Verkamaðurinn

Tölublað

Verkamaðurinn - 04.06.1938, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 04.06.1938, Blaðsíða 1
Útgefandi: Verklýðssamband Norðurlands. XXI. árg. Akureyri, laugardaginn 4. júní 1938. \ 29. tbl. »SkjalÉorgin« á Noröfirði svíkur samninga os gerir bandafag við afturhafdið. RalveHumAHð. Er ríkisábyrgðin á næstn grösum? Takist samningar við dönsku firmun, vcröur að leggja áherslu a sem mesfar framkvæmdir á þessu ári. Vonir manna um af rafveitu- byggingarmálið verði leyst á næst- unni á jákvæðan hátt glæðast nú meir og meir. Bæjarstjóri, Steinn Steinsen, lagði af stað með »Lyru« i fyrradag áleiðis til útlanda í erindum rafveitunnar, en að sjálf- sögðu væri sú för óvitaskapur, ef hann hefði ekki tyrirfram haft vissu fyrir því að hin margum- talaða og torsótta rikisábyrgð fengist fyrir láni þvf, sem hann fékk vilyrði fyrir i Dan- mörku. í*að virðist því mega gera ráð fyrir þvi að samningar við hina dönsku lánveitendur og firmu, er gert hafa tilboð í bygg- ingu stöðvarhússins, stýflunnar o. fl. verði gerðir og undirritaðir um miðjan þennan mánuð, og gætu þá fyrstu verklegar fram- kvæmdir hafist fljótt úr þvi, svo sem bygging verkamannaskál- anna. En þó ríkisábyrgðin fáist og samningarnir takist við Dani, þá eru ýmsir þættir rafmagnsmálsins enn óleystir, sem miklu máli skiftir um að giftusamlega verði ráðið fram úr. Má þar m. a. nefna söluverð ratorkunnar til væntan- legra kaupenda. Er það út af fyrir sig afarþýðingarmikið atriði, en út 1 það verður ekki farið nánar hér að þessu sinni. Fiestir eða allir munu vera sammála um að ófriðarhættan sé nú mjög mikil og fari vaxandi. Menn munu einnig vera á einu máli um það, að brjótist heim- styrjöld út, verði torvelt um flutninga til og frá íslandi. En einmitt með tilliti til yfirvofandi heimsstyrjaldar er ekki hvað síst þörf á að hraða sem mest byggingu hinnar nýju rafveitu. Þrált tyrir þessar staðreyndir, hafa heyrst hér raddir um að geyma sem mest af byggingu rafveitunnar til næsta sumars, m. a. að geyma að leggja línuna að austan. En slikt má ekki verða. Leggja verður einmitt á- herstu á að sem mest at linunni verði lagt í sumar og haust, því auk ófriðarhættunnar rekur hin mikla vinnuþörf verka- manna þar á eftir En við lagn- ingu leiðslunnar verður einmitt mjög mikil vinna; yrði hinsvegar ekkert hirt um að leggja hana í sumar, yrði atvinna við rafveitu bygginguna í ár harla lítil og margir verkamenn bæjarins myndu því sennilega ganga at- vinnulausir eftir sem áður. Það riður því á að kveða niður raddir um að fresta sem mestu af framkvæmdum í raf- veitubyggingarmálinu til næsta sumars. Á bæjarstjórnarfundi á Norð- firði 30 f. m. fór fram kosning bæjarstjóra fyrir Neskaupstað. íhaldið, Framsókn og hægri menn Alþýðuflokksins (»Skjald- borgin«), mynduðu samfylkingu og greiddu atkvæði gegn öllum umsækjendnnum. Af 3 umsækj- endum hlaut Árni Ágústsson flest atkvæði eða 4. Varð því enginn umsækjandinn löglega kosinn. Bæj irstjórnin samþykti því næst nieð 8 atkvæðum að óska eftir nýjum kosningum i nóvember i haust »SkjaIdborgar« fulltrúarnir 2 þverbrutu með þessu athæfi sínu samninga þá, er verklýðsflokkarnir höfðu gert með sér og undirritað fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vet- ur. Þessar aðfarir þeirra, ásamt svikum Stefáns Jóhanns og fé- laga hans i bæjarstjórn R -víkur, sýnir að »Skjaldborgar«-menn- irnir eru reiöubúnir til að svíkja alla samninga og öll loforð, bara ef þeir geta með því móti skriðið að fótum ihaldsins og hlotið klapp þess, eins og þægur rakki. Ky'tíorl Stefánsson, söngvari, er væntanlegur hingað til bæjarins á næst- unni, og mun halda hér hfjómleika. Mál og mcnning hefir ákveðið að fjórða bók félagsins á þessu ári verði Sögur eftir Nobelsverðfaunahöfundinn John Galsworthy. Annast Bogi Ólafsson yfir- kennari þýðinguna.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.