Verkamaðurinn - 24.04.1937, Side 3
VERKAMAÐURINN
3
»Þá höfum við athugað hve mikil
vinnulaun fyrir bsejarbúa felist í
gjöldum utgerðar á einu skipi, og
teljum að þau muni nema sem
næst kr. 197.000. Auk þess mundi
sennilega þurfa að fá 7 menn
annarsstaðar að á skipið, og
mundu það verða launahæstu
mennirnir og laun þeirra nema
um kr. 54.000.00. Allar launa-
greiðslur yrðu á þessa leið:
Kolavinna kr.
Saltvinna —
ísvinna —
Vinna við veiðartæri —
Afgreiðsla —
Laun áhafnar —
Fiskverkun —
Vinna við viðhald —
Skrifstofukostnaður —
Ýms vinna —
4.300
1.680
400
4.200
19.500
140.900
53.000
10.000
5.400
12.000
Samtals kr. 251.380
Þá myndi að líkindum bætast
■við verkun sildar svo sem 2.000
tunnur, þó að ekki sé gert ráð
fyrir því í áætluninni, en sú
vinna myndi nema a. m. k. kr.
7.000. Ennfremur felast í gjöld-
unum 12 — 14 þús. krónur í aukn-
um tekjum í bænum, fyrir hafn-
arvirkin, vatn, húsnæði, fiskverk-
unarstöð o. fl. sem nú þegar er
i eigu bæjarins eða bæjarmanna*.
Af þessu nefndaráliti virðist
nokkurn veginn augljóst að út-
gerð nýtisku togara héðan myndi
bæta stórkostlega úr atvinnuleys-
inu og jafnframt auka beint og
óbeint tekjur bæjarsjóðs um tugi
þúsunda kr. á ári.
Er þess að vænta að bæjar-
stjórn taki endanlega og jákvæða
aðstöðu til þessa máls og þáð
sem allra fyrst.
Slys. S. 1. miðvikudag vildi það
hörmulega slys til að Halldór sonur Hall-
dórs Árnasonar frá Tréstöðum druknaði
við Oddeyrartanga. Giskað er á að hann
hafi fengið aðsvif og fallið út af bryggju.
Náðist hann fljótlega, en allar lifgunartil-
raunir reyndust árangurslausar. Halldór
sák var 24 ára gamall.
„Æglr“ lagði af stað frá Rvík í gaer-
kveldi áleiðis vestur og norður með þing-
mennina. Sagt er að ráðherrarnir muni
vera með skipinu. Munu þeir aetla að
efna til fundahalda vfða um Iand.
Karlakér Akureyrar
heldur „konserl“ á morgun.
Þegar »Verkam.« fékk veður
at þvi, að Karlakór Akureyrar
hefði í hyggju að efna lil sam-
söngs á morgun, snéri tíðinda-
maður blaðsins sér óðara til
formanns kórsins, Halldórs Ste-
fánssonar, til þess að fá hjá hon-
um nánari upplýsingar.
»Þið ætlið að fara að syngja
sól og sumar inn í tólkið« segir
tíðindamaður vor við Halldór.
»Já«, segir gamli maðurinn
brosandi, »og við vonum að það
takist. Enda virðist ekki vanþörf
á að veita birtu og yl inn í hug
og hjarta fólksins á þessum
krepputímum. Við munum sann-
arlega gera það sem við getum
til þess. Kórinn hefir æft kapp-
samlega i vetur og höfum nú
mörg fögur lög að bjóða, einsog
t. d. hið vinsæla, rússneska þjóð-
lag Stenka Rasin, í nýrri útsetn-
Frá Sjóinannaféiaoinu.
Sjómannafélag Norðurlands hélt
fund sl. sunnudag. Gengu tveir
menn í félagið á þessum fundí.
Rætt var um öryggi sjómanna
og var kosin 3 manna nefnd til
þess að hafa eftirlit með því að
ingu eftir söngstjóra okkar Áskel
Snorrason*.
»Er það rétt, sem vér höfum
heyrt«, spyr tiðindamaður vor,
»að þið hafið nú fleiri einsögvara
en áður?«
»Já, að þessu sinni »troða upp«
hvorki fleiri né færri en 3 ein-
söngvarar, og tveir þeirra meira
að segja tvisvar sinnum«.
»t*að verður sannarlega »spenn-
andi« að heyra til ykkar núna«,
segir tíðindamaður vor. En vel
á minst, hvar og hvenær befst
samsöngurinn?«
»í Nýja-Bió, kl. 3 e. h. á
morgun«.
»Við sjáumst þar þá næst«,
segir tíðindamaður vor, þakkar
formanni karlakórsins hjartanlega
fyrir upplýsingarnar og kveður
hann með ósk um gleðilegt sumar
og húsfylli í Nýja-Bíó & morgun.
frekari ráðstafanir verði gerðar en
verið hafa til að vernda líf og l'mi
sjómannanna. Ennfremur var rætt
um álit nefndar þeirrar er bæjar-
stjórn kaus í haust til þess að at-
huga og gera áætlanir um rekstr-
ar- og afkomumöguleika togaraút-
gerðar héðan frá Akureyri. Hefir