Verkamaðurinn - 07.05.1938, Side 1
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands.
XXI. árg.
Akureyri, laugardaginn 7. maí 1938.
25 tbl.
Ossietzky dáinn.
1. maí hátíðahöldin.
Kröfuganga verklýðsfélaganna og verk-
lýðsflokkanna í Reykfavík íar fafn glœsileg
og grafarganga klofningsniannanna
var hryggileg.
Aknreyri:
1. mai hatíðahöldin hófust hér
é Akureyri með f|ölmennum úti-
fnndi við Verklýðshúsið. Fluttu
þar ræður: Sigþór Jóhannsson,
Tryggvi Helgason og Steingrimur
Aðalsteinsson. Að loknum fund-
inum var farið í kröfugöngu.
Var gengið niður Strandgötu,
út Hriseyjargötu, upp Eiðsvalla-
götu, suður Norðurgötu, upp
Gránufélagsgötu, upp Oddeyrar-
götu, niður Kaupvangsstræti, út
Hafnarstræti og staðnæmst við
Nýja-Bió og hófst þar þá inni-
skemtun. Karlakór Akureyrar og
kvennakórið »Harpa«, sungu
nokkur lög, Elísabet Eiriksdóttir
flutti ræðu, Ungherjar skemtu,
og að lokum var sýnd kvik-
myndin »Madrid í björtu báli«r.
Var skemtunin i Nýja-Bió ágæt-
lega sótt. 1 kröfugöngunni tóku
þátt á 3 hundrað manns. Merki
▼oru seld um daginn til ágóda
fyrir spönsk börn. Um kvöldið
▼ar dansskemtun í Verklýðshús-
inu.
Verklýðsfélag Akureyrar hafði
innisamkomu i Samkomuhúsinu
nm kvöldið og merkjasölu um
daginn til ágóða fyrir björgunar-
skútu. Sá hinsvegar enga ástæðu
til að gera kröfur til valdhafanna
um atvinnu eða annað.
lteykjavík.
Hátíðahöld alþýðusamtakanna
i Reykjavik hófust með barna-
skemtun í Nýja-Bíó kl. 10 um
morguninn.
K1 2 hófst útifundur á Lækjar-
torgi og Lækjargötu. Fluttu þar
ræður Sigfús Sigurbjartarson og
Halldór Kiljan Laxness. Að lokn-
um fundinum hólst kröfuganga
ura borgina. Gekk lúðasveitin
»Svanur« í broddi fylkingar. Var
það sú fjölmennasta kröfuganga,
sem enn hefir sést í Reykjavik
og voru þátttakendur á 3. þús-
und. Að lokinni kröfugöngunni
hófst útifundur á Austurvelli.
Fluttu þar ræður: Héðinn Vald.,
Brynjólfur Bjarnason, Friðleifur
Friðriksson, Jón Guðlaugsson,
Björn Bjarnason, Petra Péturs-
dóttir, Jón Magnússon og Einar
Olgeirsson. Var útifundurinn á
Austurvelli geysilega fjölmennur.
Síðar um daginn voru svo skemt-
anir í Nýja-Bió og K. R-húsinu.
Klofningsmennirnir, — eða öðru
nafni »beinaverksmiðjan«, —
efndu til »hópgöngu« í kirkju-
garðinn. Er taiið að ca. 250
hræður hafi gengið til grafarinnar.
Seinna um daginn boðaði »beina-
verksmiðjan« til fundar i Gamla-
(Framh. á 2. síðu).
Carl von Ossielzky, hinn heims-
kunni rithöfúndur, er dáinn. Naz-
istarnir í Pýskalandi fangelsuðu
hann strax eftir að þeir brutust
til valda og hefir hann verið i
varðhaldi og undir strangri gæslu
siðan. Ossietzky hlaut friðarverð-
laun Nobels 1935. Aðbúnaðurinn
og meðferð í fangaklefum naz-
istanna hafði að lokum þær af-
leiðingar að lifskraftar Ossielzkys
þrutu algerlega.
samþykti einum rómi á fundi
sinum .24. f. m. mótmæli gegn
vinnulöggjöt og gerðardómslög-
unum frá í vetur, i sjómanna-
deilunni. Hafa þá 6 verklýðsfé-
lögin hér á Akureyri mótmælt
vinnulöggjöfinni en 1 (Verklýðs-
fél. Ak.) tjáð sig fylgjnndi henni.
STEINN STEINSEN,
bæjarstjóri, er kominn heim úr för
sinni til útlands.
U. M. F. A.
heldur dansteik annað kvöld f Skjald-
borg. Haraldur spilar.
I. H. Krestanoff professorf espcr-
anto er væntanlegur hingað til bæjarins
með »Esju«.
Blandaða kórið, undir stjórn hr.
Roberts Abrahams, heldur satnsöng i
morgun f Nýja B'ó kl. 3 e. h. Aðgöngu-
miðar kosta aOelm 1 krónn. Þart
ekki að eta að húsfyllir verður, þvf kórið
hefir ekkert að bjóða nema hið besta,
bæði hvað viðfangsefni, meðterð og stjórn
snertir.
Er það mikill fengur fyrir mcnn-ngarlif
Akureyrarbúa að fá aðnjóta hinna ágattu
hæfileika hr. Roberts Abrahams.