Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 30.03.1943, Síða 2

Verkamaðurinn - 30.03.1943, Síða 2
Verkakvennafélagsins „Eining“ á fylgiskj. nr., þá á Verkalýðsfélag Akureyrar rétt til afsals sem með- eigandi Verkakvennafélagsins „Ein- ing“ í efri hæð hússins Strandgötu 7, Akureyri, með þeim réttindum, sem því fylgja, enda taki það að sér veðskuldir og aðrar skuldbinding- ar vegna hússins, eftir þeim hlut- föllum, sem áður giltu milli verka- kvennafélagsins „Einingar" og Verkamannafélags Akureyrar. Þeir menn, sem skipuðu síðast stjórn Verkamannafélags Akureyr- ar og húsnefnd af þess hálfu, skulu koma fram gagnvart skilanefnd sem aðilji í stað Verkamannafélags Akureyrar og fara með umboð fyrir hönd meðlima þess, ef mál rís út af samningi þessum. *Með þesum samningi er ætlast til að bundinn sé endi á undangengn- ar þrætur innan verkalýðshreyfing- arinnar á Akureyri út af atriðum þeim, sem hér hefir verið sætst á. Akureyri 1943. Samningur milli Verkakvennafélagsins „Ein- ing, Akureyri, og Verkalýðsfélags Akureyrar. Við undirritaðar stjórnir Verka- lýðsfélags Akureyrar og verka- kvennafélagsins „Eining“ Akureyri, gerum með okkur svofelt samkomu- lag: Verkakvennafélagið „Eining" verði hið lögformlega sambandsfé- lag verkakvenna á Akureyri og hafi með að gera samninga um kaup og kjör verkakvenna á Akureyri. í Verkalýðsfélag Akureyrar hafa kon- ur ekki inntökurétt, en þó er þeim konum, sem eru löglegir meðlimir félagsins þegar samkomulag þetta er gert, heimilt að vera þar áfram, ef þær óska þess, enda fylgi þær töxtum, samningum og samþyktum „Einingar", að því er snertir kaup og kjör, og hafi þær þá jafnan rétt til vinnu og meðlimir „Einingar“. Samkomulag þetta er til staðfest- ingar tillögum miðstjórnar Alþýðu- sambands íslands í þessu efni. Akureyri 1943. Það getur ekki annað en vakið athygli, að þótt hér sé átt við tvö sambandsfélög, annað fyrir verka- menn og hitt fyrir verkakonur, er hér einnig gert ráð fyrir því, að Verkalýðsfélagið hafi áfram innan sinna vébanda með fullum réttind- um konur, sem ættu samkvæmt venju og heilbrigðri verkaskipt- ingu slíkra stéttarfélaga, að vera í Verkakvennafélaginu „Eining“. Þá verður það ekki heldur lagt í lágina sem vottur einlægs sam- einingarvilja af hálfu fulltrúa Verkamannafélags Akureyrar og „Einingar“, að geta fallist á að Verkalýðsfélagi Akureyrar verði afhentur eignarréttur á sjóðum og húseign Verkamannafélags Akur- eyrar, áður en nauðsynlegar breytingar á lögum Verkalýðsfél. Akureyrar yrðu fullgerðar, að því tilskyldu, að verkamenn þeir, sem óskuðu upptöku í félagið fengju þar félagsréttindi og samkomulag fengist um stjórn Verkalýðshúss- ins milli hins nýja eiganda og Verkakvennafélagsins „Eining“, er hefir verið og er löglegur meðeig- andi í húseigninni. Öllum þessum samkomulagstil- boðum í heild og hverju út af fyrir sig, hafnaði meiri hluti stjómar Verkalýðsfélags Akureyrar. Síðustu bréfaviðskipti. Snemma dags, 2. apríl, átti ann- ar okkar, Jón Sigurðsson, tal við Erling Friðjónsson, þar sem Erlingi var tilkynnt, að við værum að und- irbúa síðustu tillögur okkar í þessu máli og að við óskuðum að kallaður yrði saman stjórnar og trúnaðar- ráðsfundur í Verkalýðsfélagi Akur- eyrar þá um kvöldið, til að taka af- stöðu til þessara tillagna. Bréf okkar, ásamt lokatillögum sem birtar eru hér að fram- an í samningsformum, auk til- lagna um breytingar á lögum Verkalýðsfélags Akureyrar, barst Erlingi, að hans eigin sögn, nálægt kl. 9 (kl. 21) að kvöldi sama dags. En þar sem honum hafði verið snemma dagsins tiíkynnt að bréf okkar væri á leiðinni og um leið fengið óskir okkar um fund þá um kvöldið í stjórn og trúnaðarráði í tilefni af þeim, sér hver maður, að honum var hægðarleikur að ná saman þessum fundi, tímans vegna. Fer bréf okkar hér á eftir: Pt. Akureyri 2. apríl 1943. Félagar! Við undirritaðir fulltrúar Al- þýðusambands íslands, sendum ykk- ur hjálagðar tillögur okkar viðvíkj- andi sameiningu verkamanna hér á Akureyri í eitt verkalýðsfélag. Vitanlegt er, að þar sem raun- verulega er um sameiningu tveggja félaga að ræða, eignayfirfærslu og að annað félagið sé lagt niður, þá þarf að gera um það lögformlegan samning, og svo einnig um einstök framkvæmdaratriði sameiningar- innar, svo sem: lagabreytingar, inn- töku nýrra félaga, skilgreiningu fé- lagslegra réttinda milli félags ykkar og Verkakvennafélagsins „Eining“ o. s. frv. Ætlun okkar er sú, að samkomu- lag það, sem gert verður sé í þrennu lagi, eins og meðfylgjandi skjöl bera með sér, en þó á þann hátt, að aðalsamningurinn telst ekki upp- fylltur, fyrr en samkomulag hefir verið undirritað af hálfu ykkar og ,,Einingar“ um skilgreiriingu félags- legra réttinda, hjálagðar lagabreyt- ingar verið samþyktar og staðfestar og afsal eigna verið gefið. Við viljum taka það fram, að við teljum tvímælalaust, að fyrir verka- lýðssamtökin, ekki aðeins hér á Ak- ureyri heldur og í heild, er besta lausnin á þessum málum sú, að fult samkomulag geti náðst, en tími sá, er við getum dvalið hér vegna þess- ara mála, er takmarkaður, og þetta því okkar síðustu tillögur um sam- einingu á þessum grundvelli. Viljum við því eindregið mælast til, að á þeim fundi er Jón Sigurðs- son bað um í morgun að haldinn yrði í kvöld, verði teknar til um- ræðu þessar tillögur okkar og at- kvæðagreiðsla fari fram hvort velja skuli eða hafna. Þá viljum við og alvarlega beina þeirri áskorun til ykkar, að halda fund í félaginu ekki síðar en n. k. sunnudag til þess, ef trúnaðarráð félagsins felst á tillögur okkar, sem við vonum að það geri, að þar verði samkomulagið staðfest, inntöku- beiðnir afgreiddar, lagabreytingum lýst, og annað það fyrir tekið, sem nánar er tilgreint í samningsupp- kastinu. Hinsvegar, ef trúnaðarráðið felst ekki á tillögur okkar, viljum við samt sem áður óska eftir að fundur- inn verði haldinn á hinum tiltekna tíma, til þess þá, að félagsfólkið fái sjálft að velja eða hafna sameiningu á grundvelli meðfylgjandi tillagna, enda mundum við að sjálfsögðu mæta á þeim fundi með málfrelsi og tillögurétti eins og við höfum heimild til samkvæmt lögum Al- þýðusambands íslands. Ef ekkert samkomulag fæst á þeim grundvelli er við undanfarið aðallega höfum rætt málin á, vilj- um við enn á ný bjóða ykkur, í um- boði Alþýðusambandsins og hinna tveggja félaganna, að sameina fé- lögin á grundvelli þess sem hér segir: „Verkalýðsfélag Akureyrar, Verkamannafélag Akuréyrar og Verkakvennafélagið „Ein- ing“ verði sameinuð í eitt nýtt félag, sem yfirtaki eignir allra hinna sameinuðu félaga, enda sé það opið öllum verkalýð í samræmi við lög Alþýðusam- bands íslands og annara lög- legra sambandsfélaga, er bera heitið verkalýðsfélag“. Við óskum eftir, að þessi tillaga verði einnig rædd og afgreidd með atkvæðagreiðslu í trúnaðarráði, ef hin fyrri nær ekki samþykki. Skriflegt svar við þessu erindi okkar óskum við að fá, ekki seinna en kl. lOi/jj—11 árd. á morgun. Með félagskveðju. Jón Sigurðsson. Jón Rafnsson. Til stjórnar Verkalýðsfélags Akureyrar. Þar sem enginn fundur fékkst haldinn að þessu sinni og sýnt var, að meirihluti stjórnar Verkalýðs- félagsins ætlaði enn að fara sínu fram þvert ofan í ítrekaðar óskir okkar og félagsmanna, kom að því að miðstjórn Alþýðusambands ís- lands sá sér ekki lengur annað fært en að skerast í leikinn og sendi stjórn Verkalýðsfélags Akureyrar 3. apríl síðdegis eftirfarandi úr- slitakosti: Skeyti Alþýðusam- bandsins Stjórn Verkalýðsfélags Akureyrar c/o Erlingur Friðjónsson Akur- eyri. Tilkynnum yður hafi ekki náðst samkomulag um sameiningu Verklýðsfélags Akureyrar og Verkamannafélags Akureyrar fyrir klukkan 24 í dag 3. apríl er Verk- lýðsfélagi Akureyrar hér með vikið úr Alþýðusambandi íslands og um- boðsmönnum Alþýðusambandsins, Jóni Sigurðssyni og Jóni Rafnssyni fyrirskipað að stofna nýtt sam- bandsfélag verkamanna á Akureyri nú þegar. Afrit af skeyti þessu sent umboðsmönnum Alþýðusambands- ins. F. h. miðstjórnar Alþýðusambands íslands. Guðgeir Jónsson, forseti. Björn Bjarnason, ritari. Undirskrift staðfestir Lára Einarsdóttir, símastúlka. Fyrst, þegar svona er komið, er brugðið við í herbúðum þeirra Er- lings og Halldórs, kallaður saman trúnaðarráðsfundur og samið bréf til okkar, fulltrúa Alþýðusam- bandsins. Vegna þess, að þetta síðasta bréf þeirra bræðra er að mestu leyti tilvitnaðar setningar úr fram- anskráðum samkomulagstillögum okkar og tillögum okkar um breyt- ingar á lögum Verkalýðsfélags Ak., og breytingar við þær, þá látum við nægja, á þessum stað í blaðinu, að draga hér saman efni þess, en aað er sem hér segir: Þegar við höfum fengið löglegt afsal (með þinglesningu o. s. frv.) ] 'yrir eignum Verkamannafélags Ak- ureyrar, þá skulu verkamenn „öðl- ast óskoruð félagsréttindi“ í Verka- lýðsfélagi Akureyrar, en þó aðeins þeir „verkamenn“, sem „að áliti meiri hluta trúnaðarráðs“ (þ. e. Erlings, Halldórs og Co.) eru verð- ugir þess að komast í félagið! (Bréfið er birt á öftustu síðu). Bréf þetta barst okkur kl. 11,07 fyrir miðnætti 3. apríl, eða tæpri klukkustund áður en frestur Al- þýðusambansstjómar var útrunn- inn. Þar sem okkur hafði í fullar tvær vikur boðist samkomulag við þá bræður á þeim grundvelli, að þeir fengi í sínar hendur ráð yfir eignum Verkamannafélags Akur- eyrar, án þess að Verkalýðsfélag Akureyrar yrði opnað fyrir verka- lýðnum og sáum þess vegna ekkert nýtt í þessu bréfi þeirra, þá afréð- um við að senda þeim eftirfarandi orðsendingu 30 mínútum áður en frestur Alþýðusambandsins var út- runninn, ef ske kynni, að þeir bæru gæfu til að sjá sig um hönd á síð- ustu stundu: Ak., 3. apr. kl. 11,30 1943 Með skírskotun til síðustu sam- komulagstillagna okkar og bréfs dags. 2. apr. s. 1., lýsum við því hér með yfir, að með bréfi yðar, mót- teknu kl. 11.07, er lokið af okkar hálfu samningaumleitunum við yður. Virðingarfyllst, F. h. Alþsb. íslands. Til stjórnar Verkalýðsfél. Akureyrar, Akureyri. Eins og þessi orðsending ber með sér, er hún aðeins skírskotun til síðustu samkomulagstillagna okkar, sem þeir voru búnir að hafa til athugunar meira en sólarhring, og jafnframt yfirlýsing um það, að nýjar tillögur af okkar hálfu kæmu ekki til greina. Hins vegar stóð þeim opið að nota réttilega 30 mínúturnar, sem eftir voru af frestinum. Annar okkar, Jón Rafnsson, leiddi athygli þeirra Erlings og Halldórs að þessu í persónuviðtali, þegar þeir færðu okkur síðasta bréf- ið sitt. En þeir kváðust mundu ganga tii hvílu og vilja ræða málið nánar á morgun! Það sést því greinilega á þessu, að þeir bræður höfðu, þrátt fyrir úrslitakosti Alþýðusambandsins, á- kveðið að geyma sér til morguns frekari bollaleggingar út af þessu máli, enda hafði trúnaðarráðsfund- ur þeirra sagt sitt lokaorð, og þegar ofanrituð orðsending okkar barst Erlingi, hafði hann að eigin sögn verið genginn til náða.

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.