Verkamaðurinn - 26.05.1925, Blaðsíða 3
VERKAMAÐURINN
3
V
Til athugunar fyrir
félagsmenn!
Innlánsdeild Kaupfélags
Verkamanna greiðir 6°|0
ársvexti af innstæöufé.
Úr bæ og bygð.
Fyrra Sunnudag var stofnað verkamanna-
félag hér í bænum. Heitir það Andvari —
mun hafa þótt of bert að kalla það Verð-
anda Nr. 2. í stjórn félagsins kváðu vera
Sveinn Sigurjónsson kaupmaður, Bergþór
Baldvinsson verkam. Jónatan Jónatansson
verkam. og I varastjórn, Jón Þ Steingrfms-
son veiðiform. Lárus Thorarenssen kaupm.
Jóhann Scheving skáld, kennari og sfldar-
matsmaður. Stefnuskrá félagsins virðist
breytileg, eftir þvi við hvern félagsmann
talað er. Sveinn Sigurjónsson hefir sagt
stofnendur félagsins 50 að tölu, en ekki
þarf að telja það sannleika fyrir þvi.
Fyrra Laugardag voru gefin saman i
hjónaband ungfiú Rannveig Jónsdóttir og
Stefán Árnason Svaibarði f Glerárþorpi.
Einnig ungfru Sigrún Björnsdóttir og Þor-
steinn Jónsson verkam. hér I bæ. A fyrra
Sunnudag voru gefin saman í hjónaband,
á Möðruvöllum i Hörgárdal, ungfrú Sigur-
laug M, Jónasdóttir og Jónas Þorbergsson
ritstjóri Dags.
Nokkrir menn hér i bænum hafa gengist
fyrir samskotum handa konu Askels Snorra-
sonar söngkennara, til þess hún geti siglt til
útlanda i heilsubótarleit. Avarp til bæjarbúa
var birt i blöðunum, sem út komu fyrir
helgina og er gengið með samskotalista um
bæinn þessa daga. Allir, sem þekkja hin
langvarandi veikindi þessarar konu og allir
kunningjar þeirra góðu hjóna munu ólik-
lega láta standa á sér að leggja dálítinn
skerf f þann sjóð, sem getur orðið til að
færa Ijós og gleði inn á það heimili,
sem undanfarið hefir átt við þrengingar
sjúkleikans að búa.
Réttur IX. árg. 1-2 hefti er nýkominn
út. Er það eina timaritið, sem fjallar um
þjóðfélagsmál hér á landi. Hverjum manni,
sem fylgjast vill með í þeim málum, er
nauðsynlegt að kaupa þetta rit. Sérhver al-
þýðumaður þarf og að eiga það, þvi það
hefir mikinn fróðleik að geyma um alþýðu-
hreyfinguna erlendi9 og hér heima. Argang-
urinn kostar 4 kr. Fæst og í Kaupfélagi
Verkamanna, og hjá Bened. i Baldurshaga.
ww9
Nýkomið
í Kaupfélag Verkamanna:
Kjólatau, rauð, blá, brún og mislit. Flónel, hvít,
rauð, grá og mislit. Lasting, tvíbreið og einbreið.
Tvisttau, tvíbreið og einbreið. Léreft, hvít, tvíbreið
og einbreið. Óblægjað léreft, tvíbr. og einbr. Sæng-
urveraléreft, tvíbreitt. Dúnhelt Iéreft. Handklæði,
Vasaklútar og margt fleira, sem of langt yrði upp
að telja. Alt ódýrara en áður. Sumt mikið ódýrara.
Heyrðu kunningi! Vörur sendar heim
Kaupir þú ALÞÝÐUBLAÐIÐ? Ef ekki
þá reyndu eina mánaðarútgáfu. Hún kost-
ar ekki nema eina krðnu Argangurinn
kostar 12 krónur. Alþýðublaðið er besta
dagblað landsins og verðskuldar að vera
lesið af öllum hugsandi Islendingum. A
Akureyri geturðu fengið Alþýðublaðið f
Hafnarstræti 99.
♦
*
I
é
♦
♦
$
♦
VERKAMAÐURINN kemur út á
hverjum Þriðjudegi, og aukablöð
þegar með þarf. Kostar 5 krónur ár-
gangurinn. Qlalddasrl fyrir 1. Júli.
Afgreiðslu og innheimtumaður Vigfús
Friðriksson Lækjargötu 2. Akureyri.
Auglýsingaverð: 1 króna fyrir s.m.
eind. breidd. Afsláttur eftir samkomu-
lagi. — Verkamaðurinn er keyptur l
ðllum sjóþorpum og kaupstöðum
landsins, mest allra norðlenskra blaða.
til kaupenda í bænum.
Hringið í sima 75.
Kaupfélag Verkamanna.
t
♦
1
Bæjarstjórakosning fór fram I gær. Var
skotið á aukafundi i bæjarstjórninni til að
framkvæma þá athöfn. Kosinn var Jón Sveins-
son fyrv. bæjarstjóri með 6 atkv. Jón Stein-
grimsson bæjarfógetafulltrúi fékk 5 atkv.
Fleiri höfðu ekki sótt um stöðuna.
í]^ýkomið:|
[|j Karlm.alfatnaðir. j|J
j|j Hattar. Kasketter. j|j
í^jSilkitreflar frákr. 3.90.(§t
^jHálsbindi - - 1.50.j|J
Slaufur. Flibbar.
0 Manchettuhnappar
[|j frá kr. 0.35 parið jU
JH og m. m. fleira. j|J
[|j Brauns Verslun. j|J
i