Verkamaðurinn

Tölublað

Verkamaðurinn - 01.05.1931, Blaðsíða 2

Verkamaðurinn - 01.05.1931, Blaðsíða 2
2 VERKAMAÐURINN sigurhátíð, þar, sem verkalýðurinn fagnar framgangi og fullkomnun skipulags síns. Pá hvetja verkamenn- irnir hver annann til dáðríks starfs á komandi ári, í þágu heildarinnar, og heitstrengja nýjar heitstrengingar um framkvæmdir og fyrirætlanir í uppbyggingarstarfinu. í Ráðstjórnarrfkjunum er 1. og 2. maí almennur frídagur. Hér á landi er komið stutt áleið- is með að skilja og meta gildi dagsins, skilja þá óhemju þýðingu að allur verkalýður safnist saman þann dag og beri fram réttmætar krðfur sínar um bætt lífsskilyrði, eins og félagarnir i öðrum löndum gera, safnist saman til að hvetja hvern annan i baráttunni fyrir til- veru sinni. Og treysta kraftana þar til kemur að úrslitaorustunni, þeg- ar hin vinnandi stétt landsins veltir af sér ánauðarokinu og tekur í sínar hendur yfirstjórn allra mála sinna. Að því marki á allur verkalýður- inn að vinna. Félagar, fram til baráttu 1. maí. Treystum kraftana og berum ótrauð- ir fram kröfur okkan Regar hin starfandi hönd leggur ekki hönd að verki, þá stöðvast atvinnufyrirtækin, yfirstéttin finnur til máttar verkalýðsins. Neitið þessa afls og haldið hátíð- legan í. mai. Húsabyggingar i Rússlandi. Samkvæmt ákvörðun ráðstjórnar- innar á að byggja ibúðarhús fyrir, samtals í öllu landinu, 2.640 milj. króna. Hefir það i för með sér, að meir en 10 milj. m1 2 gólfflðtur bæt- ist við. Fyrir utan þetta ætla samvinnu- byggingarfélögin að byggja fyrir 1080 milj. króna. 100000 pýskir verkamenn fengu atvinnu aftur, er Rússland ákvað að kaupa þýskar vðrur fyrir um 300 milj. marka. Mun þýska þingið veita ríkisábyrgð fyrir allri þeirri upphæð. Stórþjóðirnar óttast ekki að veita rikisábyrgð fyrir af- urðasölu til Rússlands, en íslensku valdhafarnir þverskallast, þótt nauð- synin sé knýjandi. Verklýðsæskan og 1. ntai. í dag er 1. maf, kröfudagur alls verkalýðsins, baráttudagur þeirrar stéttar er mest hefir skapað en minnst hefir notið auðæfa heimsins. Pennan dag gengur verkalýðurinn fylktu liði undir rauðum fánum. Renna dag ber hann fram krðfur sínar og stillir fótatak sitt við söngva sína. Pennan dag minnist hann á framtíðarvonir sínar með orðum og verkum. Fótatak verkalýðsins lætur í eyrum borgaranna sem þung undiralda, er boðar stórviðri. Kröf- ur hans er dauðasök þess þjóðfé- lags, er eigi getur uppfyllt þær. Fánarnir eru rauðir af blóði þeirra er fórnað hafa lífi sinu fyrir sigur stéttarinnar. Og söngvarnir eru tvennt í einu greftrunarsálmar þessa skipulags og söngvar framtíðarinnar. Á slíkum stundum finnur verkalýð- urinn betur en nokkru sinni áður sameiginlega hagsmuni sina. Á slík um stundum veit hann hvert hann á að snúa vopnum sínum. Hann verður samstilltari og markvísari en áður. Og verklýðsæskan, hún er líka einn hluti verkalýðsins, sá hlut- inn, er mest veltur á um framtíðina. Hún er líka kúguð og arðrænd og hefir sinar kröfur fram að færa. Pessi hluti verkalýðsins á að læra að beita vopnum feðra sinna enn betur og snarpar, þess vegna á hún að fylkja sér um kröfur allrar stétt- arinnar, þvi það eru hennar eigin kröfur og dagar stéttarinnar eru hennar dagar. Pess vegna fylkist verklýðsæskan um heim alllann um 1. maí með því hugsjónaafli og eld- huga, er einkenna æskuna. Verkalýðsæska Akureyrar mun fara að dæmi stéttarbræðra sinna, það á 1. mai að sýna. F U. K.-félagi. Látin er á heilsuhæii í Danmörku Hólm- fríður Sigvaldadóttir, Þorsteinssonar. — Var lík hennar brent í Kaupmannahöfn i gær kl. 12 á hád. — Á sama tíma fór fram, hér i kirkjunni, minningárathöfn. Landhreifisun. Spánska lýðveldið festist óðum f sessi. Burt úr landinu flýr aðallinn og margt af yfirstéttarlýðnum. Fær hann að fara i friði og taka með sér auðæfi sin og skartgripi. Er mikil landhreinsun að slíkum lýð. Til landsins flykkist aftur á móti mikill fjöldi landflótta manna, sem hefir orðið að lifa fjarri landi sínu á tímabili einræðisins. Er mikill fagnaðarfundur og hátíðahöld á járnbrautarstöðvunum við ianda- mærin, því margir fagna þeim heim- komnu. Múgurinn hefir opnað mörg fangelsi og hleypt út úr þeim poli- tískum föngum. Hefir stjórnin látið það afskiftalaust, en gert þeim, sem slept • hefir verið á þann hátt, að skyldu að koma daglega á lögreglu- stöðvarnar og tilkynna nærveru sina, til að sýna að þeir væru ekki flún- ir úr landi. Hefir stjórnin, með þessari afstöðu sinni unnið sér hylli mikla. Eftir þeim tilkynningum, sem stjórnin hefir gefið út, mun hún ætla að gæta hins fylsta lýðræðís f störfum sinum og meta þingið sem ber. Einnig hefir hún tilkynt að hún ætli að láta alla ráðherra, sem setið hafa við völd, siðan einræðið hófst, sæta ábyrgð gerða sinna. Hafa allir ráðherrarnir tekið þann kost, að flýja úr landi. Um afturkomu konungsins til Spánar farast stjórninni þau orð, að tæpast þurfi að óttast að hann leiti þangað, því stjórn hans á landinu og fjármálum þess, hafi verið, eftir þvf, sem fljót rannsókn hafi leitt í Ijós, þannig, að hann muni aldrei voga sér inn fyrir landamæri Spánar. Kveðst stjórnin viðurkenna fult skoðana og trúfrelsi og viðurkenna fullan rétt verkalýðsins, sem aðila f kaupsamningum og fult samtaka- frelsi hans. 1. maí hefir stjórnin ákveðið að tilkynna að átta stunda vinnudagur skuli löghelgaður. 1 tunnuverksmiðjunni slasaðist maður fyrir nokkrum dögum, misti hann tvo fingur.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.