Verkamaðurinn - 14.05.1938, Blaðsíða 3
VERKAMAÐURIN
3
margar konar verið styrktar aust-
ar að Laugavatni til stuttrar
sumardvalar.
Síðastliðið sumar voru 211
mæður og börn styrkt þangað
austur.
Akureyringar! gleðjið og heiðr-
ið mæður ykkar þennan dag með
því að leggja aura i mæðrasjóðinn.
Kaupið merkin á mæðradaginn!
Sækið samkomur á mæðra-
daginn !
Mæðradagsnefndin.
OWaðiií kór.
Hinn blandaði kór hr. Roberts
Abraham er nú búinn að halda 3
konserta að þessu sinni. Er þetta ann-
ar veturinn, sem kórinn er æfður.
Hann er ekki fjölmennur, en söng-
kraftarnir eru yfirleitt góðir. Margt
af meðlimum blandaða kórsins starfa
einnig í öðrum kórum.
Þegar miðað er við, hversu kórinn
er ungur og viðfangsefnin, má árang-
urinn teljast undraverður og ber vott
um framúrskarandi gáfur, þekkingu
og vandvirkni söngstjórans.
Sum viðfangsefnin voru mjög erfið,
einkum hið síðasta, sem er úr »Req-
uiemc, eftir Verdi. Mun það áður
aldrei hafa verið sungið hér á landi.
Af öðrum viðfangsefnum, má einkum
nefna kór úr »Ein deutsches Requiemc,
eftir Brahms. Voru bæði þessi und-
urfögru listaverk flutt með þeirri tign
og andagift, er þeim hæfir. Af öðrum
lðgum voru sérstaklega vel sungin
»ln stiller Nacht«, eftir Brahms, og
íslenska þjóðlagið, >Hrafninn flýgur
um aftaninnc, í útsetningu Sigfúsar
Einarssonar.
Auk þessa léku fjórhent á flygel,
þau frú Jórunn Oeirsson og hr. Robert
Abraham, »Ófullgerðu hljómkviðuna*,
eftir Schubert, — en á síðusta hljóm-
leiknum í hennar stað, »Coriolan —
forleikinn», eftir Beethoven. Var sam-
leikur þeirra snildarlegur, sérstaklega í
»Forleik« Beethovens, þessu volduga og
áhrifamikla tónverki hins ódauðlega
meistara.
Frú Jórunn Geirsson lék ennfremur
undir í öllum lögunum. Er leikur
hennar lipur, þróttmikiil og litauðug-
ur.
Einsöngva sungu: Matthildur Páls-
dóttir, Sigríður Guðmundsdóttir, Sverr-
ir Magnússon, Gunnar Magnússon
og Magnús Sigurjónsson. Leystu þau
það yfirleitt vel af bendi.
Eins og kunnugt er, er hr. Abra-
ham hámentaður tónlistarmaður, sem
hefir sérstaklega lært að stjórna hljóð
færasveit og kór, enda haldið hljóm-
leika í Kaupmannahöfn, París og vfðar.
Bar öll stjórn hans ótvíræð merki um
yfirburði hans í þessum efnum og
gætu aðrir söngstjórar mikið af hon-
um lært.
Aðsókn að síðasta konsertinum var
góð — að tveimur hinum fyrri ágæt
— og viðtökur hefir engin kór fengið
hér betri.
2QO.oqo púsond króoa
kaupttækkon.
Samkvæmt samningum »Prótt-
ar« á Siglufirði við ríkisverksmiðj-
urnar hækkar mánaðarkaup yfir
2—4 mánuði úr kr. 325.00 upp
i kr. 340.00, timakaup bækkar
um 10 aura á timann. Skipa-
vinna hækkar eins og i samning-
unum við atvinnurekendafélagið
en eftirvinna i kolum hækkar
ekki nema úr kr. 2.00 upp i kr.
2.25 (hjá atvinnurekendum kr.
2.50). Hærra kaup verður greitt
í 4 mánuði sumarsins i stað 3
áður.
Með samningum sfnum hefír
»t*rótti« tekistað hækka kaupsigl-
fiskra verkamanna um 200.000
krónur. Slíkt er auðvelt þegar
verklýðssamtökin eru óklofin.
Hafísinn
nálgasf
óðum.
Undantarna daga hafa öðru
hvoru borist fregnir um hafis
úti fyrir Norðurlandi. Hefir isinn
stöðugt færst nær og nær. í morg-
un kom fregn frá »Heklu« um
að hún hefði ekki komist vestur
fyrir Horn vegna haiíss og sæi
ekki að nokkur leið væri að
komast það í dag. Situr hún þvi.
föst i Húnaflóa.
Alþlngt var slitið s. 1. firaœtudags-
kvöld.
> Grái frakkinu< og >Apa-
kSllnrlnn< verða sýndir i kvöld o;>
annað kvöld. Niðursett verð.
„islenskar aðall". heitir ný bókr
eftir hinn snjalla rithöfund Þórberg
Þórðarson. Mun marga fýsa að lesa þetta
siðasta ritverk Þórbergs.
♦
♦
♦
♦
♦
Hárgreiðslustofan J
»B Y L Q J A« 1
er flutt í Hafnarstræti 108 1
(hús Friðjóns Jenssonar). 4
Virðingarfyllst j
Steingerður Árnadóttir. ♦
r
Askorun.
Vegna takmarkaðra atvinnumöguleika bifreiðaeigenda í
Akureyrarkaupstað, skorar bæjarstjórnin hérmeð á alla
þá borgara, er nota þurfa bifreiðar til aksturs, að látæ
bifreiðaeigendur, búsetta í bænum, sitja fyrir viðskiftum.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 14. mai 1938
Stelnn Sfeinsen.