Verkamaðurinn - 04.01.1938, Side 2
2
VERKAMAÐURINN
14 itiöiinuni
neitað ui
inngöngu
í „Akur“.
Erlingi Friðjónssyni stilt upp sem 1. manni
til að eyðileasja síðustu ítök Alþýöu-
flokksins á
Íhaldsklíkan í Framsókn . . . .
(Framh. af 1. síðu).
8. grein íélagssamþykta K.G.A.
sem stjórnin tilgreinir í bréfi
sínu — er þannig orðrétt:
»Félagsmaður getur sætt brott-
rekstri úr félaginu fyrir þessar
sakir:
a. Ef hann verður ber að því,
að spilla áliti félagsins eða
vekja tortrygni hjá félags-
mönnum.
b. Ef hann telur télagsraenn á,
að draga viðskifti sín frá
félaginu.
c. Ef hann er félagsmaður að
yfirvarpi, en hefir mestöll
viðskifti sín annarstaðar.
d. Ef hann sýnir félaginu veru-
leg vanskil.
Nú ályktar stjórnin að félags-
maður skuli rækur ger, og skal
hún þá tilkynna honum það
skrflega. Um félagslega ábyrgð
hans og Stofnsjóðseign fer eftir
því, sem mælt er tyrir í sam-
þyktum þessum. Sá, er sætir
brottrekstri, getur skotið máli
sínu til næsta aðalfundar.«
Þegar fregnin um þetta tiltæki
stjórnar K.E.A. barst út um bæ-
inn, vakti hún í senn undrun og
viðbjóð almennings. Mönnum
er að vísu kunnugt um ótta aft-
urhaldsklíkunnar í Framsóknar-
félaginu hér, við áhrif og vax-
andi fylgi Kommúnistaflokksins
hér í bæhum, undir forustu
Steingríms Aðalsteinssonar, en að
þessi afturhaldsklíka, sem hefir
forustu K.E.A. á valdi sínu,
mundi grípa til þeirra ráða að
nota yfirráð sín í K.E.A. til að
ofsækja, jafn áberandi, pólitíska
andstæðinga, í nafni þess félags
sem á að vera ópólitiskt, hefðu
fæstir trúað, þó mönnum sé
kunnugt um að ópólitíski svip-
urinn á K.E.A. hefir orðið tor-
kennilegri með hverju ári siðan
Hallgr. Kristinsson lét af fram-
kvæmdastjórastörfum félagsins
1918.
Þessi ósvífna pólitíska ofsókn
i nafni K. E. A. gegn næst á-
Á aukaþingi Alþýðusambands-
ins í haust var, eins og mönnum
mun vera kunnugt, samþykt rót-
tækari stefnuskrá en áður og að
Alþýðuflokkurinn skyldi framveg-
is starfa á grundvelli marxismans.
Jafnframt var ákveðið að leggja
afarmikla áherslu á að fjölga með-
limum jafnaðarmannafélaganna og
stofna ný félög.
Á fundi jafnaðarmannafélagsins
„Akur“ í gærkvöldi, var byrjað á
því að vinna í anda þessara á-
kvarðana Alþýðusambandsþings
ins með því að neita 14 mönnum
um inngöngu í félagið, aðeins með
þeim forsendum, að stjórn félags-
hrifaríkasta flokknum í bænum,
mun síst hafa þær afleiðingar,
sem afturhaldsklíka Framsóknar
hefir ætlast til. Alþýðan, bæði
innan og utan K. E. A., mun
svara þessari fasistisku árás með
þvi að fylkja sér fastar um
Kommúnistaflokkinn, til þess að
tryggja það að stefnumál hans,
hagsmunamál alþýðunnar, bæði
innan og utan K. E. A., komist
sem tyrst i framkvæmd, til þess
að tryggja það að ekki verði
reynt að beita hinum þýðingar-
miklu hagsmunasamtökum bænda
og verkamanna, K. E. A., póli-
tískum flokki til framdráltar,
eins og nú er reynt svo freklega
og hefir verið gert með ýmsu
móti undanfarið.
Þegar blaðið fór í pressuna
hafði Stgr. A. ekkert svar borist
frá form. KEA. Bendir alt til að
stjórnin eigi allerfitt með að rök-
styðja í hverju Steingr. hefir gerst
brotlegur við KEA eða hagsmuni
meðlima þess.
Akureyri.
ins teldi einræði sínu og íhalds-
stefnu stefnt í voða ef þessum
mönnum væri leyfð innganga í
félagið.
Hinsvegar voru um 12—14 tekn-
ir inn, sem stjórnin áleit að
myndu halda vörð um fasistastefnu
stjórnarinnar og verja ofbeldis-
gerðir hennar til hins ítrasta.
Eftir þessar „marxistisku“ aðfarir
stjórnarinnar hófust heitar um-
ræður um uppstillingu við bæjar-
stj órnarkosningarnar. Var fund-
inum slitið undir miðnætti, og
hafði þá sú viturlega ákvörðun
verið tekin, að 4 efstu menn á
lista Alþýðuflokksins í höfuðstað
Norðurlands skyldu vera: Erlingur
Friðjósson, sem undanfarin ár
hefir eytt allri orku sinni — með
góðum árangri — til að eyðileggja
áhrif og fylgi Alþýðuflokksins í
róttækasta kaupstað landsins, Jóni
Hinrikssyni, sem er altaf með
nafna sínum, Hafsteini Halldórs-
syni og frú Helgu Jónsdóttur.
Er þessi listi svo prýðilega skip-
aður að fulltrúar Alþýðuflokksins
hér, Friðjónssynir og Jón Sigurðs-
son, geta verið öruggir um að list-
inn komi engum manni að í bæj-
arstjórnina, og er það vissulega
ekki það versta fyrir Alþýðu-
flokkinn úr því að hann bar ekki
gæfu til að stilla upp nema íhalds-
mönnum eða ístöðuleysingjum.
Alþýða Akureyrar mun meta
þessar hneykslanlegu ákvarðanir
meirihluta „Akurs“ að verðleikum
og svara með því að fylkja sér um
þarm lista, sem stillir þeim full-
trúaefnum, sem ekki ganga í
bandalag við íhaldið og afturhaid-
ið innan og utan bæjarstjórnar.