Verkamaðurinn - 31.12.1937, Blaðsíða 4
4
VERKAMAÐURINN ,____________
Yegna vörukönminar
verður sölubúð vor lokuð mánudaginn
3. janúar næstkomandi.
Pöntunarfélagið.
málaráðherra Hitlers, hafi verið
sú, að dr. Schacht hafi skýrt naz-
istaforustunni frá því að hann
gæti ekki hafið baráttuna fyrir
framkvæmd fjárhagsáætlunarinn-
ar, fyr en hætt væri að veita fé til
„starfsemi erlendis“, til að kaupa
upp blöð og skipuleggja vopnaðar
fasistasveitir álíka og munka-
hettufélagsskapinn í Frakklandi.
Það er fróðlegt að rifja upp
ummæli nokkurra franskra blaða
í október 1936.
„Mola hershöfðingi sagði: Ég
fullyrði, að við munum halda inn
í Madrid eftir nokkra daga“. (Le
Temps, 20. okt. 1936).
„Fall Madrid er óumflýjanlegt“.
(Le Temps, 22. okt. 1936).
„Þjóðernissinnaherinn mun
bráðlega opna hlið Madrid“. (Le
Temps, 25. okt. 1936).
„Madrid verður tekin í byrjun
næstu viku“. (Le Temps, 31. okt.
1936).
„Næstu nótt drekkum við kaffi
í Madrid“. (Le Temps, 8. nóv.
1936).
„Hersveitir þjóðernissinna hafa
gengið inn í Madrid“.(Le Jour og
Le Matin, 8. nóv. 1936).
„Herforingjaráð Francos segir,
að á morgun muni hin raunveru-
lega taka Madrid fara fram“.
(Paris-Medi, 9. nóv. 1936).
„Það líða nú aðeins nokkrar
klukkustundir uns höfuðborgin
verður tekin“. (Le Jour, 11. nóv.
1936).
í ræðu, sem Hitler hélt í Augs-
burg (21. nóv. s.l.) komst hann m.
a. svo að orði þegar hann var að
reyna að verja nazistaeinræðið
fyrir að ræna fólkið réttindum
þess: „Vér höfum einnig gagnrýni,
en hjá okkur gagnrýna yfirmenn-
imir undirmennina en ekki undir-
menn yfirmennina“.
(Frankfurter Zeitung 23. nóv.).
Ábyrgðarm.: Þóroddur Guðmundsson.
Prentverk Odds Björnssonar.
Kosningaleiðbeiningar.
Skv. 6. gr. gildandi kosningalaga
hafa þeir kosningarétt við bæjar-
stjórnarkosningarnar 30. jan. n.k.
sem eru 21 árs þegar kosningin
fer fram, eru íslenskir ríkisborg-
arar, hafa óflekkað mannorð og
eru fjárráðir. Kjósandi neytir
kosningaréttar síns í þeim kaup-
stað þar sem hann var búsettur
þegar gildandi kjörskrá var samin
(í s.l. febr.).
Á kjörskrá til bæjarstjórnar-
kosninga skal taka: 1. Þá, sem
fullnægja öllum skilyrðum 6. gr.
laganna og voru þegar kjörskrá
var samin, heimilisfastir í þeirri
kjördeild, sem kjörskráin nær til.
2. Þá, sem eru 21 árs áður en
kjörskráin gengur úr gildi.
Þeir, sem eru staddir eða gera
ráð fyrir að vera staddir utan þess
kaupstaðar, þar sem þeir eru á
kjörskrá, þá er kosning fer fram,
geta greitt atkvæði hjá sýslu-
manni, bæjarfógeta (lögmanni í
Rvík) eða hreppstjóra.
Barnastúkurnar »Sakleysið« og »Sam-
úð« halda sameiginlega jólatrésskemmt-
un fyrir meðlimi sína í Samkomuhúsinu
sunnudaginn 2. janúar kl. 5 e. h. Félag-
ar stúknanna eru beðnir að vitja að-
göngumiða sinna í stúkustofuna í Skjald-
borg sama dag, kl. 10—12 f. h. Þeir
kosta ekkert, en þeir, sem eiga ógreidd
ársfjórðúngsgjöld, greiði þau um leið.
Það skal tekið fram að aðgöngumiðana
verður að sækja á hinum tiltekna tíma.
Mttkjélar
fást í
Pönfunarfélaginu
Óskum öllum viðskiftavin-
um vorum farsæls nýjárs
með þökk fyrir viðskiftin á
gamla árin.
Pöntunarfélagið.
Farsœlt nýtt ár!
Þökkum viðskiftin undan-
farið.
Kaffibrennsla Akureyrar.
Gleðilegt ár!
Þakka viðskiftin á liðna
árinu.
Sigtr. fúllússon,
rakari.
Appollo-
klúbburinn
heldur d a n s 1 e i k í
Verk1ýðshúsinu á
GAMALÁRSKVÖLDkl.
10 e. h. Húsið skreytt.
— Góð músik. — Veit-
ingar seldar.
Stjórnin.