Verkamaðurinn - 01.05.1931, Page 3
VERKAMAÐURINN
3
Nokkrir alþjöðlegir söngvar verkalýðsins.
ALÞJÓÐASÖNGURINN. VARSJÁ-SÖNGURINN.
(Internationale). (Warschawj anka).
Fram, þjáðir menn í þúsund löndum,
sem þekkið skortsins glímutök!
Nú bárur frelsis brotna á ströndum.
og boða kúgun ragnarök.
Hverja stoð fúna burtu vér brjótum!
Bræður! Fylkjum liði í dag!
Vér bárum fjötra, en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.
Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn í hönd,
því Internationale
mun tengja strönd við strönd.
Uppreistin breiðist svo ótt yfir landið.
Upp, upp til vopna þú kúgaða stétt.
Skyldan, hún kallar til orustu alla.
Afl móti valdi, þá sigrum við létt,
því við eigum frelsis ólgandi elda.
Upp hefjum blóðrauða fánann með dáð.
Verkamenn fylkjumst nú féndunum móti.
Fram, nú skal síðasta orustan háð.
Fram, allslausi múgur, engu’ áttu að tapa
öðru en hlekkjum, þín lausn er þitt starf.
Bráðum skal öreigans alræði drottna.
Þá er okkar tími að bæta Vorn arf. :,:
FRAM ALLIR VERKAMENN.
(Söngur ítölsku verkamannanna).
Fram, allir verkamenn, og f jöldinn snauði
:, :því fáninn rauði:,:
Fram, allir verkamenn, og fjöldinn snauði
því fáninn rauði vort merki er.
:, :Því fáninn rauði okkar merki er:,:
Lifi kommúnisminn og hinn rauði her:,:
:, :Lifi Lenin og hinn rauði her:,:
Sultur og neyð hefir nagað oss alla.
Níðingsins þjóðfélag bráðum er nár.
Brjótum því nú hina bölvuðu hlekki.
Blóðhefndin ein getur læknað vor sár.
Með lífinu höfum við hugsjónir goldið,
sem hefja til frelsis hinn kúgaða lýð.
Fram, því í vígið, sjá fánunum blæðir.
Fram, rauði herinn er búinn í stríð.
:,: Fram, allslausi múgur..... o. s. frv.
HIÐ RAUÐA HERGÖNGULAG.
(Brúder sur Sonne).
Bræður, til ljóss og til lausnar.
Laðar oss heillandi sýn.
:, :Fögur mót fortíðar myrkrum
framtíðin ljómandi skín:,:
Endalaus miljóna móða
máttug úr nóttinni brýst.
:, :Þrár ykkar himninum hærra
hrópa uns nóttin er lýst:,:
Bræður, hver hönd tengist höndum.
Hlægir oss dauði og níð.
:, :Hlekkir að eilífu hverfa.
Heilagt hið síðasta stríð:,:
Hlutdrægni útvarpsins.
Lengi hefir þtss verið vænst, að
útvarpið flytti pólitiskar umræður
ttjórnmálaflokkannaílandinu.Bjugg-
Ust flestir við að frá alþingi yrði út-
varpað talsverðu af ræðum þing-
tnanna, en það brást algjörlega.
En nú hefir útvarpsráðið tilkynt,
að pólitískar umræður hefjist í út-
varpinu og að >stjórnmálaflokkun-
um þremur< verði leyfður jafn
raeðutími.
Fjórði flokkurinn »Kommúnista-
flokkur íslands< er úlilokaður, enda
utun borgaraflokkunum .þremur' og
stjórnendum útvarpsins eigi þykja
ráðlegt að sá flokkur fái að bera
fram kenningar sínar í gegnum út-
varpið, samtimis sem honum gæfist
kostur á, að draga fram, í sambandi
við umræður flokkanna, þá stór-
feldu yfirburði, sem kommúnistiskt
skipulag hefir fram yfir glundroða-
skipulag borgaraflokkanna.
Umræður þessar verða þrjú kvöld
i röð, mánud., þriðjud. og miðvikud.
Fær hver flokkur alt að 35 mín. í
einu. í næstum tvo tíma á kvöldi
verður útvarpað þessum umræðum
og hefst kl. 8 e. m. öll kvðldin.
Ungir kommúnislar
í þýskalandi, hafa á undanfðrnutn
árum, haft fundarhöld mikil i Berlín
um páskana. Einnig í ár ætluðu
þeir að gera hið sama og hafði tilkynt
komu sina fjöldi fulltrúa frá öðrum
lðndum. En nú tók hin socialdemo-
kratista lögreglustjórn til og bannaði
fundina og allar kröfugöngur. Þrátt
fyrir bannið voru fundirnir haldnir
og gengnar krðfugöngur, en lög-
reglan handtók mikinn fjðlda.
Fiskafli mikill er hér úti fyrir, þegar
gefur. A laugardaginn var, fékk bátur úr
Ólafsfirði 12000 kg. í róðri.