Verkamaðurinn - 04.06.1938, Blaðsíða 3
VERKAMAÐURINN
3
Einingin sigraði i Ástralíu.
Eins og alstaðar anuarstaðar í
auðvaldsheiminum hefir í Ástralíu
undanfarið verið háð barátta með
og móti einingu alþýðunnar.
Andstæðingar einingarinnar í
Ástraliu hafa borið sigur úr bít-
um i þeim viðskiftum þangað til
s.l. sumar að þing Alþýðusam-
bands Ástralíu samþykti með 79
atkvæðum gegn 48 atkvæðum til-
lögur samfylkingarmanna. Tillög-
ur hinna kommúnistisku fulltrúa
og annara byltingasinnaðra full-
trúa, um að sambandið taki upp
ákveðna barátlu fyrir styttri
vinnutima, hærri launum, þjóð-
ernislegri og alþjóðlegri einingu
gegn fasismanum, voru samþykt-
ar. Þessar ákvarðanir bafa mjög
mikla þýðingu i Ástralíu, sökum
þess m.a. að í Alþýðusam. Ástralíu
eru skipulagðir um 900.000 verka-
menn — en íbúar landsins eru
Samsöngur
„Heklunga"
um síðustu helgi tókst prýði-
lega. Hélt félagið 3 söngskemt-
anir fyrir troðfullu húsi og var
fagnað afburðavel. Að siðustu
sungu kórarnir 5, er skipa ,Heklu‘,
úti á Ráðhústorgi, kl. 10 á sunnu-
dagskvöldið, að viðstöddu miklu
fjölmenni. Strax og söngnum var
lokið stigu utanbæjar söngmenn-
irnir upp í ferðbúna bílana og
héldu af stað heimleiðis. — En
bæjarbúar munu óska þess að
sjá þá og heyra aftur sem allra
fyrst.
Ábyrgðarmaður Þóroddur Guðinundsson.
Prentverk Odds Björnssonar
alls aðeins 6.800.000,. og mun
verkalýðurinn hvergi vera jafnvel
skipulagður i auðvaldsheiminum.
Ein af þýðingarmestu ákvörðun-
um þingsins var að sambandið
skyldi beita allri orku sinni til
að steypa stjórn Lyons og mynda
verkamannastjórn. Ákveðið var
að hefja baráttu fyrir 40 stunda
vinnuviku og 25% kauphækkun.
Hvatti þingið Verkamannaflokk-
inn til að setja þessar kröfur i
kosningastefnuskrá sína. Þá sam-
þykti þingið ályktun þar sem
lögð var áhersla á, að kölluð
yrði saman alþjóðleg ráðstefna
með fulltrúum A L L R A verk-
lýðssambanda heimsins, bæði rót-
tækra og hægfara, sem hefði það
hlutverk að sameina öll verklýðs-
sambönd heimsins í eitt voldugt
samband.
Erlendar fregnir.
Kínversku blöðin skýra frá því að
1 '/2 miljón börn í Kína hafi mist
báða foreldra sína frá því að ófrið-
urinn hófst. Öil þessi börn eru inn-
an 15 ára.
Á fundi, sem þýsk-ameríska sam-
bandið hélt i Chicago lét Roy Zac-
hary, foringi fazistafélagsins »Silfur-
skyrtur* m. a. þau orð fallai að það
væri »skilyrðislaust nauðsynlegt* að
myrða Roosevelt. »Ef enginn annar
býðst til þess af fúsum vilja, að
skjóta hann, mun eg sjálfur gera
það« æpti hann. Meðal þektra manna,
sem ræðumennirnir á þessum naz-
istafundi hótuðu að drepa, var einnig
John Lewis, formaður iðnaðarfagfé-
laganna (CIO). Pýsk-araeríska sam-
bandið samanstendur af meðlimum
hins fyrverandi sambands »Vinir hins
nýja Pýskalands*. Foringi þess er
Fritz Kuhn, sem stendur í beinu
sambandi við opinber þýsk yfirvöld.
Fyrverandi ríkisréttamálafærslumað -
ur og dómsmálaráðherra dr. Winter-
stein f Austurrfki, hefir fraraið sjálfs-
morð, þegar S. Á. (nazistarnir) komu
til að fangelsa hann. Tveir synir hans
voru fangelsaðir. Pað er ennfremur
tilkynnt opinberlega að fyrverandi
landsstjóri í Salzburg, dr. Rehrl, sem
var meðlimur kristilega-jafnaðarmanna
flokksins og einn af áköfustu forvígis-
mönnum hátiðarleikjanna í Salz-
burg, hefir verið bandtekinn.
Nazistablaðið »Der schwarze Korps«
skýrir frá því að hinn kunni kabar-
ettlistamaður og skopleikari Pauf
Morgan, hinn frægi kvikmyndaleikari
Fritz Schulz og hinn fyrverandi for-
ingi Heimastjórnarflokksins, ráðherra
og sendiherra Baar-Barenfels, hafi all-
ir verið fangelsaðir.
í apríl voru framin aðeins í Wien
um 1200 sjáifsmorð. Meðal sfðustu
fórnarlambanna voru hinir kunnu rit-
stjórar, Stefan Múller, Schowoner og
Kuranda við »Neues Wiener Tagblatt*
og »Neue Freie Presse« auk þess
binn heimsfrægi leikari, leikstjóri og
leikhúsforstjóri Rudolf Beer. Beer
hafði árum saman stjórnað Deutsches
Volkstheater. Margir góðir leikarar
og leikritaböfundar eiga dyggilegum
stuðningi hans að þakka frægð sína.
Pegar Beer fyrir 2 árum síðan var
hrakinn frá Deutsches Volkstheater,
tók hann við stjórn Wiener Scala,
en þaðan ráku nazistarnir hann 12.
raars.
Fyrsti forseti pólska lýðveldisins,
Paderevski píanoleikarinn heimsfrægi,
hefir f útvaipi til pólsku stjórnarinnar
krafist þess að yfirvöldin hætti of-
sóknunum gegn andstæðingunum.
Dómstóllinn í Saargeraúnd í Frakk-
landi hefir dæmt þýska verkfræðing-
inn Breyer í eins árs fangelsi fyrir
njósnir fyrir Pýskaland í Frakklandi.
Fyrir réttinum játaði njósnarinn, að
hann hefði áður njósnað í Persíu og
Sovétrfkjunum fyrir Pýskaland.
I Hopei-héraðinu í Kína eru nú
rúml. 200 kínverskir herflokkar, sem
telja samtals minst 300.000 sjálf-
boðaliða (»partisana<)