Verkamaðurinn

Eksemplar

Verkamaðurinn - 20.11.1937, Side 1

Verkamaðurinn - 20.11.1937, Side 1
XX. árg. j Akureyri, laugardaginn 20. nóvember 1937. 83. tbl. Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands. Vinnudeila verksmiojufölks Reksfur hennar, á- rangur «g Eftir Steingr. Vinnudeila sú, sem verksmiðju- fólk hér á Akureyri hefir undan- farið háð við iðnrekendur hér, er fyrir margra hluta sakir svo merkileg og lærdómsrík fyrir all- an verkalýð og fylgendur hans, að eg finn sérstaka ástæðu til, að rakinn sé opinberlega allur gang- ur deilunnar, og dregnar þar af þær ályktanir, sem verkalýðnum lærdómar. Aðal§tein$son. mega að gagni verða í félagslegri starfsemi hans og baráttu — ýmist til eftirbreytni eða til varnaðar. Aðdragandi deiliiniiítr. Það er svo um „Iðju“, sem önn- ur hagsmunasamtök verkalýðsins, (Framhald á 2. síðu). Víðtækt samsæri gegn frönsku stjórninni afhjúpað. Komist hefir upp um afar víð- tækt samsæri gegn frönsku stjórn- inni og verður það æ víðtækara og umfangsmeira eftir því sem rannsókninni er haldið lengur á- fram. Félagsskapur sá, sem stend- ur að samsærinu, kallar sig Munkahettufélagsskapinn og hefir að markmiði að steypa stjórninni af stóli með hervaldi. Er þegar bú- ið að gera um 1000 húsrannsóknir. í félagi þessu er fjöldi manna, sem er í hinum lögbönnuðu Eldkrossa- félögum fasistanna. Hefir fjöldi manna verið tekinn fastur, þar á meðal 7 af leiðtogum félagsins. Eru sumir þeirra háttsettir for- ingjar úr hernum og flughersveit- um ríkisins. Fundist hafa stór- kostlegar birgðir af vopnum og skotfærum. Auk þess hafa upp- reistarmennirnir trygt sér aðgang að vopnasmiðjum. Hjá forngripa- sala einum hafa t. d. fundist 100 —200 minni og stærri byssur. Auk þess mikið af skotfærum. Franska íhaldið virðist ekki vera í neinum vafa um að gera vopnaðá uppreist gegn löglegri stjórn og í trássi við lög og þing- ræði þegar það er orðið í minni hluta. Er þetta alvarleg áminning til vinstri flokka allra landa, að (Framh. á 2. síðu). Verkfallið. Íhaídið í SÍS neltar enn að verða við sann- g’jörnum kröf- um alþýðunnar Það verðui að setja bann á SÍS um alt land. Með hverjum deginum sem líð- ur kemur það æ betur í ljós, hversu afturhaldssöm ráðandi klíka í S. í. S. er. Verkfallið við Gefjun og Iðunn hefir nú bráðum staðið yfir í 3 vikur. Jón Árnason framkvæmdastjóri S. í. S., þver- skallast enn við að verða við hinni sjálfsögðu kröfu verkafólks- ins um að vinnudagurinn í fyrr- nefndum verksmiðjum verði stytt- ur niður í 8 klst. Athæfi þessa manns og hans nánustu í S. í. S. verður því svívirðilegra þegar þess er gætt að 8 stunda vinnu- degi hefir verið komið á fyrir löngu síðan í öllum svonefndum menningarlöndum, og hefir m. a. verið viðurkenndur umyrðalaust af samvinnufélögum og sambönd- um í nágrannalöndunum fyrst og fremst. „Iðja“ verður á næsta fundi sín- um, sem sennilega verður á morg- un, að krefjast þess af Alþýðu- sambandsstjórninni að hún beiti nú strax allsherjarsamtökunum til (Framhald á 2. síðu).

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.