Verkamaðurinn - 18.07.1936, Blaðsíða 1
VERKAJjQgURINN
Utgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XVIV. árg. Akureyri, laugardaginn 18. júlí 1936. 57. tbl.
SÍLDARVINNUKAUPIÐ.
Síldarsaltendur vilja held-
ur vinnustöðvun en ganga
að miðlunartill. ,Einingar‘.
Kaupfélag Eyfirðinga vísar verkakonum sínum
til félags atvinnurekenda!
Er samningur Erl. eilífur?
Eins og kunnugt er, hefir Erl-
ingi Friðjónssyni undanfarin ár —
með góðu samstarfi við atvinnu-
rekendur — tekist að halda
vinnulaunum kvenna við síldar-
verkun allmiklu lægri en greitt er
annarstaðar, þar sem síldarverk-
un fer fram. „Verkam.“ hefir áð-
ur (í 55. tbl.) birt samanburð á
síldarvinnukaupinu hér, á Siglu-
firði og í Hrísey. En síðan hefir
„Verkam.“ fengið vitneskju um,
að á öllum söltunarstöðvunum
vestur undan: Sauðárkrók, Skaga-
strönd og á Steingrímsfirði — þar
sem alment kaupgjald er þó
miklu lægra en hér á Akureyri —
er greitt fyrir aðalverkunarað-
ferðina (matjesíldina) kr. 2.25 pr.
tunnu, eða það sama og „Eining“
nú hefir farið fram á við síldar-
saltendur hér.
En í skjóli þess „samnings11, sem
atvinnurekendafélagið hér hefir
við Erling Friðjónsson, hafa salt-
endurnir samt ákveðið að hafna
hinum mjög vægu miðlunartillög-
um verkakvennafélagsíns ,Eining‘,
og hafa neytt Stefán Jónasson til
að svíkja það loforð, sem hann var
húinn að gefa um að greiða nú-
verandi kauptaxta „Einingar“. Má
segja, að Stefán sé þeim furðu
leiðitamur, eftir þá meðferð, sem
hann af þeirra hálfu, fékk í sjó-
mannadeilunni í sumar.
Sl. þriðjudag fór formaður „Ein-
ingar“, Áslaug Guðmundsdóttir,
ásamt nokkrum konum, sem vinna
hjá K. E. A., til Vilhjálms Þór að
ræða við hann um síldarvinnu-
kaupið. En Vilhjálmur sagðist
enginn samningsaðili vera, og vís-
aði verkakonunum, sem vinna hjá
kaupfélaginu „sínu“ til félags at-
vinnurekenda. — Þótti konunum
nú vera annað hljóð í strokknum
en á 50 ára afmælisfagnaðinum
um daginn enda virðist það harla
undarlegt, ef Páll Einarsson og
Axel Krisjánsson eiga að semja
við verkafólkið fyrir hönd Kaup-
félags Eyfirðinga.
Eftir að saltendur þannig höfðu
gersamlega neitað miðlunartillög-
um „Einingar“, hafði hún félags-
fund s. 1. miðvikudagskvöld, þar
sem ákveðið var, í einu hljóði, að
beita vinnustöðvun á söltunar-
stöðvunum til að knýja fram
kauptaxta „Einingar.“ Var kosin
verkfallsnefnd úr hópi síldar-
vinnukvennanna til þess — ásamt
stjórn Verklýðssambands Norður-
lands, sem jafnframt var leitað til
— að skipuleggja og leiða barátt-
una. Hefir saltendum þegar verið
tilkynt, bréflega, þessi ákvörðun.
Og' ef þeim reynist tafsöm söltun-
in, þegar síldin fer aftur að vaða
fyrir alvöru, þá skulu þeir sjálf-
um sér um kenna, en ekki „Ein-
ingu“, sem hefir lagt kapp á að
ná friðsamlegu samkomulagi, og
hefir til þess slegið allmikið af
sínum fyrri kröfum.
Til undirbúnings deilunnar
hafa þegar verið gerðar nauðsyn-
legar ráðstafanir. Sjómönnum á
þeim skipum, sem leggja hér upp
síld til söltunar, hefir verið skrif-
að ítarlega um málið, og má fylli-
lega gera ráð fyrir, að sjómenn-
irnir endurgjaldi nú landverka-
lýðnum þá dýrmætu aðstoð, sem
þeim var veitt í sjómannadeil-
unni. Enda hafa þegar borist svör
í þá átt.
Sett hefir verið í gang undir-
skriftasöfnun meðal sfldarvinnu-