Verkamaðurinn - 15.01.1938, Side 3
VERKAMAÐURINN
3
*
Hriflukarlinn
segir að Framsóknar-
flokkurinn sé kominn
út af lýðræðisgrund-
vellinum.
Hriflu-Jónas sendir Siglfirðing-
um kveðju sína í blaði Framsókn-
armanna á Siglufirði, 8. þ. m.
Kemst hann m. a. svo að orði:
„Kommúnistaflokkurinn íslenski
uppfyllir hvorugt skilyrðið. Hann
vinnur á byltingagrundvelli og
hann er vitanlega og sannanlega
undir stjórn erlends stórveldis. —
Það er þessvegna mikil yfirsjón
af Alþýðuflokknum að blanda
blóði við slíkan flokk. Með því
gengur hann út af lýðrceðisgrund-
vellinum (leturbr. ,,Vm.“) og und-
ir jarðarmen hjá átefnu, sem er
óþjóðleg, byltingarkend og undir
erlendum yfirráðum“.
Á Sauðárkrók og Eyrarbakka
hefir Framsóknarflokkurinn gert
nakvæmlega það sama og Alþýðu-
flokkurinn. Samkv. sögn Jónasar
er því Framsóknarflokkurinn
einnig kominn út af lýðrœðis-
grundvellinum o. s. frv.!!
Hafa skrif Jónasar vissulegaoft
verið gáfulegri en nú, — auð-
fundið að hann er farinn að
blanda blóði við Ólaf Thors.
fólk, sem eg var meðinælandi að,
verði tekið inn á næsta fundi
jafnaðarmannafélagsins, þá stað-
festir það aðeins ummæli athuga-
semdar minnar. Eg ræði svo ekki
þessar inntökubeiðnir frekar við
þann mann, sem ekki er vandari
að virðingu sinni en það, að hann
hvorugt hirðir um, að segja satt
eða efna gefin loforð.
G. S.
í ársbyrjun 1938 var meðlima-
tala Kommúnistaflokks Frakk-
lands 341.000. í janúar 1936 Jiafði
flokkurinn 86.000 meðlimi.
Hálmstrá
Halldórs
er nú lygin, eins
og áður.
Halldór Friðjónsson segir svo
frá í ,,Alþýðum.“ 11. þ. m.: „Og
þegar nokkrir af kommúnistum,
reyndu á Föstudagskvöldið, að fá
flokkinn til að sýna sama réttlæti
og á öðrum stöðum, barðist Stein-
grímur Aðalsteinsson gegn því og
fékk felda tillögu, er gekk í þá
átt“.
H. F. er hér með lýstur opinber
lygari að þessum ummælum. Á
umræddum deildarfundi KFÍ kom
aðeins EIN tillaga fram og var
samþykt með öllum atkvæðum.
Fjöldamargir tóku til máls og
töluðu allir gegn því að Erl. Fr.
yrði á sameiginlegum lista.
Kommúnistafl. er einhuga flokkur
en hefir ekki menn af öllum
flokkum innan sinna vébanda
eins og „Akur“ og Framsóknar-
félag Akureyrar.
Fyrírspurn
111 Árna Jóhannssonar
K. E. A.|
Hvað eru margir pólitískir
flokkar í Fratnsóknarfélagi Akur-
eyrar?
Franska stjórnin segir af sér
Franska stjórnin sagði af sér
kl. 4 í gærmorgun. Frankinn hefir
fallið undanfarna daga og var
gengisj öfnunarsj óður st j órnar inn-
ar genginn til þurðar. Eftir að
jafnaðarmenn höfðu ráðfært sig
við kommúnista, drógu þeir ráð-
herra sína úr stjórninni og sagði
þá forsætisráðherrann, Chautemps
af sér.
Jafnaðarmenn og kommúnistar
vildu að stjórnin gerði ráðstafanir
til að hindra fall frankans.
I fótspor JomuÉlaðsMr.
„Dagur“ hefir nú lagst svo lágt
að apa eftir „Morgunblaðinu“
lygasögur um ofsóknir gegn
kristnum mönnum í Sovétlýðveld-
unum — í þeirri trú að slíkt geti
orðið til þess að trúað fólk halli.
sér að leiðandi mönnum Fram-
sóknar, skoði Árna Jóhannsson og
V. Þór sem lærisveina Krists og
kjósi þá í þeirri trú að þeir muni
breyta eftir fjallræðunni, ef þeir
komast í bæjarstjórn.
Það er vel viðeigandi að svara
þessum lygasögum „Dags“ með
eftirfarandi ummælum Þórbergs
Þórðarsonar:
»Mörgum muo enn í fersku minni, aö
fyrir nokkrum árum gaus alt í einu upp
sá skelfilegi kvittur í Vestur-Evrópu, að
um Rússland geisuðu hræðilegar trúarof-
sóknir og að sægur presta hefði þá ný-
lega verið tekinn af Iífi af sovétstjórn-
inni...... Æfintýrið fékk meira að
segja svo grómtekinn veruleikablæ, að
hans heilagleikinn páfinn gaf út fyr-
irskipun um, að biðja skyldi fyrir þessu
pínda og ofsótta fólki af öilum prédik-
tinarstólum rómversk-katólskrar kirkju.
Og svo tóku þeir lútersku þetta eftir.
í þessari tröllauknu blóðsymfoniu
kvað þó við ein hjáróma rödd. Og hún
kom frá heiðarlegu blaði, máigagni
frjálslyndra manna í Englandi, The
Manchester Guardian, sem þó er langt
frá því að vera vinveitt bolsévíkum. Það
trúði ekki meira en svo sögunni og tók
sér því fyrir hendur að rannsaka í öll-
um áttum, hvað hæft væri í þessum fá-
dæmum. Blaðamenn þess fóru um Rúss-
land og leituðust fyrir á líklegustu sem
ólíklegustu stöðum utan Rússlands. Og
hvað kemur þá upp úr kafinu? Rann-
sóknin leiddi það t ljós, að tíðindin um
trúarofsóknir og prestamorðin voru ein
lygi og uppspuni frá rótum«.
(»Rauða hxtttam.)
Það má ennfremur bæta því
við að „Mogginn“ var fyrir mörg-
um árum búinn að sálga 6 sinnum
fleiri prestum í Rússlandi en þar
voru til þegar uppreistin hófst.