Verkamaðurinn - 04.01.1941, Síða 3
VERKAMAÐURINN
3
VERKAMAÐURINN
Útgefandi: Sósíalistafélag Akureyrar.
Ritnefnd: Steingr. Aðalsteinsson,
Jakob Árnason.
Abyrgöarm.: Steingr. Aðalsteinsson.
Blaðið kemur út hvern laugardag.
Áskriftargjald kr. 6.00 árgangur-
inn. 1 lausasölu 15 aura eintakið
Afgreiðsla í skrifstofu Sósíalistafélags-
ins, Qránufélagsgötu 23.
Prentverk Odds Björnssonar.
Verklýösfélögin semja sili
á hvað.
Pví gerir A'þýðusam-
bandið ekkert til að
samstilla kröfur og krafta
verklýðsfélaganna ?
í síðasta blaði var nokkuð rætt
um þá miklu möguleika, sem
verklýðshreyfingunni væru búnir
til sameiginlegra átaka um kaup-
gjaldsmálin, með því að kaup-
samningum hafði samtímis verið
sagt upp um land allt — og bent
á það mikla hlutverk, sem Alþýðu-
sambandið hefði að vinna í þessu
efni.
En það verður að segja, að
þessir möguleikar hafa verið
hörmulega illa notaðir. Hvergi
hefir verið nokkurt samstarf milli
hinna einstöku verklýðsfélaga —
að frátöldum þeim þremur verk-
lýðsfélögum í Reykjavík, sem nú
standa í verkfalli — heldur hafa
félögin samið sitt á hvað, án
nokkurra átaka við atvinnurek-
endur — um það, sem þeir „góð-
fúslega“ hafa viljað láta af hönd-
um af stríðsgróðanum.
Og, eins og vita má, eru það
engin ósköp, sem þeir þannig láta
af mörkum — svo að enn verður
langt frá, að vinnulaun verka-
fólksins komist til samræmis við
verðhækkun lífsnauðsynjanna.
Hvernig stendur á því, að sam-
band verklýðsfélaganna — Al-
þýðusambandið — skuli ekkert
aðhafast í þessum málum?
Það er af því, að þó skipulagi
sambandsins hafi verið breytt í
lýðræðislegt form, er forusta þess
enn einokuð í höndum Alþýðu-
flokksins, sem hinsvegar er svo
tjóðraður á bitlingajötu „þjóð-
stjórnar“- afturhaldsins, að hann
má sig hvergi hræra — jafnvel þó
viljann ekki vantaði — til fram-
dráttar hagsmunamálum verka-
lýðsins.
Sú reynsla, að Alþýðusamband-
ið skuli enga tilraun hafa gert til
að hagnýta þetta einstaka tæki-
færi til að koma fram réttmætri
kauphækkun handa verkafólkinu,.
verður að kenna því, að hagsmun-
ir þess eru í voða, nema það
vakni til fullrar meðvitundar um
nauðsyn þess að efla stéttarsam-
tök sín, heima fyrir og á lands-
mælikvarða, og
. TAKA SJÁLFT FOR-
fógetann dieymir enn.
Bæjarfógetinn reynir í „ísl.“
í gær enn að verja hin umtöluðu
vinnubrögð sín. Út af ummælum
fógetans skal þetta tékið fram:
Fógetinn lét fasteignamats-
nefnd ekki í té þá skýrslu um
fasteignir, sem hann samkv. lög-
um átti að láta hana hafa á árinu
1938. Vanrækti fógetinn að leysa
þetta starf af hendi, jafnvel þó
hann ætti kost á aukagreiðslu fyr-
ir það. Fasteignamatsnefnd Akur-
eyrar hefir aldrei samþykt að
leysa fógetann frá þessu skyldu-
starfi hans. Enda engin ákvæði í
fasteignamatslögunum um heim-
ild til að leysa fógetann eða aðra
álíka silakeppi frá þessari skyldu.
Fullyrðing fógetans um þetta er
því draumur nr. 2.
Önnur atriði, sem fógetinn drep-
ur á skifta engu máli. T. d. var
blaðið er „Verkam.“ drap á í svar-
greininni til fógetans í síðasta tbl.
ekki „Verkam.“ Það var þjóð-
stjórnarblað eins og fógetinn veit
auðvitað.
Að síðustu. Það er óþarfi fyrir
fógetann að taka það fram í „ísl.“
að hann eigi önnur áhugamál
kærari en fógetastarfið. Bæjarbú-
ar vita mætavel að störf hans sem
fógeta sanna það miklu betur en
yfirlýsingin í „lsl.“
Fógetinn segir að sig hafi einu
sinni dreymt um að verða blaða-
maður. Hann mun líka hafa ætlað
sér að verða skáld. Hann er það
áreiðanlega á vissan hátt. En ef
hann vill verða frægur fyrir ann-
að en staðlausar fullyrðingar og
draumarugl, þá ættí hann að
halda sig við sannleikann og stað-
reyndirnar og skrifa heldur
t. d. um víxilinn fræga í Islands-
banka hér á árunum.
USTU ÞEIRRA í EIG-
IN HENDUR,
svo afl þeirra verði ekki áfram
notað til pólitískra hrossakaupa
bitlingasjúkra braskara.
Og það er ekki hvað síst verka-
lýðurinn hér á Akureyri, sem
draga verður þessa lærdóma, því
ekki er vitað að nokkurstaðar hafi
verið aumlegar samið, en hér.
Víðast hvar hafa einhverjar
kjarabætur fengist, áðrar en dýr-
tíðaruppbótin, og víðast hvar er
hún miðuð við mánaðarlega vísi-
tölu.
Hér er ekki gerð tilraun til að
fá neitt — nema dýrtíðaruppbót,
samkv. útreikníngi kauplags-
nefndar (sem meira að segja „Al-
þýðum.“ hefir kannast við að sé
of lágur) og sú uppbót kemur
alltaf þremur mánuðum á eftir
verðhækkuninni!
Verkafólk! Það dugir ekki leng-
ur að láta einn mann, utan stéttar
ykkar, ráðskast með hagsmunamál
ykkar.
Hristið af ykkur mókið, og tak-
ið sjálfir til starfs í félagi ykkar.
Gerið það fjölmennt og starf-
andi og sterkt, og stjórnið því í
samræmi við hagsmuni stéttar
ykkar.
„StiinclÍKi“ fal§ar grein
eftir PaulRobeson, negrasöngvarann heimsfrœga.
Inn í ddeilugrein gegn auðva/di og afturhaldi er lœtt niði um
kommúnismann, en Robeson er sjálfur kommúnisti!
í síðasta hefti tímaritsins „Stund-
in“ er birt þýðing á grein eftir
Paul Robeson, hinn heimsfræga
negrasöngvara, og birtist greinin
nýlega í amerísku tímariti. Þeim,
sem vita að Paul Robeson hefir
hvað eftir annað gengið fram fyr-
ir skjöldu til varnar amerískum
kommúnistum, vita, að hann hef-
ir sent einkason sinn til langdval-
ar í Sovétríkjunum, vegna þess að
það er eina menningarlandið, þar
sem enginn greinarmunur er gerð-
ur á kynþáttum, að hans eigin
sögn, — mun koma endir greinar-
innar í „Stundinni“ kynlega fyrir
sjónir. Þar er ekki annað sjáan-
legt, en að Paul Robeson sé far-
inn að hugsa líkt og íslenskur
þjóðstjórnargrautarhaus, leggi að
jöfnu kommúnisma og fasisma, og
telji kommúnisma eina - tegund
„afturhaldsins“.
Sannleikurinn er sá, að Paul
Robeson hefir ekki skift um skoð-
un. Grein hans, sem hér um ræðir,
„In what direction are we going?“
er markviss ádeila á afturhaldið í
Bandaríkjunum og um allan heim.
En „Stundin“ falsar orð Robesons
á hinn ósvífnasta hátt, inn í grein
hans er lætt alt annari meiningu
en er í frumritinu. Þessu til sönn-
unar skal hér birt niðurlag grein-
arinnar á frummálinu og í þýð-
ingu „Stundarinnar“.
Paul Robeson:
„Against this new twentieth
century kind of enslavement the
Negro people in America are a li-
ving powerful bulwark. Facism,
oppression or by what ever name
reaction is called — would lay a
bitter bloody terror on the
12.000.000 Negros in the United
States. And the strength of this
12,000,000 is one of America’s de-
fenses against the loss of liberty
for America’s. 130,000,000“.
Orðið „kommúnismi“, sem hér
er haft með breyttu letri til að
vekja athygli á því, stendur ékki
í grein Robeson’s. En það ger-
breytir hugsunarinnihaldi grein-
arinnar að bæta því inn á þessum
stað. — Það er ósvífin, vísvitandi
fölsun á því, sem Paul Robeson er
að segja og væri réttast að hann
fengi sjálfur að segja álit sitt á
slíku athæfi. Fölsunin er að vísu
einstaklega klaufaleg, sú fullyrð-
ing, að kommúnistar mundu beita
negrana í Ameríku „blóðugum og
brjálæðiskenndum ofsóknum“
hlýtur að hljóma undarlega af
vörum manns, sem sjálfur tekur
virkan þátt í. frelsisbaráttu amer-
ísku negranna, og hefir hvað eftir
annað látið í ljós aðdáun sína á
þátttöku kommúnistaflokks
Bandaríkjanna í þeirri baráttu, —
flokksins sem hafði negra að
frambjóðanda í varaforsetaem-
bættið við kosningarnar í nóvem-
ber sl. Enda segir Robeson ekkert
á þá leið — hann er að tala um
kjör negranna undir óskoruðu
valdi fasisma og afturhalds.
í þetta sama hefti „Stundarinn-
ar“ skrifa ýmsir þjóðkunnir rit-
höfundar, og hafa nöfn þeirra ver-
ið óspart notuð til að auglýsa
tímaritið. Er ekki ólíklegt að þeir
hugsi sig tvisvar um áður en þeir
leggja nöfn sín í þá hættu, að láta
nota þau til útbreiðslu tímarits,
sem legst svo lágt til þjónkunar
þjóðstjórnarafturhaldinu að falsa
greinar heimsfrægra manna og
„Þýðingin“ í „Stundinni“.
„Blökkumenn í Ameríku eru
lifandi, máttugur skjólveggur
gegn þessari nýju tegund þræla-
hálds, sem sprottin er upp úr
tuttugustu öldinni. Fasismi,
kommúnismi, kúgun — eða hverj-
um nöfnum sem afturhaldið nefn-
ist — mundi beita hinar tólf
miljónir blökkumanna Bandaríkj-
anna blóðugum og brjálæðis-
kendum ofsóknum.
Og styrkur þessara 12 miljóna
er ein af vörnum gegn sviftingu
frelsis og sjálfstæðis hinna 130
miljóna Bandaríkjamanna“.
lauma inn í þær hugsanagraut rit-
stjórans eða trúnaðarmanna hans.
(,,Þjóðviljinn“).
Ver kf a11
hefst á Siglufirðl nú um
helgina, ef alvinnurek-
endur ganga ekki að
kröfuni „Þrúftar44.
Samkvæmt símtali sem „Vm.“
átti við Siglufjörð um hádegi í
dag hafa samningar ekki tekist
enn á milli „Þróttar“ og atvinnu-
rekenda um kjör verkamanna.
Trúnaðarmannaráð „Þróttar“
hafði samþykt að gefa atvinnurek-
endum frest til að ganga að kröf-
um „Þróttar“ og er sá frestur út-
runnin í kvöld. Hélt „Þróttur“
fund fyrir fáum dögum og sam-
þykti einróma þessa ákvörðun
Trúnaðarmannaráðsins. Var fund-
ur „Þróttar" feykilega fjölmenn-
ur, sá fjölmennasti er félagið hef-
ir haldið.
Atvinnurekendur buðu „Þrótti“
42% dýrtíðaruppbót og hafnaði
fundurinn þvi einróma og sendi
atvinnurekendum gagntilboð þar
sem krafist er 25 aura hækkunar
á hvern tímavinnukaupslið taxt-
ans og ákvæðisvinna, mánaðar-
kaup og kauptryggingar hækki
hlutfallslega. Ofan á þetta kaup
verði síðan greidd 50% dýrtíðar-
uppbót.
Gangi atvinnurekendur ekki að
þessum kröfum hefst verkfall á
Siglufirði.