bað hvenær á deginutn sem
er. Sú breyting verður á kennaraliði
skólans í vetur að Brynieifur Tobíasson
kennir þar ekki — siglir til útlanda,
en Davíð skáld Stefánsson frá Fagra-
skógi kennir sögu í stað hans og Bjarni
Jónsson bankastjóri íslenskuna að nokkru
leyti, en óráðið hver kennir þessa náms-
grein með. Lárus Rist leikfimiskennari
er enn ókominn úr Ameríkuför. Dyra-
gæslu, hirðing skólans og matreiðslu
fyrir heimavistarfélag nemanda hefir frú
Júlíana Friðriks tekist á hendur.
Barnaskólinn
verður settur í Samkomuhúsinu n. k.
Laugardag kl. 2 e. h.
Smjörllkisgerð
er verið að setja á laggirnar hér í
bænum, en hvenær hún tekur til starfa,
veit blaðið ekki.
Sláturtíðin
stendur sem hæst. Óvenju miklu af
sauðfé er slátrað í bænum og hefir
kjöt verið selt lægst á 1 kr. kg. Slátr-
in hafa gengið tregiega út, því fólki
þykir mörinn, sem seldur er á kr. 2,40
kg. gera þau alt of dýr. Dilkaslátur hafa
verið seld á kr. 1,50 lægst, en á
Blöuduósi kosta þau aðeins 80 aura.
Afsláttarhestar eru margir í boði.
Trúlofanir.
Nyskeð hafa opinberað ttúlofun sína,
ungfrú Hrefna Sigurjónsdóttir og Har-
aldur Guðnason sútari, ungfrú Ingibjörg
Ólafsdóttir ög Páll Sigurðsson, bæði
starfandi við Klæðayerksmiðjuna Gefjun;
einnig ungfrú Póra Sigurðardóttir frá
Bitrugerði og Kristján Jónsson Ytra-
Krossanesi.
Konör og menn!
Mtinið eftir Uppboðinu hjá Páli Skúlasyni á Föstudaginn
og Laugardaginn kemur.
Happadagar fyrir kvenfólkið.
Erfðaskattur W. Rockefeller.
William Rockefeller, sem dó 24. Júní
s. I., er talinn að hafa átt eignir, sem
námu 200,000,000 doll. Samkvæmt
erfðaskattslögum Bandaríkjanna, þarf
að borga 60,000,000 doll, skatt af eign-
inni. 8,000,000 af því er fylkisskattur;
hitt legst í landsjóð.
»Mamma«, sagði fimm ára gömul
stúika. »F.g held að hann Villi sé mesti
dauðans letingi.*
»Pví heldurðu það, góða mín? svar-
aði móðirin.
Hann bíður altaf, þar til eg er rétt
búin að lesa bænirnar mínar, en s**gir
svo um leið og eg lýk við þær: Amen.«
Pað var snemtna á átjándu öldinni,
þegar vasaúr voru mjög sjaldgæf, að
hermanni einum var gefið mjög vandað
úr í þakklætisskyni fyrir góða og karl-
mannlega framgöngu. Hermanninum
þótti vænt um gjöfina og var mjög
skemt við að heyra tístið í úrinu. Um
kvöldið hætti úrið að ganga. Hermað-
nritm vissi ekki, að það var af því, að
það var ekld dregið upp. Hann fór því
daginn eftir með það og sýndi það
manni nokkrum, sem dáðist mjög að
úrinu. Spyr hermaðurinn hann að, hvort
hann vildi ekki láta sig hafa einn ómerki-
legan hlut, er hann tilfók, fyrir úrið.
Maðurinn gekk strax að kaupunum, en
spurði samt hermanninn, hvers vegna
að hann hefði viljað verða af með úr-
ið fyrir svona lítið.
»Eg veit hvað eg er að gera« sagði
hermaðurinn og þóttist hróðugur yfir
skiftunum. »Og rnér er sama, þó eg
segi þér ástæðuna. En hún er sú, að
úrið er ekki lengur lifandi. Pað dó í
gærkveldi.
Tomma þyrsti, eða hélt að hann þyrsti,
eftir að hann var háttaður. Hann kall-
aði til mömmu sinnar: »Mamma eg er
þyrstur.« Móðir hans svaraði: »Tommi
farðu að sofa. Tommi tautaði eitthvað
fyrir munni sér, bylti sér í rúminu og
þagði f tíu mínútur. »Mamma, eg er
þyrstur,« sagði hann aftur. »Farðu að
sofa, strákur,« svaraði tnamma hans.
Aftur varð þögn í tíu mínútur. En þá
ilinu í Leslie County. Pegar stríðið|'jjkal,aði Tommi ennÞá: ‘Mamma, færðu
stóð yfir milli Bandaríkjanna og Mexico* mjr að .drekka:« Móðir hans svaraði:
árin 1846 — 8, var hann orðinn of
Molar.
133 ára gamall.
Maður sem að haldið er, að hafi
verið elsti maður í heimi, er nýlega
dáinn. Hann var fullra 133 ára gamall.
Átti heima í Bandaríkjunum. Nafn
hans var Johnny Shell, og alment
nefndur »frændi« að viðurnefni. Hann
var fæddur í Tennesee árið 1788. í
100 ár átti hann heima á sama heim-
gamall til þess að innritast í herinn.
— Shell var tvígiftur. Fyrri kona hans
dó fyrir 12 árum síðan. Eignuðust
þau 5 börn, og eru öll á lífi. En
svo giftist hann aftur, á 122. aldurs-
ári sínu. Sú, er hann giftist, var 45
ára. Áttu þau einn dreng, sem tiú
er 7 ára. Er elsti bróðir hans 90 ára,
eða 83 árum eldri. Shell gamla var
lítið farið að förlast heyrn og sjón,
er hann dó. Og minni hafði hann
sem hver annar aldraður maður. Eng-
inn vafi er talinn á, að þetta bali ver-
jð hinn rétti aldur hans.
»Tommi, ef þú ekki ferð að sofa, skal
eg koma og lúberja þ:g.« — Enn varð
þögn, en ekki nema tvær mínútur í þetta
skifti. »Mamma,« sagði Tommi, »viltu,
þegar þú kemur til að berja mig, færa
mér að drekka um leið?« Hkr.
Kíkirar
á g æ t i r fást í
Kaupfélagi Verkamanna.
Lágt verð.
4 HK. Danmótor
í ágætu lagi er til sölu, mjög ódýr, hjá
Kr. S. Sigurðssyni, Strandgötu 9,
Akureyri.
Fyrirdrattarnót
mátuleg fyrir tvo menn, er til
sölu nú þegar.
Ritstjóri vísar á.
Saltað
hrefnukjöt
fæst i heilum tunnum 112 kg. á
kr. 55,00 tunnan.
Kaupfélag Verkamanna.
Alnavara.
Öll eldri álnavara niðursett,
alt að 50%«
Kaupfélag Verkamanna.
Kvenkápur
» með miklum afslætti í
Kaupfélagi Verkamanna.
Svuntusilki.
Komið og lítið á svuntusilki í Kaup
félagi Verkamanna, og þið munuð
komast að raun um, að það er bæði
fallegt, ' vandað og ’ódyrt eftir gæðum
Olíudunkar,
Olíulampar,
Bakarofn á prímus
til sölu. Lágt verð.
Ritsti. vísar d.
Karlmannaföt
á kr. 50,00 settið
í Kaupfélagi Verkamanna.
Verkaður saitfiskur
fæst í
Kaupfélagi Verkamanna.