Verkamaðurinn - 16.07.1938, Síða 4
4
VERKAMAÐURINN
Skrá
yfir gjaldendur námsbókagjalds í Akureyrarkaup-
stað, samkv. lögum um ríkisútgáfu námsbóka frá
23. júní 1936, liggur frammi til sýnis á skrifstofu
bæjarstj. frá 20. júlí til 2. ág. n. k., að báðuru
dögum meðtöldum.
Athugasemdum út af skránni verður að skila inn-
an loka framlagningarfrestsins.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 15. júlí 1938
Þorsteinn Stefánsson
— settur —
Sandmút Norðlendingafjorðungs
verður háð 13., !4. og 21. ágúst í sundlaug Akureyrar.
Keppt verður á eftirtöldum vegalengdum og íer mótið þannig fram
Laugardaginn 13. ágúst a& kvöldi:
100 m. bringusund, konur
50 — baksund, karlar
50 — frjáls aðferð, drengir innan 14 ára.
Sunnudaginn 14. ágúst:
100 m. frjáls aðferð, karlar
200 — bringusund, karlar
. 100 — frjáls aöferð drengir innan 17 ára (Ólafsbikar)
200 — bringusund, konur
Boösund 4x50 m.
Sunnudaginn 2L ágúst:
100 m. frjáls aðferð, konur
400 — bringusund. karlar
50 — frjáls aðferð, konur
400 — frjáls aðferð, karlar.
Verðlaun verða veitt. þátttaka tilkynnist fyrir 9. ágúst til Björns
Halldórssonar málflm., Akureyri.
Sundfélagið »Grettir«y Akureyri.
ræði. í dag eru engir, sem sýna
meiri rækt við land sitt, en
kommúnistarnir, og það er ekk-
ert blað, sem með meiri alvöru en
•Rude pravo« túlkar afstöðu sina
gegn Hitler. — Nú, þegar stríðið
stendur fyrir dyrum, eru hinar
gömlu væringar gleymdar. Þetta
hafa kommúnistarnir skilið.
Verkamenn Bæheims eru reiðu-
búnir til að verja land sitt. Hvers-
vegna ætti þá að banna blöð
þeirra og greinar, sem við hér í
París ekki getum séð að geri
nokkurn skaða, og sem yfir höf-
uð ekki segja annað, en að landið
▼erði að verja sig gegn hugsan-
legri innrás, til að komast bjá
sömu örlögum og Austurriki?
Hr. Benes! Vér erum þeirrar
skoðunar, að þetta sé skakt her-
bragð. — óvinir óvina yðar eru
vinir yðar. Gleymið ekki, að
Tékkoslovakia verður í fullri ein-
ingu að mæta ógnunum Hitlersc.
Styrkur til ípróttastarf-
semiBoar.
Iþróttafélagið »t*ór« og sund-
félagið »Grettir« sóttu um 300.oo
kr. styrk til bæjarins, vegna Vest-
mannaeyjafararinnar. Málið var
afgreitt á síðasta fundi bæjar-
stjórnarinnar, þriðjud, 12. júli,
og styrkbeiðnin samþykt með
4 gegn 3 atkv., hinir sátu bjá.
lþróttamenn vita að styrk-
beiðni sem þessi, á mjög tak-
markaðan rétt á sér, eftir að
búið er að ganga frá fjárhagsá-
aetlun, og mun afstaða þeirra
sem greiddu mótatkvæði eða
sátu hjá, byggjast á því. Félögin
eru þakklát þeim sem stuðluðu
að þvi að styrkurinn fékkst i
þetta sinn.
Allir íþróttamenn eru sann-
færðir um að á næstu fjárhags-
áætlun muni bæjarstjórnin sam-
þykkja i einu hljóði, framlag til
iþróttastarfseminnar.
Ábyrgðarmaður: Þóroddur Guðmundsson
Knatfspyrnuflokknr
II. fl. frá knattspyrnufélaginu
»Hörður« á ísafirði kom bingað
í nótt með e. s. Dettitoss og
mun keppa hér við »t*ór« og
K. A. - 7. júní s.l. heimsótti
knattspyrnufétagið Fram úr Rvík
ísfirðingana og kepptu þar tvo
leiki, sem fóru svo, að fyrri
leikurinn varð jafn 2:2, en hinn
unnu ísfirðingar 3:2. Fram varð
no. 2. á síðasta Knattspyrnu-
móti Reykjavikur fyrir II. fl.
íþróttafélagið »t*ór» annast allar
móttökur Isfirðinganna
Samkvæmt tilskipun, er gekk í
gildi 20. maí s.l., er bökurum í í-
talíu skylt að blanda hveitibrauð-
ið með 20% af öðrum kornvörum,
svo sem maismjöli, baunamjöli,
ertumjöli o. s. frv. Haustið 1937
var fyrirskipað að blanda hveiti-
brauðið með 5% af öðrum korn-
tegundum en hveiti, 1. desember
1937 var þetta hækkað upp í 10%
og 14 dögum eftir heimsókn Hitl-
ers, í vor er þetta hækkað upp í
20%.
Prentverk Odds Björnssonar.