Verkamaðurinn - 04.01.1941, Síða 4
4
VERKAMAÐURINlf
Nýyrði.
Forseti Bretaaleikjanna i »Fram-
sóknc beflr iundið upp nýyrði
um bretska innrásarherinn, kall-
ar bann herinn »dvalarher«.
Jafnvel orðið »setulið« þykir nú
orðið altof dónalegt i garð Breta,
svo maður nefni nú ekki »inn-
rásarher«.
Hagstofan
telur dýrtíðarvísitöluna
aðeins 142.
Hagtíðindin telja meðalvísitöl-
una fyrir s.l. þrjá mánuði 142.
Samkvæmt því verða launaupp-
bætur embættismanna og opin-
berra starfsmanna þessar:
í L flokki: 31.5%
í II. flokki: 28.0%
í IH. flokki: 22.6%
Gilda þessar tölur til 1. apríl
1941.
Draumur bæiartóoetans.
í 54. tbl. „íslendings“ birtist
merkilegur draumur eftir bæjar-
fógetann á Akureyri, sem menn
þurfa alment að lesa, til þess að
geta kynst sálarástandi valda-
mesta manns bæjarins um þessar
mundir. í draumnum birtist bæj-
arfógetanum herra einn mikill og
svartur, sem mönnum getur helst
skilist að hafi verið Kölski sjálf-
ur. Þessir tveir valdsherrar þinga
þarna saman nokkra stund, á
meðan Kölski sýnir hinum listir
sínar. Kölski byrjar á því að
leggja sér til munns „Dag“ og
„Alþýðumanninn". Hann tyggur
hvort blaðið fyrir sig í djöfulmóð
en er alls ekki ánægður með
bragðið, því þrátt fyrir allt, þá
þykist hann þar finna keim af
frjálsri hugsun á stöku stað. Sá
mikli valdsherra kemst því að
þeirri niðurstöðu, að þetta sé ekki
nema hundamatur og býður bæj-
arfógetanum að bragða. Sem von
var móðgaðist bæjarfógetinn af
slíku framferði og vildi ekki
smakka á tuggunni hjá þeim
gamla. Þegar hér var komið mál-
um kom röðin að „Verkamannin-
um“. Kölski byrjaði að tyggja, en
skrumskældi sig allan í framan,
því nú fór bragðið fyrst fyrir al-
vöru að verða sterkt, að honum
fanst. Lýðræði og frjáls hugsun.
Gat það átt sér stað, að slíkt væri
ennþá framreitt á jörðunni, hugs-
aði sá gamli og vildi ekki trúa
sínum eigin kjafti. Hann rétti því
bæjarfógetanum örlítið í ausu og
vildi vita hvort honum fyndist
það sama.
En bæjarfógetanum fanst þá
gjósa -upp megn fýla og vogaði
því ekki að bragða á hjá Kölska,
en stjakaði í stað þess við honum,
líklega í ógáti. Aumingja Kölski
var þá svo aðframkomiim af þvi
að hafa bragðað á skrifum
„Verkamannsins“ um lýðræði og
réttlæti, að hann sá þann kost
vænstan að hverfa af jörðunni og
steypti sér því niður til heim-
kynna sinna. Og eftir því sem
manni getur skilist af skrifum
bæjarfógetans, þá hefir hann
fengið nóg af reyknum af réttun-
um, enda er hann að vonum veik-
bygðari en sá gamli.
En það merkilegasta við þennan
draum er, að fjórða blaðið, sem
gefið er hér út í bænum, „íslend-
ingur“, er hvergi nefnt í draumn-
um. Menn telja því augljóst, að
þar hafi Kölski fengið sinn há-
tíðamat og hafi hann hámað hann
í sig viðstöðulaust, eins og hvert
annað lostgæti.
Og bæjarfógetinn á Akureyri
hefir flutt oss þegnum sínum þær
fréttir og birt á prenti, að hann
og sá gamli séu þar innilega sam-
mála.
Draumamaður.
Bretskur foringi . . . .
(Framh. af 1. síðu).
Ungfrú Bergljót Jakobsdóttir.
Ungfrú Margrét Steingrímsdóttir.
Ungfrú Sigurlaug Jónsdóttir.
Guðmundur Gunnarsson og frú?
Eins og sjá má, ber hér ekki all-
lítið á nánustu aðstandendum og
liðsmönnum þeirra miklu uppeld-
isfrömuða, sem s. 1. haust básún-
uðu út yfir landið nauðsyn þess,
að æskulýðnum — og þjóðinni í
heild — yrði borgið frá þeim
voða, sem stafaði af nánu sam-
neyti við hinn erle'nda her. Þykir
það furðu lítið samræmi milli
orða og athafna, og eykur tæp-
lega traust almennings á þessum
leiðtogum æskulýðsins og uppal-
endum.
Annars skal ekki, að þessu
sinni, rætt frekar um smekkvísi
þessa fólks og þjóðarmetnað — en
hins getið, til verðugs heiðurs
gestgjöfum þess, að samtímis, sem
það skreiddist inn í veislusal inn-
rásarhersins, var samlöndum þess
ÓGNAÐ MEÐ SKAMMBYSSUM
þess sama hers, úti fyrir dyrum
hússins, og veitst að íslendingum
með höfuðhöggum. Munu, af því
tilefni, vera komnar kærur til ís-
lensku lögreglunnar, og verður
fróðlegt að sjá, hversu röggsam-
lega hún heldur á máli íslendinga
gegn slíku ofbeldi Bretanna, Mun
„Verkam.“ flytja fréttir af því,
þegar efni standa til.
Bretar
varpa enn elnum ís-
lendlng i fangelsl.
S.l. sunnud. handtók lögregla
innrásarhersins í Reykjavík,
mann að nafni Sigurð Benedikts-
son, póstmann, og var hann í
varðhaldi síðast er blaðið vissi.
Bretór hafa nú látið lausa þá
íslendinga er þeir handtóku að
aðstseðulausu i „Es)u“ í hsust.
TILKYNNING.
Að gefnu tilefni tilkynnist, að eigi verða eftir gjald-
daga greiddir vextir af útdregnum skuldabréfum útgefn-
um af bæjarsjóði Akureyrar vegna virkjunar Olerár.
Bæjarsíjórinn á Akureyri, 30, desember 1940.
Steinn Steinsen.
Samkvæmt gildandi lögum um tekju- og eignaskatt, ber að skila
framtalsskýrslum til skattanefudar fyrir lok JMnúarmánaðar Ír
hvert,
Skattanefnd Akureyrar veröur til viðtals á skrifstofu bæjarstjóra
alla virka daga í Janúar n. k, kl. 8,30 — 9,30 sfðdegis, og geta fram-
teljendur á þeim tfma fengið aðstoð viö útfyllingu framtalseyðublaða hjá
henni, Framteljendur, sem aðstoðar beiðast, veröa að hafa með sér ná-
kvæma sundurliðun á eignum sfnum og skuldum, sundurliðun á tekjum
sínum árið 1940 og yfir gjöld þau, sem koma til frádráttar tekjura, svo
sem vexti af skuldum, skattaf afasteignum og opinber gjöld.
Ef einhver þeirra, sem eyöublöð fá send, álfta sig eigi eiga að
telja fram og bera útsvar hér á Akureyri, þá skulu þeir tilkynna skatta-
nefndinni það fyrir 1. Febrúar n, k. og senda rök sín fyrir þvf. Annars
verður þeim gert að greiða skatt og útsvar hér.
í’eim, sem framtalsskyldir eru og eigi fá framtalseyðublöð send
heim til sín, ber að vitja þeirra á skrifstofu bæjarstjóra. Einnig ber
vinnuveitendum að vitja þangað eyðublaða undir kaupgjaldsskýrslur,
Akureyri, 30. Desember 1940
Skattanefnd Akureyrar
Skemtifund
heldur Sósialistaffélag Akureyrar
í SKJALDBORO næstkomandi mánudag
(á þrettándanum) kl. 9 e. m.
Fjölbreytt skemtiskrá:
Ræðuhöld, kwartettsöngur, samlestur,
upplestur og dans. Adgangur aðeins 1 króna.
Félagar mega taka með sér gesti.
Aðgöngumiðar fást hjá flokksstjórunum.
S t i ó r n i n.
Slðustu fréttir
frá Reykjavík og
Vestmannaeyjum.
Múrar í Reykjavík hafa bætst í
hóp verkfallsmanna. Verkfallið
í Reykjavík er algert. Nokkrir
smá atvinnurekendur hafa gengið
að taxta múrara. Það mælist af-
arilla fyrir í Reykjavík að stór-
atvinnurekendur, sem Ólafur
Thors segir, að hafi grætt 60—70
miljónir kr. síðastliðið ár, skuli
neita verkamönnum um þá litlu
launahækkun er þeir fara fram
á. Bretar hafa hætt að láta vinna,
en hafa sagt, að þeir muni viður-
kenna taxta verkamanna, ef ís-
lenskir atvinnurekendur gangaað
honum. Atvinnurekendur reyna
að hræða verkfallsmenn með því
að bretskir verkamenn verði
fluttir inn í landið.
Klofningsfélag „þjóðstjórnar-
innar“ í Vestmannaeyjum hafði
kosið nefnd til að semja við at-
vinnurekendur. Nefndin samdivið
þá um kr. 1.87 á klst. í dagvinnu.
Vakti þetta gífurlega gremju
meðal verkamanna og á fundi
klofningsfélagsins í gær var
nefndin sett af og gerðir hennar
gerðar ógildar og ný nefnd kosin
í hennar stað, „Drífandi“ lætur
fara fram alisherjaratkvæða-
greiðslu um kaupkröfurnar og
reynir að sameina öll fagfélögin í
Eyjum í kaupgjaldsmálunum, en
þau eiga öll eftir að semja,