Verkamaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Verkamaðurinn - 24.04.1937, Qupperneq 2

Verkamaðurinn - 24.04.1937, Qupperneq 2
V E R K A M A Ð U R \ V 1L ■——— *. Sameining .... . . Álít togaranefndarinnar 2 Laugardags- og sunnudagskvöld kl. 9: Bregstu mér aldrei Tal- og hljómmynd í 10 þátt- um gerð eftir hinu fræga leikriti >Escape me never« eltir Margaret Kennedy. Áðalhlutverkið leikur af ó- viðjafnanlegri snild Elisabet Bergner. Kl. 5 alþýðusýning. Endurfæðing. Staðhæfingar bretsku ......... (Framh. af 1. síðu). uppreistarmenn, skuli ganga í einn flokk »FaIang«, fasistaflokk Spánar, hefir undanfarið borið mjög mikið á misklíð milli stuðn* ingstlokka Francos. Þá herma fregnir að óánægja fari vaxandi í her uppreistar- manna og hefir hún jafnvel brot- ist út í 'uppreistum svo sem á Cordoba-vígstöðvunum. Uppreistarmenn hafa undan- farið gert tilraunir til að hindra algjörlega skipasiglingar til Bilhao. Hafa þeir hótað öllu illu og lagt tundurdufl úti fyrir höfninni. — Bretska stjórnin tók í upphafi afstöðu með þeim og hélt því fram, að skipum væri ófært tii Bilbao. Hafa þessar fullyrðingar stjórnarinnar reynst staðleysur einar. Síðast i fyrrakvöld lögðu 3 bretsk flutningaskip frá frönsku höfninni St. Jean de Luz. Komust þau heilu og höldnu til Bilbao i gærmorgun, sömuleiðis tvö holl- ensk skip. NÆTURVÖRÐUR er í Stjömu Apó- teki þessa viku. (Frá n. k. mánud. er næturvörður í Akureyrar Apóteki.) (Framh. af 1. síðu). þegar um inngöngu í það — sem einstaklingar, en allir í hóp, og með því skilyrði, að þeir verði allir teknir í félagið í einu. Peir meðlimir Verkamanna- félagsins, sem á þennan hátt fá inngöngu í Verklýðsfélagið, skoð- ast þar með gengnir úr Verka- mannafélagi Akureyrar.* Urðu allmiklar umræður í sambandi við þessa tillögu en að þeim loknum var hún samþykt í einu hljóði. Var síðan útbýtt listum til und- irskrifta undir inntökubeiðni í Verklýðsfélagið. Má búast við að það verði allfjölmennur hópur verkamanna, sem sækir um inn- göngu í Verklýðsfélag Akureyrar á fundi þess á morgun og er þess að vænta að þeim verði vel fagn- að og samþyktir í félagið einum rómi. Verkamannafél. Ak. hefir með þessari nýju ákvörðun sinni sýnt það enn einu sinni, að þvi er ekkert hjartfólgnara en að sam- eining verkalýðsins takist og það sem allra fyrst. Svar Verklýðs- félagsins eða öllu heldur hluta stjórnarinnar, sem var óneitan- lega ekki sem ákjósanlegast, við þeirri málaleitun Verkam.fél. Ak., að félagið gengi sem heild inn í Verklýðsfélagið, hindraði þess vegna engan veginn Verkam.fél. í að balda áfram sameiningartil- raunum sinum. Meðlimum Verkam.fél. er það ljóst eins og yfirleitt meðlimum Verkalýðsfélags Ak. að ástandið meðal hins vinnandi fólks er svo alvarlegt að verkalýðurinn hefir alls ekki ráð á þvi að standa sundraður. Sameining verklýðsfélaganna er svo mikið nauðsynjamál, fyrst og fremst verkalýðsins hér á Ak- ureyri, að það er siðferðileg og stéttarleg skylda meðlima beggja þessara félaga að gera alt sem þeir geta til að sameina þessi fé- lög í eitt voldugt félag. Fyrir þessu öudvegismáli verða öll ágreiningsmál að víkja. (Framh. af 1. síðu). hafa þeir Árni Jóhannsson og Axel Kristjánsson yfirfarið at- huganirnar og Stefán Jónasson einnig að nokkru leyti. Nefndin sneri sér strax til skipulagsmálanefndar og barst svar frá henni fyrri hluta febr.- mánaðar, og voru það aðallega skýrslur um rekstursafkomu 30 togara árin 1934 og 1935 og afla- skýrslur 1934, 1935 og 1936. Niðurstöður nefndarinnar eru að mestu leyti bygðar á reksturs- afkomu 4 af 6 nýustu togaranna (7-12 ára) afkoma þessara skipa er stórum betri en eldri skipanna. Segir nefndin svo í áliti sínu: »Þar, sem hér kæmi naumast til greina nema rekstur nýrra eða nýlegra togara, höfum við tekið upp úr skýrslu skipulags- nefndar rekstursafkomu fjögurra at hinum 6 nýrri skipum. Þau tvö skip, sem slept er, hafa ekki verið gefin upp til skatts nema annað árið hvort þeirra, og auk þess gefa þau upp með nokkuð öðrum hætti en hin og myndi því raska meðaltali hinna ýmsu liða. Annars virðist afkoma þess- ara tveggja skipa mun betri en hinna.a Rekskturshalli þessara 4 skipa er til jafnaðar kr. 4.562.00. I áliti nefndarinnar segir svo: loÞessi 4 skip eru, eins og áður er fram tekið, nýrri og betri skipin af islenska togaraflotan- um. Ekkert þeirra er þó nýtt og þvi ekki sennilegt, að þau séu jafnlikleg til góðrar rekstursaf- komu og nýtt skip, útbúið hið besta og nú er fáanlegt. Með hliðsjón af þessu höfum við reynt að gera okkur grein fyrir rekstri nýs skips með full- komnum útbúnaði til veiða, og byggjum þá athugun að mestu á- skýrslum Skipulagsnefndar. Samkvæmt áætlun nefndarinn- ar, sem virðist vera mjög varleg, er gert ráð fyrir að rekstursaf- gangur verði kr. 1.627.00, miðað við skip er kostar 570 þús. kr. f*á segir nefndin ennfremur:

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.