Verkamaðurinn - 04.04.1936, Side 1
VERKA
URINN
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XVIV. árg.
Akureyri, laugardaginn 4. apríl 1936.
27. tbl.
Ávarp til íslenskrar alþýðu
frá 8. þingi Verklýðssambands Norðurlands.
Stéttarfélagarl
Fjárhagsafkoma íslenskrar al-
þýðu hefir farið hriðyersnandi
siðustu tvö árin. Verð lifsnauð-
synja hefir hækkað, atvinnuleys-
ið vaxið, hlutir sjómannanna
rýrnað og sumstaðar hefir kaup
lækkað. Við þetta bætist svo
stórkostlega hækkaðir tollar og
skattar.
Nú er líka komið svo að fjöldi
af verkalýðnum býr við tilfinn-
anlegan skort á góðri fæðu og í
alveg óhæfum húsakynnum.,Fá-
tæktin, áhyggjurnar og kveljandi
ótti við hvað hin óvissa framtið
ber í skauti sínu, leggjast eins
og mara yfir stærri og stærri
hluta alþýðunnar. Samtimis rak-
ar burgeisastétt landsins, saman
óhemju gróða.
Seinustu skattaskýrslur sina,
að rúmlega þúsund hátekjumenn
í Reykjavik höfðu að.jmeðaltali
um 12 þúsund króna árstekjur hver.
Margir hötðu alt að 50 þúSlind krÓR-
er og nokkrir um 80-100 púsund kr.
tekjor- Samkvæmt sömu heimild-
um jukust skuldlausar eignir
þeirra Siglfirðinga, sem áttu 5
þúsund króna skuldlausa eign
og þar yfir, um 800 pÚS0ndákr. á 2
árum (1933 og ’34).
Á Akureyri höfðu (1934) 15
burgeisar að meðaltali rúmlega
12 púsund krúna nettotekjur og skuld-
lausar eignir eru alt upp undir
'h miljón pr. einstakling. 3% ibúa
Akureyrar eiga nSStUIU UllUI skuld-
lausar eignir einstaklinga i bæn-
um.
Á Siglufirði hefir atvinna al-
drei brugðist svo gjörsamlega
eins og siðastliðið sumar, þvi
margt verkafólk hafði ekki einu
sinni upp 50 krónur yfir allan
sildartimann. En sumir burgeis-
arnir græddu meira en nokkru
sinni áður i sögu sildveiðanna
hér á landi. Þessar staðreyndir
tala sínu alvarlega máli til is-
lensku alþýðunnar og sanna
henni hve kjör hennar eru hróp-
lega ranglát. En það ískyggileg-
asta er, að alt virðist benda til,
að framundan sé ennþá meiri
fátækt og eymd, jafnvel hungur,
ef alþýðan sjálf ekki tekur mál
sin alvarlegum tökum.
Við hinar margendurteknu á-
rásir atvinnurekendastéttarinnar
á kjör alþýðunnar, hefir hún
hvað eftir annað sýnt í baráttu
sinni hyggindi, einbeittni og stétt-
VinnulöggjöDnni mótmælt
með ölluni oreiddum atkv. á almennum funði á Akureyri.
S.l. miðvikudagskvöld var al-
mennur [fundur haldinn i Sam-
komuhúsi bæjarins, að tilhlutun
verkakvennafél. »Eining«, starfs-
stúlknafél. »Sókn<, Sjómannafél.
Norðurlands, Verkamannafél. Ak-
ureyrar og Málarasveinafélags
Akureyrar.
Til fundarins var fyrst og fremst
boðað i mótmælaskyni við fyrir-
hugaða vinnulöggjöf, en auk þess
var rætt um byggingu nýrrar
rafstöðvar fyrir Akureyri og nær-
sveitir.
Samþykti fundurinn eftirtaldar
tillögur i einu hljóði:
>Almennur fundur, haldinn i
samkomuhúsinu á Akureyri hinn
1. apríl 1936, að tilhlutun eftir-
taldra félaga: Verkakvennafél.
>Eining«, starfsstúlknafél. »Sókn«,
Sjómannafél. Norðurlands, Verka-
mannafélags Akureyrar og Mál-
arasveinafél. Akureyrar, mótmælir
(Framh; á a. slðu 3 dálk).