Verkamaðurinn - 03.03.1945, Blaðsíða 2
2
VERKAMAÐURINN
Brezkur samvinnumðður skýrir
frá ferð fil Sovétríkjanna
■ - —----------------
Frásögrr bretska þingmannsins séra
G. S. Woods, eins af meðlimum
bretsku samvinnumálanefndarinnar,
sem fór til Sovétríkjanna fyrir
nokkrum mánuðum.
I ---------J
Þessi heimsókn til Sovétríkjanna
á stríðstímum var mér erfitt ferða-
lag, en um feið afar upplífgandi.
Þarna er svo margt að sjá og gera,
allt er í svo stórum stíl, að maður
getur ekki látið sér detta í liug að
maður sé orðinn kunnugur í Rúss-
landi og þessari yndislegu rúss-
nesku þjóð eftir þriggja vikna flýt-
isheimsókn. — En samt sem áður
langar mig til að skriífa um dálítið
af því. sem eg sá og heyrði.
Við flugum frá Teheran til Bakú
og áfram til Stalingrad og Moskvu.
— Frá Moskvu fórum við á járn-
braut til Leningrads. — Hvar sem
við fórum gat að líta voðalegar
eyðileggingar af völdum stríðsins,
— vafalaust óskaplegri en nokkuð
annað, sem áður hefir þekst í sög-
unni.
Til dæmis var aðeins eitt hús
uppistandandi í ístrú, sem er borg
á stærð við F.pping í Englandi og
stendur í jafnfögru umhverfi. —
Það var sannarlega sorgleg sjón, og
samskonar sjón er hægt að sjá um
allt Rússland. — Mikið af eyðilegg-
ingunum var auðsjáanlega framið
af ásettu ráði af tómum vandal-
isma,, svo sem eins og eyðileggingin
á hinni afburðafögru höll Katrínar
drottningar, Peterhof í Púskín, sem
er nú rústir einar, og eyðilegging
dómkirkjunnar í ístru og margra
annara sögulega merkilegra húsa.
Leningradsbúar skýrðu mér frá
hinni athyglisverðu sjálfboðavinnu
serfl þar er unnin. Allir vinna að
uppbyggingunni um helgar og á
kvöldin. Nemur þessi vinna sam-
tals um einni vinnuviku á mann
hvern mánuð. Engri þvingun er
beitt. — Leningradsbúar sögðu
mér, að þeir gætu ekki hugsað sér
neinn, sem vildi ekki taka þátt í
uppbyggingunni.
Allsstaðar í Sovétríkjunum er af-
staðan til Þjóðverja feiknarlega ein-
beitt og ákveðin. Eg hugsa, að eng-
in þjóð í heiminum sé jafnákveðin
í að láta Þjóðverja bera fulla
ábyrgð á glæpum sínum. Það er
engin hálfvelgja til í Rússum um
það mál. Þar eru ekki til neinir for-
mæiendur hinna ,,góðu Þjóðverja“.
Skoðun Rússa er sú, að geti Þjóð-
verji sannað, að hann liafi barist
gegn nazistnm, beri að rétta honum
bróðurhönd. F.n fyrst munu þeir
rannsaka sannanir hans út í æsar.
Og þeir líta á það, sem ákveðið mál,
að miljónir Þjóðverja verði að
hjálpatil við uppbygginguna íSovét-
ríkjunum. Þeir skoða það sem ein-
falt réttlæti, sem ekki sé hægt að
koma með neinar mótbárur á móti.
Eg held, að þjóðarbúskap þeirra sé
þannig farið, að þessi stefna valdi
engum erfiðleikum í atvinnumál-
um. Það verður samt nóg vinna til
banda hverjum vinnufærum Rússa.
Við ferðuðumst mjög víða um
landið, heimsóttum margar borgir,
bæi og þorp, skoðuðum iðjuver,
sveitabúskap og menntastofnanir
og einnig mcirg hinná eyddu hér-
aða, sem nú hafa verið frelsuð. —
Það var ánægjulegt að sjá hvað
bæði •iðnaðarverkamenn og sam-
yrkjubændur unnu af miklu feikn-
arkappi að því að birgja hinar hug-
prúðu hersveitir sínar upp að öll-
um nauðsynjum, ákveðnir í því, að
þær skyldu ekki þurfa að eiga neitt
á hættu vegna birgðaskorts. Rauði
herinn hefir forgangsrétt. — Nei,
það er engin hætta á, að Rauða her-
inn skorti neinar þær birgðir, sem
hann á að fá frá þeim.
Það var fallegt að sjá verkamenn
og bændur frá ýmsum þjóðum og
kynþáttum vinna saman eins og
bræður og stefna að einu marki,
ekki aðeins að losa sitt eigið land
og alla F.vrópu við fasismann, held-
ur koma upp iðnaði og akuryrkju,
sem geti tryggt öllum allsnægtir og
menningarlíf.
Það var augljóst af viðtali okkar
við fjcjlda Ri'issa, að þeir báru hlýj-
an hug til Bretlands og Bandaríkja-
manan og var vel kunnugt um þátt
okkar í stríðinu. Bæði opinberlega
og í einkaviðtölum var oft látið
þakklæti í Ijós fyrir hjálp og sam-
vinnu þessara landa.
Allir voru nákunnugir 20 ára
sáttmáíanum milli Bretlands og
Sovétríkjanna og létu mikinn
áhuga í I jós fyrir, ,að hann -yrði
grundvölluy undir sambúð þessara
landa eftir stríðið, og eg er sann-
færður um að hann verður það að
svo miklu leyti sem það er komið
undir sovétþjcjðinni og sovétstjórn-
inni.
Samvinnufélögin eru að gera
miklar áætlanir um endurskipu-
lagningu og aukna starfsemi, fannst
okkur mikið til um lífskraft og fjör
hreyfingarinnar. — Samvinnufélög-
in starfa með alt öðrunr hætti en
þau bretsku, en eg get lullyrt, að
ekki er um að ræða neinar „fyrir-
skipanir“ frá æðri stöðum. — Eg
kynti mér skipulag þeirra mjög ná-
kvæmlega, og er það skoðun mín*
að þau séu algerlega lýðræðisleg og
undir stjórn almennings sjálfs.
Leiðtogar hreyfingarinnar virtust
mér afar duglegir og vel mentaðir
karlar og konur, með mikla ábyrgð-
artilfinningu og áhugasamir sam-
vinnumenn.
Rússneska þjóðin hefir þjáðst
mjög á stríðsárunum végna skorts á
nauðsynjavörum. Föt eru slitin og
mikið af þeim úr lélegu efni. Mest-
allri framleiðslugetu landsins á
þessu sviði hefir auðvitað verið
beint að því að klæða Rauða her-
inn, sem er framúrskarandi vel út-
búinn. — Þjóðveg"jar eyðilcigðu mik-
ið ef vefnaðarvöruverksmiðjunum.
Þrátt fyrir matvæla- og klæða-
skort er sovétþjóðin full af lífs-
Aburðarverksmiðjumálið
(Framhald af 1. síðu).
samkvæmt tillögu meirihluta land- ^
búnaðarrnálanefndar deildai innar,
Eiríks Einarssonar, Haralcfar Guð-!
mundssonar og Kristins E. Andrés-
sonar. En meirihluti nefndarinnar
lét svohljóðandi álit fyigja dag-
skrártillögunni:
„Nefndin hefir ekki orðið sam-
mála um afgreiðslu frumva-psms.
Minnildutinn (P. Hermannsson <>g
Þorst. Þorst.) leggur til að frv:
verði samþykt óbreytt. Hinsvegar
ílíta undirritaðir réttast, að það
ái afgreiðslu með rökstuddri dag-
krá. Því til stuðnings skal hér að-
eins bent á þau meginatriði. er
gera dagsktárafgreiðslu eðlilega.
1. Samkvæmt frumv. svo sem
aað liggur néi fyrir, er engin tíma-
bundin ákvörðun um það, hvenær
verksmiðjan skuli reist, og er þacð
alveg á valdi ríkisstjórnarinnar.
Verður eig-i séð, að samþykt frv. að
ressu sinni sé því til trygginga ■ - að
verksmiðjan verði reist svo fljott,
að nokkur frestun á lagasetningu
þurfi að verða málinu til tafar. í
frv. eru einmitt áskildar áætlanir
og aðgerðir af hálfu ríkisstiórnai -
innar, áður en til nokkurta fram-
kvæmda kemur, og kann slíkt, ef
vandvirknislega á að ver? gert, að
verða nokkuð tímafrekt.
2. Jafnframt er þess að gæta, að
mjög hefir vet ð geit að ibtamáli
ivort meginatiiði (áburða'tegnnd
o. s. frv.), er lagasetningin og ann-
ar undirbúningur byggist i. sé svo
gaumgæfilega rannsakað og ujidh-
búið, að lagasetr.ing sé tímabæi*.
3. Með því að nýbyggyiganáð
hefir nú til meðferðar mál þau, er
lúta að heildarskipun og endur-
reisn ísl. atvinnulífs til iands og
'jávar, er langeðlilegast, að ráðinu
sé falinn endanlegur undirbúning-
ur þessarar 'lagasetningai. Er
áburðarverksmiðja vissulega einn
fjöri, sem vekur bæði undrun og
aðdáun aðkomumanna. Þetta fólk
nýtur sannarlega lífsins. Því finnst
það vera þátttakandi í þjóðaráætl-
un. Það er næstum barnalega ham-
ingjusamt og mannlegt. Öllum
stéttamismun og öðrum tálmunum
heíir verið rutt úr Vegi þess. Braut
þess er hrein, og það trúir á fram-
tíðina.
Mjög sjaldan í sögu mannkynsins
er hægt að segja, að skcipunarmætt-
inum hafi verið gefin laus taumur,
að hæfileikar manna hafi fengið að
njóta sín fullkomlega. Þetta átti sér
stað á ítalíu á endurfæðingartíma-
bilinu. — Skoðun mín er, að sams-
konar leysing úr læðingi hafi farið
frani í Rússlandi og hvergi annars-
staðar í heiminum í svo stórum stíl
eða með svo glæsilegum fyrirheit-
um. .
Ef hægt er að tengja reynslu og
lnigsjónatrú bretsku þjóðarinnar
við trú og raunsæi rússnesku þjóð-
arinnar, mun verða liægt að binda
endi á þetta langa hörmulega tíma-
bil skorts og stríðs og byrja nýja
öld öruggs friðar.
Þessi tvö lönd verða að vinna
‘ saman.
þátturinn í því mikla verkelni, er
fyrir nýbyggingarráði liggur
4. Ýmis ákvæði frv. geta hæglega
brotið í bág við hagkvæmustu
skipan þessa máls, er gaumg.efi-
’.egum undirbúningi lýkur, og er
af þeirri ástæðu óeðlilegt að flýta
cagasetningunni á þann hátt sem
ætlast er til af þeim, er vilja sam-
þykkja frv. nú.
Einmitt alf því, að málið er stcir-
vægilegt og líklegt, ef rétt er að
farið, að verða mikilvæg lyftistöng
fyrir íslenskan landbúnað, ber að
vanda svo vel til alls undirbúAings,
að því þurfi ekki síðar unf að
kenna, að með fiaustri hafi verið
gengrð þar til veiks, sem svo mikið
er undrr komið, að vel megi takast.
Má vænta þess, að ríkisstjórn og
nýbyggingarráð taki áburðarverk
smiðjumálið svo bráðlega sem við
verður komið til gaúmgæfilegs
undirbúnings og leggi síðan frarn
frumvarp um stofnun verksmiðj-
unnar, og jrykir því rétt að afgreiða
^ frumv. það, er hér liggur fyrir,
með svofeldri rökstuddri dagskrá.
j I trausti þess, að ríkisst jórnin feli
j nýbyggingarráði nauðsynlegan og
i ýtarlegan undirbúning áburðar-
I verksmiðjumálsins og leggi síðan
fyrir Alþingi frumvarp til laga um
I áburðarverksmiðju, þykir eigi
! ástæða til að samþykkja frv. það, er
i hér liggur fyrir, og tekur deildin
því fyrir næsta mál á dagskrá“.
Vilhjálmur Þór „gleymdi" Akur-
eyri.!
! Eins og meirihluti nefndariitnar
bendir á í áliti sínu, er undirbún-
ingur málsins furðu flausturslegur
og áætlanir þær, sem það er bygt á
svífa bókstaflega í' lausu lofti. I
frumvarpinu er hvergi gert ráð fyr-
ir því hvar verksmiðjan skuli
reist» úmhyggja V. Þór fyfir Akur-
eyri var ekki meiri en það, að ekk-
ert orð er um það í frumvarpinu,
að verksmiðja sku'li reist hér eins
og „Dagur“ gefur í skyn. Ennfrem-
ur er ekkert ákvæði um það í
frumvarpinu, hvenær verksmiðjan
skuli bygð, samkv. frumv. á það
bara að vera komið undir geðjióita
ríkisstjórnar. Samkvæmt þessu
fræga frumvarpi svílfur alt í lausu
lofti með hvaða kjörum verði hægt
að fá orku til verksmiðjunnar, en
það er þó einn aðalútgjaldaliður-
inn að væntanlegum verksmiðju-
rekstri.
Þá er það mjög mikið vafamál
enn, hvaða áburðartegund sé heppi-
legast að framleiða. Eðlilega skifttr
það ekki litlu að úr því verði skoi-
ið meðgaumgæfilegumathugunum.
Er frumvarpið sem sagt í heild
sinni þannig úr garði gert, að |>að
bendir eindregið til þess að Frani-
sókn sé engin alvara með þaó enn,
að mál jætta verði leyst á skynsam-
legan og hagkvæman hátt, og er
Jrað líka í lullu samræmi við nær
tveggja áratuga svefn „bændavin
anna“ í þessu og ciðrum velferðar-
málum landhúnaðarins.
Framkoma Framsóknar þessu
máli mun því reynast féleg flík til
að breiða yfir svik hennar í hafnai-
mannvirkjamálinu á Oddeyrar-
tanga.
V