Verkamaðurinn - 14.06.1927, Blaðsíða 4
4
VERKAMAÐURINN
Úr bœ og bygð.
Þess var getið í blaðinu síðast, að U.
M. F. A. ætlaði að halda 17. Júní hátíð-
legan að þessu sinni. Er gert ráð fyrir
að sá fagnaður fari fram á íþróttavelli
félagsins. Kvenfélagið »Framtíðin« hef-
ir ákveðið að hafa veitingasölu í leik-
fimishúsi Gagnfræðaskólans til ágóða
fyrir starfsemi félagsins meðan á fagn-
aðinum stendur á íþróttavellinum. Vænt-
ir kvenfélagið þess, að bæjarbúum sé á-
nægja að því að styrkja starfsemi þess
með því, að kaupa sér kaffibolla og
annað, sem þar verður á boðstólum til
hressingar.
Fulltrúar þeir, sem fóru héðan að
norðan með e.s. »Botníu« síðast til
Reykjavíkur, til þess að sitja Stórstúku-
þing, leggja aftur af stað heimleiðis
með e.s. »Island«, sem fer frá Reykja-
vík kl. 6 í kvöld. Framkvæmdarnefnd
Stórstúkunnar var að þessu sinni skip-
uð sunnlendingum með 86 atkv. gegn
82. Aftur á móti var samþykt að hafa
næsta Stórstúkuþing á Akureyri. Alt að'
því helmingi fleiri fulltrúar mættu á
þessu Stórstúkuþingi en því næsta á und-
an. Hefir geysilegur vöxtur hlaupið í
Templarastúkurnar á liðnu ári, einkum
sunnanlands, sem að mestu mun hafa
stafað af kappi um að ná framkvæmd-
arnefnd Stórstúkunnar til Reykjavíkur.
Væri óskandi að þessi snöggi vöxtur
reyndist að sama skapi haldgóður og
hann hefir verið ör. Gestkvæmt verður
hér á Akureyri á næsta Stórstúkuþingi
ef vöxtur Reglunnar verður jafn mikill
fram að þeim tíma, sem það verður
haldið, eins og hann hefir verið milli
síðustu þinga hennar.
Tímaritið Fylkir X. árg., er nýkomið
út. Innihald þess er: Rannsóknarferðir
og fundir. Ágrip af skýrslum yfir
steina- og jarðtegundasöfnun og rann-
sóknatilraunir gerðar árin 1918—1926.
Mesta vandamál Islands. Horfumar.
Yfirlit yfir verslun fslands við útlönd.
Akureyri og norðurland. Ritsjá.
Tímaritið er vandað, fjölbreytt, eins
og efnisskráin sýnir, fult af eldmóði og
áhuga höfundarins Fr. B. Arngrímsson-
Verkamenn!
Verkamannafélag Siglufjarðar óskar þess eindregið að engir
komi til Siglufjarðar í atvinnuleit í sumar óráðnir og þ@ir sem
kynnu að koma ráðnir eru bróðurlega beðnir að ráða sig ekki
fyrir minna kaup en greitt er hér á staðnum til 15. Júlí og er
það þetta: 1 króna um tímann í alm. dagvinnu, 1 króna og 20
aurar um tímann í alm. eftirvinnu og 54 til 60 krónur um viku,
þegar um mánaðarvinnu eða lengri tíma er að ræða. Eftir 15,
Júlí gildir* annar kauptaxti, sem verður auglýstur um miðjan JúnL
Siglufirði 31. Maí 1927.
Kauptaxtanefnd félagsins.
Postulínsvörur
nýkomnar beint frá Pýskalandi. Verð afar lágt,
Kaupfélag Verkamanna.
Qalar og fötur.
Nú með e.s. Goðafoss fékk KAUPFÉLAG VERKAMANNA blikk-
bala og blikkfötur af ölum stærðum beint frá Þýskalandi. Er verðið
afar lágt, miðað við það sem-áður hefir verið.
Nýir ávextir.
Epli, ný uppskera.
Appelsínur á 15, 20, 25 aura stk.
Laukur 70 aura kílóið.
Jón Q. Guðmann.
VERKAFÓLK!
Skiftið, að öðru jöfnu frekar við þá,
sem auglýsa í blaði ykkar,
VERKAMANNINUM.
Olíufatnaður.
Kvensvuntur einf. kr. 5.50 st.
Kvensvuntur tvöf. kr. 8.50 st.
Kvenpils kr. 8.50 st»
Kaupfél. Verkamanna.
ar. Hafa allir gott af að kaupa það og
lesa.
Ritið er til sölu í bókabúðum Akur-
eyrar og kostar kr. 6.00.
Vindillinn
Jón
Sigurðsson
ber af öðrum
vindlum.
S t e I p u vantar mig til að passa
3 ára dreng, Herdís Jónasdóttir
Oddeyrargðtu 1.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður :
Halldór Friðjónsson.
Prentsmiðja Odds Björnssonar.