Verkamaðurinn

Issue

Verkamaðurinn - 22.11.1930, Page 2

Verkamaðurinn - 22.11.1930, Page 2
2 VERKAMAÐURINN Verkalýðurinn svarar. Siglfirskur verkalýður mótmœlir brottrekstri Ásgeirs Bl. Magnússonar úr Mentaskóla Norðurlands. __________ Sigluf. 21. Nóv. 1930 Fjðlmennur, opinber verklýðsfundur, haldinn í gærkvöidi, samþykti eftirfarandi ályktun: »Almennur fundur verklýðsfélaganna á Siglufirði mótmælir harðlega hinni nýju skólareglugerð dómsmálaráðuneytisins, og telur henni sérstak- lega véra beint að nemendum úr verklýðsstétt og öðrum uppvaxandi mentamönnum, sem hafa skipað sér undir merki hinnar vinnandi alþýðu. Fundurinn skoðar hina nýju reglugerð sem viðleitni auðvaldsins til að gera alla nemendur að auðsveipnum þjónum borgarastéttarinnar. Enníremur lýsir fundurinn þyngstu /eiði sinni yfir brottrekstri Ásgeirs Bl. Magnússonar, og telur hana ekkert annað en pólitíska ofsókn. Siglfirskur verkalýður skorar á verklýðssamtökin um land alt að hefja miskunarlausa baráttu gegn reglugerð og skólakúgun Framsóknarstjórnar- innar, og veita skólanemendum allan þann styrk, er þau mega, til þess að losna úr þessaii ánauð. Fundurinn lýsir megnustu fyrirlitningu sinni á þvi athæfi skólameist- ara, Sigurðar Quðmundssonar, að nota stöðu sína til að halda æsingar- ræður gegn hinni róttæku verklýðshreyfinu og Ráðstjórnar-Rússlandi, eins og hann gerði, þegar hann hafði vísað Ásgeiri Bl. Magússyni úr skóla. Loks skorar fundurinn á nemendur í skólum þeim, sem reglugerðin nær yfir, að berjast af alefli gegn menningarkúgun þeirri, sem er að halda innreið sína í skólana og linna ekki látum fyr en reglugerðin hefir verið afnumin. >■ Qerið jafnvel skólaverkfall ef ekki dugar annað. Skólanemendur! Standið fast sameinaðir um félaga ykkar, sem beittir eru kúgun. Niður með skólareglugerðina !< »Mj51nir.« og Steinþórs Ouðmundssonar, og afbakaðar frásagnir af samþyktum á þingi ungra jafnaðarmanna á Siglufirði. Hafi nokkur verið í vafa um það, að hin svonefnda reglugerð frá f haust væri stíluð gegn kommúnist- um, þá hefir Sigurður skólameistari með framkomu sinni við þetta tækifæri tekið þar af allan vafa. Hann notar tækifærið til að halda yfir nemendum sinum and-komm- únistiska agitationsræðu, og á sjálfur fult í fangi með að halda skaps- munum sfnum í jafnvægi. Jafnvel rólegri og kurteisri fyrirspurn frá Ásgeiri Blönda! svarar hann með þvi að berja í borðið og segja: »Hér hefi eg einn orðið*. Pess má geta í þessu sambandi, að Ásgeir Blöndal er, eins og Egg- ert félagi hans, frábærlega efnileg- legur námsmaður. Bæði skólameist- ari og kennarar skólans hafa jafn- an litið á hann sem afburðamann á því sviði, og síðast i haust var honum falið að kenna í skólanum, í forföllum eins kennarans. Hann er frábær reglumaður, og ekkert í fari hans eða framkomu gaf ástæðu til aðfinslu. Sem burtrekstrarsök er ekkert tilgreint annað en greinin í Rétti. Með burtrekstri þessara tveggja skólapilta er því slegið föstu, að engir mannkostir eða hæfileikar réttlæti þá regin synd hjá nemanda f skóla, að hafa ákveðna skoðun i opinberum málum og vit og dirfsku til að rökstyðja þá skoðun í riti. Forystuna í ofsókninni á hendur sjálfstæðri lífsskoðun nemanda hef- ir sá maður, sem sjálfur hefir þá reynslu frá sfnum skólaárum, að minstu munaði að hann yrði rek- inn úr skóla fyrir það að komast f andstöðu við kennara sína. Pað lætur dável í eyrum hjá Sig. Guð- mundssyni, sem sjálfur var stofnandi fétagsskapar, er hafði að markmiði að koma ákveðnum lögum í land- inu fyrir kattarnef, með lögbrotum ef ekki gengi á annan veg, að smjatta nú, 15—18 árum síðar, á rikisholtustu og löghlýðni frammi fyrir nemend- um sfnum. Og kennaraliðið við skólann er samtaka um það, að stofna ekki framtíðarvonum sínum f hættu. Sem einn maður eru þeir »á reipi ráðherrans, og renna ei burt frá honunu. Dóm sinn byggja þeir á þeim forsendum, að »bréf ráðherrans*, hafi verið brotið. Með örlög toll- þjónsins á ísafirði fyrir augum þykir þeim varlegast að vekja ekki á sér grun um sjálfstæðan vilja. Og flest- um þeirra er líklega vel vært í þeim efnum. Peir hafa líklega fæstir átt, ungir eða miðaldra, þær hugsjónir eða þann sannfæringarþrótt, sem þeim Eggert og Asgeiri má nú blæða fyrir. Pegar litið er yfir kenn- aralið Mentaskóla Norðurlands, hvarflar hugurinn ósjálfrátt að hend- ingunum hans Steingríms: »Eg brosi’ að þér, mig bítur ei þinn hnýfitl, þú biðukolla, sem varst aldrei fífill*. f skjóli umsvifamikillar valdstjórn- ar, sem ekki virðist hræðast neitt eins og uppvaxandi spírur gróandi hug- sjóna, geta hnýfilstungurnar gengið svo nærri að brosið fari af f bili. En það sakar ekki. Píslar- vottarnir hafa altaf, undantekning- arlaust, borið sigurinn af hólmi, og það jafnt hvort píslarvættið hefir leitt þá út í opinn dauðann eða út f útskúfun úr mannlegu félagi sinn- ar samtíðar.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.