Verkamaðurinn

Eksemplar

Verkamaðurinn - 31.12.1935, Side 2

Verkamaðurinn - 31.12.1935, Side 2
2 VERKAMAÐURINN Lágmarkstryggingin og breytt viöhorf í því máli. Sjómnaléiag Reykjavikur með iágmarkstrvgQingu. Um mörg undanfarin ár hefir Sjómannafélag Norðurlands bar- ist fyrir því að á síldveiðiskipun- um, þar sem ráðið hefir verið fyrir hlut úr afla, að sjómönnun- um væru trygð lágmarkslaun, sem þeir fengju greidd hvernig svo sem gengi. Félagið hefir þarna átt við ramman reip að draga, þar sem hefir verið mótstaða út- gerðarmanna, en þó hafa mestu örðugleikarnir fyrir því að koma þessu í framkvæmd, alt fram á síðustu tíma, legið í því, að sjó- mannastéttin, eða réttara sagt nokkur hluti hennar, hefir ekki skilið nauðsynina á þessu til fulls og þessvegna ekki barist fyrir þvi. Við hér noðanlands höfum ár eftir ár reynt að ná samvinnu sjómanna sunnanlands um þetla mál, og altaf hefir þeim fjölgað með hverju ári, sem fylgl hafa okkur þar að málum og nú er svo komið að sjómannastéttin, sem heild, er ákveðin í því að krefjast lágmarkstryggingar á öll- um skipum þar sem hlutaráðn- ing er. Sameiginleg nefnd frá Sjómannafélagi Reykjavíkur, Sjó- mannafélagi Hafnarfjarðar og Verkalýðsfélagi Akraness, sem starfaði í vetur að undirbúningi kaupgjaldsmála, aðhyltist ein- róma lágmarkstryggingu á þeim skipum, sem áður hefir verið ráðið á fyrir aðeins hlut af afla. Tillögur nefndarinnar komu fyr- ir fund í Sjómannafélagi Reykja- víkur nú fyrir nokkru og voru á þá leið að lágmarkstryggingin skuli vera 150 kr. á þorskveið- um og 200 kr. á síldveiðum á mánuði (og frítt fæði?). Ýmsum fundarmönnum þótti þessi trygg- ing of lág og komu fram tillögur um 640 kr. lágmarkstryggingu yt- ir síldarvertíðina og 50 kr. á viku í lágmarkstryggingu á þorskveið- um (þarna er aðeins átt við þau skip, sem ekki heyra undir línu- gufubátataxtann á þorskveiðum, sem mun standa óbreyttur 214 kr. á mánuði, frítt fæði og öll lifrin, sem skiftist niður á háseta og matsvein eins og á togurun- um). t*ó ekki sé ennþá gengið frá því hver lágmarkstryggingin verður, þá sýnir þó þetta að sjó- mannastéttin sunnanlands eins og hér, er orðin sammála um lífsnauðsyn lágmarkstryggingar- innar. Sjómannafélag Norður- lands hefir líka nú fyrir nokkru hafið nauðsynlegan undirbúning fyrir næstu síldarvertíð og i því tilefni skrifað 16 sjómanna- og verklýðsfélögum víðsvegar um landið eftirfarandi bréf: Akureyri 15. 12. 1935. Stéttarfélagar! Eins og ykkur mun vera kunnugt, þá hefir Sjómannafélag Norðurlands á undanförnum ár- um barist fyrir því að hlutur hvers háseta á síldveiðiskipunum yrði trygður með minst 640 krónum yfir vertíðina, hvernig sem gengi. Þessu höfum við hinsvegar ekki getað komið í framkvæmd vegna þess að okkur hefir vant- að til þess stuðning annara sjó- mannafélaga landsins. Þó fékst nú á síðastliðnu sumri lögskráð á eitt sildveiðiskip héðan frá Ak- ureyri með lágmarkstryggingunni 640 kr. Hinsvegar er það alveg gefið, að ef samvinna getur náðst á milli allra sjómannafélaganna um þetta mál, þá er lágmarkstrygg- ingin komin í gegn á öllum flot- anúm. Þessvegna snúum við okkur nú til allra sjómannafélaga lands- ins og óskum eindregið eftir samvinnu og sameiginlegri bar- áttu alira sjómanna í þessu máli og öðrum hagsmanamáium stétt- arinnar. Og eftir þá sorglegu reynslu, sem flestir síldveiðisjómenn fengu á síðastliðnu sumri, þar sem fjöldinn kom heim að endaðri vertíð með tvær hendur tómar, þá trúum við ekki öðru en að öllum sjómönnum og sjómanna- félögum ætti nú að vera ljúft að taka höndum saman til þess að fyrirbyggja það sameiginlega að slíkt þurfi að endurtaka aig. Þessvegna viljum við hérmeð mælast til þess að ykkar félag taki þetta bréf okkar fyrir á fundi hið allra fyrsta og að þetta mál verði þá rætt ítarlega. Við göngum út frá þvi sem gefnu, að ykkur muni vera það ljóst, ekki siður en okkur, hvílik lifsnauðsyn slik lágmarkstrygging er sjómönnum á öllum "skipum, þar sem ráðið er fyrir hlut úr afla, ekki sist á slikum vandræða- tímum, sem nú eru. Við vonumst því eindregið eftir samvinnu við ykkur um þetta mál, og væntum svars því við- víkjandi hið allra fyrsta. Með stéttarkveðju. 1 stjórn Sjómannafél. Norðurlands. Jóhann J. E. Kuld Bjðrn Grinsson form. ritari. Zóph. M. Jðnasson gjaldkeri. Á linubátunum, sem gerðir kunna að verða út héðan á næstu vertið á þorskveiðar, eru sjómenn lika sammála um, að láta ekki tilleiðast að fara fyrir hlut úr afla án lágmarkstryggingar. Og þau kjör verða nú alveg á næst- unni rædd, sem sjómenn koma sér saman um að skuli gilda á þorskveiðum með línu, í vetur.

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.