Verkamaðurinn - 09.07.1938, Page 1
XXI. árg.
Akureyri, laugardaginn 9. júlí 1938.
34. tbl.
Vinna er Iiafin á
Eins og Akureyrarbúum mun
vera kunnugt, hafa staðið yfir
samningar um lán í Danmörku til
rafveitubyggingar fyrir Akureyri
og nágrenni, hefir orðið allmikill
dráttur á því að frá þeim samn-
ingum væri gengið vegna tregðu
fjármálaráðherra að veita ríkis-
ábyrgð fyrir láninu.
Nú hefir ráðherrann' veitt ríkis-
ábyrgð fyrir 1.700.000.00 króna
láni og bæjarstjóri Akureyrar
undirskrifað lánssamninga fyrir
sömu upphæð.* Jafnframt hefir
bæjarstjóri — í samráði við trún-
aðarmann ríkisins, raffræðing Ja-
kob Gíslason — gert samning um
framkvæmd nokkurs hluta verks-
ins, við firmað Höjgaard & Schuls.
Akureyrarbær þarf að sjá verk-
tökum fyrir bústöðum á virkjun-
arstaðnum — fyrir ca. 50 verka-
menn, og nauðsynlegum vegum
vegna virkjunarinnar.
í tilefni þessa fór rafveitunefnd
austur að Laxá 5. þ. m. til að at-
huga um hvað gera þyrfti og fá
leyfi landeiganda til að reisa um-
ræddar byggingar til bráðabyrgða
og varanleg íbúðarhús fyrir stöðv-
arstjóra og vélaverði, ennfremur
leita eftir að fá nokkurt land til
ræktunar, svo starfsmenn rafveit-
unnar, sem koma til með að búa
þar austur frá, geti haft nokkra
garð- og grasrækt sér til gagns og
* Útvarpsfregn i gærkveldi hermir, að
lánsupphæðin sé 2 millj. kr.
virkjunarstaðnum.
skemtunar. Þann 8. þ. m. voru svo
verkamenn sendir austur til að
hefja þessi tmdirbúningsstörf.
Bæjarstjóri mun leggja á stað
heimleiðis frá Danmörku í dag og
með honum eru væntanlegir
menn frá „Höjgaard & Schuls til
að standa fyrir byggingu véla-
hússins og öðru því, sem gert
Um miðjan s.l. mánuð var 13.
þing Ungmennasambands Is-
lands haldið í Þrastalundi. Ping
þetta gerði ýmsar ályktanir um
æskulýðs- og menningarmál. M.a.
samþykti það áskorun til ríkis-
stjórnarinnar um að lata fara
fram þjóðaratkvæði um áfengis-
málin í sambandi við næstu al-
þingiskosningar. Þingið ræddi
einnig mikið um iþrótlamál og
var m.a. samþykt að efna til alls-
herjar iþróttamóts ungmennafé-
laganna, á Akureyri árið 1940, í
tilefni af 40 ára atmæli U M F-
hreyfingarinnar bér.
Þá samþykti þingið ályktun
um friðarmálin og kaus fulltrúa
til að vinna að þeim málum með
friðarfélagiriu, en eins og kunnugt
er gekk Ungmennafélagssam-
bandið sem heild i það félag.
Aðalsteinn Sigmundsson, hinn
kann að verða í sumar. Búast þeir
við að taka ca. 30 menn í vinnu
fljótlega.
Rafveitunefnd leggur til að
íbúðarhús fyrir stöðvarstjóra
verði bygt hið fyrsta, og verður
þá vinna þar austur frá fyrir 40—
50 menn, og bætir það úr atvinnu-
leysinu, þótt margir muni samt
verða eftir atvinnulitlir hér í bæn-
um.
Gert er ráð fyrir, að rafstöðin
verði tekin til starfa í okt. 1939.
Nánar verður upplýst um mál-
ið, þegar bæjarstjóri kemur heim
og skýrir frá samningunum.
vinsæli æskulýðsleiðtogi lét af
störfum sem forseti sambandsins
á þessu þingi. Hefir hann um
margra ára skeið verið lifið og
sálin i starfi ungmennafélaganna.
1 hans stað var kosinn forseti
Eirikur J Eiríksson, prestur,
hinn mætasti maður, frjálslyndur
og víðsýnn.
Þetta þing, fjölmennasta og
elsta æskulýðssambandsins á ís-
Jandi, sýndi það greinilega að
Ungmennafélögin eru í öflugri
sókn, eru að vinna sig upp úr
því deyfðarástandi, sem þau voru
í um nokkurra ára bil eltir að
áhuginn fyrir aðalmáli þeirra,
sjálfstæðismálinu, tók að dofna.
Umf. hafa nú skilið að sjálfstæð-
ismálið er ekki til lykta leitt og
að fjöldi óleystra verkefna biða
úrlausnar fyrir athafnamikið
(Framh. á 2. síðu).
Þreltánda þing
Ungmennasambands íslands.