Verkamaðurinn - 08.09.1945, Blaðsíða 1
XXVIII. árg. Laugardaginn 8. september 1945. 33. tbl.
Hneykslismál Stefáns
og Claessens
Dómsmálaráðherra verður að fyrirskipa op-
inbera rannsókn í málinu og víkja Stefáni
Jóhanni úr samninganefndinni í Danmörku.
Bærinn verður að fá
minsta kosti 2 togara
Ekkert innanlandsmál hefir um
margra ára skeið vakið eins mikið
umtal og hneykslismál þeirra Stef-
áns Jóhanns og Arent Claessens.
Voru meginatriði málsins rakin í
síðasta blaði og skal Iiér gerð nánari
grein fyrir þessu athyglisverða máli.
Sem fyr er sagt fóru þeir Stefán
Jóhann og Arent Claessen til Sví-
þjóðar í byrjun þessa árs til að gera
þar verslunarsamninga fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar.
Það verður ekki hjá því komist að
segja þann sannleika, að fyrnefnd-
ir samningamenn hafi við samning-
ana mjög alvarlega brugðist því
trausti er þeim var sýnt.
Þess þarf vitanlega ekki að geta,
að áður en nefndarmennirnir leggja
af stað eru þeim gefnar upplýsingar
og fyrirmæli um tegund og magn
þeirra vara, er brýnust þörf sé fyrir
að fá.
Hvernig sömdu þeir?
Samt semja þeir Stefán Jóhann
um — svo dæmi séu nefnd:
a) Innflutning á rakblöðum og
rakvélum fyrir 350 þús. ísl. króna,
þótt til séu í landinu 5 ára birgðir
af rakblöðum.
b) Innflutning á 7000 tonnum af
pappír og pappa, þótt hér heima
séu til brigðir af þessum viirum til
næstu áramóta og ársþörf okkar
talin vera ca. 4000 tonn.
c) Samið var um innflutning á
varahlutum í sænskbyggðar bátavél-
ar fyrir aðeins 150 þús. ísl. kr., þrátt
fyrir það, að skortur hefir verið á
slíkum varahlutum hér öll stríðsár-
in og aðalatvinnuvegi íslendinga
væri óhjákvæmileg nauðsyn að fá
sem mest af þessum hlútum og sem
fyrst.
d) Aftur á móti sömdu þeir Stef-,
án Jóhann um innflutning á ísskáp-j
um fyrir 600 þús. kr. — En það
verður e. t. v. skiljanlegra, þegar
það er athugað, að Arent Claessen
notaði sömu ferðina til þess að
krækja í einkaumboð til handa
Hauki syni sínum fyrir sænska raf-
tækjafirmað Elektrolux.
e) Þá sömdu þeir Stefán Jóhann
um innflutning á aðeins 5000
standördum af timbri, þótt óskað
muni hafa verið eftir helmingi
meira magni.
auðvitað litið á það sem meginverk-
efni nefndarinnar að fá útflutnings-
leyfi fyrir þessu tunnumagni.
Nefndin leysti þetta hlutverk
þannig af hendi, að hún fékk að-
eins útflutningsleyfi fyrir 125 þús.
tunnur, eða nákvæmlega jafnmörg-
um og Svíar vilja kaupa af okkur,
og er Svíum þar með gefin fullkom-
in einokunaraðstaða um kaup á ís-
lenskri síld, þar eð ókleyft var með
öllu að fá tunnur annarsstaðar.
Einsdæmi í milliríkjaviðskiftum.
Þegar ríkisstjórn sendir fulltrúa
til að gera viðskiftasamninga við
erlendar þjóðir, standa þeir að sjálf-
sögðu í stöðugu skeytasambandi við
hana, og skýra frá hvar samningum
sé komið í meginatriðum. Svo mun
og hafa verið með þessa dæmalausu
nefnd. Þegar málum er svo komið,
að nefndarmenn telja rétt sé að
semja, óska þeir umboðs til undir-
skrifta. Þessi nefnd mun hafa sótt
fast að fá slíkt umboð, og fengið
það, sem aðrar hliðstæðar nefndir,
í trausti þess, að upplýsingar þær,
sem stjórnin hafði fengið, væru
réttar og tæmandi og nefndarmönn-
um væri trúandi til að ganga frá
formsatriðum. En svo gjörsamlega
hafa þessir menn brugðist traust-
inu, að þeir gefa beinlínis rangar
upplýsingar um skilning Svía á
samningunum, meira að segja eftir
að þeir komu heim. Þeir halda því
fram, að samningurinn feli aðeins
í sér útflutningsleyfi á vörum frá
Svíþjóð án skuldbindingar um, að
Framhald á 2. síðu.
STUTTAR FRÉTTIR
Franco hefir samkvæmt skipun
Sovétríkjanna, Bretlands, Banda-
ríkjanna og Frakklands flutt her
sinn frá Tangier.
Þýsk stjórn hefir verið myndnð
í Þýskalandi á hernámssvæði Sovét-
ríkjanna. í henni eru 5 kommúnist-
ar, 5 sósíaldemokratar, 2 kristilegir
lýðræðissinnar og 1 utanflokka.
Uppgjafarskilmálarnir, sem
Bandamenn settu Japönum, voru
undirritaðir skömmu eftir mið-
nætti sl. sunnudagsnótt, og í nótt
sem leið var Tokio hernumin af
Fyrir síðasta fundi bæjarstjórnar
lá erindi frá Helga Pálssyni, ' for-
manni Sjálfstæðisfél. Ak., þar sem
lagt er til að bæjarstjórnin geri
nauðsynlegar ráðstafanir til þess að
tryggja að hingað í bæinn komi 2
af þeim 3 togurum, sem ríkisstjórn-
in hefir fengið leyfi til að láta smíða
í En,glandi. — Samþykti bæjar-
stjórnin að vísa málinu til fjárhags-
nefndar og útvegsmálanefndar.
Væntanlega afgreiðir bæjarstjórn
þetta mál mjög fljótlega og tekur
þá skynsamlegri afstöðu en hún
hefir gert undanfarin ár í útgerðar-
málunum. En eins og kunnugt er
hafa margsinnis verið bornar fram
tillögur í bæjarstjórn um, að bær-
inn hlypti undir bagga með útgerð-
inni í bænum á þann hátt, að kaupa
togara eða á annan hátt. Framsókn-
armenn hafa ætíð lagst á móti slík-
um tillögum og Sjálfstæðismenn
auðvitað ekki haft aðra skoðun. En
nú virðast sinnaskifti á því heimili,
þar sem formaður Sjálfstæðisfél, tel-
ur ástandið í bænum undir sameig-
inlegri stjórn Framsóknar og Sjálf-
Mao Tse-tung
vongóður.
Tsjang Kai Sjek og Mao Tse-
tung halda enn áfram viðræðunum
um einingu kínversku þjóðarinnar.
í viðtali við blaðamenn sagðist
Mao leggja áherslu á að almennar
kosningar færu sem fyrst fram í
Kína og að allir pólitískir flokkar
fengju að taka þátt í þeim. Sagðist
Mao vera vongóður um árangur af
viðræðunum.
Réttarhöldunum í máli
Quislings lokið.
Réttarhöldunum í máli Quislings
lauk í gær og flutti þá Quisling
varnarræðu sína. Sakadómari tætti
sundur ræðu verjanda Quislings lið
fyrir lið. Búist er við að dómurinn
falli í næstu viku.
Verðjöfnunargjaldið fyrir
mars kr. 963.273.32.
Fiskimálanefnd hefir nýlega lok-
ið við að reikna verðjöfnunargjald
fyrir mars-mánuð, og skiftist verð-
uppbótin þannig milli verðjöfnun-
arsvæðanna:
Faxaflói: Kr. 450.634.68.
Breiðafjörður að Bíldudal: Kr.
39.469.03.
Vestfirðir: Kr. 139.614.02.
Austfirðir: Kr. 33.481.44.
Vestmannaeyjar, Stokkseyri og
Eyrarbakki: Kr. 300.074.15.
stæðisfl. orðið svo ískyggilegt, að
þessir flokkar verði að taka upp
aðra stefnu í útgerðarmálunrun í
bæjarstjórn en þeir hafa fylgt und-
anfarin' ár. Má segja að betra sé
seint en aldrei.
| Ríkisstjórnin að meðtöld- í
I um ráðherrum Alþýðufl. i
| kveður niður lygar Alþýðu-1
| bl. um Fiskimálanefnd. |
1 Ríkisstjórnin hefir gefið út eftirfar- \
I andi yfirlýsingu: |
| „Undanfarna daga hafa staðið yfir \
i samtöí mifli Fiskimálanefndar og ftilí- i
1 trúa fyrir Færeyinga út af ýmsum 1
i vafa- og ágreiningsatriðum í sambandi i
i viö íramkvæmd samnings þess er gerð- [
i ur var í umboði Alþingis. og ríkis- \
i stjórnarinnar 9. febrúar síðasthðinn \
i um leigu á færeyskum skipum til fisk- I
i flutninga. Samtölum þessum ér nú i
: lokið með fylsta samkomufagi aðila i
i um öll þau atriði, sem nokkuð bar í :
i milli um.
i Ríkisstjórnin telur rétt að geta i
i þess, .að Fiskimálanefnd hefur gefið i
: stjórninni allar þær upplýsingar sem i
| óskað var eftir"
*lliiiiniiinii ii ii iii 111111111111111111 iii ii iiiiiiiiii iii itiitiiiiiiniiiiiit iii?
r, ■— ’ ■■— - ?
Málshöfðun gegn
9 mönnum.
Dómsmálaráðuneytið hefír fyr-
irskipað málshöfðun fyrir brot á
10. kafla hegningarlaganna, gegn
9 af þeim mönnum, er hernaðar-
yfirvöldin höfðu handtekið og
afhent íslenskum yfirvöldum og
eru mennirnir þessir: .Ernst
Fresenius, Sigurður Norðmann
Júlíusson, Hjalti Björnsson,
Magnús Guðbjörnsson, Sverrir
Matthíasson, Einar Björn Sig-
valdason, Lárus Sigurvin Þor-
steinsson, Guðbrandur E. Hlíð-
ar og Jens Björgvin Pálsson.
Happdrætti S. í. B. S.
Samband íslenskra berklasjúklinga
hefir efnt til happdrættis til ágóða fyrir
vinnuheimilissjóð sinn. Meðal vinning-
anna er 2ja sæta flugvélogflugnám, Jepp-
bíll, píanó, flugferð til New York og
margir aðrir ágætir vinningar. — Happ-
drættismiðarnir fást í Bókabúð Akureyr-
ar og í Söluturninum við Hafnarstræti.
Sálmabókin
komin.
BÓKABÚÐ AKUREYRAR
f) Búið var að festa kaup á 185
þús. síldartunnum í Sviþjóð og var bandarísku herliði,