Verkamaðurinn - 10.09.1932, Qupperneq 2
2
VERKAMAÐURINN
Samfylking verkalýðsins.
Verkalýður Akureyrar ræðir
samfylkingarmál sín.
Síðastliðið fimtudagskvöld boð-
aði samfylkingarlið verkamanna
og kvenna af vinnustöð Söltunar-
félags verkalýðsins, til fundar í
Verklýðshúsinu til að ræða um
skipulagningu samfylkingarliða
og hópa á vinnustöðvum bæjarins
og meðal atvinnuleysingja. Var
fundarsalurinn nærri fullur af
verkamönnum og konum af flest-
um vinnustöðvum bæjarins.
ákveðið, að einungis Alþýðu-
flokksmenn eigi rétt til fulltrúa-
eætis innan verklýðssamtakanna.
Vildi hann ógjarna svara því,
hvort þau verklýðsfélög, sem kysu
aðra en Alþýðuflokksmenn á Al-
þýðusambandsþingið í haust, yrðu
útilokuð frá fulltrúaréttindum, en
verkafólkið víðsvegar um salinn
rak svo hart eftir að loksins
stundi hann því upp,
að slíkir fulltrúar myndu ekki
með hans atkvœði, teknir gildir.
Varð þá almennur kurr um sal-
inn og hafði það þau áhrif á vara-
forsetann að hann misti stjóm á
geði sínu og þar sem hann var sá,
er síðastur átti að tala, því öðrum
var neitað um orðið, enda orðið
framorðið, gat hann skákað í því
skjóli og helti sér yfir menn per-
sónulega. Urðu þá köll nokkur um
salinn og hrópaði hetjan þá: »Far-
ið þið út« og fundarstjóri tók und-
jr. Kvað þá við um salinn: »Já,
við skulum fara út« og tæmdist
salurinn að mestu á fáum mínút-
um en H. V. flýtti sér að slá botn-
inn í blessunina.
Varð þessi makalausi fundur
þannig til að sýna verkalýðnum,
hvemig þessir »stóru karlar«, sem
auglýstir voru, urðu að »litlum
körlum«, af því málstaðuri'nn sem
þeir fluttu var illur.
Umræður urðu hinar fjörug-
ustu, glöggar og góðar skýrslur
gefnar um ástandið á vinnustöðv-
unum og tóku margir verkamenn
til máls. Bar öllum saman um að
nauðsyn bæri til að stofna sam-
fylkingarlið með verkafólki á
vinnustöðvunum á hreinum stétt-
argrundvelli án tillits til stjórn-
málaskoðana, til að berjast, fyrst
og fremst fyrir því að atvinnurek-
endur greiddu verkakaup það sem
samkvæmt lögum og rétti verka-
fólksins ætti að vera fyrir löngu
greitt. Var á fundinum samþykt
með öllum greiddum atkvæðum,
að stofna slík samfylkingarlið á
vinnustöðvum þeim, sem það ekki
hafði verið gert áður og nefnd
kosin til að hafa forustu og fram-
kvæmdir í því máli. Var þá af
kommúnistum lesin upp, til athug-
unar, og rædd eftirfarandi sam-
fylkingarstefnuskrá fyrir verka-
lýðinn:
Barist skal:
1. Gegn öllum launalækkunum,
beinum og óbeinum, en fyrir
hækkun launanna, samsvarandi
verðhækkun nauðsynja.
2. Fyrir hækkun hinna raun-
verulegu launa, sérstaklega fyrir
þá hluta verkalýðsins, sem lægst
eru launaðir, t. d. vega-, síma- og
landbúnaðarverkamenn o. fl.
3. Fyrir 8 stunda vinnudegi án
skerðingar daglaunanna.
4. Gegn hlutafyrirkomulagi við
fiskveiðar, en fyrir föstum laun-
um.
5. Gegn allskonar ákvæðisvinnu.
6. Fyrir atvinnubótum af hálfu
ríkisins og bæjarfélaga.
7. Fyrir styrkjum til allra at-
vinnuleysingja á kostnað ríkis og
atvinnurekenda.
8. Fyrir atvinnuleysistrygging-
um.
9. Fyrir skattfrelsi atvinnuleys-
ingja, ókeypis rafmagni, eldsneyti
o. fl. til þeirra og fyrir ókeypis út-
býtingu óseljanlegra vörubi'rgða
banka og auðmanna.
10. Gegn nýjum tollahækkunum
og fyrir afnámi allra tolla á lífs-
nauðsynjum.
11. Gegn öllum innflutnings-
höftum, sem koma harðast niður á
hinum vinnandi stéttum.
12. Fyrir hækkun fátækrastyrks
til veikra, fatlaðra og annara þurf-
andi manna og gegn því að styrk-
ir til þeirra séu veittir sem fá-
tækrastyrkir er takmarka þjóðfé-
lagsleg og pólitísk réttindi þeirra
sem styrkinn þiggja.
13. Gegn öllum sveitflutningi og
allri þvingunarvinnu.
14. Gegn útilokun róttækra
verkamanna úr verkamanna- og
fagfélögum og gegn klofnings-
starfsemi sosialdemokratisku for-
ingjanna en fyrir fullu lýðræði og
sj álfsákvörðunarrétti meðlimanna
í verklýðs- og fagfélögunum og
gegn fullnaðarumboði til samn-
inga í kaupdeilum fyrir stjórnir
eða nefndir.
15. Fyrir útilokun atvinnurek-
enda og umboðsmanna þeirra úr
verklýðs- og fagfélögum.
16. Fyrir að koma þeim verka-
mönnum í stjórnir verklýðs- og
fagfélaganna, sem berjast ákveðið
fyrir þessum kröfum.
17. Fyrir sköpun fagfélaga á
grundvelli stéttabaráttunnar og
sameiningu þeirra á landsmæli-
kvarða.
18. Fyrir bandalagi verklýðs-
stéttarinnar við smá- og meðal-
bændur og fátæka fiskimenn f
baráttunni móti auðvaldinu.
19. Gegn'ofbeldisstjórninni, sem
nú situr að völdum.
20. Fyrir samfylkingu allra
verkamanna og vinnandi stétta,
án tillits til hvort þeir eru félags-
bundnir eða ófélagsbundnir og
hvaða pólitískum flokki þeir til-
heyra, til baráttu fyrir þessum
kröfum. i
21. Fyrir sameiningu verkalýðs-
ins um V. S. N. sem faglegs bar-
áttusambands. í
Var sýnilega ríkjandi á fundin-
um lifandi áhugi verkalýðsins fyr*
ir stéttarsamtökunum og skilning-